Þjóðviljinn - 23.10.1977, Page 3

Þjóðviljinn - 23.10.1977, Page 3
Sunnudagur 23. október 1977 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3 Konur segja frá kynlífi sínu hvernig það er, og hvernig þœr vildu að það vœri Nú er verið að þýða víða um lönd nýja bandaríska kynlífsskýrslu sem mikla athygli hefur vakið. Þar svara 3019 bandarískar konur löngum spurninga- skrám um alla skapaða hluti^allt f rá sjálfsf róun til hugmynda þeirra um það hvernig kynlífið ætti að vera. Shere Hite hefur skrifað þessa bók. Tilgangurinn með bókinni er sá að láta konur sjálfar um að skil- greina kynlif sitt. Shere Hite telst hafa aflifað margar lifseigar hug- myndir um kynlif kvenna i bók sinni. Hún viðurkennir t.d. ekki þá út- breiddu hugmynd að konur eigi erfiðara en karlar með að fá full- ( nægingu. Hún telur þess i stað, að það sé hin útbreidda skoðun að kynlif sé hið sama og samfarir sem verði að leiðrétta. Allt snýst um karlinn Flestar konur vita nefnilega mjög veí hvernig þær eiga að fara að þvi að fá fullnægingu. Af þeim 82% kvenna sem svöruðu tiltekn- um spurningum á þá leið að vist væru þær vanar að stunda sjálfs- fróun, kunnu 95% að ná auðveldri fullnægingu með þeim hætti. Vandinn er sá að mikill fjöldi kvenna virðist við samfarir ekki fá þá ertingu snipsins sem þær þurfa til að fá fullnægingu. Þær konur sem biða óvirkar eftir þvi að ,,fá” fullnægingu með mönnum sinum, verða oft fyrir vonbrigðum vegna þess að hinar hefðbundnu samfarir með forleik, innsetningu og útrás fyrir karlinn fullnægja þeim ekki, heldur karl- inum einum. Shere Hite segir, að þessi óvirka afstaða, þegar konan litur á sig sem þjónustuapparat fyrir karlinn hafi viðtækar afleið- ingar i samfélaginu. Shere Hite segir, að aukið kyn- ferðislegt frelsi, bættar getnaðar- varnir o.þl. hafi að sönnu opnað vissa möguleika á byltingu i kyn- ferðismálum, en enn sem komið er hafi i raun harla litið gerst. í ýmsum tilvikum táknar t.d. pill- an aukið álag á konur: þær eiga enn erfiðara með aðsegja neivið samförum, sem hagað er eftir þörfum karlsins fyrst og fremst. Er þörf fyrir hann? En þegar menn nú vita, að það er auðveldara fyrir konur að ná fullnægingu með sjálfsfróun en með samförum — er þá nokkur þörf fyrir karlmanninn nema til barneigha? Langflestar konur telja, að reyndar sé fullnægingin afar þýðingarmikill þáttur kynlifsins. En hún ein spanni það ekki allt. Það sé eins mikilvægt að upplifa það að vera i snertingu við aðra manneskju, hlýju, bliðu, eiga djúpar tilfinningar með einhverj- um sem þú lætur þér annt um. >** Nærvera, bliða, snerting... kynlff er fleira en fullnæging. Shere Hite lætur það lönd og leið að reyna að búa til einhvern nýjan mælikvarða til að miða við i þessum málum. Tilfinningar hverrar mannsekju verða að vera sá mælikvarði sem er gildur fyrir hana. Nógu góð aðferð? Shere Hite hefur lengi velt þessum málum fyrir sér. Hún tók þátt i umræðu kvennahreyfingar- innar m.a. um kynlifsskýrslur hjónanna Masters og Johnsons. Fyrri tilraun hennar til að safna i bók svörum við spurningalistum misheppnaðist. En hir. seinni hefur vakið mikla athygli. Alls sendi hún út 100 þúsund spurningalista — og hún fær 3% svör. Hún kveðst vel vita af þvi, að aðferð sin verði gagnrýnd fyrir það, að hún sé ekki nógu visinda- leg. Það sé fyrst og fremst viss tegund kvenna sem svari, meðan stórir hópar láta ekki til sin heyra. En Shere Hite svarar þvi til að svörin sjálf séu svo ótrúlega margbreytileg og komi frá kon- um úr allskonar umhverfi. Næstu bók sina ætlar hún að skrifa um karla. Áður en þessu stutta kynn- ingarspjalli lýkur, skal eitt tekið fram. Þær konur sem ná fullnæg- ingu með körlum sinum eru fyrst og fremst þær sem hafa sjálfs- traust og eru nógu þolinmóðar og hreinskilnar að geta leiðbeint þeim. Þvi karlar eru hinir mestu klaufar, að þvi er svör kvenn- anna herma: þær þrýsta á snip- inn eins og hann sé lyftuhnappur, segir þar (Byggtá DN) Shere Hite — næsta bókin verður um karla. SIMCA 1508 Sigraði næturrallið Enn einu sinni sigraði SIMCA i rall-akstri hér á landi. Bilnum var ekið stanslaust i rúmar 20 klst. 950 km. leið eftir einhverjum verstu vegum og vegleysum islands i næturralli Bifreiðaiþróttaklúbbs Reykjavikur um helgina 1. og 2. okt. Hvað bilaði? Einn pústbarki. Annað? Ekkert. SIMCA bilar frá CHRYSLER FRANCE hafa nú marg sannað ágæti sitt hér á landi. Vandlátir bilakaupendur velja sér SIMCA 1307 eða 1508, sem eru traustir og góðir fimmdyra, framhjóladrifnir og fimm manna fjöl- skyldubilar. Talið við okkur strax idagogtryggiðykkurSIMCA. \f ftkllH ÁRMÚLA 36, Símar 84366 - 84491

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.