Þjóðviljinn - 02.12.1977, Blaðsíða 5
Föstudagur 2. desember 1977. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5
Ályktanir aukafundar
Stéttarsambandsins
Aukafundur Stéttarsa mbands
bænda hófst i Reykjavik i fyrra-
dag og lauk honum kl. 0,2 i fyrri-
nótt. '
Nokkrar ályktanir voru sam-
þykktar, sú veigamesta og sem
var fyrstog fremst tilefni fundar-
ins var breytingin á lögum Fram-
leibsluráðs landbúnaðarins um
heimild þess til að innheimta sér-
stakt gjald af innfluttu kjarnfóðri
og ákveða mismunandi háttverð
á búvöru til framleiðenda (kvóta-
kerfi) ef markaðsaðstæður ein-
hverrar búvörutegundar eru
þannig að framleiðslutak-
markanir séu nauðsynlegar.
Fundurinn samþykkti að mæla
með að Framleiðsluráð fengi
heimild til að leggja gjald á inn-
fluttkjarnfóðurog að beita kvóta-
kerfi. Það voru 7 fulltrúar á
fundinum sem greiddu atkvæði á
móti fóðurbætisskattinum. En
það er gert ráð fyrir að Fram-
leiðsluráð hafi heimild til að
leggja á 25% gjald á innflutt
kjarnfóður miðað við útsöluverð i
Reykjavik, en verð á fóðurein-
ingu með 150 g. meltanlegu hrá-
proteini verði aldrei hærra en
verð á 0,7 kg. mjólkur i verðlags-
grundvellinum.
Ekki er heimilt að innheimta
þetta gjald nema vanti á útflutn-
ingsbæturnar. Heimilt er Fram-
leiðsluráði að ákveða endur-
greiðslu á gjaldinu til bænda i
byggðarlögum, sem að dómi þess
hafa of litið heyfóður eða
markaðsaðstæður eða aðrar
ástæður gera endurgreiðslu þess
nauðsynlega. Ennfremur getur
Framleiðsluráð ákveðið endur-
greiðslu á gjaldinu til ákveðinna
búgreina s.s. til alifugla- og
svinaræktar. Gjald þetta á
kjarnfóðrið á ekki að hafa áhrif á
útsöluverð búvöru. Þannig að
bændur taka gjaldið á sig.
Fundurinn gerði þá kröfu, að
stjórn Stéttarsambandsins vinni
að þvi við rikisstjórnina að hún
felli niður söluskatt af kjöti og
kjötvörum, án þess að niður-
greiðslur verði skertar; einnig að
rikissjóður veiti landbúnaðinum
fjárhagslegan stuðning við sölu
smjörs á niðursettu verði, og að
verðmæta-útreikningum land-
búnaðarframleiðslunnar verði
breytt vegna ákvarðana um út-
flutningsbætur, þannig að rikis-
stjórnin komi á móti bændum að
einhverjum hluta.svo tekjuskerð-
ing þeirra verði minni en ella.
Þessi samþykkt aukafundarins
felur i sér að bændur viðurkenna
þá staðreynd að verulega komi til
með að vanta upp á að Utflutn-
ingsbætur dugi til að tryggja
bændum fullt verð fyrir fram-
leiðsluna. Aætlaðer nú, að ef ekk-
ert er aðgert, mundi þessi upphæð
nema um 300 þús. kr. á meðal-bú
á þessu verðlagsári. Hér á eftir
verður getið nokkurra ályktana
sem samþykktar voru á fundin-
um:
„Fulltrúafundur Stéttarsam-
bands bænda 30/11 1977 beinir þvi
til stjórnar sambandsins að hún
beiti áhrifum sinum til að sú til-
laga sem samþykkt var á siðasta
aðalfundium beina samninga við
rikisvaldið um verðlagningu
landbúnaðarvara o.fl. komist
sem fyrst til framkvæmda”.
Þessi tillaga var samþykkt sam-
hljóða, en það er i fyrsta sinn sem
hliðstæð tillaga hefur ekki fengið
mótatkvæði á Stéttarsambands-
fundum.
„Aukafundur Stéttarsam-
bandsins vekur athygli á sam-
þykktum almennra bændafunda
að undanförnu varðandi kröfur
um úrbætur i afurða- og rekstrar-
lánamálum landbúnaðarins.
Fundurinn harmar að engin
raunhæf úrlausn skuli hafa feng-
ist og itrekar þá kröfu siðasta
aðalfundar Stéttarsambandsins
að vinnslustöðvum landbúnaðar-
ins verði gert kleift að greiða til
framleiðenda 90% af grundvall-
arverði við móttöku vörunnar.”
Þá samþykkti fundurinn tillögu
þar sem skorað var á stjórn
Stéttarsambandsins að gangast
fyrir aukinni aðstoð við fjöl-
breyttari atvinnuhætti i sveitum.
Einnig var samþykkt tillaga þar
sem lögð var áhersla á að fyrn-
inga, vaxta og launaliðir i verð-
lagsgrundvelli, verði leiðréttir.
Jafnframt vitti fundurinn harð-
lega þann drátt sem orðið hefur á
gildistöku nýs verðlagsgrundvall-
ar.
Tillaga til Útvarpsráös um að
taka upp á ný þáttinn Spjallað við
bændur var einnig samþykkt.
Eftirfarandi tillaga um afnám
tolla á búvélum var afgreidd frá
fundinum:
„Aukafundur Stéttarsamb.
bænda 30/11 1977 gerir þær kröfur
til rikisvaldsins, að um leð og
bændur verða fyrir stórfelldri
kjaraskerðingu sökum vöntunar
á útflutningsbótum, komi það til
móts við þá með þvi að land-
búnaðurinn verði settur við sama
borð og iðnaður og sjávarútvegur
að þvi er snertir álagningu tolla,
vörugjalds og söluskatts af inn-
flutningi véla og varahluta”.
—mhg
Leikfélag
Þorlákshafnar
sýnir
Legunauta
eftir Þorstein
Marelsson
i Kópavogsbíói í kvöld
kl. 21.00.
Miðasala frá kl. 17.00
Sími 41985.
Styrkur til háskólanáms i Hollandi
Hollensk stjórnvöld bjóða fram styrk handa lslendingi til
háskólanáms I Hollandi háskólaárið 1978-79. Styrkurinn er
einkum ætiaður stúdent sem kominn er nokkuð áleiðis I
háskólanámi eða kandidat til framhaldsnáms. Nám við
listaháskóla eða tónlistarháskóla er styrkhæft til jafns við
almennt háskólanám. Styrkfjárhæðin er 950 flórinur á
mánuði i 9 mánuði og styrkþegi er undanþeginn greiðslu
skólagjalda. Þá eru og veittar allt að 300 flórinur til kaupa
á bókum eða öðrum námsgögnum og 300 flórinur til
greiðslu nauðsynlegra útgjalda I upphafi styrktimabils. —
Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi gott vald á hol-
lensku, ensku, frönsku eða þýsku.
Gmsóknir um styrki þessa ásamt nauðsynlegum fylgi-
gögnum skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu,
Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 5. janúar n.k. Umsókn um
styrk til myndlistarnáms fylgi ljósmyndir af verkum um-
sækjanda, en segulbandsupptaka ef sótt er um styrk til
tónlistarnáms. — Sérstök umsóknareyðublöð fást i ráðu-
neytinu.
Menntamálaráðuneytið,
28. nóvember 1977.
Styrktarmenn Alþýðubandalagsins eru minntir á að
greiða framlag sitt til flokksins fyrir árið 1977 hið
fyrsta.
P
Alþýðubandalagið, Kópavogi. Dansleikur
Dansleikur verður haldinn i Þinghóli föstudaginn 2. desember kl. 8.30
. Skemmtiatriði, Plötuverðlaun. Trló ’72 leikur fyrir dansi. Fjölmenniö
og takið með ykkur gesti. Skemmtinefndin.
Alþýðubandalagið i Borgarnesi
Fundur um hreppsmál efni verður haldinn mánudaginn 4. desember
kl. 20.30 að Klettavik 13 (hjá Eyjólfi). Dagskrá: 1. Inntaka nýrra
félaga. 2. Hreppsmálefni: Halldór Brynjðlfsson hefur framsögu. 3.
Afstaða tekin til togarakaupa á vegum hreppsfélagsins. 4. Skemmti-
nefnd gerir grein fyrir störfum sinum. 5. Önnur mál. — Stjórnin.
Aðalfundur kjördæmisráðs i Suðurlandskjördæmi.
Aðalfundur kjördæmisráðsins verður haldin að Bárugötu 9 I Vest-
mannaeyjum laugardaginn 3. desember og hefst kl. 17. Farið verður
með Herjólfi frá Þorlákshöfn.
Dagskrá: I. Venjuleg aðaifundarstörf. 2. Kosið I fastanefndir. 3. Fram-
boðsmál. 4. Æskulýðsmál. 5. önnur mál. — Stjórnin.
Happdrætti Norðurlands
Miðar fást I bókabúö Máls og menningar Laugavegi 18 og á skrifstofu
Alþýðubandalagsins að Grettisgötu 3 og hjá símavöröum Þjóöviljans.
Vinningur: Kinaferö fyrir 2 að verðmæti 600.000 kr. Dregið 7. desem-
ber.
Ungmennafélag
Islands
óskar eftir skrifstofuhúsnæði ca. 150 til 180
fermetra til kaups.
Æskileg staðsetning: Nálægt miðbænum.
Upplýsingar á skrifstofu UMFÍ, Klappar-
stig 16, simar 12546 & 14317.
marka&storg
— viöskiptanna —
Verzlunin KJÖT & FISKUR er einn af frumherjum baráttunnar fyrir lægra vöruverði til neytand-
ans. Hagkvsm innkaup, skynsamlegur rekstur og vaxandi velta gera okkur mögulegt aö bjóöa
lægra vöruverð. Viö riöum á vaöiö meö „sértilboöin” siöan komu „kostaboö á kjarapöllum” og
nú kynnum viö þaö nýjasta f þjónustu okkar viö fólkiö f hverfinu, „Markaöstorg viöskiptanna ” A
markaðstorginu er alltaf aö finna eitthvaö sem heimiliö þarfnast og þar eru kjarapallarnir og
sértilboöin. Það gerist alltaf eitthvað spennandi á markaöstorginu’.
f sériilboð:«
Strásykur 1 kg................
Púðursykur 1/2 kg.............
Flórsykur 1/2 kg .............
Lyftiduft450 grömm ...........
Hveiti 5 Ibs.................
Hveiti 10 Ibs.................
Akrasmjörliki.................
Rítz-kex.....................
Dofri hreingerningarlögur 1 líter
Iva þvottaefni 5 kg...........
aGrænar baunir 1/2 dós........
Grænar baunir 1 dós ..........
Opið til kl. 10 á föstudögum
og milli kl. 9 og 12 á laugardögum
hálfrar aldar þjónusta
kjöt&fiskurhff
seljabraut 54-74200 §
Z?
80 kr.
75 kr.
60 kr.
. 262 kr.
.221 kr.
, .441 kr.
. .162kr.
. 167 kr.
. .240kr.
1.113 kr.
. 178 kr.
. 275 kr.