Þjóðviljinn - 23.10.1977, Qupperneq 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 23. október 1977
prnm
wmm
AiVt:
margar
hitaemlngar
í smurðu
brauði?
Vonandi hefur enginn gefist
upp á megrunarkúrnum, þrátt
fyrir verkfallið i sjónvarpinu.
Hér er tafla yfir hitaeininga-
fjölda i smurðu brauði, en
mörgum reynist erfitt að átta
sig á hveru margar hitaeiningar
cru i brauði með áleggi. Sömu-
leiðis er hér hitaeiningafjöldi
kaffis með og án sykurs og
rjóma ;oO gr. mjóik inniheidur
um 65 hitaeiningar og 100 gr af
Tropicana um 50 hitaeiningar.
1/2 rúgbrauðsneið eöa 1 fransk-
brauðsneið ca, 20 g + 4-5 g
smjör + álegg i þvi magni sem
greint er að neðan.
Samtals: Hitaeiningar
Brauðsneið án áleggs........80
m agúrku, 35 g..............85
m eggi, 20 g................110
m eggi og tómat, lOg + 20 g.. 100
m flekssteik, 25 g ...........180
m itölsku salati, 30 g........200
m kartöflum, 20 g..............95
m kálfasteik, 20 g.............no
m kjötpylsu, 25 g.............150
m lifrarkæfu, 25 g............155
m reyktrisíld, 50 g...........175
m rúllupylsu, 20 g............150
m sardinum, 30g ..............200
m skinku, 15g...........130
m steiktu eggi, (8 g m jör) ... 220
m steiktu fiskflaki, 20 g....140
m steiktum hrognum, 25 g ... 135
1 bolli kaffi eða te án sykurs
og rjóma....................o-4
1 bolli kaffi án sykurs með 2
tsk. af róma................20
1 bolli kaffi + ca. 8 g sykur
+ 10 ml rjómi...............50
1 bolli te með 10 g sykur......40
til hnifs og skeidar
Umsjón: Þórunn Sigurðardóttir
Hnýtt og ssaumað fyrir gluggana
Hvað eru
Hér eru tvær gerðir af glugga-
tjöldum, sem báðar eru mjög
faliegar, en þarf taisverða iagni
til að búa til.
Vinstra megin eru
„macrame” tjöld, sem hnýtt
eru beint á gluggastöngina.
Þessi fallega handavinna er
mjög vinsæl um þessar mundir
og hægt er að læra „macrame”
bæði á sérstökum námskeiðum
og af bókum. Flestum ber þó
saman um, að ekki sé mjög
erfitt að læra þetta, en glugga-
tjöldin eru hnýtt úr þar til gerð-
um bómullarþræði.
Hin gluggatjöldin eru úr
þrenns konar efni, sem saumað
er saman og siðan eru saumuö
út i efnið dýr, tré o.fl. Þannig
verða gluggatjöldin likust vegg-
teppi. Þessi eru ætluð i barna-
herbergi, en bæði er hægt að
fylgja fyrirmynd, t.d. barna-
teikningu, eða gera myndina
algerlega eftir eigin höfði.
Það er kannski engin tilviljun
að óbleikað léreft og bómullar
blúndur skuli vera I tisku jafnt i
fatnað, dúka og gluggatjöld.
Óbleikað léreft er náttúrulegt
efni, sem er mjög þægilegt að
ganga i og það er fallegt og
sterkt og þolir suðu. Þessi
gluggatjöld eru gerð úr óbleik-
uðu lérefti,en siðan er bómull-
arblúnda úr gömlu sængurveri
notuðsem bekkur og heklaðar
„dúllur” úr bómullarþræði
saumaðar i efnið. A þessum
gluggatjöldum er reyndar einn-
ig klippt út kringlótt gat tilað annað til skrauts. Það eru ótelj- leg gluggatjöld úr lérefti og nál og hefur imyndunaraflið i
hengja i t.d. þurrkuð blóm eða andi möguleikar á að gera fal- blúndu ef maður kann á heklu- lagi.
V- ■ v
v
Svunta úr
plastpoka
Oll börn þurfa aö fá að sulla
svolitið af og til meö liti, vatn,
leir o.fl. Góð vatnsþétt svunta er
nauðsynleg til slikra starfa, en
ódýrust og þægilegust er liklega
þessi svunta, sem er gerð úr
venjulegum plastpoka.
Hankarnir eru axlabönd og
klippt er i gegnum botninn. Þar
með er komin þægileg svunta og
ekki dýrari en svo, að henni má
henda eftir notkun.