Þjóðviljinn - 12.11.1977, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 12. nóvember 1977
AF FEIMNISMÁLUM
Þegar ég var krakki voru hin svonefndu
kynferðismál fiokkuð undir ,,feimnismál",
mál sem ekki voru höfð í f limtingum, nema þá
í þröngum hópi stráka (og þá væntanlega líka
stelpna) og þóttu bólfarir svona öllu fremur
einkamál þeirra, sem þær voru farnir að
stunda. Ekki þótti hæfa að æpa mikið á
torgum um slíka hluti. Þá var sérfræðileg
kynf ræðsla ekki til á Islandi, enda ekki búið að
finna upp félagsráðgjafa, félagsfræðinga, og
sálgreinendur. Stöku geðlæknar höfðu að vísu
heyrt um Freud og kenningar hans, en þeir
sem uppvísir urðu að því að kíkja í þau fræði
að ,,gannisínu" voru álitnir eitthvað skrítnir
og þá helst Öfuguggar einhvers konar.
Ætla mætti þvi að unglingar á þessum árum
hafi vaðið í villu og svima um kynferðismál,
strákarnir haf i haldið að tippið væri bara til að
pissa með því og stelpurnar villtar í sama
myrkviði fáviskunnar um sitt apparat.
En þótt undarlegt megi virðast, vorum við
strákarnir hérna vestur í bæ (og þá væntan-
lega líka stelpurnar) furðu fróðir um lífsins
gang strax uppúr sex ára aldri enda var
sannarlega engum námsleiða fyrir að fara,
þegar hinir eldri sérfræðingar í strákahópnum
miðluðu okkur græningjunum af þeirri kyn-
visku, sem þeir höfðu lært af sér eldri
strákum, sem lært höfðuaf ennþá eldri strák-
um og stelpum og jafnvel fullorðna fólkinu.
Þannig gengu þessi visindi nokkurn vegínn
rétta boðleið að mínu mati og enginn okkar,
sem orðnir vorum sex gekk þess dulinn hve
mikilvægt ónefnt líffæri var til að viðhalda
lifinu á jörðinni, að ekki sé talað um að okkur
þeim yngri var fortalið af þeim eldri og
reyndari að:
,,Heimaleikfimi er heilsubót
sem hressir upp og gerir mann stífan
hvort sem undir er gras eða grjót
gólfteppi eldhúsborð eða dívan".
Bólfarir væru með öðrum orðum hið eina
sanna ,,Gagn og gaman". Ég held að hjá f lest-
um okkar krakkanna hér vestur í bæ hafi
liðið áratugur frá því að við urðum því sem
næst f ullnuma i kynf ræðum þar til okkur gafst
kostur á því að sannreyna menntun okkar í
praksís. Og úr því að okkur hér í Reykjavík
tókst að af la okkur svo staðgóðrar menntunar
í þessum fræðum strax á barnsaldri, þá má
geta nærri hvort börn í sveit, sem hafa verk-
lega sýnikennslu í feimnismálum fyrir
augunum allan ársins hring hafi gengið þess
dulin hvað kynferðismál snérust um.
Nú virðist hafa orðið umtalsverð breyting
eða þvísemnæst bylting í þessum efnum, ef
marka má umsvif sérfræðinga varðandi það
fyrirbrigði sem nefnt hef ur verið kynfræðsla.
Sérfræðingar og sálfræðingar, uppeldis-
fræðingar, félagsfræðingar og kynfræðingar
hafa komist að þeirri niðurstöðu að allir ung-
lingar og f lestir f ullorðnir vaði I villu og svíma
um forsendu eilífs lífs, samfarirnar,og haf i af
þeim í allt of fáum tilvikum bæði gagn og
gaman. Má þetta f urðulegt teljast þar sem öll
umræða um kynferðismál hefur stóraukist á
síðustu áratugum.
En eitthvað verða útlærðir kynf ræðingar að
hafa fyrir stafni, þeir verða að lifa eins og
aðrir.
Og nú hafa tvær stúlkur, útlærðar og sér-
fræðingar i kynfræðum, riðið á vaðið og
stofnað sérstaka kynfræðsludeild og haft af
því tilefni heillar opnu viðtal við eitt dagblað-
anna undir yf irskriftinni „Að kynfræða
íslendinga". Greinin skiptist í sex hluta eða
„Aðstoð, Pillan, Vergirni, Gagn og gaman, Að
vera fordómalaus og Konan er eyland'.'
Greinin hefst á þvi að hinar útlærðu lýsa
þeirri óhæfu að fólki skuli kennt „að draga
kvaðratrót fram og til baka, lesa forngrískar
bókmenntir, en þegar komiðer að likamanum,
sérstakl. þeim hluta, sem er milli stórutánna
(l.br. mín) þá klikkar allt." I greininni segja
kynf ræðistöllurnar orðrétt m.a.; „Annars er
mér óskiljanlegt þetta antípat á smokkum
sem strákar hafa. Þeir halda að þetta hafi
einhver truflandi áhrif". Svo mörg eru þau
orðin. Ég get persónulega frætt sérfræð-
ingana á því að í þessu efni er ég af anatóm-
iskum ástæðum reynslunni ríkari en þær (þær
eru stelpur) og var þetta mál mikið rætt í hóp-
vinnu sérfræðikreðsa vesturbæjarins í kyn-
ferðismálum á árunum. Voru allir, sem reynt
höfðu, á einu máli um það að uppáferð með
smokk væri eins og að éta karamellu með
bréfinu á.
Um þá staðhæfingu kynfræðinganna að
konur fái, eins og sagt er orðrétt í greininni,
„mikið betri fullnægingu með fingrunum
heldur en með eðlilegum samförum" get ég
ekki tjáð mig af því að ég er strákur. Þetta
vita þær betur af því að þær eru stelpur.
Ég held sattað segja, þegaröllu er á botninn
hvolft, að nú sé svo komið að gróskan í kyn-
lifinu blómstri alls staðar annars staðar en í
bólinu og er það vel, þó sumir rriuni á annað
hyggja.
Hér fer ef til vill vel á því að rif ja upp vísu
fröken Ragnheiðar:
Sjálfs mín höndin hollust var,
hætti ég brátt að daðra.
Með löngutöng ég lék mér þar
sem lokað var fyrir aðra.
Flosi
Þ j ónusta
Á verkstæði okkar við Smiðjuveg er harð-
snúið lið, sem annast alla almenna við-
gerðarþjónustu á hjólbörðum. Ný dekk
eða sóluð eru til sölu á sama stað i öllum
stærðum.
Vertu timaniega á ferðinni með vetrar-
undirbúninginn, littu við á Smiðjuvegin-
um.
Smiðjuvegi 32-34 Simar 44880-43988
Strax í dag!
eeiitscíseí
Samtök sveitarfélaga i Vesturlandskjördæmi
Framhaldsnám aðalumræduefni
á aðalfundinum í Munaðarnesi
Aðalfundur Samtaka sveitar-
félaga i Vesturlandskjördæmi
verður haldinn i Munaðarnesi um
helgina, 11.-12. nóvember.
Rétt til fundarsetu eiga 50-60 full-
trúar sveitarstjórna á Vestur-
landi auk gesta.
A dagskrá fundarins eru
skýrslur stjórnarformanns, Hún-
boga Þorsteinssonar, og fram-
kvæmdastjóra Guðjóns Ingva
Stefánssonar. Einnig verða flutt-
ar skýrslur frá Fræðsluráði
Vesturlands, samgöngunefnd
samtakanna og Byggðadeild
Framkvæmdastofnunar rikisins.
Aðalmál fundarins að þessu
sinni verður framhaldsnám á
Vesturlandi og flýtja Vilhjálmur
Hjálmarsson menntamálaráð-
herra og Ölafur Asgeirsson
skólameistari fjölbrautaskólans á
Akranesi framsöguerindi.
Landsfundur AlþýðubandaLagsins 17.-20. nóvember 1977
Dagskrá fundarins
Fundarstaður: Hótel Loftleiðir
Fimmtudagur 17. nóvem-
ber.
Kl. 20
a) Fundarsetning: Formaður
Alþýðubandalagsins setur
fundinn og flytur skýrslu um
flokksstarfið og stjórnmála-
viðhorfið
b) Kosning nefndanefndar og
kjörbréfanefndar
c) Avarp Verkalýðsmálaráð:
Benedikt Daviðsson. Ávarp
Æskulýðsnefndar: ArthUs
Mortens
d) Almenn umræða
e) Kosning starfsnefnda fund-
arins
Föstudagur 18. nóv.
Kl. 10
Framsöguræður um verkefni
starfshópa:
a) Efnahags- og atvinnumál
LUðvik Jósepsson
b) Lifeyrismál, Adda Bára Sig-
fUsdóttir
c) Skólamál, Svava Jakobsdótt-
ir
d) Vandamál lýðræðis og vald-
dreifingar, Svanur Kristjáns-
son.
e) Flokksstarfið, reikningar
flokksins og fjárhagsáætlun,
Ölafur Jónsson.
Kl. 14
Starfshópar og nefndir koma
saman:
a) Starfshópur um efnahags- og
atvinnumálaályktun, um-
ræðustjóri Ólafur Ragnar
Grimsson.
b) Starfshópur og lifeyrismál,
umi''ðustjóri Hrafn
MagnUsson.
c) Starfshópur um skólamál,
umræðustjóri Loftur Gutt-
ormsson.
d) Starfshópur um vandamál
lýðræðis og valddreifingar i
islensku þjóðfélagi, umræðu-
stjóriSoffia Guðmundsdóttir.
e) Starfshópur um almennt
flokksstarf, umræðustjóri
Sigurður Magnússon.
f) Stjórnmálanefnd, er fjallar
um ávarp fundarins.
g) Laganefnd.
h) Allsherjarnefnd.
i) Kjornefnd.
Laugardagur 19. nóv.
Kl. 10
a) Lagabreytingar.
b) Tillögur kjörnefndar lagðar
fram og lýst eftir öðrum til-
lögum.
c) Alit flokksstarfsnefndar og
tillögur um skatt flokksfé-
laga til flokksins á næsta ári.
Kl. 14.
a) Kosningar
b) Niðurstöður starfshópa
kynntar og ræddar.
Kl. 21.
Kvöldfagnaður á Hótel Loft-
leiðum fyrir landsfundarfull-
trúa og gesti þeirra.
Sunnudagur 20. nóv.
Kl. 13.30
Framhaldsumræður og af-
greiðsla mála. Stefnt verður
að þvi að landsfundi ljúki fyr-
ir kl. 18.