Þjóðviljinn - 12.11.1977, Síða 10

Þjóðviljinn - 12.11.1977, Síða 10
10 StÐA — ÞJÓÐVILJINN- Laugardagur 12. nóvember 1977 Framtíd Handprjóna sambandsins Mikiöstarf er framundan i Handprjónasambandinu. Hér er fundur stjórnar og fleiri kvenna sem vinna að undirbúningi. F.v. Elin Sigmarsdóttir, Margrét Gunnarsdóttir, Hulda Gislasóttir, Þuriður Einars dóttir, Dóra Mýrdal og Inga Einarsdóttir. Elin og Inga eru ekki I stjórninni en hins vegar vantar eina stjórnarkonu, Elinu Pétursdóttur. Stofnun Handprjónasambands islands laugardaginn 5. nóvem- ber sl. hefur vakið mikla athygli. Þar rættist ioks langþráður draumur fjöimargra prjóna- kvenna um stofnun samtaka til verndar hagsmunum þeirra og leikur nú mörgum forvitni á framhaldinu i kjölfar hins glæsi- lega stofnfundar. Þjóðviljinn hitti að máli Iluldu Gisladóttur sem hratt þessari öldu af stað að þessu sinni og var kjörin fyrsti formað- ur Handprjónasambandsins. — Hvert veröur framtiðarform félagsins, Hulda? — Við i stjórninni erum nú að athuga alla möguleika og er það ekki komið á hreint ennþá. Hugsanlega stofnum við fram- leiðslusamvinnufélag. — Já, nú hafið þið fengið hús- næði hjá öðru framleiðslusam- vinnufélagi, hjá Rafafli að Skóla- vörðustig 19. — Já, ég veit ekki hvernig við hefðum farið að ef við hefðum ekki notið þessarar einstæðu vel- vildar Sigurðar Magnússonar stjórnarformanns Rafafls. — En eruð þið farin að nýta þetta húsnæði. — Nei, við fáum það afhent á morgun (viðtalið var tekið á mið- vikudag) og ætlum við þá fljót- lega að taka þar á móti peysum i stofnsjóðsgjald en ákveðið var að hver kona legði fram tvær peysur i það eða andvirði þeirra auk ár- gjaldsins sem er 3000 kr. Hins vegar eru konurnar svo áhuga- samar að þær eru þegar farnar að streyma á Skólavörðustiginn hlaðnar peysum. Það er eitt helsta vandamál okkar núna að þessar konur byrjuðu að safna peysum á lager hjá sér i byrjun október upp á væntanlega félags- stofnun og eru nú margar komnar með miklar birgðir. Flestar hafa prjónið sem lifibrauð og þurfa þvi að koma peysunum i verð fljót- lega. — Verður þá félagið söluaðili? — Já, það er meiningin og eitt fyrsta verk okkar nú er að reyna að ná samningum við þau fyrir- tæki sem hafa keypt peysur hing- að til. Það er ekki hægt að ganga fram hjá þeim þar sem þau hafa lagt i mikinn kostnað við markaðsöflun viða um heim. — Hver eru þessi fyrirtæki? — Það er t.d. Alafoss, Torgið, Hilda, Rammagerðin, Islenskur markaður og tslenskur heimilis- iönaður. — Nú hef ég frétt aö þið hafið þreifað fyrir ykkur erlendis lika? — Já, við erum i sambandi við islenskan aðila i Kanada sem vill gerast félagsmaður i Hand- prjónasambandinu og kanna alla moguleika þar vestra. Þetta yrði til þess að við slyppum við ýmsa milliliði. Það væri mjög æskilegt að fá stóra pöntun erlendis frá þar sem okkur er fjár vant núna og getum ekki keypt peysur af konunum. — Ætlið þiö ekki að leita til ein- hverra sjóöa. — Jú, við höfum sterkan hug á að leita til iðnrekstrarsjóðs en iðnlánasjóður kemur vist ekki til greina þar sem við notum ekki Hulda Gisladóttir: „Hugsan- lega stofnum við framleiðslu- samvinnufélag”. Myndin er tekin i húsnæði þvi sem fram- ieiðslusamvinnufélagið Rafafl lét Handprjónasambandinu ó- keypis i té að Skólavörðustig 19 (Myndir tók — eik.) önnur tæki til framleiðslunnar en prjónana. Hins vegar ætlum við að komast hjá að taka vixillán eða önnur slik lán meðan starf- semin er ekki komin i öruggari skorður. — Þið ætlið sjálfar að taka að ykkur flokkun, gæðaprófun og sölu á lopa. tJtheimtir það ekki mikla vinnu? — Já, við ætlum að útvega lopa á heildsöluverði til að selja eins og fyrirtækin hafa hingað til gert og annast flokkun og gæðamat. Við ætlum að hafa strangt gæða- mat og ekki taka við öðru en 100% unninni vöru. Til að byrja með munum við vinna þetta allt i sjálfboðaliðsvinnu en eitt af fyrstu verkefnum okkar verður að ráða framkvæmdastjóra. Ég ermjög bjartsýn á þetta starf og vonast til að samtökin verði brátt mjög öflug og kraftmikil. — Þið ætlið lika að löghelga ykkur munstur? — Já, og á stofnfundinum lýsti einn hönnuður, Steinunn Berg- steinsdóttir þvi yfir að hún ætlaði að gefa munstur. Annars hafa margar konur sin eigin munstur. — Eru margir sem hafa hand- prjónavinnu sem aðalatvinnu- grein? — Það er stór hópur sem lifir af þessu, bæði konur og karlar sem komast ekki út á hinn almenna vinnumarkað. Það eru t.d. ein- stæðir foreldrar, öryrkjar og lif- eyrisþegar sem reyna að drýgja tekjur sinar með þessu. Sjálf er ég öryrki og þetta er min atvinna. — Eru einhver inntökuskilyrði i félagið? — Nei, það er öllum opið. — Hversu margir eru félags- mennirnir orðnir? — Ég gæti trúað að þeir væru milli 6 og 7 hundruð og mjög mikl- ar likur á að margir bætist við. Inntökubeiðnir hafa borist viða að. Við fengum t.d. skeyti frá Skaftafelli þar sem hópur vinnur við þetta. Bréf kom frá Dalvik með 11 nöfnum, frá Strandasýslu og viðar. Þetta sýnir að áhuginn er geysimikill. Við erum nú að koma upp spjaldskrá yfir félaga. — Hvernig stóð á þvi að þú byrjaðir á þessu? — Það var búið að tala svo lengi um nauðsyn svona félags svo að einhver varð að taka af skarið. Ég gerði það með þvi að auglýsa i blaði eftir áhugafólki og fékk strax 67 tilboð og voru allt að 10 nöfn i hverju tilboði. Siðan var þetta fljótt að þróast þar til stofn- fundurinn var haldinn. Mér fannst nú samt ekki að endilega hefði þurft að kjósa mig sem for- mann fyrir það. — Hefurðu ekki tekið þátt i félagsstarfi fyrr? — Ég hef ekki svo mikið sem haldið ræðu fyrir 3 hræðum áður og þess vegna var það undarlegt að standa allt i einu fyrir framan 700 manns og þurfa að halda ræðu. Þjóðviljinn óskar handprjóna- konum til hamingju með þennan áfanga. Þær framleiða vandaða handunna vöru og ótrúlegt annað en hægt sé að greiða þeim mann- sæmandi laun fyrir hana. Að fá borgaðar 3000 krónur fyrir amk. tveggja daga verk og þurfa af þeim peningum að borga lopann er langt fyrir neðan allar hellur. Milliliðirnir taka til sin miklu meira fé fyrir miklu minni vinnu. Þannig kostar venjuleg peysa milli 6 og 7 þúsund krónur út úr búð. Þá munu vélprjónaðar peys- ur vera dýrari og er það fáheyrt að vélunnin vara sé dýrari en handunnin. Ef vel er aö málum staðið ætti að vera nægur mark- aður fyrir svo vandaða og góða vöru sem islenskar lopapeysur eru þó að þær séu ekki seldar langt undir framleiösluverði.GFi Fjölmargar prjónakonur hafa safnað peysum á lager i nokkrar vikur til að þurfa ekki að selja þær á Iágu verði. Hér er ein þeirra, Jensina Jensdóttir. Spjallað við Huldu Gísladóttur formann sambandsins

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.