Þjóðviljinn - 09.12.1977, Blaðsíða 3
Köstudagur 9. desember 1977 ÞJÓDVILJINN — SlÐA.'f
Nkomo
og
Mugabe
hafna
viöræðu-
boði
Owens
MAPUTO, SALISBURY 8/12 —
Joshua Nkomo og Robert Muga-
be, leiðtogar Föðurlandsfylking-
ar Zimbabwe, höfnuðu i dag boði
Davids Owens, utanrikisráðherra
Bretlands, um að koma til Lund-
úna i næstu viku til viðræðna um
Ródesiumálin. Kom þessi afstaða
Föðurlandsfylkingarinnar ekki á
óvart, þar eð forustumenn hennar
Stærsta neðan-
jarðarbrautar-
stöð í heimi
PARtS 8/12 Reuter — Valery Gis-
card d’Estaing Frakklandsforseti
vigði i dag nýja neðanjarðar-
brautarstöð i Paris, þá stærstu i
heimi, og hefur Stór-Parisar-
svæðið þá að sögn forsetans feng-
ið fullkomnara umferðarkerfi eri
nokkur önnur risaborg heims.
Stöðin er kölluð Chatellet-les
llalles.
Abel Muzorewa — ræðir við Smith
þrátt fyrir fordæmingu Föður-
iandsfylkingarinnar.
reiddust mjög ummælum Owens
um árásir Ródesiuhers inn i Mós-
ambik nýverið og gruna bresku
stjórnina um að reyna að útiloka
Föðurlandsfylkinguna frá hlut-
deild i völdum i Ródesiu, þegar
blökkumenn hafa tekið þar við
stjórn.
A morgun hefjast i Ródesiu við-
ræður milli stjórnar hvitra
manna og blökkumannasamtaka
þeirra, sem stjórnin leyfir að
starfa i Ródesiu sjálfri, en leið-
togar þeirra samtaka eru Abel
biskup Muzorewa, séra Ndaban-
ingi Sithole og Jeremiah Chirau
ættbálkshöfðingi. Smith forsætis-
ráðherra stjórnar hvítra Ródes-
iumanna boðaði til þessara við-
ræðna, að hann segir i þvi augna-
miði að meirihlutastjórn blökku-
manna verði komið á. Smith tek-
ur ekki i mál að Föðurlandsfylk-
ingin, sem stendur að skæruhern-
aðinum gegn stjórn hans, eigi að-
ild að viðræðunum, enda hafa
leiðtogar Föðurlandsfylkingar-
innar fordæmt þær sem mark-
leysu.
Ríkisstj ór n
Soares fallin
Búist viö nýjum þingkosningum
LISSABON 8/12 Reuter —
Rikisstjórn Sósialistaflokksins i
Portúgal beið i dag iægra hlut I
atkvæöagreiðslu um traustsyfir-
lýsingu á þingi og er þar með fall-
in. Stjórnin hefur setið að völdum
i 16 mánuði. Kemur það nú i hiut
forsetans, Antonios Ramalho
Eancs, að velja nýjan forsætis-
ráðherra.
Eftir tveggja daga og einnar
nætur harðar þingumræður fór
Soares fram á traustsyfirlýsingu
þingsins við stefnu sina I efna-
hagsmálum, jafnframt þvi sem
hann lýsti þvi yfir að hann myndi
hvergi vikja frá þeirri stefnu og
hleypa hvorki flokkunum til
hægri né vinstri við sig inn i
Risaveldin
ræða
minnkun
herilota á
Indlands-
haíi
BERN 8/12 Reuter —Sendi-
nefndir frá stjórnum Banda-
rikjanna og Sovétrikjanna
hittust hér i dag og héldu
áfram viðræðum um mögu-
leika á að draga úr vigbúnaði
risaveldanna tveggja á Ind-
landshafi, þar sem bæði
halda úti stórum herflotum.
Nefndirnar ræddust við i dæg
i bandariska sendiráðinu i
höfuðborg Sviss og munu
ræðast viö næst i sovéska
sendiráðinu á laugardaginn.
Fyrsti viðræðufundurinn i
Sviss var á þriðjudaginn, en
áður höfðu sendinefndirnar
ræðst við i Moskvu (i júni) og
i Washington (i október).
stjórnina. Helstu stjórnarand-
stöðuflokkarnir þrir, sósialdemó-
kratar (sem þrátt fyrir nafnið eru
heldur hægrisinnaður miðju-
flokkur), kommúnistar og mið-
demókratar (hægriflokkur),
greiddu allir atkvæði gegn stjórn-
ini og voru örlög hennar þá ráðin,
þar eð Sósialistaflokkurinn er i
minnihluta á þingi. Stjórn Soares-
ar verður áfram við völd til
bráðabirgða þangað til ný stjórn
hefur verið mynduð.
Stjórnarandstöðuflokkarnir
þrir voru allir sammála um að
saka stjórn Soaresar um dugleysi
og tvistigandi . Hann reyndi að ná
samkomulagi um efnahagsstefnu
sina við stjórnarandstöðuna,
verkalýðssamtökin og atvinnu-
rekendur, en þaö mistókst.
Stjórnin lagði áherslu á ráðstaf-
anir til þess að draga úr óhag-
stæðum greiðslujöfnuði við út-
lönd, sem er gifurlegur, og að
tryggja sér 50 miljón dollara lán
hjá Alþjóðlega gjaldeyrissjóðn-
um, en stjórnarandstaðan vill
ekki samþykkja þau skilyrði, sem
Alþjóðlegi gjaldeyrissjóðurinn
setur fyrir lánveitingunni.
Samkvæmt stjórnarskránni á
forsetinn aö útnefna nýjan for-
sætisráðherra eftir aö hafa ráð-
fært sig við Byltingarráðið, her-
foringjanefnd þá sem enn er við
lýöi eftir stjórnarbyltinguna, og
forustumenn stjórnmálaflokka.
Fréttaskýrendur telja liklegt að
forsetinn feli sósialdemókrötum,
sem eru stærsti stjórnarand-
stöðuflokkurinn og hafa 73 þing-
sæti, að mynda stjórn. Sú stjórn
yröi þó veik minnihlutastjórn,
jafnvel þótt hún fengi stuðning
miðdemókrata, þar eð Sósialista-
flokkurinn með 102 þingsæti og
Kommúnistaflokkurinn með 40
hafa samanlagt meirihluta á
þingi. Soares hefur sagt að hægri-
stjórn yrði óvinsæl meöal verka-
manna og algerlega fordæmd af
kommúnistum.
Flestir fréttaskýrendur eru á
þvi að bráðabirgðastjórn verði
mynduð til þess að koma nýjum
kosningalögum i gegn og að siöan
muni forsetinn leysa upp þingið
og efna til nýrra kosninga.
Deilur Arabaríkja:
Hússein ber sáttar-
orö á milli
KAIRÓ 8/12 Reuter — Hússein
Jórdaniukonungur er kominn til
Kairó i opinbera heimsókn, og er
talið að aðalerindi hans sé að
reyna að brúa bilið á milli
Egyptalands annarsvegar og
hinsvegar þeirra Arabarikja,
sem snúist hafa gegn frumkvæði
Sadats Egyptaforseta i friðarum-
leitunum við ísrael. t gær var
Hússein I Damaskus og ræddi þá
við Assad Sýrlandsforseta, sem
er einn þeirra Arabaleiðtoga er
snúist hafa gegn Sadat I þessu
máii.
Þeir Hússein og Sadat munu
einnig ræða i hönd farandi heim-
sókn Cyrus Vance, utanrikisráð-
herra Bandarikjanna, til Egypta-
lands, Israels, Libanons, Sýr-
lands, Jórdaniu og Saúdi-Arabiu.
Erindi Vance er sagt vera að
reyna að afla Sadat stuðnings.
Jórdania og Saudi-Arabia hafa
hvorki tekið afstöðu með Egypta-
landi né þeim Arabarikjum. sem
eru andstæð þvi varðandi afstöð-
una til israels.
Sadat forseti flutti I dag ræðu á
fjöldafundi og fór fyrirlitningar-
orðum um andstæðinga sina með-
al araba, kallað þá „dverga” og
„fávisa menn.” Hann gerði litið
úr samtökum Palestinumanna og
sagði þau sundurlynd og baráttu-
móð sumra þeirra litinn.
A mánudaginn sleit Egyptaland
stjórnmálasambandi við fimm
þau riki, er andstæðust eru þvi
varðandi afstöðuna til Israels,
það er aö segja Irak, Sýrland,
Alsir. Libiu og Suður-Jemen.Því
fylgdi Sadat á eftir með þvi að
láta loka öllum menningarstofn-
unum Sovétrikjanna i Egypta-
landi og öllum ræðismannsskrif-
stofum þeirra i landinu utan höf-
uðborgarinnar, vegna þess að
Sovétmenn hefðu staðið á bakviö
ráðstefnu fimm nýnefndra Ara-
barikja og Palestinumanna i
Tripóli, að sögn Sadats. Hliðstæð-
um stofnunum Tékkóslóvakiu,
Austur-Þýskalands, Ungverja-
lands og Póllands i Egyptalandi
var einnig lokað.
Hússein Jórdaniukonungur —
reynir að sætta Sadat og aðra
Arahalciðtoga.
RUMENIA:
Iönyæöingin hefur
algeran forgang
BÚKAREST 7/12 Reuter — kommúnistaflokks landsins að
Nicolae Ceausescu, forseti ekkert yrði slakað á hraðanum i
Rúmeniu, sagði i dag i ræðu á iðnvæðingu þess. Yrði iðnaðurinn
fundi með starfsmönnum 'Framhald á bls. 2
marka&storg
vi&skiptanna
Verzlunin KJÖT & FISKURereinn af frumherjum baráttunnar fyrir lægra vöruveröi til neytand-
ans. Hagkvæm innkaup, skynsamlegur rekstur og vaxandi velta gera okkur mögulegt aö bjóöa
lægra vöruverö. Viö riöum á vaöið meö „sértilboöin” siöan komu „kostaboö á kjarapöllum” og
nú kynnum viö þaö nýjasU f þjónustu okkar viö fólkiö f hverfinu, „Markaöstorg viðskiptanna" A
markaöstorginu er alltaf að finna eitthvaö sem heimiiiö þarfnast og þar eru kjarapallarnir og
sértilboöin. Þaö gerist alltaf eitthvaö spennandi á markaöstorginu!
sértilboð:
Strásykurlkg............................. 80 kr.
Púðursykur 1/2 kg..................... 75kr.
Flórsykur 1/2 kg ........................ 60 kr.
Lyftiduft450 grömm ..................... 262 kr.
Hveiti 5 Ibs............:.................221 kr.
Hveiti 10 Ibs............................441 kr.
Akrasm jörliki............................162 kr.
Rítz-kex.................................167 kr.
Dofri hreingerningarlögur 1 líter........240 kr.
Iva þvottaefni 5 kg.....................1.113 kr.
Grænar baunir 1/2 dós....................178 kr.
Grænar baunir ldós ...................... 275kr.
Opið til kl. 10 á föstudögum
og milli kl. 9 og 12 á laugardögum
hálfrar aldar þjónmta
kjöt&fiskurhff
seljabraut 54-74200
D
5