Þjóðviljinn - 12.11.1977, Page 20
DJOÐVIUINN
Laugardagur 12. nóvember 1977
Aöalsimi Þjóöviljans er 81333 kl. 9-20mánudaga til föstu-
daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum.
Utan þessa tima er hægt aö ná i blaöamenn og aöra starfs-
menn blaösins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81527,
81257 og 81285, útbreiösla 81482 og Blaöaprent 81348.
^ 81333
Einnig skal bent á heima-
sima starfsmanna undir
nafni Þjóöviljans i sima-
skrá.
Flugleiðir
kaupa
flugskýli
nr. 4 á
Reykja-
víkur-
flugvelli
i gær var gengið frá samn-
ingum milli Flugleiöa h.f.
annars vegar og Samgöngu-
ráðuneytisins hinsvegar um
kaup Flugleiða á flugskýli
nr. 4 á Rcykjavikurflugvelli.
Flugskýli nr. 4 á Reykja-
vikurflugvelli var fljótlega
eftir bruna skýlis nr. 5 breytt
i viðgerðarskýli, en hafði
áður eingöngu verið notað til
geymslu. Flugmálastjórn sá
um viðgerðir á ytra byrði
skýlisins og einangrun þess.
Flugleiðir létu leggja i það
hita, nýja raflögn og vinnu-
ljós og byggðu ennfremur
millivegg i skýlið.Ennfremur
byggðu Flugleiðir 1000 ferm.
hús við hlið flugskýlisins sem
notað er sfem lager, verk-
stæði og skrifstofur.
Banaslys í
umferðinní
Nú er svo komiö að hvert bana-
slysið rekur annaö i umferðinni.
i fyrradag varð 77 ára gamall
maður, Ilermann Þorsteinsson,
tii heimilis að llvassaleiti 87 fyrir
bil á Háaleitisbraut og lést
skömmu siðar.
Nánari atvik eru þau, að bíll
Hermanns heitins hafði bilað á
Háaleitisbrautinni og fékk hann
aðstoð við að koma honum I gang.
Stóð Hermann aftan við bil sinn
er bill kom eftir Miklubrautinni
og var siðan ekið suður Háaleitis-
braut. Okumaðurinn, sem átti
undir sól að sjá, kom ekki auga á
Hermann heitinn og afleiðingarn-
ar urðu þessar. — mhg
Athugasemd
frá frétta-
stjóra
útvarps
Hr. ritstjóri
A miðvikudag hringdi til
min blaðamaður Þjóðviljans
og spurði hvort ég hefði eitt-
hvað að segja vegna þeirra
umrnæla fjármálaráðherra
að sáttatillaga i kjaradeilu
opinberra starfsmanna hefði
verið felld vegna þess að hún
hefði ekki verið kynnt nægi-
lega vel á hlutlægan hátt, þar
hefðu fjölmiðlar brugðist,
einkum rikisfjölmiðlar. Ég
svaraði blaðamanninum þvi
til að ég hefði ekkert um þetta
að segja, — og málið þar með
útrætt af minni hálfu.
I dag (föstudag) er mér
siðan bent á „viðtal” við mig
i fimmtudagsblaði Þjóðvilj-
ans sem þvi miður hafði far-
iö framhjá mér. Þar er ég
látin segja: „Hún sagði að
fréttastjórar útvarps og
sjónvarps heföu það fyrir
reglu að elta ekki ólar við
slikar fullyrðingar”. Þetta
hef ég einfaldlega aldrei sagt
og þessi setning er algjör-
lega út i bláinn.
Margrét lndriöadóttir
fréttastjóri
Benedikt Daviðsson, formaður Verkalýösmálaráðs Alþýðubandalagsins, setur ráðstefnuna I gær. Ljósm. eik.
Verkalýðsmálaráðstefna Alþýöubandalagsins hófst í gœr:
Framtíðarstefna og
baráttuaðferðír
meðal umrœðuefna á ráðstefnunni i dag
Verkalýðsmálaráð-
stefna Alþýöubandalags-
ins hófst í Tjarnabúð i
Reykjavík í gær kl. 16. For-
maður Verkalýðsmálaráðs
flokksins/ Benedikt
Davíðsson, setti ráðstefn-
una með ræðu. Ráðstefnan
stendur alla helgina. Á
ráðstefnunni eru fulltrúar
af öllu landinu.
1 gær var fjallað um þróun
kjara og efnahagsmála frá sið-
asta þingi ASl, og voru framsögu-
menn Snorri Jónsson, fram-
kvæmdastjóri ASÍ, og Ásmundur
Stefánsson, hagfræðingur sam-
bandsins. Siðan voru almennar
umræður.
í dag hefst ráðstefnan kl. 10 og
verður þá fyrst rætt um samstarf
samtaka launafólks. Framsögu-
menn eru Guðmundur J. Guð-
mundsson, formaður Verka-
mannasambandsins, Ingólfur
Ingólfsson, formaður Vélstjórafé-
lagsins og Haraldur Steinþórsson,
framkvæmdastjóri BSRB.
Strax að þvi loknu hefjast
framsögur i málefnaflokknum
Begin segist tilbúinn
að ræöa við Sadat
— hvort heldur i ísrael eða Egyptalandi
JERÚSALEM 10/11 Reuter —
Menakem Begin, forsætisráð-
herra Israels, sagði i kvöld að
hann ínyndi ekki telja það eftir
sér að taka i eigin persónu á móti
Sadat Egyptalandsforseta á flug-
vellinum við Tel Aviv, fylgja hon-
um til Jerúsalem og auðsýna hon-
um allan þann heiður, sem for-
seta bæri, ef Sadat gerði alvöru úr
þvi að heimsækja tsrael. Sagöist
Sadat i dag reiöubúinn að fara til
israels, ef það mætti greiöa fyrir
sáttum i deilum tsraels og traba.
Begin sagðist auk heldur vera
reiðubúinn að fara til Kairó og
ræða við Sadat þar, ef það gæti
þjónað málstað friðarins. „Ef
Sadat sýnir mér pýramidana,
sem forfeður okkar hjálpuðu til
að byggja og ég mun ekki krefjast
neinnar greiðslu fyrir, verð ég
honum þakklátur, en fyrst og
fremst vil ég að við ræðum frið-
inn,” sagði Begin. Með þessu mun
Begin eiga við, að hann telji aö
Hebrear hinir fornu hafi unnið við
pýramidabyggingar, þegar þeir
þrælkuðu hjá Faraó i gamla
daga.
framtiðarstefna og baráttuað-
ferðir I kjaramálum. Framsögu-
menn eru Guðjón Jónsson, for-
maður Málm- og skipasmiðasam-
bandsins, Helgi Guðmundsson,
formaður Trésmiðafélags Akur-
eyrar og Kolbeinn Friðbjarnar-
son, formaður Verkalýðsfélags-
ins Vöku á Siglufirði. Um kl. 13
hefst sameiginlegt borðhald ráð-
stefnugesta i Tjarnarbúð, en kl.
14 hefst vinna i starfshópum um
aðalmál ráðstefnunnar.
A morgun hefst ráðstefnan kl.
10 með framsögum um tengsl
faglegu og pólitisku verkalýðs-
hreyfingarinnar, Alþýðubanda-
lagið og verkalýðshreyfinguna.
Um það fjalla þeir Kjartan Ölafs-
son, ritsjóri, og Eðvarð Sigurðs-
son, formaður Dagsbrúnar.
Um kl. 13.30 á morgun hefjast
umræður um þetta mál og loks
verður rætt um niðurstöður
starfshópa.
Allir liðsmenn Alþýðubanda-
iagsins eru velkomnir á ráðstefn-
una.
Begin
Kambodía býöur Taílandi
uppá sáttaviðræður
Sakar tailendinga um árásir og dráp
BANGKOK 11/11 Reuter —
Kambódíska stjórnin sak-
aði í dag taílensku stjórn-
ina um að bera ábyrgðina á
árekstrum þeim, er orðið
hafa á landamærum ríkj-
anna síðustu tvo mán-
uðina, og stakk upp á við-
ræðum til þess að leysa
landamæradei lur. Vill
stjórn Kambódíu að
viðræðurnar verði í
Vientiane, höfuðborg Laos.
1 tilkynningu frá kambódíska
utanrikisráðuneytinu segir, ao
utanrikisráðuneytinu segir, aö
tailenskir herflokkar hafi farið
inn á kambódiskt landsvæði i
september, október og snemma i
þessum mánuði, drepið fólk og
valdið eignatjóni. Einnig eru
tailensk yfirvöld i tilkynningunni
sökuð um að halda hlífiskildi yfir
kambódiskum föðurlandssvikur-
um, eins og það er orðað. — Svip-
aðar ásakanir hafa Tailendingar
þráfaldlega borið upp gegn
Kambódiumönnum.
1 október 1975 urðu rikin sam-
mála um að taka upp stjórnmála-
samband, og segja Kambódiu-
menn að ekki standi á þeim að
fylgja þvi samkomulagi eftir.
Siðan það samkomulag var gert
hafa samskipti rikjanna tveggja
stöðugt versnað.