Þjóðviljinn - 09.12.1977, Qupperneq 1
Happdrætti Þjóðviljans '77
MOÐVIUINN
Föstudagur 9. desember 1977—42. árg. 276. tbl.
Veitingahúsaeigendur brjóta samninga:
Hóta uppsögnum
og tekjuskerðingu
ef trúnaðarmenn sœkja námskeið
2DAGAR ÞAR TIL
DREGIÐ VERÐUR
Giróreikningur Happdrættis Þjóðviljans er
hlauparcikningur nr. 3093 i Alþýðubankanum
■ i Ileykjavik.
Þeir sem fengiö hafa senda giróseðla eru
beðnir að draga ekki lengur að greiða þá.
Utan Reykjavfkur eru velunnarar Þjóðviljans beðnir að gera skil
hjá umboösmönnum fyrir dráttardag, 11. desember.
t Reykjavik eru skil gerð aö Siðumúla 6 eða Grettisgötu 3, simi
17500. Opið frá 9 til 18 daglega.
Undanfarna daga hefur
verið haldið trúnaðar-
mannanámskeið á vegum
menningar- og fræðslu-
sambands alþýðu (MFA)
fyrir Félag starfsfólks i
veitingahúsum. Nokkrum
dögum áður en námskeiðið
átti að byrja bundust veit-
ingahúsaeigendur samtök-
um um að koma i veg fyrir
að trúnaðarmenn sæktu
það.
Beittu þeir hótunum um tekju-
missi og uppsagnir þrátt fyrir
skýlaus ákvæði i siðustu samn-
ingum að trúnaðarmenn gætu sótt
slik námskeið á vinnutima án
þessað laun þeirra skertust. ,,Við
teljum að bregðast verði við svo
óforskömmuðum aðferðum með
fullri alvöru og hörku”, sagði
Tryggvi Þór Aðalsteinsson sem
KIRKJUKÓR AKRANESS
w
1
Betlehem
Kirkjukór Akraneskirkju ætlar að gera vHhreUt um Jólin og ayngja I hinum helgu borgum Betiehem.
Jerúsalem og Róm. Geri aörir betur! (Ljósm.:—GFr)
KirkjukórAkraness leggur
aldeilis land undir fót nú um jól-
in. Hann fertil ísraels og Róma-
borgar og syngur ma. ááamt 11
öðrum kórum á torginu i Betie-
hem á jólanótt. Stjórnandi er
Haukur Guðlaugsson. Nú áður
en lagt er 1 þessa austurför mun
kórimi syngja i Menntaskólan-
um i Harmahlið á laugardag kl.
16.
Alls eru 58 söngvarar i
Kirkjukór Akraness en i förinni
verða lfka makar og börn,svo aö
. alls fara um 150 manns. Sungiö
verðurá 6 stöðum i Israel ma. i
JerUsalem og á 6 stöðum i Róm.
Undirleikari kórsins er Friða
Lárusdóttir, en Guðmunda
Eliasdóttir hefur raddþjálfað.
Meðal einsögnvara eru GuðrUn
Tómasdóttir, Agústa Agústs-
dóttir, Friðbjörn G. Jónsson,
AgUst Guðmundsson og Halldór
Vilhelmsson.
—GFr
Tryggvi Þór
stjórnaði námskeiðinu, i samtali
við Þjóðviljann i gær. Hótanir at-
vinnurekenda urðu til þess að
námskeiðiö sóttu aðeins 7 manns i
stað 14 sem ætlað hafði verið.
Bæði ASt og Verkamannasam-
bandið standa að baki Félags
starfsfólks i veitingahúsum, og
málið verður tekið fyrir á næsta
fastanefndarfundi aðila vinnu-
markaðarins eftir nokkra daga.
Hingað til hafa trúnaðarmenn
ekki veriö skipaðir nema i undan-
tekningartilfellum á vinnustöðum
veitingafólks, en eftir stjórnar-
skipti i félaginu i fyrra er verið að
leggja grunn að trúnaðarmanna-
kerfi,en ástandið á þessum vinnu-
stöðum hefur verið þannig að
troðið hefur verið á einföldustu
mannréttindum svo sem aö borga
réttmætt kaup. Liggja fyrir ótal
kærumál um slik atriði. Nú ætla
atvinnurekendur greinilega að
drepa niður viðleitni félagsins til
aö reisa sig við. Minna viðbrögð
þeirra á viðbrögð atvinnurekenda
fyrir 40 árum frekar en nútimann.
Atvinnurekendur túlka samn-
ingana svo, að einungis eigi einn
trúnaðarmaður að vera á hverj-
um vinnustað, en ekki einn fyrir
hverja starfsstétt þar, eins og
hingaö til hefur verið viöurkennt
af öllum aðilum.
1 samningum frá i vor segir
svo:
„Trúnaðarmönnum á vinnustað
skal gefinn kostur á að sækja
námskeið sem miða að þvi að
gera þá hæfari i starfi. Þeir sem
námskeiðin sækja, skulu halda
dagvinnutekjum i allt að eina
viku á ári, enda séu námskeiðin
viðurkennd af fastanefnd aðila
vinnumarkaðarins. Þetta gildir
þó aðeins fyrir einn trúnaðar-
mann frá hverju fyrirtæki á ári.”
MFA hefur hugsað sér að
skipuleggja trúnaðarmannanám-
skeið sin þannig.að ekki komi til
annars en einn trúnaðarmaður
innan fyrirtækis þurfi að sækja
slikt á ári.þó að margir séu þar.
—GFr
SLÖKKVISTOÐIN I REYKJAVIK:
Megum ekkert segja um
niðurstöður
„Við erum bundnir
þagnarskyldu varðandi
niðurstöður rannsókna,
sem unnar eru fyrir ein-
staka aðila," sagði Harald-
ur Ásgeirsson hjá
Rannsóknastofnun bygg-
ingariðnaðarins þegar
Þjóðviljinn hafði samband
við hann i gær i þvi skyni
að afla frekari upplýsinga
um orsakir skemmda á
Slökkvistöðvarbygging-
unni i Reykjavík,
Við höfum framkvæmt
rannsóknir bæði á skemmdum á
Slökkvistöðinni og Sundlaugunum
i Laugardal, en við höfum ekkert
vald til að veita upplýsingar um
niðurstöður. Aftur á móti er nú i
gangi hjá okkur allstór úttekt á
skemmdum i steyptum
steinveggjum i Reykjavik, og
verða niðurstöður þeirra
rannsókna öllum opnar. Slikar
skemmdir hafa viða komið fram
og hófst þessi rannsókn nú i
haust. Aðspurður um hvort þar
væri um að ræða samskonar
skemmdir i öllum tilvikum sagði
Haraldur að svo væri ekki. Þetta
væri mjög breytilegt og væri leit-
að eftir nokkrum grundvallaror-
sökum. Niðurstöður úr þessari
rannsókn eru væntanlegar seinni
hluta vetrar, að sögn Haraldar.
Þjóðviljinn sneri sér til Björns
Höskuldssonar, hjá borgarverk-
fræðingi, og spurðist fyrir um
niðurstöður rannsóknanna. Hann
sagði að það eina sem þegar hefði
fundist væri að of litið loft væri i
steypunni,en það minnkar frost-
þol hennar. Aðrar niðurstöður
liggja ekki fyrir ennþá, sagði
Björn, en vafasamt verður að
teljast að þetta sé nægjanleg
skýring á skemmdunum; við
biðum eftir frekari niðurstöðum,
sagði hann enn fremur.
Bændum
verði
tryggð
viðun-
andi lán
Sex þingmenn Alþýðubanda-
lagsins hafa lagt fram á Alþingi
þingsályktunartillögu þess efnis
að rikisstjórninni verði falið að
gera ráðstafanir til að tryggja
bændum viðunandi rekstrar- og
afurðalán. Lagt er til að rekstrar-
lán til sauðfjárbúskapar verði
aukin þannig að þau verði a.m.k.
60% af skilaverði við upphaf
sláturtiðar og séu veitt jöfnum
höndum eftir þvi sem rekstrar-
kostnaður fellur til. Þá er lagt til
aðafurðalán miðist við að sölu-
félögum sé kleift að greiða minnst
90% af grundvallarverði við mót-
töku afurðanna. Lánin skulu
breytast i samræmi við heildsölu-
verð, eins og það er ákveðið á
hverjum tima.
Þá gerir tillagan ráð fyrir aö
uppgjörslán skuli nægja til að
greiða bændum grundvallarverð
að fullu, eins og það er i mai
mánuði á ári hverju. Fóður-
birgðalán (hafislán) miðist við,
að nægar birgðir fóðurvara séu
tryggðar á hafissvæðinu til sex
mánaða frá áramótum.
Nánar verður gerð grein fyrir
þessari tillögu i blaðinu á
morgun.
Ólafur
Jóhannesson,
viðskiptaráðherra:
Gjaldeyris-
yfirvöld
eiga aö
krefjast
upplýsinga
t bréfi sem Þjóðviljanum
barst frá ólafi Jóhannessyni
I gær segir að á þá gjald-
eyrisreikninga sem til stend-
ur að opna við islenska
banka um áramótin verði
aðeins hægt að leggja inn
gjaldeyri sem afiað hefur
verið með löglegum hætti.
Þá kemur fram að ekkert
samband sé milli ákvörð-
unarum islenska gjaldeyris-
reikninga og uppljóstrana
um eign tslendinga á banka-
reikningum i Danmörku.
Loks segir viðskiptaráö-
herra að gjaldeyrisyfirvöld
eigi að gera kröfu til að fá i
hendur fyrrgreindar upplýs-
. ingar um bankareikningana -
I Danmörku og eigendur
þeirra að taka afleiöingun-
um, hafi þeir gerst brotlegir.
Ekkert „aflátsbréf” fái þeir
frá ráðherranum.
Sjá siðu 6