Þjóðviljinn - 09.12.1977, Page 7
Föstudagur 9, desember 1977 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 7
J...ég veit ekki betur en aö á undanförnum árum
og jafnvel áratugum hafi islensk stjórnvöld
veriö að burðast við að nota stjórnunaraðferðir
þjóðfélaga af allt annarri stærð og gerð...
Ein lítil króna
Á liðnu hausti hófst hér i blað-
inu umræða um svokallaðan
Evrópukommúnisma, og hefur
margt komið fram ansi athygl-
isvert i þeirri umræðu. Ekki er
að efa nauðsyn þess, að stjórn-
málaflokkar ræði sem ýtarleg-
ast kosti og galla þeirra kenn-
inga, er þeir leggja til grund-
vallarstefnu sinnii þjóðmálum.
Einnig er mikilvægt að fram
komi hvernig til hefur tekist
með framkvæmd stefnunnar
hjá öðrum þjóðum, svo draga
megi af þvi réttar ályktanir og
njóta þar með leiðsagnar
reynslunnar.
Einkum hér á íslandi hlýtur
þetta að vera nauðsynlegt,
vegna sérstæörar gerðar og
smæðar þjöðfélagsins. Sú
spurning hlýtur óhjákvæmilega
að vakna, að hve miklu leyti við
getum fært okkur i nyt reynslu
annarra. Min skoðun er sú, að
það sé ekki nema að ákaflega
litlu leyti, þvi flest ef ekki öll
þjóðfélög kommúnismans eru
með miljónir ibúa og allt ann-
arrar gerðar en hið islenska.
Þar af leiðir að þótt við heim-
færum þau upp á okkur i
smækkaðri mynd, er nær öruggt
að sllkt er ekki við hæfi. En það
er hægt að finna smærri eining-
ar. Þvi að á sama hátt og hægt
erað koma öllum Súgfirðingum
fyrir Ieinni blokk I Breiðholtinu,
þá gerðu allir tslendingar vart
meira en mynda þokkalega
borg á mælikvarða stórþjdftar.
Ef við ætlum, okkur til hægð-
arauka, að læra af mistökum
annarra, þá er það min skoðun
að miða þurfi við sem hliðstæð-
astar einingar, að stærð og gerð,
svo raunhæfur lærdómur verði
af dreginn. Þannig horfir málið
við af minum sjónarhóli, og ég
veit ekki betur en að á undan-
förnum árum, og jafnvel ára-
tugum, hafi Islensk stjórnvöld
verið að burðast viö að nota
stjórnunaraðgerðir þjóðfélaga
af allt annarri stærð og gerð,
enda árangur yfirleitt sam-
kvæmt þvi, neikvæður.
Þannig hefur — fyrir óraun-
hæfar aðgerðir — sifellt verið
grafið undan fjárhagslegum
grundvelli lýftveldisins Island.
Erlendu skuldirnar eru kannski
eftir allt saman ekki hið versta,
mér stendur meiri stuggur af
þeirri mengun hugarfarsins og
því vantrausti á gjaldmiðil okk-
ar, krónuna, sem sifelld óða-
verðbólga undanfarinna ára,
hefur gróðursett i hugum ís-
lendinga. — Þvi þóttdeila megi
um gildi peninga, almennt séð,
þá er heimsmynd okkar sú, að
gjaldmiðils er þörf, og sjálf-
stæði smáþjóðar hangir á blá-
þræði, sé gjaldmiðill hennar
ótraustur.
1 þvi tilliti að treysta i'slensk-
an gjaldmiðil er þörf róttækra
aðgerða, og búast má við að ein-
hver þurfi að herða sultarólina.
en hjá þvi verður vist varla
komist úr þessu. Þegar þetta
gerist veröum við að sjá til þess,
að Alþýöubandalagið hafi þar
tögl og hagldir og stjómi þeim
aðgerðum; annars verða þær
aldrei Islenskri alþýðu til gagns
né hagsældar.
Hægri öfl þjóðfélagsins hafa
sýnt, svo ekki verður um villst,
að þeirra eina ráð i erfiðleikum
er að pina alþýðuna. Það hefur
verið sagt sem svo, að vinnan
göfgi manninn. En ætli islensk
alþýða sé þvi sammála/að 16
stunda vinnudagur sé göfgandi.
Það ef ég stórlega. Miklu frem-
ur hlýtur hinn langi vinnudagur
að hafa ógöfgandi og afsiðandi
áhrif, og það þvi fremur að
menn bera sifellt minna úr být-
um, þó meira sé á sig lagt. Og
hvar stöndum viö i baráttunni
fyrir bættu og fegurra mannlifi?
Einstöku varnarsigrar i or-
ustunni um álkrónuna vega
smátLþví alltaf er hún að rýrna,
allar horfur eru á, að svo litil
sem krónan okkar var I upphafi
þessa árs, þá verði hún enn
minni i árslok. Eina hugsanlega
efnið i næstu myntsláttu af
gerðinni króna er þvi miðað við
verðgildi hið sama og notað var
i nýju fötin keisarans forðum
daga.
íslandsdeild Amnesty International heldur samkomu i Norræna húsinu á morgun
Halldór Laxness flytur ávarp
„Ári hugsjónafangans ad ljúka”
Halldór Laxness flytur ávarp I Norræna hdsinu á morgun.
Á morgun, laugardaginn 10.
desemberfer fram i Osló formleg
afhending friðarverðlauna
Nóbels, sem Alþjóðasamtökin
Amnesty International hlutu i ár.
Af þvi tilefni og vegna loka sér-
stakrar baráttuherferðar al-
þjóðasamtakanna undir kjörorð-
inu ,,Ar hugsjónafangans”, efnir
íslandsdeild Amnesty Inter-
national til samkomu i Norræna
húsinu þennan dag klukkan tvö
siðdegis. Þar flytur Halldór Lax-
ness, rithöfundur ávarp, Björn Þ.
Guðmundsson, borgardómari
heldur erindi um samtökin og
starf þeirra, Hjörtur Pálsson,
dagskrárstjóri les ljóð, félagar úr
samtökum Visnavina syngja og
Manuela Wiesler Helmóðsdóttir
og Helga Ingólfsdóttir leika sam-
leik á flautu og sembal.
Auk samkomuhalds ýmiSsa
landsdeilda viða um heim mark-
ar aðalstjórn Amnesty Inter-
national I London þessi tfmamót
með ýmsu móti. t dag, miðviku-
daginn 7. desember afhendir full-
trúi samtakanna i aðalstöðvum
Sameinuðu þjóðanna I New York
Kurt Waldheim, framkvæmda-
stjóra S.Þ. lista með undirskrift-
um rúmlega miljón manna undir
áskorun um, að allir hugsjóna-
fangar { heiminum veröi þegar
látnir lausir.
Meðal þeirra, sem skrifað hafa
undir þessa áskorun, eru ellefu
stjórnar- og rikisleiðtogar,
hundruð þingmanna, stjórnir
tuga alþjóölegra samtaka, sem
telja innan sinna vébanda sam-
tals meira en áttatiu miljónir
manna i 133 þjóölöndum: enn-
fremur 45 Nóbelsverðlaunahafar.
Einnig má geta þess að fjögur
hundruð manns skrifuðu undir
áskorunina i Póllandi, en þar
voru stuðningsmenn Amnesty
International handteknir, þegar
þeir voru staðnir að þvi aö safna
undirskriftum. Nær þrettán
hundruð Islendingar skrifuðu
undir þessa áskorun um frelsi til
handa hugsjónaföngum um allan
heim.
Fimmtudaginn 8. desember
verður birt i London slðasta árs-
skýrsla Amnesty International og
jafnframt hin mesta til þessa I
sextánára sögu samtakanna. Þar
kemur fram, að mannréttindi eru
brotin freklega I tveimur þriðju
hlutum allra rfkja heims, en i
skýrslunni er getið ástands og tið-
inda I 117 löndum.
Fram kemur i skýrslunni, að i
ýmsum löndum hefur taisverður
fjöldi pólitiskra fanga og annarra
hugsjónafanga verið látinn laus á
timabilinu frá 1. júli 1976 til jafn-
lengdar i ár, sem skýrslan nær yf-
ir, en annars staðar hefur ástand-
ið versnað til muna.
Dagana 10. — 11. desember
gangast samtökin Amnesty Inter-
national fyrir alþjóðlegri ráð-
stefnu i Stokkhólmi um dauða-
refsinguna. Sitja hana á annað
húndrað manna, þar á meðal einn
stjórnarmanna Islandsdeildar-
innar, Friðgeir Björnsson, lög-
fræðingur. Hyggjast samtökin
leggja sérstaka áherslu á baráttu
fyrir afnámi dauðarefsingar á
næsta starfsári, en það hefur ver-
ið eitt af meginmarkmiðum sam-
takanna frá upphafi. Þau eru: a)
að vinna að því að þeir, sem fang-
elsaðir eru, hafðir I haldi eða
hindraðir á annan hátt, eða að
öðru leyti beittir þvingunum eða
takmörkunum vegna skoðana,
sem þeir eru sannfærðir um, eða
sökum kynþáttalegs uppruna, lit-
arháttar eða tungu, verði leystir
úr haldi og fjölskyldum þeirra
veitt sú aðstoð, sem þörf krefur,
að þvi tilskyldu, að þeir hafi ekki
beitt ofbeldieða stuðlað að þvi; b)
aft berjast gegn dauðarefsingu og
hvers konar pyntingum eða
slæmri meðferð á hverjum þeim,
sem fangelsaður er, hafður I haldi
efta hindraður á annan hátt I
trássi við fyrirmæli Mannrétt-
indayfirlýsingar Sameinuðu
Þjóðanna; c) að berjast með öll-
um tiltækum ráðum gegn þvi að
þeim, sem hafðir eru i haldi
vegna sannfæringar sinnar eða
stjórnmálaskoðana, verði haldið
án þess að dómsrannsókn fari
fram innan rýmilegs tima, eða
gegn hvers konar málsmeðferð
varðandi slika fanga, er ekki
samræmist viðurkenndum regl-
um, sem tryggja réttláta dóms-
rannsókn.
tslandsdeild Amnesty Inter-
national var stofnuð árið 1974. Fé-
lagar hennar eru nú þrjú hundr-
uö. Núverandi stjórn skipa:
Margrét R. Bjarnason, frétta-
maður, formaður, Ingi Karl Jó-
hannesson, frkv.stj. varaformað-
ur, Gerður Helgadóttir, læknarit-
ari gjaldkeri, Jóna Lfsa Þor-
steinsdóttir, kennari, ritari og
meðstjórnandi og lögfræðilegur
ráðunautur Friðgeir Björnsson.
Auk stjórnar starfa tveir
starfshópar að málefnum fanga
og stjórna þeim Asgeir B. Ellerts-
son, yfirlæknir og Þórir Ibsen,
menntaskólanemi. Deildin er nú
til húsa að Hafnarstræti 15,
Reykjavik.
Friöaryerdlaunin til Amnesty
afhent i Osló á morgun
Mannréttindi brotin freklega
i 117 ríkjum
Leiklistarþing 1977
Leiklistarlög veröi
endurskoðuð
Dagana 20. til 21. nóvember var
haldið i Reykjavik leiklistarþing.
Þingið sátu yfir 90 fulltrúar frá
eftirtöldum aðilum: Félagi
Islenskra leikritahöfunda, Féiagi
tslenskra leikara, Félagi leik-
stjóra á tslandi, Félagi leik-
myndateiknara, Þjóðleikhúsinu,
Leikfélagi Reykjavikur, Leikfé-
lagi Akureyrar, Sjónvarpinu,
Otvarpinu og Bandalagi fslenskra
leikfélaga.
Þorsteinn ö. Stephensen setti
þingið með stuttu ávarpi, þar
næst ávarpaði menntamálaráð-
herra Vilhjálmur Hjálmarsson
þinggest*sji Þvi næst hófust um-
ræður um verkefnaval og voru
örnólfur Arnason og Arnar Jóns-
son frummælendur. Hófust þá
umræður i hópum. Unnið var i 5
hópum og skiluðu þeir svo niður-
stöðum siðla dags og voru þær svo
ræddar.
Siðari daginn var umræðuefnið
„ræktun listamannsins”; frum-
mælendur voru þau Guðmundur
Steinsson og Margrét Guðmunds-
dóttir. Auk þess flutti Ævar R.
Kvaran erindi sem hann nefndi:
„Hvers á mælt mál að gjalda?”.
Hófust siðan umræður i hóp-
um.
1 lok þingsins létu menn
ósþart i ljós ánægju meö störf
þessa þings og töldu að þar hefði
heppnast að koma á gagnlegri
umræðu og persónulegum tengsi-
um milli þeirra ýmsu aðila, sem
að leiklistarmálum vinna á Is-
landi. Var kjörin nefnd til að und-
irbúa næsta leiklistarþing. Kvöld-
verður var snæddur i boöi
menntamálaráöherra, en að hon-
um loknum voru dregnar saman
helstu niðurstöður umræðnanna i
stuttar ályktanir. Voru þær ein-
róma samþykktar af þinginu og
fara þær hér á eftir:
Höfundar.
Leiklistarþing telur að nauð-
synlegt sé að bæta mjög kjör
höfunda, svo að þeir geti sem
mest einbeitt sér að leikritun.
Þingið leggur einnig til að leik-
húsum verði gert kleift að ráða
höfunda til starfa.
Endurskoðun leiklistar-
laga.
Leiklistarþing telur brýnt að
leiklistarlögin frá 1977 verði end-
urskoðuð strax, og ákveður að
kjósa þriggja manna nefnd til
þess að fylgja þvi máli eftir.
1 nefndina voru kosin: Eyvind-
Framhald á 18. siðu