Þjóðviljinn - 02.12.1977, Síða 3

Þjóðviljinn - 02.12.1977, Síða 3
Föstudagur 2. desember 1977. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3 r Snorri Jónsson, framkvæmdastjóri ASI Verdlagsnefnd er ekki refsidómstóll Athugasemd vid frétt í Tímanum A fundi verðlagsnefndar i fyrradag var rætt um þá tillögu vcrðlagsstjóra að leiðrétta nú þá skerðingu, sem ákveðin var þ. 8. júli sl., hvað varðar mcistara- samband byggingamanna. Fyrir fimni mánuðum var samþykkt að iðnmeistarar skyldu. fyrst um sinn bera uinframhækkanir (um- samdar hækkanir til iðnaðar- manna umfram rammasamning) sjálfir. Verðlagsstjóri taldi að vegna þess að ýmsir hálaunamenn hefðu siðan i vor náð fram svipaðri prósentuhækkun á laun og þeir lægra launuðu væri þetta bráðabirgðaákvæði stjórnvalda úr gildi fallið. Hinsvegar taldi hann eðlilegt að þeir iðnmeistar- ar, aðallega innan Sambands málm- og skipasmiðja, sem ekki hlittu skilyrðum verðlagsyfir- valda á sinum tima og notuðu hærri taxta en þeim bar, ættu nú ekki að fá ieiðréttingu mála sinna. i Tfmanum i gær er villandi frásögn um afstöðu Snorra Jóns- sonar, framkvæmdastjóra ASi, til þcss máls. og hefur hann beðið Þjóöviljann um að koma eftirfar- andi athugasemd á Iramfæri: i dagblaðinu Tímanum i gær var fyrirferðarmikil frétt, scm átti að vera frásögn af fundi vcrð- lagsnefndar daginn áður. Þar sem minnst er á mina afstöðu I verðlagsncfnd vildi ég biðja blaö- ið um að birta eftirfarandi: 1. Það er rangt sem sagt er i nefndri frétt að launajöfnunar- stefna hafi verið á dagskrá verðlagsnefndarfundarins. Al- rangt er það og að fulltrúar Al- þýðusambandsins hafi á fund- inum á einn eða annan hátt gengið þar gegn markaðri stefnu verkalýðssamtakanna i launamálum eins og reynt er að lauma að i þessari fyrrnefndu furðufrétt. Það skal einnig tek- ið fram i þessu sambandi að það er ekki i vcrkahring verð- lagsnefndar að krukka i gerða kjarasamninga. A dagskrá var Menningarsjódur Islands og Finnlands: Styrkir til 4 Islendinga og 12 Finna 1 fréttatilkynningu frá mennta málaráðuneytinu segir, að stjórn Menningarsjóðs lslands og Finn- lands kom saman til fundar 14. nóvember s.l. i Abo i Finnlandi til þess að ákveða úthlutun styrkja úr sjóðnum. Umsóknarfrestur var til 30. september s.l. og bárust alls 86 umsóknir, þar af 70 frá Finnlandi og 16 frá Islandi. Út- hlutað var samtals 52.500 finnsk- um mörkum, og hlutu eftirtaldir umsækjendur styrki sem hér seg- ir: 1. Einar Bragi, rithöfundur, 4.000 mörk, til að kanna verk nokkurra sænsk-finnskra ljóð- skálda, einkum eftirlátin ljóðahandrit Gunnars Björ- lings i háskólabókasafninu i Abo. 2. Haukur J. Gunnarsson, leik- listarfræðingur, 4.000 mörk, til að kynna sér finnska leiklist. 3. Sigfús Halldórsson tónskáld og listmálari 2.000 mörk, tii kynnisferðar til Finnlands. 4. Sveinn Ásgeirsson, rithöfund- ur, 2.000 mörk, til Finnlands- ferðar til ritstarfa. 5. Greta Brotherus, blaðamað- ur, 4.000 mörk, til að kynna sér og skrifa um starfsemi Nor- ræna hússins i Reykjavik. 6. Barbara Helsingius, visna- söngkona, 3.000 mörk, til tón- leikaferðar til Islands. 7. Terttu Hirvenoja, fil.mag., 3.000 mörk, til að taka saman upplýsingaefni um Island, ætlað sænskukennurum i finnskum skólum. 8. Lauri Kanerva, ljósmyndari, 4.000 mörk, til að ljúka gerð myndaflokks um Island. 9. Raiku Kemppi, dagskrár- stjóri, 3.000 mörk, til að kynna sér islenska leikhúslist, svo og leikrit fyrir útvarp og sjón- varp. 10. Lauri Ollila, rektor, 3.000 mörk, til að kynna sér is- lenska skólakerfið og sérstak- lega menntun islenskra kennara. 11. Ulla Rantanen, myndlistar- maður, 3.000 mörk, til að vinna að undirbúningi sýning- ar á verkum með efni úr is- lenskri náttúru. 12. Olle Spring, ritstjóri, 3.000 mörk, til að kynna sér þátt fjölmiðla i islensku þjóölifi. 13. Dansleikhúsið Raatikko, 5.600 mörk, til íslandsferðar með sýningu á dansleiksýningunni „Sölku Völku”. 14. Anna Tauriala, barnabóka- höfundur, 4.000 mörk, til ts- landsferðar til að safna efni i barnabók. 15. Wasa-leikhúsið, 900 mörk, ferðastyrkur til að bjóða tveimur islenskum rithöfund urm á tslandsvikuna i Wasa. 16. Tauno Aikáa, organisti, og Matti Tuloisela, söngvari, 4.000 mörk, til tónleikaferðar til Islands. Höfuðstóll sjóðsins er 450.000 finnsk mörk sem finnska þjóð- þingið veitti i tflefni af þvL að minnst var 1100 ára afmælis byggðar á tslandi sumarið 1974. — Stjórn sjóðsins skipa Ragnar Meinander, deildarstjóri i finnska menntamálaráðuneytinu, for- maður, Juha Peura, fil.mag., Kristin Hallgrimsdóttir, stjórnar- ráðsfulltrúi, og Kristin Þórarins- dóttir Mantylá, en varamaður af finnskri hálfu og ritari sjóðs- stjórnar er Matti Gustafson, full- trúi. Snorri Jónsson hins vegar það verkefni að ákveða hvað atvinnurekendur i hinum ýmsu starfsgreinum megi verðleggja útselda vinnu á hverja timaeiningu frá og með 1. þessa mánaðar m.a. með hliðsjón af þeim hækkun- um sem verða þá á samnings- bundnum kauptöxtum. 2. Við launþegafulltrúarnir i verðlagsnefnd greiddum at- kvæði með oddamanni i júli- mánuði sl. þegar útseld vinna var ákveðin — þá með þeim rökum, að atvinnurekendur ættu að taka á sig hluta af kauphækkunum sem samið var um i sólstöðusamningun- um. Hluti atvinnurekenda sætti sig ekki við ákvörðun verðlags- nefndar og brutu gegn henni. Þeir hafa verið kærðir, og er mál þeirra nú statt einhvers staðar i dómskerfinu og fær að sjálfsögðu sina meðferð þar. 3. Þetta varðandi afstöðu mina á fundi verðlagsnefndar nú: Fyrir fundinum lá tillaga frá verðlagsstjóra um að atvinnu- rekendur i byggingaiðnaði, þar sem hann leggur til að þeir fái leiðréttingu á skerðingunni frá 8. júli sl. Þannig að álagning verði nú 10% á allar umsamdar kauptölur á sama hátt og und- anfarin ár, en þeir sem brotið hefðu gegn ákvæðum verðlags- nefndarinnar bæru skerðing- una áfram. Ég var meðfluttningsmaður að þeirri breytingartillögu við til- lögu verðlagsstjóra um útselda vinnu i byggingariðnaði, að út- seld vinna i málm- og skipa- smiðaiðnaði og rafiðriaði hlyti hliðstæða afgreiðslu og i bygg- ingaiðnaði. Ég tel ekki að það sé i verka- hring verðlagsnefndar að straffa einn né neinn. Brota- mál hljóta að ganga dóms- málaleiðina og heyra undir þær stofnanir og þá ráðamenn sem með þau mál fara. 1. I nefndri frétt er minnst á það sem hetjudáð að formaður verðlagsnefndar sleit fundi gegn vilja nefndarinnar þar sem þessi mál voru á dagskrá. Þannig virkaði þetta ekki á mig. Flestir viðstaddir voru undrandi á þessu, og einhver hafði á orði við þetta tækifæri að sér þætti undarlegt að for- maður skyldi nota vald sitt á þennan hátt nú i eitt af þeim fáu skiptum sem nefndarmenn virtust vera sammála. En úr þvi sem komið ér finnst mér hlýða að skýra frá þvi að það er meirihluti fyrir þvi i verðlagsnefnd að afgreiða mál- ið eins og við Baldur Guðlaugs- son leggjum til. Fundi i verð- lagsnefnd sem átti að vera i gærmorgun var frestað til n.k. mánudags og málið þá væntanlega afgreitt frá nefnd- inni til rikisstjórnarinnar. Snorri Jónsson Styrkir til visindalegs sérnáms i Sviþjóð. Sænsk stjórnvöld bjóða fram styrki handa tslendingum til visindalegs sérnáms I Sviþjóð. Boönir eru fram fjórir styrkir til 8 mánaða dvalar, en skipting i styrki til skémmri tima kemur einnig til greina. Gera má ráð fyrir að styrkfjárhæð verði a.m.k. 1.725 sænskar krónur á mán- uði. Styrkirnir eru að öðru jöfnu ætlaðir til notkunar á há- skólaárinu 1978-79. Umsóknum um styrki þessa, ásamt staðfestum afritum prófskirteina og meðmælum, skal komið til menntamála- ráöuncytisins, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 5. janúar n.k. — Sérstök umsóknareyöublöð fást I ráðuneytinu. Menntamálaráðuneytið, 29. nóvember 1977. Alþýðuleikhúsið Sýningur á Skollaleik Dalvík: mánudags- kvöld: kl. 21.00 Akureyri: þriðjudags kvöld kl. 20.30 Ölafsfirði: miðviku- dagskvöld kl. 21.00 ,/Ég lá endilangur í grasinu með skammbyssu í hendi. Armbandsúrið mitt tifaði í samræmi við æðislegan hjartslátt minn. I óralanga sekúndu sá ég andlitvina minna# sem fallið höfðu fyrir hendi nas- ista. Sprengjurnar áttu að springa eftir þrjár minútur. Ef við hefðum farið rétt að/ táknaði það eyðileggingu enn einnar verksmiðju/ sem nasistum var bráðnauðsynleg. Enn voru tvær mínútur eftir. Égtók eftir að ég var farinn að rif ja upp, hvernig ég hafði lent hérna, hvernig þetta hafði allt byrjað. Ein mínúta. Ég beit á neðri vörina. Jafnvel þótt þetta spellvirki bæri árangur, þá gæti svo farið áður en kvöldið væri á enda, að við værum allir dauðir." — Þannig hefst þessi ógnarsaga, hún er skjalfest og sönn frásögn, sannköliuð Háspennubók! „Hér er um martröð dularfullra atvika og ofbeldis að ræða", segir Evening News í London. — ,,Harð- soðin bók, sem skrifuð er af þekkingu, — full af stormum, bellibrögðum og skjótri atburðarás", segir Birmingham Mail. — „Blóðidrifin ógnarsaga um morð, ofbeldi og dularfulla atburði úti á rúm- sjó, sem ætti að gleðja hina fjölmörgu lesendur, sem velta því fyrir sér, hvað haf i eiginlega orðið af hinum gömlu, góðu ævintýraf rásögnum, Og svarið er, Brian Callison skrifar enn slikar sögur. Ég spái því að þegar hinir fjölmörgu lesendur McLeans uppgötva bækur Brian Callisons, muni vinsældir hans verða gífurlegar", segir Sunday Express. — En Alister McLean sagði einfaldlega: „Það getur ekki verið til betri höfundur ævintýrabókmennta í landinu núna". — Þetta er sannkölluð háspennu- bók! SKYRStft fRft NR.24

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.