Þjóðviljinn - 12.11.1977, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 12.11.1977, Blaðsíða 3
Laugardagur 12. nóvember 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3 Borgarskæruliði handtekinn í Hollandi BONN 11/11 — Vesturþýskir embættismenn segjast ekki hafa ákveðið. hvort þeir muni fara fram á að þeim verði framseldur vesturþjóðverji nokkur, sem handtekinn var i Amsterdam eftir skotbardaga i nóttog er grunaður um aö vera borgarskæruiiði. Tveir menn voru þá handteknir og er annar þeirra talinn vera Christoph nokkur Wackernagel, 26 ára, sem er einn þeirra sextán Talinn vera einn 16-menningana eftirlýstu manna er vesturþýsk yfirvöld hafa lýst eftir vegna drápanna á Hanns-Martin Schleyer, forstjóra atvinurekendasambands Vestur- Þýskalands, Siegfried Buback rikissaksóknara og Jiirgen Ponto, einum voldugasta bankastjóra og fjármálamanni landsins. Eftir að lik Schleyers fannst i frönsku borginni Mulhouse i s.l. mánuði hóf vesturþýska lögregl- an mestu mannaveiðar I sögu lands sins, eins og það er orðað i frétt, en hefur litið haft upp úr krafsinu til þessa og viröist sem hollenska lögreglan hafi þar sleg- ið henni við. — Wackernagel var einu sinni talinn einhver efnileg- asti leikari Vestur-Þýskalands af yngstu kynslóöinni og kom fram i að minnsta kosti tveimúr kvik- myndum. Móðir hans er leikkona. San Fransiskó: Rýmingarsala Rýmum fyrir nýjum bílum Seljum nokkra SKODA 110L-1976 Bilarnir eru í mjög góóu ásigkomulagi og fást meö hagkvæmum greiósluskilmálum Hómósexúalisti í borgarráö SAN FRANSISKÓ 10/11 Reuter — Hómósexúalisti hefur verið kjörinn i borgarráð San Frans- iskó. Heitir hann Harvey Milk, er 47 ára og verslar með mynda- vélar. Er hann sá fyrsti af „káta fólkinu” (Gay People), eins og bandariskir hómósexúalistar kalla sig, sem nær slíkri upphefð. ,,EF ég stend mig vel í embætt- inu, kemur fólki til með að standa á sama þótt ég væri grænn á hör- und eða sexhöföa,” sagði Milk. Hann segist lita á kosningu sina sem mikilvægan áfanga i baráttu hómósexúalista fyrir afnámi mis- réttis, sem þeir sæta samkvæmt lögum. Milk var áður liðsfM-ingi i bandariska flotanum, en var rek- inn úr honum i Kóreustriðinu er upp komst um kynhneigðir hans. Hann segir að áhugi bandariskra hómósexúalista fyrir stjörnmál- um hafi stóraukist við herferð þá gegn þeim, er fyrrverandi söng- kona, Anita Bryant, hóf gegn þeim i Miami fyrr á árinu. Tókst Bryant að koma þvi til leiðar að hrundið var lögum þess efnis, aö bannað skyldi að láta hómósex- úalista sæta misrétti viðvikjandi húsnæði, atvinnu og aðgangi að opinberum stöðum. Milk segist ætla að berjast fyrir þvi, að bannað verði að reka fólk úr vinnu fyrir það að þaö sé hómó- sexúalistar. San Fransiskó mun vera helsta vigi hómósexúalista I Bandarikj- unum, og eru þeir taldir vera 80.000 talsins af 750.000 borgarbú- um alls. símar 24460 5 28810 GEYSIR BORGARTÚNI 24 REYKVfKINGAR! ÞAÐ ER UM HELGINA ALÞYÐUFLOKKSINS FYRSTA SÆTI EGGERT G. ÞORSTEINSSON STUÐNINGSFOLK

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.