Þjóðviljinn - 23.10.1977, Side 19
Sunnudagur 23. október 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 19
BEÐÍÐ EFTIR GODOT —
MEÐ ÁRANGRI:
Fjarstædu-
leikhúsid
frelsaði
glæpamann
Beckett á æfingu á Godot; Ilfstiöarfangar skildu hann betur cn'þcir sem töldust frjálsir.
Margir telja sjálfsagt, aö listir
séu heldur áhrifalitlar i heimi
nútímans, einkum sú list sem
kennd er viö framúrstefnu, fárán-
leika, afstrakt eöa eitthvaö I þá
veru. Sé slik list I besta falli sér-
hæft gaman menntamanna. Þeim
hinum sömu kynni aö vera
nokkur frööleikur i frásögn af þvi,
hvaöa áhrif fáránleikaieikhús
Samuels Becketts haföi á örlög
ungs manns sem dæmdur haföi
veriö i ævilangt fangelsi fyrir
morö.
Rick Cluchey var fæddur i
fátækrahverfi i Chicago 1933. Ariö
1955 haföi hann lent i sterkum
eiturlyfjum og tók þátt i aö ræna
og myrða hótelsstarfsmann einn.
1979-lnternatbnal
YearoftheChild
Merki
alþjóðlegs
barnaárs
fengið
Áriö 1979 hefur Barnahjálp
Sameinuöu þjóöanna frumkvæöi
aö þvl aö gangast fyrir alþjóölegu
barnaári.
Nýlega hafa úrslit fengist I al-
þjóðlegri keppni um merki árs-
- ins. Fyrstu verðlaun, hlaut tillaga
danska teiknarans Eriks
Jerichau. Merkið sýnir tvær per-
sónur i faðmlögum, umkringdar
lárviðarsveigum Sameinuöu
þjóöanna. Figurur þessar eiga að
tákna samband barns og fullorö-
inna.
170 tillögur bárust frá 20 lönd- ■
um. Einn islenskur teiknari,
Haukur Björnsson, sendi tvær til-
lögur til keppninnar.
Sú bók
er baneitruð
Sóknarpresturinn i Hölldofors I
Sviþjóð efndi til siðvæðingar.
Hann bað sóknarbörn sin að færa
sér allt það prentað mál sem
,,eitra sálirnar og trufla frið
hjartans”.
Daginn eftir kom járnsmiöur-
inn i þorpinu meö skattskrána og
færði presti.
Rick Cluchey var að sönnu ekki
kominn á sakaskrá, en dómari sá
sér ekki annað fært en dæma
hann til ævilangrar fangelsis-
vistar
Sfðan gerðust þau tiðindi árið
1957, að leikarar frá San
Fransisco sýndu leikrit Becketts,
„Beðið eftir Godot” fyrir fanga i
San Quentin fangelsinu. Þetta
leikrit hafði mörgum þótt harla
óskiljanlegt: fjórir menn biöa eft
ir einhverju sem aldrei kemur,
venjuleg atburðarás er látin lönd
og leið, tal persónanna og sam-
band þeirra sýndist allt hið fárán-
legasta. En svo bar við, að föng-
unum þótti þessi sýning hin
merkilegasta, þeir skynjuðu
betur en þeir sem áttu að heita
frjáisir sannleika Becketts sem
svo mjög höfðaði til þeirra eigin
fáranlega lifs i tukthúsi.
Rick Cluchey var einn hinna
hrifnu áhorfenda. Asamt öðrum
áhugamönnum úr hópi fanga setti
hann á stofn Leiksmiðju San
Quentin fangelsis. A nokkrum
næstu árum settu þeir 35 leikrit á
svið, þeirra á meðal þrjú eftir
Beckett.
Þetta listastarf varð til þess, að
rikisstjóri Kaliforniu mildaði
dóminn yfir Cluchey, og var hann
látinn laus árið 1966. I fangelsinu
hafði hann skrifað sitt fyrsta leik-
rit, Búrið. Kom hann á fót leik-
hópi annarra fyrrverandi fanga,
sem fóru með Búrið um öll riki
Bandarikjanna og nokkur
Evrópuriki. A eftir hverri
sýningu var efnt til umræðu leik-
enda og áhorfenda um fangelsi og
leiðir til að gera fangavist mann-
eskjulegri.
Þegar Cluchey og kona hans
Tere eignuöust sinn fyrsta son
árið 1974 nefndu þau hann Louis
Beckett Cluchey. Þeir Cluchey og
Beckett höföu þá skrifast á um
árabil, en hittust fyrst i Paris árið
1974. Hann var sá Godot sem ég
hafði lengi beðið eftir, sagði fang-
inn fyrrverandi.
Cluchey lék nú I lok september
eina hlutverkið i „Siðasta segul-
band Krapps” eftir Beckett á
leiklistarhátfð i Berlin. Hann
hefur aðstoðað við sviðsetningu á
„Beðið eftir Godot” þar i borg og
einnig flutt það nýlega með félög-
um sinum frá San Quentin. Beck-
ett sjálfur kom til að leggja á
ráðin um þá sýningu.
VOLVO ÞJÓNUSTA
Nú bjóða öll umboðsverkstæði VOLVO umhverfis landið sérstaka
C\ o
VOLVO tilboö fram til 30.11.
1. Vélarþvottur
2. Hreinsun og
feiti á geymissambönd
3. Mæling á rafgeymi
4. Mæling á rafhleöslu
7 Skipt um kerti
8. Skipt um platínur
9. Stilling á viftureim
10. Skipt um olíu og olíusíu
11. Mæling á frostlegi
12. Vélastilling
5. Hreinsun á blöndung
6. Hreinsun á bensíndælu 13. Ljósastilling
Verð með söluskatti:
4 cyl. B18-B20-B21 Kr. 17.299.00
6 cyl. B30-B27 Kr. 18.299.00
Innifalið í veröi: Platínur, olíusía, þurrkublöð,
ventlalokspakkning.kerti, vinna, vélarolía.
Suðurlandsbraut 16 • Simi 35200
ljósáperunni?
Ef ekki, þá höfum við efnis til raflagna, einnig
mikið úrval af Ijósaperum dyrabjöllur og raftæki.
í flestum stærðum og
styrkleika. Rafvirkjar á staðnum.
"Rafvörur” hefur úrval
, LAUGABNE^ÍG^^