Þjóðviljinn - 02.12.1977, Qupperneq 13
Föstudagur 2. desember 1977. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 1'3
sjonvarp
Kast-
ljós
Fiskfriðunarmál verða
til umræðu í kvöjj^í Kast-
Ijósi, að sögn Magnúsar
Bjarnfreðssonar, sem sér
um þáttinn að þessu sinni,
og að þvi loknu málefni
landbúnaðarins.
Þeir sem fjalla munu um
fyrra efnið verða menn sem set-
ið hafa á fiskiþingi,og að lokum
munu þeir vegast á, Kristján
Ragnarsson, formaður LIÚ, og
Matthias Bjarnason, sjávarút-
vegsráðherra, en stjórnvöld
hafa setið undir hörðum um-
mælum á fiskiþinginu og þvi
hætt við að ekki verði þeir tveir
á eitt sáttir.
Magnús Bjarnfreðsson og
Tryggvi Gunnarsson munu inna
fulltrúa á þingi Stéttarsam-
bands bænda eftir niðurstöðum
af fundi þeirra, sem lauk i
fyrradag.og að auki um stefnu i
landbúnaðarmálum almennt.
Þátturinn „Kastljós” er á
dagskrá kl. 21.15. i kvöld.
Fyrr hafa fiskveiðimál verið rædd og mönnum sýnst sitt
hvaðum, fyr en I þættinum i kvöld. Hinn aldni sjómaöur á
myndinni mun vafalaust hafa sina skoðun á hlutunum
líka, og er kannske einmitt að hugleiða horfurnar meðan
hann sýpur á brúsalokinu.
utvarp
GESTAGLUGGI
Rætt viö Ólaf Jóhann
í „Gestaglugga," nýj-
um þætti, sem Hulda Val-
týsdóttir stjórnar og
f jallar um listir og menn-
ingarmál, verður í kvöld
meðal annars rætt við
ólaf Jóhann Sigurðsson
um nýjustu skáidsögu
hans, Seiður og hélog.
I bókarkynningu um þessa
bók er það helst sagt að hér sé
um að ræða Reykjavikursögu
frá hernámsárunum, sem beri
með sér hugblæ þeirra tima,
skýran og Ijóslifandi. Eitt
megineinkennið er rikuleg
kímni og eru margir kaflarnir
meðal þess allra besta, sem
Ólafur hefur ritað. Þetta er
fyrsta skáldsaga Ólafs Jóhanns
eftir að hann hlaut bókmennta-
verðlaun Norðurlandaráðs.
Meðal fyrri skáldsagna og
styttri sagna Ólafs má nefna
Fjallið og draumurinn,
Gangvirkið, Vorköld jörð,
Hreiðrið, Bréf séra Böðvars og
Litbrigði jarðarinnar. Enn-
fremur smásagnasöfnin Kvistir
i altarinu, Teningar i tafli og
Speglar og fiðrildi. Er þá ekki
nema nokkuð talið af ritverkum
Ólafs Jóhanns, en nýtt verk frá
hans hendi er alltaf með for-
vitnilegustu bókmenntavið-
burðum hérlendis, og verður
fróðlegt að heyra hvað hann
hefur um hina nýju sögu sina að
segja.
I „Gestaglugga” verður enn
rætt við Pál Lindal borgarlög-
mann um listaverkakaup
Reykjavikurborgar og loks við
Stefán Edelstein um Tón-
menntaskólann nýja, fyrrum
Barnamúsikskólann, sem ný-
lega er fluttur i ný og betri húsa-
kynni við Lindargötu.
7.00 .Morgunútvarp
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og
10.10. Morgunleikfimi kl.
7.15 og 9.05. Fréttir kl. 7.30,
8.15 (og forustugr. dagbl.),
9.00 og 10.00. Morgunbænkl.
7.50. Morgunstund
barnanna kl. 8.00: Rögn-
valdur Finnbogason les
„Ævintýri frá Narniu” eftir
C.S. Lewis (17). Tilkynning-
ar kl. 9.30. Þingfréttir kl.
9.45. Létt lög milli atriða.
Morgunpopp kl. 10.25.
Morguntónleikar kl. 11.00.
14.30 Miðdegissagan: „Skakkt
númer — rétt númer” eftir
Þórunni Elfu Magnús .
Höfundur les (19).
15.00 Miðdegistónleikar
Sinfóniuhljómsveitin I Fila-
delflu leikur „Miðsumars-
vöku”, sænska rapsódiu eft-
ir Hugo Alfén, Eugene Or-
mandy stj. Kgl. filharmón-
iusveitin i Lundúnum leikur
Scherzo Capriccioso op. 66
eftir Dvorák, Rudolf Kempe
stj. Sinfóniuhljómsveit
Lundúna leikur „Le Cid”,
balletsvitu eftir Jules
Massenet, Robert Irving st j.
15.45 Lesin dagskrá næstu
viku.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfrengir).
16.20 Popp.
17.30 Útvarpssaga barnanna:
„Útilegubörnin I Fannadal”
eftir Guðmund G. Hagalin.
Sigrlður Hagalin leikkona
les sögulok (12).
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Viðfangsefni þjóðfélags-
fræða, fyrsti þáttur Ólafur
Ragnar Grimsson prófessor
flytur erindi um þróun
þjóðfélagsfræða á Islandi.
20.00 Serenata i H-dúr fyrir
þrettán blásturshljóðfæri
(K361) eftir Mozart Blás-
araflokkur úr hljómsveit
Rikisóperunnar I Búdapest
leikur, Ervin Lukács stjörn-
ar (Hljóðritun frá ung-
verska útvarpinu)
20.50 Gestagluggi Hulda Val-
týsdóttir stjómar þætti um
listir og menningarmál.
21.40 Tónlist eftir Chopin
André Navarra og Jeanne-
Marie Darré leika á selló og
pianó introduction og Polo-
naise brillante og Grand
Duo Concertante.
22.05 K völdsagan : „Fóst-
bræðra saga” Dr. Jónas
Kristjánsson les (9). Orð
kvöldsins á jólaföstu.
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
22.45 Áfangar
Umsjónarmenn: Asmundur
Jónsson og Guöni Rúnar
Agnarsson.
23.35 Fréttir. Dagskrárlok.
20.00 Fréttir og veöur
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Prúðu leikararnir (L)
Eftirherman Rich Little
heimsækir leikbrúðurnar.
Þýðandi Þrándur Thor-
oddsen.
21.15 Kastljós (L) Þáttur um
innlend málefni.
22.20 Hermennirnir(The Men)
Bandarisk biómynd frá
árinu 1950. Leikstjóri Fred
Zinnemann. Aðalhlutverk
Marlon Brando, Teresa
Wright og Jack Webb.
Ungur hermaður hefur
særst illa og glatað llfs-
lönguninni. Hann er heit-
bundinn ungri stúlku, en
slltur trúlofuninni og fer I
burtu. Þýðandi Dóra Haf-
steinsdóttir.
23.45 Dagskrárlok.
Kærleiksheimilid Bil Keane
„Foreldraáætlun? Það þýðir að þú getur valið þér mömmu og pabba.”
Málf relsissj óður
Tekið er á móti framlögum i Málfrelsissjóð á
skrifstofu sjóðsins Laugavegi 31 frá kl. 13-17
daglega. Girónúmer sjóðsins er 31800-0.
Allar upplýsingar veittar i sima 29490.
*
Blikkiðjan
Ásgaröi 7, Garðabæ
önnumst þakrennusmiði og
uppsetningu — enntremur-
tiverskonar blikksmiði.
Gerum föst verðtilboð
SÍMI 53468
frimerkjasöfnun félagsins.
Innlend & erl. Skrifst. Hafnarstr. 5,pósth.
1308 eða simi 13468.
BLAÐBERAR
óskast í eftirtalin hverfi:
Þórsgötu Kvisthaga
Laufásveg Efri
Lambastaðahverfi (Seltj.) Skúlagata
Óvenjumikið er um veikindi meðal blað-
bera, og eru ibúar viðkomandi hverfa
beðnir að hafa nokkra biðlund með okkur
þess vegna.
Okkur vantar tilfinnanlega blaðbera i
þessi hverfi, þó ekki væri nema til bráða-
birgða i nokkrar vikur.
DJÚÐVIUm
Vinsamlegast hafið samband við afgreiðsluna
Síðumúla 6 — sími 81333.