Þjóðviljinn - 12.11.1977, Síða 13

Þjóðviljinn - 12.11.1977, Síða 13
Laugardagur 12. nóvember 1977 ÞJÓÐVILJXNN — SIÐA 13 Það er sérstök list aðhjóla á svelli meö halarófu af skautakrökkum í togi <Ljósm.:-eik) ALLIR Á SKAUTUM GAMAN, GAMAN. Þegar blaðamaður og ljós- myndari Þjóðviljans komu nið- ur á Tjörn i gærdag var þar lif og fjör. Á Tjörninni var hið ágætasta skautasvell og hópur krakka ærslaöist þar. Margir krakkanna voru langt að komn- ir og er það tii skammar að bæj- aryfirvöld skuli ekki búa til svell víðar eins almenn og skemmtileg þessi iþróttagrein er. Nýir skautar munu nú kosta 9-10 þúsund krónur en t.d. i versluninni Goðaborg er hægt að setja gamla skauta upp i nýja. Fyrir vel farna gamla skauta er borgaðar 3000 krónur þar. Ekki voru blaðamenn fyrr komnir en krakkar hópuðust I kringum þá og voru þeir að sjálfsögðu eins og beljur á svelli innan um öil þessi ærsl þvers og kruss. Ekki hlömmuðust þeir þó á rassinn eins og sumir krakk- arnir gerðu með glæsibrag. Milt frost var og ferskt loft. —GFr Þeir Gunnar Gunnarsson, Agúst Guðmundsson og Hróar Högni Hróarsson voru komnir alla leið innan úr Kleppshoiti til að fara á skauta enda ljómar af þeim ánægjan. Þeir sögðust vonast til aö komiðyrði upp sv^lli i Laugardalnum i vetur. (Ljósm.:-eik) Við báðum ólöfu Óladdttur, 9 ára, að detta fyrir okkur og gerði hún það með sérstökum glæsibrag en Ijósmyndarinn var fullseinn að munda vélina og lá hún þá á svellinu og hélt um hnéö en sagöist þó ekkert hafa meitt sig —sem betur fer fyrir okkur (Ljósm.:-eik) Þessir félagar Kammersveitar Reykjavikur leika i „Introduction et Allegro” eftir Maurice Ravel, sem flutt verður á tónleikunum á sunnu- dag. Frá v.: Pétur Þorvaldsson, Heiga Hauksdóttir, Páll P. Pálsson, Sesselja Halldðrsdóttir, Gunnar Egilson, Rut Ingólfsdóttir, Jón H. Sigurbjörnsson, og sitjandi er hörputeikarinn Monica Abendroth. Fyrstu tónleikar Kammersveitarinnar á sunnudag: Flutt verk eft- ir Jón Ásgeirsson Kammersveit Reykjavikur er nú að hefja sitt fjórða starfsár og veröur það með svipuöu sniði og undanfarin ár. Haldnir verða fernir tónleikar fyrir áskrifendur og munu þrennir þeirra verða haldnir i samkomusal Hamra- hliðarskóla, en jólatönleikarnir verða að þessu sinni haldnir i Bústaðakirkju. Fyrstu tónleikar Kammersveitarinnar I vetur verða næsta sunnudag, 13. nóvember og hefjast þeir kl. 17. A fyrstu tónleikunum verða einvörðungu flutt tónverk samin á þessari öld, þrjú frönsk, eftir tónskáldin Ravel, Ibert og Poulenc, og eitt islenskt, Oktett fyrirtréblásara eftir Jón Ásgeirs- son. Er þetta frumflutningur verksins. Kammersveitin býður áskrift að öllum fernum tónleikunum á kr. 3000, en aðgangur að einstök- um tónleikum verður seldur á kr. 1000. Börnum og skólanemendum verður veittur afsláttur þannig áð þau greiði kr. 2000 fyrir áskrift og kr. 700 fyrir staka miða. Askriftarkort verða til sölu i Bókaverslun Sigfúsar Eymunds- sonar og á fyrstu tónleikunum. Kammersveitin hefur haft það á stefnuskrá sinni að stuðla að kynningu islenskra kammer- verka, nýrra jafnt sem eldri og verða i þetta sinn frumflutt þrjú ný islensk kammerverk á starfs- árinu, sem samin hafa verið fyrir tilstuðlan Kammersveitarinnar. Starf Kammersveitarinnar er áhugastarf. Forsvarsmenn henn- ar sögðu á fundi með blaðamönn- um, að mikill kostnaöur væri viö hverja tónleika og væri naumast að endar næðu saman. Borgin hefur styrkt starfsemina með 100 þúsund krónum á hverju ári, en Kammersveitin fékk vilyröi fyrir 200 þús. kr. i vetur. —eös RANNSÓKNIR í HÁSKÓLA Líffrœðistofnun kynnt Einn þáttur i starfsemi Verk- fræði- og raunvisindadeiidar Háskóians er kennsia og rann- sóknir i liffræöi. Á fundi með fréttamönnum i vikunni kynnti prófessor Agnar Ingólfsson formaður liffræöi- stofnunar háskólans starfsemi hennar. Liffræðistofnun er ein þriggja rannsóknarstofnana Háskólans, hinar tvær eru Raunvisinda- stofnun og ný Verkfræðistofnun sem kynntar voru i Þjóðvilj- anum i gær. Kennsla hófst fyrst i liffræði- greinum i Háskólanum haustið 1968, sagði Agnar. Næsta ár voru fyrstu kennarar fast- ráðnir, en þá voru engar fjár- veitingar til rannsókna i lif- fræði. Það var til þess að stofnuð var við Skorina sérstök Liffræði- stofnun og var henni veitt fé i fyrsta skipti árið 1974 á fjár- lögum, en stofnunin tók til starfa árið 1972. Nú eru fastráönir 8 kennarar við liffræðiskor, og helmingur af vinnu þeirra er rannsóknar- vinna. Yfir sumartimann starfa þó um 30 manns við stofnunina en 10-15 yfir veturinn. Meirihluti þessa fólks er þvi lausráðið aðstoðarfólk og sérfræöingar sem fást við ákveöin verkefni. Mamnaskipti eru mjög mikil við liffræðisskorina, sagði Agnar, og hefur það háð starf- seminni nokkuð. Þáttur liffræðinema i rann- sóknarstörfum er mikill og er það hluti af námi þeirra. Þeir takast þá á hendur ákveðin rannsóknarverkefni, ýmist launuð undir umsjón kennara eða ólaunuð sem hluta úr námi. Rannsóknarstarfsemi Lif- fræðistofnunar skiptist þvi i þrennt. 1 fyrsta lagi eru þaö eigin rannsóknir fyrir fé sem veitt er af fjárlögum og eru þær rann- sóknir oftast tengdar áhuga- málum og sérsviðum einstaka kennara. í öðru lagi af kénnslufé, þ.e. rannsóknarverkefni nemenda. 1 þriðja lagi framkvæmir Liffræðistofnun þjónusturann- sóknir fyrir ýmsa aðila, og kosta beiðendur þá rannsókn- irnar. Agnar Ingólfsson sagði að Framhald á 14. siðu

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.