Þjóðviljinn - 12.11.1977, Qupperneq 14
14 SIÐA — ÞJóÐVILJINNLaugardagur 12. nóvember 1977
Blaðberabíó
Hafnarbió i dag, laugardaginn 12. nóvem-
ber kl. 13.00 RHINO. Spennandi mynd um
villidýraveiðar i Afriku. Aðalhlutverk:
Harry Guardino. Litur og cinemascope.
íslenskur texti. Ath. hafið samband við af-
greiðsluna ef þið hafið ekki fengið miða.
VÚÐVIUINN
simi 8 13 33
Önnumst þakrennusmiði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmiði.
Gerum föst verðtilboð
Borgfirðingar —
Mýramenn
Almennt hlutafjárútboö i Mýra - og Borgarfjarðarsýslu
vegna stofnunar Prestahnúks hf'. Upphæð hlutabréfa er
krónur 5,10, 50 og 100 þúsund. Ahugaaðilar hafi samband
við undirritaða fyrir 25. nóvember næstkomandi.
Konráð Andrésson. Simar 7113 og 7155
Halldór Brynjúlfsson. Simar 7370 og 7355
Jón Þórisson, simi um Reykholt
Sveinbjörn Blöndal, simi «m Varmalæk
Erling Gissurarson. Sími 1094.
ÚTBOÐ
Stjórn verkamannabústaða i Reykjavik
óskar eftir tilboðum i byggingu 18 f jölbýl-
ishúsa (216) ibúðir) i Hólahverfi.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu
V.B., Mávahlið 4, Reykjavik,gegn 100 þús-
und króna skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð þriðjudaginn 6. des-
ember 1977, kl. 14.00.
Happamarkaður
Hinn vinsæli happamarkaður Soroptim-
istaklúbbs Reykjavikur verður á morgun,
sunnudag, kl. 13.30 i Iðnskólanum við
Frakkastig.
Lukkupakkar fyrir börn á kr. 200.00
Húsgögn, lampar, búsáhöld, gler og
skrautmunir. Jólakerlingar, efnisbútar o.
fl. o. fl.
Allur ágóði rennur i málefnasjóð klúbbs-
ins.
Soroptimistakiúbbur Reykjavikur.
Augiysing
í Þjóðviljamim
ber ávöxt
— Hraðfrystihúsíð hér á Eyr-
arbakka hefur verið lokað slðan
seinast i ágúst, sagði Kjartan
Guðjónsson, formaður verka-
lýðsfélagsins þar i viðtali við
Landpóst s.l. fimmludag.
Hér eru tvær fiskverkunar-
stöðvar. Fremur litil starfsemi
er i annarri þótt betri sé en eng-
in, en Hraðfrystistöðin er
stærsti vinnuveitandinn. Karl-
menn eru hér ekki almennt at-
vinnulausir. Margir þeirra hafa
leitað fyrir sér um vinnu ann-
arsstaðar en hjá kvenfólkinu er
ekkert að gera. Á milli 20 og 30
hafa verið á atvinnuleysisstyrk
en nú er þvi að veröa lokiö þvi
þetta er orðið það langvarandi
að við erum að komast yfir
markið. Svo þú sérð að þetta
æði bágborið og ekki verður séð,
að neitt rofi til enn.
Mér finnst það undravert að
húsinu skuli ekki hafa verið
hjálpað strax i byrjun. Við
þurftum þá mjög litla aðstoð til
þess að geta haldið áfram að
taka t.d. togarafiskinn. En
vandamálið stækkar alltaf og
verður erfiðara tii lausnar með
hverjum deginum sem liður.
Ég hef verið I sendinefndum,
sem hafa farið til Reykjavikur
að ræða þar við ráðamenn um
þessi vandamál okkar. ,,Jú, við
skiljum ykkar erfiðleika og
viljum alít fyrir ykkur gera” er
sagt þar. Gallinn er bara sá, að
okkur gengur erfiðlega að lifa á
svona orðum einum saman. Ég
er ekkert myrkfælinn við
að segja það að ég tel það stafa
af algeru viljaleysi að þessu var
ekki komið af stað strax.
Vandamálið er orðið stórt en
það var ekki stórt i byrjun. Það
var ekki mikið fjárhagsspurs-
mál að gera okkur fært að taka
togarafiskinn. En i stað þess var
byrjað á þvi að láta togarann
sigla og siðan hefur hann landað
á Stokkseyri. Það er svo sem á-
gætt hjá þvi sem að hann sigli.
Héðan hafa eitthvað 5 stúlkur
farið I vinnu til Stokkseyrar en
fæstar húsmæður hafa tök á þvi.
Verið er nú að vinna að endur-
bótum á húsinu en það mátti
gera þótt fiskvinnsla færi þar
fram.
Mörg vandamál leiðir af svona
rekstrarstöðvunum. Eitt þeirra
er það vantraust, sem menn fá á
viðkomandi fyrirtæki. Af þvi
leiðir að enginn vill skipta við
það, þorir það blátt áfram ekki..
Nú, og viðskiptabátar, sem
þarna lögðu inn I sumar, eiga
þar fast stórfé, geta svo ekki
staðið i skilum við hreppsfélagið
og þannig leiðir þetta hvað af
öðru.
Ég held bara, að þeir ágætu
menn sem peningamálunum
ráða, skilji þetta ekki. Jú svo
ætla þeir að veita fé i að endur-
byggja húsið og gera það þannig
hæfara til að gegna sinu hlut-
verki. Það er gott og blessað og
á móti þvi er sist haft. En við
getum bara ekki beðið atvinnu-
laus á meðan. Ég vil sérstak-
lega undirstrika það, að eftir
þvi, sem biðin verður lengri vex
vandinn bæði fyrir þá, sem ætla
verður að muni þó leysa hann og
verkafólk hér, sem ekkert hefur
að gera. kg/mhg
Aldarafmæli
Stafholts-
kirkju
A þessu hausti verður Staf-
holtskirkja eitt hundraö ára.
Hún var byggö á árunum 1875-
1877 af þáverandi presti og próf-
asti I Stafholti sr. Stefáni Þor-
valdssyni og vigð i nóvember
það ár.
Þessa afmælis verður minnst
meö sérstakri hábðarguöþjón-
ustuá morgun, sunnudaginn 13.
nóvember, Þar mun biskupinn
yfir tslandi prédika en prestar
prófastsdæmisins þjóna fyrir
altari, Kirkjukórinn syngur
undir stjórn organistans,
Sverris Guðmundssonar i
Hvammi.
Að messu lokinni verður
samsæti i Húsmæöraskóla
Borgfirðinga á Varmalandi.
Þangað býður sóknarnefnd öllu
sóknarfólki núverandi og fyrr-
verandi til kaffidrykkju, sem
konur i sókninni munu veita.
Þar mun sóknarpresturinn, sr.
Brynjólfur Gislason, flytja er-
indi um sögu staðar og kirkju.
A undanförnum árum hefur
kirkjan verið lagfærð og fegruð
á ýmsan hátt. Það var og ætlun
sóknarnefndar að setja upp nýja
bekki f kirkjunni fyrir afmælið,
en af ýmsum orsökum gat ekki
af þvi orðið. Þegar liður á vetur
mun veröa hafist handa, og ef
að h’kum lætur verður þetta all
kostnaðarsöm framkvæmd. En
þá hefur þetta fagra guöshús
lika fengið þann búning er hæf-
ir.
Rita sögu
Akureyrar
Akureyringar hafa nú i undir-
búningi að skrá sögu bæjarins
og hefur stjórn Menningarsjóðs
Akureyrar kosið nefnd til að
undirbúa ráðstefnu þar sem
ræddar yrðu hugmyndir um
framkvæmd þessa verks.
Nefndina skipa: Valgarður
Baldvinsson, bæjarritari, til-
nefndur af bæjarráði, Gisli
Jónsson, menntaskólakennari,
tilnefndur af stjórn Amtsbóka-
safnsins og Haraldur Sigur-
geirsson, tilnefndur af Menn-
ingarsjóði.
Hugmyndin um að rita sögu
Akureyrarbæjar er ekki ný af
nálinni þótt ekki hafi úr þvi orð-
ið ennþá. En hreyfing komst á
málið nú er bæjarstjórn flutti
tillögu um slikt ráðstefnuhald,
sem nú er fyrirhugað. Til tals
hefur komið að ráðstefnan verði
haldin 19. og 20. nóv. n.k. Amts-
bókasafnið á Akureyri á 150 ára
afmæli á þessu ári en afmælis-
dagurinn er raunar óþekktur.
Þykir vel hljða að sameina ráö-
stefnu um söguritunina hátiöa-
haldi þar sem minnster afmælis
Amtsbókasafnsins.
—mhg
Litla leikfélagiö í Garði
sýnir HART í BAK
Fyrir um það bil ári siðan var
stofnað i Garðinum leikfélag er
nefnist Litla leikfélagið. Hófst
það þegar handa við æfingar á
KOPPALOGNI Jónasar Árna-
sonar sem það sýndi við mikinn
orðstir I fyrravetur, jafnframt
þvi, sem félagið kynnti ýmis
önnur verk Jónasar.
I vetur ætlar Litla leikfélagið
að sýna Hart i bak eftir Jökul
Jakobsson og eru æfingar þegar
hafnar undir stjórn Sævars
Helgasonar.
Meö hlutverkin i Hart i bak
fara: Ólafur Sigurðsson, Ingi-
björg Gestsdóttir, Unnsteinn
Kristinsson, Svavar Óskarsson,
Hólmberg Magnússon, Ingi-
björg Eyjólfsdóttir, Þórný Jó-
hannsdóttir, Einar Tryggvason
Sigurjón Kristinsson og Inga
Sigriður Stefánsdóttir.
— mhg