Þjóðviljinn - 12.10.1977, Síða 13
Miðvikudagur 12. október 1977. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 13
Ætla ad skutla físk
í Sídumúlapollunum
Þeir heita Bjarni og Viöar og
voru i gærmorgun að brjóta
skænið af pollunum i grunnin-
um, sem verið er að grafa við
hlið Þjóðviljahússins i Siðu-
múla. Það eru stórir pollar og
hafði hemað á þá alla um nótt-
ina. Þcgar Ijósmyndari Þjóð-
viljans smellti mynd af þeim
höfðu þeir brotið isinn af öllum
pollunum nema einum.
— Ætlið þið ekki að leggja i
pollinn sem eftir er?
— Ertu alveg spinn, manni,
— Af hverju skiljið þið hann
eftir?
— Við ætlum að biða þangað
til isinn verður orðinn svona
þykkur, sögðu strákarnir og
sýndu með höndunum. Svo ætl-
um við að bora gat á isinn og
veiða fisk i gegnum holuna. Það
verður kannski á morgun.
— Eigiði færi?
— Við ætlum ekkert að nota
færi. Við ætlum að fá lánað
spjótið hjá bróður minum, sagði
annar strákurinn og stinga fisk-
inn með þvl.
Þá rak okkur minni til þess að
nýverið var endursýndur i sjón-
varpi þáttur um lif Eskimóa i
Alaska, þar sem þeir meðal
annars sátu á hækjum sinum á
isnum og dorguðu sel. Strákun-
um hefur ekki þótt Siðumúla-
pollar selalegir, en frekar talið
veiðivon i fiski. Skutulshug-
myndin gæti verið komin úr
sjónvarpsþáttum um veiðitæki
Eskimóa.
En mitt i slysaöldu er vert að
minna alla krakka á að fara
varlega i pollaleikjum. Af veiði-
pollinum er það þvi miður að
frétta að sólin og hrekkjusvinin
voru i sameiningu búin að
eyðileggja allt um hádegið. Þar
verður þvi enginn fiskur skutl-
aður i dag, nema að fryst hafi
hressilega i nótt. —ekh
Frá vetrarstarfi
Samvinnuskólans
Vetrarstarf Samvinnuskólans
er nú hafið. Nokkrar breytingar
verða á kennaraliði. Tveir kenn-
arar láta af störfum og flytja til
Reykjavikur, Þorbjörg Bjarnar
Friðriksdóttir, tungumálakenn-
ari og Guðmundur Arnlaugsson,
félagsmálakennari. I stað Þor-
bjargar hefur Sveinn Rögnvalds-
son BA verið ráðinn að skólanum
Pípulagnir
Nýlagnir, breyting-
ar, hitaveitutenging-
ar.
Sími 36929 (milli kl.
12 og 1 og eftir kl. 7 á
kvöldin)
en Guðmundur Guömundsson
tekur við félagsmálakennslunni,
en hann er nýkominn frá tveggja
ára námi I Sviþjóö, þar sem hann
lagði stund á félagsstarf i skólum.
Þá verður og bætt við kennara I
verslunargreinum og er það Sig-
uröur Sigfússon, sem lengi var
verslunarráðunautur hjá Skipu-
lags- og fræösludeild SIS en hcfur
undanfarið starfaö hjá Innflutn-
ingsdeild.
I haust hefur 121 nemandi nám
við Samvinnuskólann, i 6
bekkjardeildum. 40 nemendur
eru i framhaldsdeild skólans i
Reykjavik og 81 i Bifröst. Þar af
eru 18 i 4.bekk, 22 i 3. bekk, 44 i 2.
bekk og 37 i 1. bekk og voru þeir
valdirúrhópi 196umsækjenda sJ.
vor. Nú er 1. og 2. bekk iBifrösti
fyrsta skipti skipt i 2 bekkjar-
deildir hvorum,svo aö þær eru nú
4 i Bifröst.
Meðal nýjunga aö Bifröst má
nefna þaö,að nemendurbúa nú I 5
orlofshúsum starfsmanna á
staðnum, auk heimavistar. I
sumar hafa einnig verið settar
nýjar innréttingar i' 18 íbúðarher-
bergi nemenda, sem gjörbreyta
þar allri aðstöðu til batnaðar.
A námsefni i Bifröst verður
gerð litilsháttar breyting, sem
einkum miðar að þvi að leggja
aukna áherslu á þær námsgrein-
ar, sem varða verslun og búða-
störf. Þá leggur skólinn einnig að
vanda mikla áherslu á félags-
málakennsluna og alhliða félags-
lega uppbyggingu nemenda
sinna.
(Heimild: Sambandsfréttir)
—inhg
uíGTn
w JL i9 JL Jw
smáauglýsingahappdrætti
Allir þeir sem birta smáauglýsingu í VÍSI átimabilinu
15-9 til 15-10 -’77 veróa sjálfkrafa þátttakendur í
smáauglýsingahappdrætti VÍSIS
FRÁ FÁLKANUM fKEh IWOQD
Ifffff
g|gJ|ÖdB.
V 8BBBBB cQd ®:|
e « e <9
u e e tp
Vinningurinn
KENWOOD hljómtæki
verður dreginn út 15-10-77
Smáauglýsingamóttaka I slma 86611
alla daga víkunnar kl.9-22 nema
laugardaga kl. 10 12 og
sunnudaga kl. 18 22 (6-10 e.h.)
sími
86611
O
Smáauglýsing i VÍSI er engin
ma
auglýsing
Lóðaúthlutun
í Garðabæ
Auglýst er eftir umsóknum um nokkrar
lóðir i Búðahverfi i Garðabæ fyrir einbýl-
ishús, raðhús og iðnað. Þar sem iðnaðar-
lóðirnar eru við ibúðasvæði kemur ein-
vörðungu til greina atvinnustarfsemi
(framleiðsla, skrifstofuaðstaða og söluað-
staða fyrir framleiðsluvörurnar), sem
ekki veldur ibúum nálægra svæða óþæg-
indum. Gert er ráð fyrir þvi, að lóðirnar
verði byggingarhæfar i júli 1978.
Óskað er eftir umsóknum um lóðirnar fyr-
ir 20. október 1977, og óskast eldri um-
sóknir endurnýjaðar.
Skipulagsuppdráttur af svæðinu liggur
frammi á skrifstofu Garðabæjar, Sveina-
tungu, sem veitir nánari upplýsingar
(simi 42678/42698).
Bæjarstjóri.
® Blikkiðjan
t
Ásgarði 7, Garðabæ
önnumst þakrennusmíði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmiði.
Gerum föst verðtilboð
SÍMI53468