Þjóðviljinn - 23.10.1977, Qupperneq 5

Þjóðviljinn - 23.10.1977, Qupperneq 5
Sunnudagur 23. október 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5 Václav Havel, rithöfundur i verkaniannavinnu siðan 1968. Og margir verkamenn cru i hópnum. Hajek fyrrum utanrfkisráöherra : Diplómat sem hefur komið mönnum á óvart með staöfestu sinni. Kriegel: Hann var að njósna fyrir Trotski á Spáni, segja rógberarn- ir. a/ erlendum vettvangi í ársbyrjun sá merkilegt skjal dagsins ljós i Prag. Það var kall- að MANNRÉTTINDASKRA 77 og var undirritað af 257 mönnum, allmargir þeirra höfðu verið at- kvæðamenn á Dubcektimum árið 1968. Kröfur þessa skjals voru hógværar : það var farið fram á að virt væru þau ákvæði um mannréttindi sem tékknesk stjórnvöld hafa skrifað undir bæði i alþjóölegum samningum og með löggjöf. Helsta krafan var sú að hætt yrði margskonar ofsóknum, bæði Hejzlar og talsmaður undir- skriftarmanna i Tékkóslóvakiu sjálfri, Jiri Jájek, fyrrum utan- rikisráðherra, áherslu á það, að skjalið eigi sér einnig forsendur i Helsinkiráðstefnunni og svo lýðræðislegri umræðu i flokkum italskra, franskra og spænskra kommúnista. Það er einmitt þetta sem nú var siðast nefnt, sem hefur farið sér- staklega fyrir hjartað á Husák og öðrum valdamönnum i Prag. Andófshreyfingin i Tékkóslóvakiu um Mannréttindaskrá ’77 Strídid einkum atvinnuofsóknum, á hend- ur þeim, sem ekki vildu faliast á þann opinbera sannleik, að innrás sovéskra herja i Tékkóslóvakiu 1968 hefði verið velkomin aðstoð gegn gagnbyltingu. Siðan þá hefur verið háð strið um þessa yfirlýsingu. Stjórnvöld hafa haldið uppi feiknalegri her- ferð gegn þeim sem skjalið undir- rituðu, eins og hér verður á eftir rakið. Engu að siður hefur þeim fjölgað er hafa hugrekki til að storka margvislegum þrenging- um og er tala þeirra sem undirrit- að hafa hinar sjálfsögðu kröfur Mannréttindaskrárinnar (sem ganga reyndar ekki lengra en að fara fram á opinskáa umræðu við yfirvöld um skilning á gildum lögum) nú komin upp i 750. Djöfullinn í hverju horni Og eins og Zdenek Hejzlar, einn af helstu talsmönnum sósialiskr- ar andófshreyfingar tékkneskrar, kemst að orði i erindi sem hann hélt yfir blaðamönnum i Osló ný- lega, þá eru átökin um Mannrétt- indaskrána ekki bundin við Tékkóslóvakiu eina Þau átök blandast og saman við túlkun á ',,vorinu i Prag”. Annarsvegar hafa áróðurstjórar um austan- verða Evrópu reynt að læða þvi inn hjá yngri kynslóðinni, að und- ir umbótastefnu Dubceks, Smrkovskys, Kriegels og félaga, hafi sjálfur djöfull gagnbylt- ingarinnar falið sig. A hinn bóg- inn,segir Hejzlar, reyna ýmsir aðilar i Vestur-Evrópu, að túlka þróun mála i Tékkóslóvakiu annaðhvort i þágu afturhalds eða þá gerfibyltingarmennsku. Hejzlar segir, eins og svo margir aðrir, að afleiðingar inn- rásarinnar fyrir niu árum hafi haft þær afleiðingar i Tékkó- slóvakiu sjálfri, að allar umbætur i þjóðfélaginu voru frystar. Hundruð þúsunda manna voru sviptir möguleikum til afskipta af þjóðfélagsmálum og oft störfum sinum. Lögregluveldi var á kom- ið. Og hann bendir einnig á það, að alþjóðlegar afleiðingar innrás- arinnar hafi i rikum mæli snúist gegn Sovétmönnum sjálfum. Slökun spennu varð erfiðari en ella, þvi það gat ekki þótt góðs viti um vestanverða Evrópu, að Sovétrikin sýndu eigin banda- mönnum þvilikan yfirgang. Til að réttlæta innrásina hafa vald- hafar i Austur-Evrópu talið sig neydda til að „sjá djöfulinn” i svotil hverri umbótahugmynd, i þeim mæli að ekki aðeins ákveðnar hugmyndir heldur og ákveðin vandamál eru fyrirfram talin bjóða upp á „endur- skoðunarstefnu’ og þarmeð hættuleg og bönnuð. Þetta hefur leitt til almennrar samfélagslegr- ar stöðvunar. Sovéskur kommún- ismi hefur glatað þvi aðdráttar- afli sem hann enn kunni að hafa, og vestrænir kommúnistar — fyr- ir utan smáa sértrúarhópa —- hafa gefið trúnað viö Sovétrikin upp á bátinn. Sosialísk hreyfing Astandið i Tékkóslóvakiu bauð upp á samantekt Mannréttinda- skárarinnar. En auk þess leggja hefur i stórum dráttum aldrei hvikað frá sósialiskum markmið- um og leitað samstöðu um kröfur sinar i nafni betri sósialisma. Það er dæmigert, að þegar bók eins af helstu talsmönnum andófs- manna, Zdeneks Mlynárs, kemur út á ítaliu, þá skrifar einn af mið- stjórnarmönnum Kommúnista- flokks Italiu, Radice, formála þýðingarinnar. Þar sem hann ' tekur eindregið undir það álit Mlynars, að Prag sé „questione aperta”, opin spurning, fyrst og fremst kommúnistum og sósial- istum, spurning sem þeir verða að svara með þvi að hafna ein- dregið öllum tilraunum til að lýsa „vormönnum” Prag sem skugga- legum féndum sósialisma. Rógsherferð En það er einmitt stanslaus rógur i þá veru, sem stjórnvöld i Prag telja bersýnilega þýðingar- mikið vopn. Þau senda frá sér á mörgum tungumálum útlistanir á þvi, að menn einsog Hájek séu „gjaldþrota skipuleggjendur gagnbyltingarinnar 1968”, leik- skáldið Pavel Kohout, sem Þjóð- viljinn átti viðtal við i sumar er „tryggur þjónn heimsvaldastefn- unnar”, Frantisek Kriegel, sem var sá eini af tékkneskum for- ystumönnum, sem aldrei undir- ritaði nauðungarsamninga i Kreml er „óvinur sósialismans og þjóðarinnar”. Þessar glósur eru úr ritinu „In the Name of Social- ism”. sem geymir greinasafn úr tékkóslóvakiskum blööum á ensku, og borist hefur hingað til blaðsins. Dæmi Kriegles Það er sérstaklega fróðlegt að sjá hvaða aðferðum er beitt gegn Kriegel i þessu greinasafni. Kriegel fór að loknu læknanámi til Spánar og barðist með alþjóða- sveitunum þar, siðan fór hann til Kina og var herlæknir með kin- verskum sveitum bæði i Kina og Burma. Skömmu eftir heimkom- una til Prag voru honum falin ábyrgðarstörf fyrir Kommúnista- flokkinn, 1949 varð hann að- stoðarheilbrigðisráðherra, en var rekinn frá störfum 1952 i þeirri baráttu gegn „zionistum” sem náði hámarki i Slanskiréttar- höldunum illræmdu. Hann sinnir þá aftur læknisstörfum af miklum krafti. Arið 1960 kemur sendi- nefnd frá Kúbu til Prag og með henni menn sem höfðu þekkt Kriegel i Spánarstriðinu — þetta verður til þess að hann er beðinn um að fara til Kúbu til að hjálpa til við uppbyggingu heilsugæslu- kerfis þar. 1 umbótahreyfingunni 1968 verður Kriegel formaður Þjóðfylkingarinnar og einn þeirra forystumanna sem Sovétmenn höfðu mesta andúð á. t fyrrgreindu greinasafni leggja rógberar hins opinbera sig fram um að sverta Kriegel, sem nýtur mikils álits heima og heim an. Þeir eru hinsvegar undarlega seinheppnir. Þeir bera fram klaufskan gyðingafjandskap með þvi að staðhæfa að i reynd hafi Kriegel „alltaf hagað sér eins og alheimsborgari, eins og maður sem á sér hvorki heimili né föður- land”. Þetta er mjög sérstætt kompliment fyrir þá sem hættu lifisinutil aðstoðar góðum mál- staðá Spáni og i Kina. Einnig það reyna rógberarnir að hafa af Kriegel. Þeir segja það mjög tor- tryggilegt að hann fór til Spánar af sjálfsdáðum. Enda hafi Artur London, „trotskiisti og zionisti” sem nú er útlægur i Frakklandi sagt það um 1950, að menn hafi sterklega grunað að Kriegel hafi gengið erinda Trotskis á Spáni! Þessir höfundar treysta þvi bersýnilega, að menn hafi gleymt þvi, að Artur. svivirðilegum aðferðum var pindur til að játa á sig allrahanda erindrekstur fyrir zionista, trotskista, bandariska heims- valdasinna og fleiri i smánar- réttarhöldum þeim, sem efnt var til i Prag 1951. Það voru tengsl Londons við foringja franska kommúnistaflokksins sem komu i veg fyrir að hann væri liflátinn þá með Slanski, Clementis og fleir- um. Og nú eiga ummæli úr þeim fimmtu gráðu yfirheyrslum að sanna að ungur kommúnisti og læknir hafi ekki getað slegist i lið með spænska lýðveldishernum árið 1936 án þess eitthvað grugg- ugt hafi verið með i spilinu. Við vonum að menn séu það lifsreyndir orðnir, að þeir viti, að Kriegel, Hájek, Kohoutog félagar þeirra fá ekki að svara álygum og dólgshætti með einu orði neinu þeirra blaða sem út koma i land- inu — þótt ekki væri nema i tiu- lina löngu lesendabréfi. Atvinnuofsóknir Auk rógsherferðar hafa stjórn- völd haldið uppi samfelldum of- sóknum gegn þeim sem undirrit- að hafa Mannréttindaskrána. Þær koma fram með ýmsum hætti. Leynilögreglumenn láta nokkra þekktustu undirskriftar- menn ekki i friði hvorki nótt né dag, meina þeim að komast ferða sinna, rjúfa simtöl til þeirra, hirða bréf til þeirra osfrv. En helsta aðferðin eru atvinnuöf- erlendar bækur The Medieval Leper and his northern heirs Peter Richarús. D.S. Brewer 1977 Það er ekki lan^ siöan að sóknir. Enginn veit með vissu hve margir hafa misst atvinnu sina. Þvi dæmi eru til þess að menn hafa verið reknir úr vinnu sem neitað hafa að fordæma mann- réttindaskrána — án þess þeir þó hafi skrifað undir hana. I nýlegri grein sem Hájek skrifar er talið, að um hundrað aðstandenda Mannréttindaskrárinnar gangi nú atvinnulausir með öllu, fyrir utan allan þann mikla fjölda sem hafa ekki fengið annan starfa en illalaunaða erfiðisvinnu eftir brottrekstur úr þeim störfum sem menn áður sinntu. Hlutur verkamanna Fréttaflutningur er oft með þeim hætti, að ofsóknir sýnast fyrst gegn menntamönnum : i Tékkóslóvakiu eru t.d. hundruð rithöfunda og blaðamanna i prentbanni.En það er rétt menn gleymi þvi ekki, að verkamenn eiga veigamikinn þátt i þeirri óformlegu hreyfingu sem tengd er Mannréttindaskrá ’77. T.d. að taka 80 verkamenn meðal þeirra 133 sem siðastir bættust við i hóp þeirra sem undirritað hafa skjalið» Og til eru dæmi um að verkamaður sé rekinn úr starfi fyrir að undirrita skjalið (t.d. Jan Sabata, kyndari við verk- smiðju i Brno, sem var i leiðinni rekinn úr verklýðsnefnd verk- smiðjunnar). Zdenek Hejzlar,sem fyrr var nefndur,telur að ráðamenn i Tékkóslóvakiu hafi til þessa hikað við að griða til fangelsana af ótta við að verða fyrir beinni gagnrýni á Belgradfundin- um um framkvæmd Helsinki- samkomulagsins, sem nú stendur yfir. Nokkrir menn hafa þó verið handteknir, en formlega séð er þeim gefið eitthvað annað að sök en að hafa undirritað Mann- réttindaskjalið. (Blaðamaður- inn Jiri Lederer, leikarinn Ota Ornest, Ales Brezuna, Jan Princ og fleiri. Liklegt er talið að rit- holdsveiki hvarf svo til hér á landi, en sá sjúkdómur var mjög lengi fyrirbrigði sem einkenndi frumstæð og snauð samfélög fram eftir öldum. í Evrópu hvarf þessi sjúkdómur viðast hvar á nýju öld, nema á Islandi, Alands-. eyjum og í vissum héröðum i Noregi og Sviþjóð. I þessari bók fjallar höfundurinn um örlög þess fólks, sem skýrslur eru um að hafi verið þjáð af holdsveiki. Höf. vitnar i enskar miðaldaheimildir og siðan i heimildir um holds- veika á Norðurlöndum og hér á landi. Afstaða manna gagnvart þeim holdsveiku kemur glögglega fram i lögum og reglugerðum frá siðustu öld og eldri heimildum. Sú var lengi trú manna aö matar- ræði heföi mikil áhrif sem hvati að holdsveiki, mjólk og fiskur var talið hvati aö veikinni, mönnum kom heldur ekki saman um hvort holdsveiki væri smitandi eða ekki. Einangrunin taldist nauösynleg og þvi voru varúðar- ráöstafanir settar viða á mið- öldum til þess að tryggja ein- angrun holdsveikra svo sem viss klæðnaöur og bjöllur, sem þeir holdsveiku áttu aö hringja þegar höfundarnir Pavlicek og Václav Havel verði leiddir fyrir rétt). Til hvers að berjast? 1 erindi sinu svaraði Hejzlar spurningunni um þaö, hvort and- ófshreyfingin væri ekkj gagns- laus: „Þrátt fyrir hörku stjórnvalda þora þau-ekki lengur að útrýma gagnrýnendum sinum og andófs- mönnum. Og ef þeir halda áfram að sýna styrk og þolin- mæði, láta ekki ögra sér og geta snúið gegn stjórnvöldum , fyrst og fremst þeirra eigin lögum og staðfestum alþjóðlegum samningum, þá verður ógjörn- ingur að losna við þá. Jafnvel of- sótt og þvi veik mótmælahreyfing getur þá smátt og smátt orðið að pólitiskri „hliðarmenningu”, sem valdhafarnir verða að búa við Og þetta veður mikilvæg for- senda fyrir þvi, að nýr skoðana- munur nái einnig til kerfisins — fyrr eða siðar. Og þá gætu skap- ast forsendur fyrir nýju „vori i Prag”. Þvi fyrirbæri eins og vorið i Prag 1968 er þvi aðeins hugsan- legt að ókyrrð, óánægja og breytingavilji hafi rutt sér leið inn i sjálft valdkerfið. Svo langt , erum viðekki komin,og þvi sýnist myndin svo dapurleg”, segir Hezjlar og bætir þvi við, að menn geri sér og grein fyrir þvi að vandamál Tékkóslóvakiu séu angi af vandamálum Sovetmanna eins og hernámið minni rækilega á. Þvi hljóti baráttan að verða löng og erfið: „Frelsisbarátta i Tékkó- slóvakiu sem og annarsstaðar ræðst ekki af þrýstingi utan frá. Hún er og verður mál þjóðarinnar sjálfrar. En til að andstæðingar ófrelsis geti haldið áfram sinni baráttu þurfa þeir á sterkri alþjóðlegri samstöðu að halda. Þeir þurfa að vita af þvi að þeir eru ekki gleymdir, að framfara- sinnað fólk litur á þeirra baráttu sem sina eigin”. AB tók saman. þeir nálguðust byggðir heil- brigðra. Hér á landi voru stofn- aðir spitalar fyrir þá spitölsku á 17. öld en slikar stofnanir komu upp i Evrópu þegar á miðöldum, en þegar kemur fram á 14. öld hefur þeim holdsveiku fækkað svo, að spitalarniu. eru lagðir til annarra þarfa viðast hvar. Sumir höfundar telja að svarti dauði hafi þurrkaö þá holdsveiku út, en hvaö um það, þá vita menn fátt um hvað af þeim varö. Einnig hefur verið deilt um hvort það sem heimildir nefna holdsveiki, hafi verið réttilega úrskurðað sem holdsveiki. Höf. ræðir einna helst um Alandseyjar og sjúk- dóminn þar, sá kafli er nokkuö ágripskenndur og enn frekar aörir kaflar, þar sem fjallað er um sjúkdóminn i Svíþjóð, Noregi og á tslandi. Bókin gæti verið ein- hverskonar inngangur eða spjall að sögu holdsveikinnar og vantar þó margt. Heimildakaflinn er takmarkaður og valið nokkuð tilviljunarkennt. En þrátt fyrir þessa galla, þá veitir bókin nokkra innsýn i hugmyndaheim þeirra holdsveiku og afstöðu hinna heilbrigðu til þeirra.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.