Þjóðviljinn - 23.10.1977, Síða 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 23. október 1977
Málgagn sósíalisma,
xerkalýdshreyfingar
og þjóðfrelsis.
titgefandi: (Jtgáfufélag Þjóöviljans. Auglýsingastjóri: (Jlfar Þormóösson
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann Ritstjórn, afgreiösla, auglýsingar:
Ritstjórar: Kjartan Ólafsson, Svavar Siöumúla 6. Simi 81333.
Gestsson
Fréttastjóri: Einar Karl Haraldssan.
Umsjón meö sunnudagsblaöiJ Arni Berg-
mann Prentun: Blaöaprent hf.
Samstaða
til sigurs
Það er nú ljóst orðið að rikisstjórn Sjálf-
stæðisflokksins og Framsóknarflokksins
ætlar sér að knýja láglaunafólkið i BSRB
til nauðungarsamninga um lifskjörin.
Á föstudagsmorgni voru margir sæmi-
lega bjartsýnir á að samningar kynnu að
takast þann dag, en þá hafði verið gengið
frá samkomulagi um ýmsar sérkröfur,
sem áður var deilt um.
Þegar hins vegar að þvi kom, að ræða
meginmálin þ.e. launin sjálf og mannrétt-
indakröfuna um rétt til verkfalls ef
samningar verða sviknir af stjórnvöldum
— þá sýndi sig, að ráðherrarnir höfðu enn
ekkert að segja nema eitt stórt NEI.
Krafa ráðherranna var sú að laun allra
rikisstarfsmanna skyldu næstu tvö ár
verða i samræmi við samninga borgar-
stjórnarihaldsins við starfsmenn
Reykjavikurborgar og ekkert fram yfir
það. Þetta þýðir nánast sömu laun og
sáttatillagan, sem niu af hverjum tiu opin-
berum starfsmönnum felldu fyrir tveim
vikum, gerði ráð fyrir. Og ráðherrarnir
neituðu enn þverlega mannréttinda-
kröfunni um jafnrétti við almennu verka-
lýðsfélögin til aðgerða, verði samningar
sviknir.
Hrokafull neitun ráðherranna á föstu-
dag við réttlætiskröfum láglaunafólksins i
BSRB leiddi til þess að von manna um
samninga fyrir þessa helgi varð að engu.
Segja má að upp úr samningum hafi i
rauninni slitnað. Þótt boðað hafi verið til
sáttafundar á ný kl. fjögur i gær, laugar-
dag, er ekki úrslita að vænta, nema rikis-
stjórnin láti af óbilgirni sinni og komi til
móts við kröfur BSRB. Nú mun á það
reyna, hver stéttarlegur styrkur er fyrir
hendi innan raða BSRB. Sú þolraun sem
nú biður samtaka opinberra starfsmanna
kann að verða erfið, en mestu skiptir að
samstaðan haldist jafn góð og i öllum
undirbúningi deilunnar og i atkvæða-
greiðslunni um sáttatillöguna á sinum
tima. Verkföll eru ekki barnaleikur. Til
verkfallsvopnsins gripa menn ekki fyrr en
allar aðrar leiðir hafa reynst lokaðar. Svo
var i þessari kjaradeilu, eins og svo oft
áður. Þegar verkfall dregst á langinn eins
og nú er orðið, þá er allt undir þvi komið,
að liðsmennirnir hvar sem er i roðunum
standi fast að baki forystumönnum sinum,
og tryggi að enginn hlekkur bresti. Þannig
og aðeins þannig verður árangri náð.
í þessari erfiðu deilu hafa öll vinnu-
brögð forystumanna BSRB verið til mik-
illar fyrirmyndar, bæði áður og eftir að
verkfall hófst. Svo viðtækt félagslegt sam-
ráð sem verða má hefur verið haft við
hina almennu félagsmenn, bæði um kröfu-
gerð og allan gang deilunnar. öllum
upplýsingum hefur verið dreift jafnóðum,
og blaðamannafundir haldnir dag hvern.
Þetta er gott,en þetta er ekki nóg. Það er
hverju verkalýðsfélagi, og hverju stéttar-
félagi láglaunafólks dýrmætt að eiga
góða forystumenn. En menn skulu
minnast þess að góðir forystumenn gera
engin kraftaverk einir sér. í kjarasamn-
ingum geta samningamenn launafólks
aldrei náð neinum verulegum árangri
umfram það, sem svarar til hins félags-
lega styrks, sem að baki býr i röðum
þeirra liðsmanna, sem kallaðir eru
óbreyttir. Það er þessi félagslegi styrkur,
sem úrslitum ræður i hverri vinnudeilu, og
svo er einnig nú. Þessa ættu sem allra
flestir að minnast þegar harðnar á dalnum
Ef ráðherrar Sjálfstæðisflokksins og
Framsóknarflokksins, sem nú reyna að
kúga láglaunafólkið i BSRB til nauð-
ungarsamninga, finna að rógurinn i mál-
gögnum stjórnarflokkanna um Kristján
Thorlacius,Harald Steinþórsson og félaga
þeirra ber árangur, — ef ráðherrarnir og
skósveinar þeirra eygja lag til að sundra
röðum láglaunafólksins i BSRB, þá munu
þeir ganga á það lag og einskis svifast.
Þess vegna er allt undir samstöðunni
komið, hvort sem til samninga dregur eða
verkfallið heldur áfram. Þjóðviljinn
skorar á alla alþýðu að veita verkfalls-
mönnum fullan og öflugan stuðning bæði i
orði og verki, m.a. með myndarlegum
framlögum i verkfallssjóð BSRB. —k
Sólarorka unnin úr sjónum
í maí 1975 sýndi J.
Hilbert Anderson verk-
fræðingum og vísinda-
mönnum í fyrsta sinn
merkilega vél, sem færir
sér í nyt hinn mikla mun á
hitastigi milli yfirborðs
hafsins og kuldans í djúp-
unum til að framleiða raf-
magn. Áhorfendur voru
hrifnir: sýnt var f ram á að
OTEC (Hitaorkuvinnsla úr
hafinu) var framkvæman-
leg aðferð til að nýta sólar-
orku.
En sólarorka er mjög á dagskrá
vegna brýnnar þarfar á nýjúm
orkugjöfum.
Einföld aðferð
OTEC-orkuver mun nota hið
hlýja yfirborðsvatn (um 25 gráðu
heitt) til að hita upp og breyta i
gufu kælivökva sem hefur lágt
suðumark, til dæmis ammoniak.
Gufan mun knýja áfram rafal.
Neðansjávarstrengir munu senda
það rafmagn sem til verður til
strandar.
Gufan er leidd inn i þéttiklefa
þar sem kaldur sjór (um 5 gráða
heitur), sem dælt er upp af hafs-
botni, mun þétta gufuna aftur i
vökva. Kælivökvann er siðan
hægt að nota á nýjan leik við raf-
orkuframleiðslu.
Lykillinn að þessari tækni eru
hitabreytararnir tveir — upphit-
arinn og þéttirinn — sem pipur
margar liggja i gegnum og geta
látið sjóinn bæði hita og kæla
fyrrgreindan vökva án blöndun-
ar.
Margir kostir
OTEC gefur fyrirheit um orku
án eldsneytis og er þvi að verða
freistandi valkostur. Þessi aðferð
krefst ekki flókins tæknilegs bún-
aðar, og það þarf ekki að biða
eftir meiriháttar tæknilegum nýj-
ungum til að hægt sé að nota
hana. OTEC hefur þann kost fram
yfir vinnslu sólarorku á þurru
landi, að þar þarf að leggja veru-
legt flæmi undir orkuvinnsluna,
og auk þess stöðvast sú vinnsla
þegar sól er-ekki á lofti.
Bandariska orkumálastofnunin
ERDA vonast til þess að árið 1985
verði hægt að starfrækja sjávar-
orkuver sem borgi sig. Muni það
afkasta 100 megavöttum, en það
nægir 50 þúsund manna borg.
Fáir njóta eldanna
Anderson og sonur hans,
James, hafa þegar hannað minna
orkuver og einfaldara en ERDA
sýslar með — en gæti samt einnig
framleitt 100 megavött. Gæti það
orðið tilbúið árið 1981. En þeir
þurfa að komast yfir 150 miljónir
dollara til að framkvæma þá
áætlun sina.
Stórir auðhringar eru komnir i
spilið og það eru þeir er fá bróð-
urpartinn af opinberu fé til rann-
sókna og tilrauna. Til dæmis hef-
ur Lockheed fengið 328 þúsundir
dollara frá ERDA til athugana á
OTEC-orkuverum. Anderson-
feðgarnir þurftu ekki nema 39
þúsund dollara til að gera örku-
versmódel sitt, sem sýndi fram á
hagkvæmni þessarar aðferðar.
Eruð til eitthvað skrýtnir?
Hugmyndin sem að baki hinni
nýju aðferð liggur er ekki ný.
Franski eðlisfræðingurinn
d’Arsonval bar fram kenningar
sem gengu i sömu átt þegar árið
1881. Skömmu eftir 1920 smiðaði
franski verkfræðingurinn
Georges Claude litla OTEC-stöð
og prófaði hana um hrið við
strendur Kúbu.
En Andersonfeðgar hafa unnið
úr hinum fræðilegu möguleikum
með einföidum verkfræðihug-
myndum. Þeir hafa unnið að
verki sinu i fimmtán ár, en þegar
þeir byrjuðu töldu flestir þá smá-
skrýtna að fást við svo fárán-
legan hlut. Olian var enn mjög
ódýr og ekkert tómahljóð i
bensintönkunum.
Siðan 1972 hefur áhugi á hug-
myndinni hinsvegar farið ört
vaxandi. Nú er svo komið að
orkumálastofnunin ERDA veitir
19 miljónir dollara á ári til rann-
sókna á vinnslu sólarorku á hafi
úti.
Best verður að staðsetja OTEC-
orkuver þar sem munur á heitum
yfirborðssjó og köldum undirsjó
er mestur og jafn árið um kring —
eða 13-18 gráður. Sjórinn við
strendur hitabeltislanda ætti að
gefa mest af sér, en strendur
Karabiahafs lofa einnig góðu.
Rannsóknir á hugsanlegum
mengunaráhrifum frá OTEC-
orkuverum standa nú yfir.
(Byggt á Information)
Málverkasýnlng
TOMS KRESTESENS
í sýningarsölum Norræna hússins
er opin daglega frá kl. 14:00-19:00
til 30 október
Verið velkomin
NORRÆNA
HÚSIÐ
ÚTBOÐ
Tilboð óskast i eftirfarandi:
A. Hvassaleitisskóla, 3ja áfanga, sem er bygging á
iþróttahúsi og ofanábygging við skólann. Opnað þriðju-
daginn 29. nóvember næst komandi kl. 11 fyrir hádegi.
B. Hólabrekkuskóla, 2an áfanga. Opnað þriðjudaginn 22.
nóvember næst komandi kl. 11 fyrir hádegi.
(Jtboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frikirkjuvegi 3,
gegn 15 þúsund króna skilatryggingu fyrir hvort verk. Til-
boðin verða opnuð á sama staö.
INNKAUPASTOFNUN REYKIAVÍKURBORGAR
Fríkifkjuvegi 3 — Sími 25800