Þjóðviljinn - 09.12.1977, Síða 9
Föstudagur 9. desember 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIDA 9
Barokktónlist í
Bústaðakirkju
á jólatónleikum Kammer-
sveitarinnar
Jólatónleikar Kammersveitar
Reykjavikur veröa nk. sunnudag,
11. desember, i Bústaöakirkju og
hefjast kl. 17.
Jólatónleikarnir eru helgaöir
barokktónlist eins og venja er hjá
Kammersveitinni. Um 20 manns
munu taka þátt i flutningi verk-
anna. Fjórir konsertar veröa
fluttir, mjög ólikir aö uppbygg-
ingu og stil, en þeir eiga þaö þó
allir sameiginlegt aö vera samdir
á 18. öld.
A efnisskránni eru Konsert i E-
dúr fyrir kontrabassa og
kammersveit eftir Karl Ditters
von Dittersdorf og verður ein-
leikari i þvi verki Jón Sigurðsson
kontrabassaleikari. Þá verður
fluttur Konsert i g-moll fyrir
fimm hljóðfæri eftir Antonio
Vivaldi og Konsert nr. 2 i D-dúr úr
„Concerts Royaux” eftir Franc-
ois Couperin. Siðast á efnis-
skránni verður Konsert nr. 1 i D-
dúr fyrir trompet og kammer-
sveit eftir Johann Melchior
Molter. Einleikari i þvi verki
verður Lárus Sveinsson trompet-
leikari.
Aðeins eitt þessara verka hefur
verið flutt hér á landið áður, þótt
liðnar séu rúmar tvær aldir frá
þvi hið yngsta þeirra var samið.
Aðgangur að tónleikum
Kammersveitarinnar kostar 1000
kr., en börn og skólanemendur
greiða kr. 700 fyrir miðann.
Aðgöngumiðar verða seldir við
innganginn.
—eös
Jón Sigurösson leikur einleik á kontrabassa á jólatónleikum Kammer-
sveitar Reykjavikur i Bústaöakirkju.
Ný bókaútgáfa
SALT gefur út
fyrstu bók sina:
Fylgsnið
Nýstofnuö' bókaútgáfa SALT
hefur sent frá sér fyrstu bók sína
Fyigsnið (The Hiding Place) eftir
Corrie ten Boom, en sagan gerist i
Hollandi á seinni striösárunum og
greinir frá kristinni fjölskyldu
sem skýtur skjólshúsi yfir ofsótta
gyöinga. Gisli H. Friðgeirsson
þýddi.
Corrie og fjölskylda hennar
veita ’gyðingunum mat, peninga
og húsaskjól og reyna slðan að út-
vega þeim dvalarstaði viða um
landið þar sem þeir geta verið ör-
uggari um lif sitt. Á þennan hátt
kemst Corrie i kynni við margt
fólk er starfar i neðanjarðar-
hreyfingunni og brátt er öll fjöl-
skyldan tengd þessu hjálparstarfi
áeinneða annan hátt. Þar kem-
ur að þau eru gripin og send i
fangabúðir en þar auðsýna þau
kærleika einnig þeim er mis-
þyrma þeim.
Bókin er bæði spennandi og á-
hrifamikil enda segir hún frá
sönnum atburðum. Hún hefur
selst i yfir 6 miljónum eintaka I
Bandarikjunum og er einnig met-
sölubók i Noregi.
Setningu, prentun og bókband
annaðist Prentsmiðja Hafnar-
fjarðar h.f. Litgreiningu kápu-
myndar og plötugerð Prisma s.f.
Búsáhöld
Raftæki
Leikföng
Gjafavörur
Skrautmunir
I Liverpool færðu úrvai af búsáhöldum og heimilistækjum
r
I Liverpool færðu leikföng, bæði dýr og ódýr.
r
I Liverpool færðu gjafavörur fyrir fólk á öllum aldri.
r
I Liverpool er úrval af austurlenskum skrautmunum
Liverpool,
Laugavegi 18a