Þjóðviljinn - 23.10.1977, Qupperneq 13
Sunnudagur 23. október 1977 ÞJÖÐVILJINN — SÍÐA 13
Steinunn Pálsdóttir vefari: Hlakkar til á hverjum morgni aö koma í vinnuna. (Ljósm.: -eik)
verður að taka hvern bút og vefa
hann sér. Vefnaöur hér á landi er
i örri þróun og eru að opnast
ýmsir möguleikar í sambandi við
hann.
Lítill maður þýðir úr
dönsku
Inn af vefstofunni þar sem áður
sat Svavar Gestsson yfir leiður-
um sinum situr nú litill maður og
er að þýða Pétur bragðaref úr
dönsku á islensku. Hann heitir
Kristján Andri Stefánssonen ella
hafa hér tveir arkitektar aðsetur.
>eir eru Stefán Orn Stefánsson og
Stefán Thors. Sá fyrri, sem ein-
mitt er faðir Kristjáns, vinnur á
teiknistofunni Höfða en sá siðari
hjá skipulagsstjóra. En hér hafa
þeir einkaafdrep. Báðir eru þeir
fjarri núna en Kristjan pikkar
ákaft á vélina og vefararnir
laumast lika hér inn til að vinda
upp á spólur.
Ertu svona klár i dönsku að þú
getir þýtt? spyr blaðamaður. Já,
ég bjó i mörg ár i Danmörku. Sit-
urðu hér allan daginn við þetta?
Já, eiginlega af þvi að skólinn er i
verkfalli. Og ætlarðu svo að gefa
bókina út? Já, kannski einhvern
tima,þegar ég verð rikur. Hef-
urðu eittthvað stundað ritstörf
áður? Ég gaf út blaðið Almenn-
ingstiðindi en er hættur þvi. Hvað
komu út mörg tölublöð? >au
voru 20, öll fjölrituð i Háskóla-
f jölrituninni. Gafstu þau einn út?
Nei fyrst var ég með tveimur
stelpum. Svo hættu þær og þá var
strákur með mér en hann gerði
svo litið, kunni ekki á ritvél.
Kristján Andri er kominn á bls.
17 i að þýða Peter Fidus eftir Sven
Wernström og er svo áhugasam-
ur að blaðamanni þykir ekki fært
að trufla hann meir.
Vinnur að tilraunareit
í Seljahverfi
Og þá er bara eftir Hjörleifur
Stefánsson arkitekt af þeim sem
hafa hér fastan vinnustað allan
daginn. Hann situr þar sem Eiður
Bergmann hnyklaði brýrnar sem
Texti: GFr.
Myndir: Eik
fastast áður yfir fjármálum >jóðv.
Hjörleifur segist fyrst og
fremst vera að vinna fyrir bygg-
ingafélagið Vinnuna sem hefur
fengið úthlutað tilraunareit i
Seljahverfi I Breiðholti. >að eru
Hfjölskyldur sem hafa fengið út-
hlutað lóðum i þessum reit og hef-
ur teiknistofan Höfði skipulagt
hann en mér hefur verið falið að
teikna hvert hús en þau eiga að
vera fjölbreytt i samræmi við
óskir hverrar fjöiskyldu. Þetta
verða frekar litil hús, að sumu
leyti sambyggð en að öðru leyti
stök. Skipulag svæðisins er unniö
i nánu samráði við hópinn sem
byggir þar og húsin einnig i sam-
ráði við hópinn og hverja fjöl-
skyldu.
Og gömlu húsin á isafirði
Uppi á vegg hjá Hjörleifi eru
myndir og teikningar af gömlum
húsum. Blaðamaður rekur ma.
augun i teikningu af faktorshús-
inu gamla á tsafirði Hjörleifur
segir sér hafa verið falið aö vinna
það verkefni að mæla húsin I
Neðstakaupstað upp og gera
teikningar af þeim fyrir Þjóð-
minjasafnið. Næsta vor á aö
gera úttekt á þessum 18. aldar
húsum vestra og gera raunhæfa
áætlun um hvernig megi laga þau
og koma þeim i notkun. Isafjarö-
Börnin una sér vel á starfsvettvangi foreldra sinna.
arkaupstaður veitti 2 miljónir til
lagfæringar á húsunum á þessu
ári og meiningin er siðan að veita
árlega fé til þess þangað til þau
eru komin i viðunandi horf. Er
ekki faktorshúsið gamla mjög
niðurnitt? Nei, ekki miðaö viö að
það er yfir 200 ára gamalt. Þetta
er traust hús og getur staðiö i
margar aldir enn ef þvi er sómi
sýndur, segir Hjörleifur að lok-
um.
Draugurinn
Áður en gengið er út frá Hjör-
leifi er hann spurður hvort hann
hafi orðið var við drauginn. Hann
kemur af fjöllum og hefur aldrei
heyrt hans getiö. Skyldi hann
hafa dofnaö?, hugsar blaðamaður
með sér en áratugum saman hef-
ur þessi draugur gengið ljósum
logum i gamla Þjóðviljahúsinu.
Þar sem áður sat Kjartan
Boðið er upp á kaffi áður en
gengið er út og safnast nú allur
þessi fjörmikli hópur i þaö her-
bergi sem nú hefur verið valið
fyrir kaffistofu^nefnilega hvergi
annars staöar en þar sem Kjartan
Olafsson sat áöur ábúðarmikill.
Hér er lika fullt af krökkum
(vegna verkfallsins) sem una sér
vel.
Við tókum þetta húsnæði á leigu
saman, segja þau, með það fyrir
augum að skapa meiri félagsleg
skilyrði og þaö er lika mjög örv-
andi að vinna svona, gefur
strauma á báða bóga.
-GFr.