Þjóðviljinn - 12.11.1977, Qupperneq 15

Þjóðviljinn - 12.11.1977, Qupperneq 15
Laugardagur 12. nóvember 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15 r Sveit Armanns vann BRIDGE Umsjón: Baldur Kristjánsson ólafur Lárusson Um siöustu helgi, var spilaöur til lirslita siðasti bikarleikur sveita 1977 og áttust við sveitir Armanns J. Lárussonar og Jóhannesar Sigurðssonar. Er skemmst frá þvi að segja, að sveit Armanns úr Kópavogi bar sigur úr býtum. Leiknum lauk þó með jafntefli o-oimp, en samkv. reglugerð sigraði sveit Armanns, þar sem hún var yfir I meiri hluta mótsins, og einnig fyrir 8 siðustu spil. Sigursveitina skipuðu þessir: Ármann J. Láruss., fyrirl., Jón Páll Sigurjósson, Haukur Hannesson, Sævin Bjarnason og Vilhjálmur Sigurðsson. Óskar þátturinn þeim til hamingju með þennan árangur, sem er i alla staði hinn gæslilegasti. Alls tóku 32 sveitir þátt i keppninni i upphafi, en flestar „bestu” sveitirnar heltust fljót- lega úr leik, sumar i fyrstu umferð. Þar af leiðandi, var hiutur utanbæjarsveita stór i bikarkeppninni, sem er vel. Næsta bikarkeppni hefst eftir 15. mai ’78. Skrá yfir nýútkomin meistarastig Nýlega kom út skrá BSl, yfir meistarastig á landinu öllu. Við gripum aðeins niður i henni: - BR: stig 1. örn Arnþórsson 101 2. Guðlaugur R. Jóhannss. 99 3. Þórarinn Sigþórsson 96 4. Hörður Arnþórsson 94 5. Ásmundur Pálsson 90 6. Stefán Guðjohnsen 75 7. Hjalti Eliasson 74 8. Einar Þorfinnss. 70 9. Simon Simonarson 58 Allir með hjartanál (sem er 50 og yfir) TBK: stig: 1. Gestur Jónsson 53 2. Sigurjón Tryggvason 52 Ásarnir: 1. ÓlafurLárusson 50 Fleiri eru ekki með hjartanál á Islandi. Aðrir háir i félögum almennt eru: BR: stig: Sigurður Sverrisson 40 Sigtryggur Sigurðsson 36 Benedikt Jóhannsson 35 Hannes Jónsson 31 Guðmundur Sveinsson 30 Asarnir: Hermann Lárusson 45 stig Ragnar Björnsson 26 stig Lárus Hermannsson 25 stig Bridgefélag Kópavogs: Sævin Bjarnason 20 Stig Bridgefél. Hafnarfj.: Þorgeir Eyjólfsson 41 stig Bridgefél. Suðurnesja: Logi Þormóðsson 33 stig Selfoss: Sigfús Þórðarson 21 stig Vilhjálmur Þ. Pálsson 21 stig B.fél Akranes: Valur Sigurðsson 43 stig Jón Alfreðsson 43 stig Olafur G. Olafsson 22 stig Guðjón Guðmundsson 20 stig B.fél Vestm.eyja: Jón Hauksson 21 stig Pálmi Lórenz 20 stig Siðan eru 8 spilarar aðrir frá BR, með yfir 20 stig. Fleiri eru þvi ekki . komnir yfir 20 meist.stig Af Selfyssingum Atta sveitir tóku þátt i Haust- móti Bridgefélags Selfoss. Sveit Vilhjálms Þ. Pálssonar sigraði. Hlaut 117 stig. Næstar urðu: 2. Sv. Arnar Vigfúss. 111 st. 3. Sv. Jónasar Magn. 106 st. 4. Sveit Brynjólfs Gestss. 74 st. 1 sveit Vilhjálms spiluðu auk hans.Sigfús Þórðarson, Harald- ur Gestsson, Halldór Magnús- son, Haukur Baldvinsson og Svavar Hauksson. Þátturinn óskar þessum mönnum til hamingju með sig- urinn. Meistaramót félagsins i tvimenning, 3 kvöld, hefst fimmtudaginn 10. nóv. Frá Baröstrend- ingafélaginu Efstir eftir fyrstu umferð hraðsveitarkeppni félagsins. 1. sv. Ragnars Þorsteinss. 314 stig 2. sv. Sigurðar ísakss. 288 stig 3. sv. Guðbjartar Egilss. 271 stig 4. sv. Sigurðar Kristjánss. 267 stig Frá Fljótsdalshéraöi Tveimur umferðum er nú lok- ið i tvimenningskeppni félags- ins. Efstir eru: 1. Hallgr. og Kristján 317 st 2. Aðalsteinn og Sölvi 303 st 3. Pálmi og Sigfús 290 st Yfirlit yfir mót BSÍ 1978 1. tslandsmót i Sveitakeppni — undanúrslit. 1. -5. umferð dagana 22-24 marz að Loftleiðum. 2. Orslit 1.-7. umferð dagana 3.-7. mai að Loftleiðum 3. tslandsmót i Tvimennings- keppni. Úrslit 1.-3. umferð dagana 22.- 23. april að Loftl. 4. Landstvimenningur. Spilað um allt land dagana 2.-12. jan. ’78. v 5. Firmakeppni BSÍ-tslandsmót i einmenningi. 1. umf. 17. mai., 2. umf. 22. mai., 3. umf. 24. mai ’78. Spilað i Dómus Medica. 6. Bikarkeppni 1978-sveita- keppni. Frá 15. mai-úrslita 22. okt. 7. Norðuriandamót i Sveita- keppni 1978. Spilað að Loftleiðum dagana 9- 15 júni. Opinn flokkur, unglingaflokkur, kvennaflokkur. Frá BH 1. umferð aðalsveitarkeppni félagsins var spiluð sl. mánu- dag. Úrslit urðu þessi: Sv. Alberts Þorsteinss. vann A lið Flensborgar 20:0 Sv. Þórarins Sófuss. vann B. liðFlensborgar 20:0 Sv. Sævars Magnúss. vann sv. Ólafs Gislas. 18:2 Sv. óskars Karlss. vann sv. ólafs Ingimundars. 16:4 Sv. Björns Eysteinss. vann sv. Drafnar Guðmundsd. 20:0 Frá BR Sl. þriðjudag, hófst hjá féíag- inu hraðsveitakeppni. Geysigóð þátttaka er, því alls mættu 17 sveitir til leiks. Staða efstu sveita, eftir fyrsta kvöldiö: 1. Hjalti Eliasson 675stig 2. Guðmundur T. Gislason 648 stig > 3. Steingrimur Jónasson 643 stig 4. Vigfús Pálsson 626 stig" 5. Páll Valdimarsson 619 stig 6. Esther Jakobsd. 603stig Næst verður spilað á miðviku- daginn kemur. r Frá Asunum Eftir tvær umferðir i hrað- sveitakeppni Ásanna, hefur „feðgasveitin” tekið forystuna. Keppni lýkur á mánudaginn kemur, en staða efstu sveita er: 1. Ólafur Lárusson — Rúnar Lárusson Hermann Lárusson — Lárus Hermannsson 575stig 2. Vigfús Pálsson — Skúli Einarsson Haukur Ingason — Þorlákur Jónsson 574stig 3. Sævar Þorbjörnsson — Egill Guðjohnsen Guðmundur Hermannsson — Sigurður Sverrisson Skafti Jónsson 562stig 4. Páll Valdimarsson — Tryggvi Bjarnason Steinberg Rikharðsson — Guðm. Páll Arnarsson Rikharður Steinbergsson 561 stig 5. Armann J. Lárusson — Sverrir Armannsson Einar Þorfinnsson — Sigtryggur Sigurðsson556stig Meðalskor er 540 stig Næsta keppni Asanna, er aðalsveitakeppni félagsins, og er skráning þegar hafin i hana, I s: 41507-81013. Frá Bridge-félagi Breiðholts Að 12 umferð- um loknum, af 17, er staða efstu para þessi: 1. Kristján Blöndal — Valgarð Blöndal 219 stig 2. Baldur Bjartmarsson — Helgi Fr. Magnúss. 202stig 3. Guðlaugur Karlsson — Óskar Þráinsson 195stig 4. Friðrik Guðmundsson — Hreinn Hreinsson 190 stig 5. Finnbogi Guðmundsson — Sigurbjörn Armanns 186stig Hæstu skor þ. 8/11 tóku Gest- ur Jónsson og Sverrir Kristins- son (og þarmeð komnir á blað....) Tryggvi og Guölaugur unnu Tryggvi Gislason og Guðlaug- ur Nielsen, báru sigur úr býtum i tvimenningskeppni TBK, sem lauk fyrir skemmstu. 1 öðru sæti, eftir mikla baráttu. urðu Hafnfirðingarnir Albert Þor- steinsson og Sigurður Emilsson, og skildu aðeins tvö stig efstu pörin... Annars varð röð efstu para 1. Guðlaugur — Tryggvi 1219 2. Albert — Sigurður 1217 3. Hilmar Ólafsson — Ólafur Karlss. 1191 4. Björn Kristjánsson — Þórður Eliass. 1181 5. Sigtryggur Sigurðsson — Sverrir Kristinss. 1162 6. Arni Guðmundsson — Margrét Þórðard 1154 7. Helgi Einarsson — Sigurbjörn Armanns 1118 Tropicana?-keppni TBK, hófst á fimmtudaginn var, og verður nánar skýrt frá henni siðar. Formannaráðstefna BSÍ Um þessa helgi, fer fram á Akureyri svonefnd formanna- ráðstefna BSt, með þátttöku allra formanna bridgefélaga á landinu, þeirra sem geta séð sér fært að mæta i slaginn. Að sunnan koma um 20 fulltrúar, og vonandi verður hlutur lands- byggðarinnar ekki siðri. Nauðsyn er, fyrir bridgeþróun i landinu, að koma saman og ræða málin i heild, stefnu stjórnar BSt og hlut lands- byggðar i henni. Framtiðar- áætlun og undirbúning ein- stakra móta, þ.á.m. Norður- landamótið o.fl. Nánar verður skýrt frá ráð- stefnunni siðar. X Örnefnagæsla mikil- vægt hagsmunamál. „örnefni eru mikilvægurhluti umhverfis okkar og menningar. Þau auðkenna hvers konar staði og eru i sjálfum sér ómetanleg menningarverðmæti, sem mikil áhrif hafa á heimúð manna og unan. ömefnagæsla er þvi mikil- vægt hagsmunamál samfélags- ins. Samfélagið verður að sjá örnefnaarfinum borgið og gæta þess, að nýjar nafngiftir fari þannig úr hendi að örnefnin verði vel nothæf og menningar- arfurinn varðveitist i samfélagi sem er sifelldum breytingum undirorpið. 1 öllum norrænum löndum hafa þjóðfélögin komiö á fót stofnunum, sem hafa það hlut- verk að safna örnefnum, vinna úr þeim og gera þau aögengileg almenningi. Allir þeir aðiljar, sem fjalla um nafngiftir, eiga kost á að notfæra sér efnivið og sérþekkingu örnefnastofnana og ættu ekki að láta það undir höfuð leggjast”. Þetta er ályktun sem Nor- ræna samvinnunefndin um nafnarannsóknir samþykkti á ráöstefnu sem hún gekkst fyrir á Hanöholmen í Finnlandi I haust. A ráðstefnunni voru 50 þátttakendur frá Noröurlöndum og Vestur-Þýskalandi. 15 erindi voru lögð fram á ráðstefnunni og m.a. erindi Þórhallar Vil- mundarsonar, forstööumanns Ornefnastofnunar Þjóðminja- safnsins um nýnefni og örnefna- vernd á Islandi. Háskólatónleikar i dag Aörir Háskólatónleikar vetrarins verða i Félagsstofn- un stúdenta við. Hringbraut laugardaginn 12. nóvember og hefjast þeiraðþessu sinnikl. 16. Fram koma fjórir ein- söngvarar og tveir pianóleikar- ar. Sigurður Björnsson syngur lög eftir Emil Thoroddsen við undirleik Guðrúnar A. Kristins- dóttur, Halldór Vilhelmsson syngur lög úr Söngbók Garðars Hólm eftir Gunnar Reyni Sveinsson við undirleik ólafs Vignis Albertssonar, Sieglinde Kahmann syngur lög eftir Hugo Wolf við undirleik Guðrúnar og Rut Magnússon syngur ensk sönglög við undirleik ólafs Vignis. Að lokum syngja allir söngvararnir Astarljóðavalsa op. 52 eftir Brahms og Guðrún og Ólafur leika undir fjórhent á pianó. Astarljóðavalsar Brahms hafa sjaldan heyrst hér, en þessir listamenn sungu þá á Akureyri i vor, og nú gefst ibú- um höfuðborgarsvæðisins tæki- færi til þess að heyra þá. Aðgangur er öllum heimill. Miðar fást við innganginn og kosta 600 kr. Minningarkvöld um tvo organista i Dóm- kirkjunni Annað kvöld kl. 20.30 verður minningarkvöld i Dómkirkjunni um tvo fyrrverandi organleik- ara hennar, Pétur Guðjohnsen og Sigfús Einarsson. Á þessu ári eru liðin 100 ár frá andláti Péturs Guðjohnsens og 100 ár frá fæðingu Sigfúsar Einarssonar og þykir hlýða að minnast þessara mætu manna i Dómkirkjunni, sem þeir helg- uðu svo mjög starfskrafta sina. Pétur Guöjohnsen var hvata- maður að þvi, að orgel var keypt til Dómkirkjunnar áriö 1840 og gerðisthann þá organisti kirkjunnar og gegndi þvi starfi til dauðadags 1877. Sigfús Einarsson varð organ- isti við Dómkirkjuna árið 1913 og gegndi þvi starfi til dauða- dags árið 1939. Þórhallur Vilmundarson. Borgþór Kjærnested. A minningarkvöldinu flytur Haukur Guðlaugsson söngmála- stjóri erindi um Pétur Guðjohn- sen og Sigrún Gisladóttir um Sigfús Einarsson, en hún hefur skrifað bók um ævi Sigfúsar. Dómkórinn flytur nokkur verka Sigfúsar Einarssonar undir stjórn Ragnars Björns- sonar dómorganista. Þá leikur Rut Ingólfsdóttir á fiðlu við undirleik Ragnars Björnssonar tvö lög eftir Sigfús Einarsson. Flest eru þetta tónverk, sem sjaldan heyrast flutt opinber- lega. Einnig verða flutt nokkur sálmalög úr sálmasöngbók þeirri, sem Pétur Guðjohnsen gaf út fyrir þrjár raddir árið 1878, svo og hið tignarlega sálmalag hans Lofið Guð. Fréttastofa Borgþórs I ársbyrjun 1976 stofnaði Borgþór S. Kjærnested frétta- stofu i Reykjavik, með það fyrir augum að sjá erlendum frétta- stöðvum fyrir fréttum af Is- landi. Nú er svo komið að fastir samningar hafa tekist við hinar norrænu fréttastöðvar, Ritzau RB í Danmörku, NTB i Noregi, TT I Sviþjóð og STT/FNB i Finnlandi. Þar fyrir utan er i gildi svo- kallaður freelancefréttaritara- samningur við finnska útvarpið og sjónvarpið. Þjónusta allra þessara frétta- stöðva er nýtt af 134 dagblöðum áNorðurlöndumaukútvarps og sjónvarps. Fréttastofa Borgþórs S. Kjærnested byggir starfsemi sina á daglegum fréttaflutningi af islenskum atburðum, sem hafa heildaráhrif á islenska þjóðfélagsþróun, atburðum i menningarlifi þjóðarinnar, at- burðum sem á einn eða annan hátt verða samskipti tslands og annarra Norðurlanda.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.