Þjóðviljinn - 12.10.1977, Side 12

Þjóðviljinn - 12.10.1977, Side 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 12. október 1977. MINNING Q RÍKISSPÍTALARNIR lausar stöður LANDSPITALINN HJÚKRUNARFRÆÐINGAR og SJÚKRALIÐAR óskast til starfa á hinum ýmsu deildum spitalans nú þegar eða eftir samkomulagi. Vinna hluta úr fullu starfi svo og einstakar vaktir kemur til greina. Upplýsingar veit- ir hjúkrunarforstjórinn simi 29000. SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA Eirfksgötu 5 ■ Sími 29000 BLAÐBERAR Heilsubót fyrir unga sem aldna. Eftirtalin hverfi eru laus til umsóknar: Neðri- Hverfisgata Laufásvegur Þórsgata DJÚÐV/U/m 8 13 33 Sogamýri Seltjarnarnes Verið með í blaðberahappdrættinu frá byrjun. Lífeyrissjóður byggingamanna Lánsumsóknir þurfa að hafa borist skrif- stofu sjóðsins fyrir 18. október n.k. Stjórn Lifeyrissjóðs byggingamanna V inningiir Vinningur i merkjahappdrætti berklavarnardagsins 1977 kom á miða númer 17989 S.Í.B.S. Auglýsing í Þjóðviljanum ber ávöxt Björn Ingi r Asgeirsson I dagferframútförBjörns Inga Asgeirssonar til heimilis að Rán- argötu 13 hér i borg, en hann lést að kvöldi 4. þessa mánaðar eftir langa og stranga sjúkdómslegu aðeins 43 ára að aldri. Björn var fæddur i Reykjavfk 18. febrúar 1934 sonur hjónanna Ásgeirs V. Björnssonar verslunarmanns og konu hans Dagbjargar Þórarins- dóttur og elstur fjögurra barna þeirra hjóna. Björn lauk prófifrá Samvinnu- skólanum árið 1953 og starfaði siðan að verslunar og skrifstofu- störfum til dauðadags, fyrst hjá G. Helgason & Melsteð, en síðar er vinur hans og starfsfélagi Ein- ar Farestveit stofnar sitt eigið fyrirtæki, Einar Farestveit & Co, réðst hann til hans og starfaði þar allar götur siðan. Fleiri urðu vinnustaðirnir ekki á lifsleiðinni og lýsir það best helstu eiginleik- um Björns , trúmennskunni og trygglyndinu. Viljum við fjöl- skylda Björns færa þeim feðgum Einari og Arthúri Farestveit al- úðar þakkir fyrir hve vel þeir reyndust Birni i veikindum hans. Björn hafði mikið yndi af ferða- lögum og eru þeir áreiðanlega fá- ir staðirnir hér á landi sem hann hafði ekki séð jafnt i byggð sem óbyggð. Þá starfaði hann mikið áður fyrr i skátahreyfingunni og hjálparsveit skáta og eignaðist þar marga vini og kunningja. 1 foreldrahúsum var Björn þar til hann var 39 ára gamall. Það fór þvi ekki hjá þvi að hann kynntist systkinabörnum sfnum náið þegar þau voru að heim- sækja ömmu og afa, enda var hann barngóður með afbrigðum. Nafnið Björn frændi var þvi alltaf nefnt með stolti og aðdáun i þeirra hópi. Þessir eiginleikar áttu eftir að koma sér vel siðar þvi fyrir tæpum 4 árum gengur hann að eiga eftirlifandi konu sina Jóhönnu Steindórsdóttur en hún átti þrjú börn frá fyrra hjöna- bandi. Reyndist hann uppeldis- börnum sinum sannurfélagi og er hans þar nú sárt saknað. 1 sinu hamingjurika en alltof skamm- vinna hjónabandi eignuðust þau eina dóttur Ragnheiði Birnu sem núer aðeins á þriðja ári. Jdhanna ersjúkraliði að menntogkom það sér vel i veikindum Björns en hún hjúkraði manni sinum af miklu hugrekki og ástúö þar til yfir lauk. Björn var handlaginn með af- brigðum og lék allt i höndum hans, enda var það eigi ósjaldan sem móðir hans sagði stolt er hann hafði lokið við að dytta að einhverju, „hannBjörn minn get- urallt”,og var þar ekki um neina oftrú móður á syni að ræöa, hann Björn gat allt. Og þegar kom að þvi að hann stofnaði eigið heimili komu þessir kostir i góðar þarfir. Þau hjónin keyptu fokhelda ibúð að Ránargötu 13 sem hann var langt kominn með að innrétta þegar kallið kom, kallið sem við vitum öll að kemur einhverntima en erum alltaf jafn óviðbúin að mæta og kemur stundum svo allt- of fljótt. Og nú er leiðir skiljast að sinni vil ég þakka Birni mági minum alla hjálpsemina, vinátt- una og tryggðina þau sautján ár sem við þekktumst. Blessuð sé minning hans Sigurður Guðmundsson MINNING Torfi Guðbjartsson flugvirki Fréttin um dauða Torfa kom okkur félögum hans i Flugvirkja- félaginu , mjög á óvart, þvi ekk- ert fararsnið var á honum. Það minnir okkur á þá staðreynd, hvað lifið er hverfult. Það er reynsluskóli og reynir þá á ýmsa þætti I lifi hvers manns. Einn af þeim þáttum er lifsstarf viðkomandi. Torfi var útlærður rafvirki þegar hann fékk áhuga á flugvélum og tækjabúnaði þeirra, en þær hafa heillað margan ung- an manninn. Réðst hann þvi i að læra flugvirkjun, þvi þá fékk hann áþreifanlegt tækifæri til að kynnast þvi tækniundri sem flug- vélin er. Torfi reyndist mjög áhugasamur við öll flugvirkja- störf og átti auðvelt með að leysa tæknileg vandamál. Þá var hann strangur við sjálfan sig og aðra bækur Khrushchev Remembers. Vol I. Translated and edited by Strobc Talbott with an Introduction, Commentary and Notes by Edward Crankshaw. Vol. II —With a Foreword by Edward Crankshaw and an Introduction by Jerrold L. Schecter. Penguin Books 1977. við að fylgja hinum margvislegu reglum varðandi öryggi flugsins. Þegar þessi sundurlausa og langa minningabók kom fyrst út i Bandarikjunum, álitu margir að um fölsun væri að ræða en fljótl. þögnuðu þær raddir, sem efuðust um að minningarnar væru i raun- inni eftir höfundinn. t formála að öðru bindi rekur Crankshaw þessa sögu og segir frá tilorðn- ingu bókarinnar. Höfundurinn rekur sögu sina frá byltingatim- unum og til þess að hann er kom- inn á eftirlaun. Hann f jallar mikið um utanrikispólitik þau ár sem hann var við völd og um menn og málefni.sem þá var viðaöglima. Hann segir litið frá þeim atburð- um sem urðu til þess aö hann missti völdin, og hann gat þakk- að sjálfum sér að hann hélt lifi. Hann hafði fyrst þann hátt á, eftir fall Beria, að þyrma lifi valda- manna; Malenkov og Molotov héldu lifi, þegar Krutsjoff hratt þeim úr valdastólum. Þetta er snakk-bók, að þvi leyti, aö höf- undur segir söguna sem er jafn- óðum tekin upp á segulbönd og siðan unnin af þeim. Samanburð- ur höf. við Bandarikin er áber- andi, afhverju standa Rússar ekki Bandarikjamönnum jafnfæt- Var honum þvi sýnt verðugt traust, er hann var skipaður yfir- flugvirki Landhelgisgæslunnar. 1 því starfi, sem áður, reyndist hann jákvæður og geðprúður maður og þvi gott að vinna undir hans stjórn. Sakna starfsfélag- arnir hans þvi mjög og finnst vandfundinn maður i hans stað. I janúar 1966 gekk hann i Flug- virkjafélag Islands og sýndi á- vallt þann áhuga og þroska sem er stéttarfélaginu svo mikils virði. Við fráfall Torfa er horfinn, langt fyrir aldur fram, einn af góðum sonum þessa lands, en minning hans mun lifa i hugum okkar sem kynntumst honum. Konu hans, Ingibjörgu Hall- dórsdóttur og sonum, vottum við okkar dýpstu samúð og biðjum Guð um styrk þeim til handa i sorg þeirra. Flugvirkjafélag tslands. Khrushcev is i þessu og hinu, og svo eru ástæðurnar raktar. Kinamálin skipa talsvert rúm i ævisögunni og Kinverjum er kennt um hvernig samvinnan fór út um þúfur. Stalin er önnur höfuðpersóna bókarinnar og áhrifa frá honum gætir einnig eftir það, að höfundurinn afneitar honum. Hann segist ekki óttast það, að vera opinskár, því að flokkurinn hafi viðurkennt skekkjur sinar og muni ekki endurtaka þær 1 bókarauka er leyniræða Krutsjoffs birt frá 4. júni 1956. En hún vakti heimsat- hygli á sinum tima.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.