Þjóðviljinn - 23.10.1977, Page 9
Sunnudagur 23. október 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9
Vald stað-
reyndanna
Tveir austurþýskir kvikmynda-
gerðarmenn, Heynowski og
Scheumann, reka i Berlin það
sem kalla mætti pólitiskt kvik-
myndaverkstæði: Studio H&S.
Þeir hafa öðlast heimsfrægð á
undanförnum árum sem höfund-
ar pólitiskra heimildamynda. í
flestum myndum sinum nota þeir
svipaðar aðferðir: viðtöl með inn-
skotum úr fréttamyndum til út-
skýringar á þvi sem fram kemur i
viðtölunum. Það sem einkennir
þá fyrst og fremst er að þeir taka
jafnan fyrir einhverja hlið fyrir-
bærisins fasismi og leitast við að
varpa ljósi á þennan dekksta blett
siðmenningar okkar.
Maðurinn sem hlær
Fyrstu mynd sina gerðu þeir
1966 og hét hún „Maðurinn sem
hlær”, en er þekktari undir nafn-
inu „Kongo-Miiller”. Hún mun
hafa verið sýnd hér fyrir nokkr-
um árum, og þá liklega i kvik-
myndaklúbbi. Muller þessi var
atvinnumorðingi. Hann var i
þýska hernum á striðsárunum, en
gerðist siðar málaliði i Kongo og
bar ábyrgð á mörgum fjölda-
morðum þar. Við sjáum hann
sitja við borð, iklæddan her-
mannabúningi með járnkross á
brjóstinu. A borðinu stendur
flaska af Pernod, sem tæmist
fljótt. Kongo-Muller segir frá
„ævintýrum” sinum i hinni
svörtu Afrfku: hvernig hann drap
svertingjana einsog hunda og
varði með þvi „hinn kristna og
vestræna heim” einsog hann
sjálfur kemst að orði. Inn i viðtal-
ið er skotið myndum af þvi sem
raunverulega gerðist i striðinu i
Kongo. Arangurinn er hrollvekja,
enn hræðilegri en nokkur glæpa-
saga vegna þess að hún er sönn.
Maðurinn sem hlær, Kongo-MÍill-
er, skilur alls ekki að hér sé um
neitt annað að ræða en hetjusögu
hans sjálfs, hann er talsvert
montinn af afrekum sinum.
Flugmenn í náttfötum
Arið 1967 fóru þeir H&S sina
fyrstu ferð til Vietnam. Þar festu
þeir það sem fyrir augu bar á
marga kilómetra af filmu og tóku
viðtöl við tiu bandariska flug-
menn, sem höfðu tekið þátt i loft-
árásum á N-Vietnam og verið
skotnir niður og teknir til fanga.
Árangurinn varð sjónvarps-
myndaflokkurinn „Flugmenn i
náttfötum”. 1 þessum myndum
beittu H&S viðtalstækni sinni af
mikilli snilld. A yfirborðinu virð-
ast spurningar þeirra saklausar:
sþurter um nafn, stöðu i hernum,
ástæðurnar fyrir fangelsisvist
hvers og eins, liðan i fangelsinu,
fjölskylduástæður, trú, stjórn-
málaskoðanir, hugmyndir um
kommúnismann og vinnuaðstæð-
ur sprengjuflugmanna. Allir eru
spurðir sömu spurninga. Þeir
voru valdir eingöngu með tilliti til
þess að þeir gæfu nokkuð breiða
mynd af bandariskum flugmönn-
um, væru á ýmsum aldri og af
Kongo-Miiller: morðinginn var hreykinn af ævintýrum sinum
mismunandi gráðum innan hers-
ins. Þeim eru fengnir i hendur
ýmsir munir sem eru tengdir
striðinu: þeirra eigin skotvopn,
bútar af niðurskotnum flugvél-
um, myndir. Þeir eru beðnir um
að segja álit sitt. Harmleikur
víetnömsku þjóðarinnar er sýnd-
ur með innskotum i fréttamynda-
stil og brátt verður ljóst að beinir
gerendur þessa harmleiks, flug-
menn lýðræðisrikisins, eru póli-
tiskt fatlaðir menn og siðferðileg
þröngsýni þeirra yfirþyrmandi.
Rannsóknarkvikmynd-
un í Chile.
Þeir Heynowski og Scheumann
virðast hafa sérstakan hæfileika
til að þefa uppi fasismann, hvar
sem hann er að finna. Þannig
voru þeir staddir i Chile þegar
valdaránið var framið þar og
hafa nú framleitt fjórar kvik-
myndir um Chile, þar sem lýst er
sögulegum aðdraganda fasism-
ans, valdaráninu sjálfu og
ástandinu næstu mánuði á eftir.
Þeir H&S sigldu undir fölsku
flaggi: þóttust vera vestur-þýsk-
ir. Þótt ótrúlegt kunni að virðast
tókst þeim að komast inn i fanga-
búðir og taka viðtöl við fanga og
fangaverði, auk þess sem ýmsir
háttsettir fasistar úr Pinochet-
klikunni veittu þeim viðtöl. Vafa-
laust haía þeir haldið að þarna
væri komið tækifæri til að rétt-
læta valdaránið i augum alheims-
ins. Einsog gefur að skilja er út-
koman talsvert önnur en þeir
hafa vænst, og ekki liklegt að H&S
verði hleypt inn i Chile aftur á
næstunni.
Chile-myndirnar fjórar heita:
„Hvita valdaránið” — um að-
dragandann að valdaráninu og
þær aðferðir sem fasistarnir
beittu: „Múmiustriðið” — um
valdaránið sjálft: „Ég var, ég er,
ég mun verða” — um fangabúð-
irnar og lif fanganna þar: og loks
„Myrkur i eina minútu gerir okk-
ur ekki blinda”, sem fjallar um
verkafólk i Chile 1975, tveimur
árum eftir valdaránið.
Hlutleysi og áróður
H&S gera ekkert tilkall til að
vera álitnir „hlutlausir” i mynd-
um sinum, enda hafa þeir sagt að
„jafnvel sú kvikmynd sem þykist
vera algjörlega ópólitisk er þegar
allt kemur til alls þrælpólitisk,
vegna þess að hún reynir að
svipta þjóðfélagslifið pólitisku
innihaldi sinu”. En vinnubrögð
H&S eru slik, að ógerningur er að
afgreiða þá sem „kommúniska
áróðursmeistara”. 1 hollensku
blaði birtist t.d. þessi spaugilega
klausaumH&S: „Það er ergilegt,
að i myndunum er nokkuð um
kommúniskan áróður, sem gefur
efninu ákveðna pólitiska merk-
inu, svo áhrifarikt sem það ann-
ars er. Þó er það svo, að sá sem
vill fræðast um ástandið i Chile á
siðustu árum verður að sjá þessar
myndir. Staðreyndirnar eru
óhrekjanlegar, greiningin hnif-
skörp og sannfærandi”.
(Að miklu leyti byggt á danska
timaritinu Levende billeder).
Verður sýnd bráðlega
Kvikmyndakompan hefur það
eftir áreiðanlegum heimildum að
Nýja bió muni einhverntima á
næstunni taka til sýninga itölsku
myndina „Strandið” (Swept
Away) eftir Linu Wertmuller.
Þar með fáum við tækifæri til að
kynnast einni af örfáum konum
sem öðlast hafa alþjóðlega viður-
kenningu sem kvikmyndastjórar.
Lina Wertmuller tæplega fimmt-
ug, fædd og uppalin á Italiu þrátt
fyrir eftirnafnið (faðir hennar
var af svissneskum ættum).
Hún gerðist fyrst kennari,
en aflaði sér siðan leik-
húsmenntunar. Kvikmynda-
ferill hennar hófst með
þvi að Fellini réð hana sem
aðstoðarleikstjóra sinn viö gerð
myndarinnar „8 1/2”, áriö 1963.
Siðan hefur hún sjálf stjómað niu
kvikmyndum. Hún varð fyrst
fræg utan landamæra Italiu fyrir
myndina „Ast og stjómleysi”
(1973).
Á eyðieyju
„Strandið” er frá 1974. Þarseg-
ir frá itölskum stofukommum af
yfirstéttsem flatmaga um borö i
lystisnekkju á Miðjarðarhafi og
ræöa um kommúnismann. Ein
konan er þó meiri yfirstéttarkona
en kommi og gerir sér far um að
niðurlægja þjóninn sem færir
henni það sem hún heimtar. Nú
haga atvikin þvi svo til að kona
þessi og þjónninn eru ein um borð
tJr Strandinu”: samúð með þeim litillækkuðu eöa hver kiigar hvern?
i gúmbát, sem bilar og hrekjast
þau til eyðieyjar þar sem þau
verða að dveljast nokkra hrið. A
eynni er hlutverkunum skipt
þannigað þjónninn tekur til við að
niðurlægja frúna og smám saman
verður hún að láta I minni pok-
ann. HUn verður nú að „góöri
konu”, fer að elda oni karlmann-
inn og þvo fótin hans og allt til-
heyrandi. Myndin endar svo vita-
skuld á þvi að þeim skötuhjúum
er bjargaö, þau fara aftur á vit
siðmenningarinnar og taka upp
þráðinn þar sem frá var horfið:
hún veröur aftur að hortugri yfir-
stéttarkonu og hann fer heim i
hreysið sitt að rifast við lágstétt-
arkonuna sina.
Skiptar skoðanir
Menn hafa brugðist mjög mis-
jafnlega við þessari mynd. Um-
ræður um hana hafa viða orðið
heitar og ber mönnum alls ekki
saman um það hvort Lina Wert-
múller sé sósfalisti eða fasisti,
hvort hún beri hag hinna litil-
lækkuðu fyrir brjósti eða taki ein-
mitt grimmilegan þátt i lftillækk-
uninni. Þeir engilsaxnesku gagn-
rýnendur sem skammta mönnum
heimsfrægð hefja Linu upp til
skýjanna. Sumir likja henni viö
Chaplin og segja hana halda vppi
vörnum fyrir „litla manninn” i
þjóðfélaginu. Þeir segja lika að
hún sé bráðfyndin. Sjálf fer Lina
langt með aö Utskýra afstööu sina
þegar hdn segist vera „ekki sósi-
alisti, heldur italskur sósialisti”.
Réttlæting kúgunar?
Og svo er það danski kvik-
myndagagnrýnandinn Susanne
Fabricius, sem segir að „Strand-
ið” sé svo afturhaldssöm mynd að
jaðri við fasisma, bæði hvað
snerti afstöðu höfundarins til
kvenna og verklýðsstéttarinnar.
Þjónninn, sem er fulltrúi verka-
lýðsins i myndinni, er gæddur
þeirri óspilltu kyngetu sem ein er
fær um að „koma vitinu fyrir” yf-
irstéttarkonur. Susanne kveður
þetta sambland af „kynlifi og lág-
stéttum” vera eitt helsta hreyfi-
aflið að baki kynþáttakúgun. Þá
segir hún að ekki fari milli mála
að myndinni sé ætlað að réttlæta
þá hlutverkaskiptingu kynjanna
sem alltaf hefur þekkst, og sé hún
þvi dæmi um það sem gerist þeg-
ar konur gera að sinu það gildis-
mat sem niðurlægir þær sjálfar.
Hvernig sem þessu er nú varið
er greinilegt að hér er um for-
vitnilega mynd að ræða, mynd
sem vekur deilur og umræður. 1
lokin má geta þess að Nýjabió á
von á annarri ftalskri mynd á
næstunni: Casanova eftir meist-
ara Fellini.
Pfpulagnir
Nýlagnir/ breyting-
ar, hitaveitutenging-
ar.
Simi 36929 (milli kl.
12 og 1 og eftir kl. 7 á
kvöldin)