Þjóðviljinn - 09.12.1977, Qupperneq 16
16 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 9. desember 1977
BLAÐBERAR
óskast 1 eftirtalin hverfi:
Laufásveg
Lambastaðaherfi (Seltj.)
Efri Laugaveg
Bólstaðarhlið
Hjarðarhaga
Efri-
Skúlagötu
Miðtún
Okkur vantar tilfinnanlega blaðbera i
þessi hverfi, þó ekki væri nema til bráða-
birgða i nokkrar vikur.
UúBvium
Vinsamlegast hafið samband við af-
greiðsluna, Siðumúla 6.— Sími 81333.
GRINDAVIK
DALVÍK
Þjóðviljann vantar umboðsmenn á þess-
um stöðum. Vinsamlega hafið samband
við afgreiðsluna i Reykjavik i sima 8 13
33.
HÖFN, HORNAFIRÐI
Þeir sem áhuga hafa á að taka við um-
boðsmannsstarfi af Birnu Skarphéðins-
dóttur hafi vinsamlegast samband við
hana i sima 8325.
Lífeyrissjóður
rafiðnaðarmanna
auglýsir hér með eftir umsóknum um
fasteignaveðlán. Umsóknir skulu sendast
stjórn sjóðsins, Freyjugötu 27 Reykjavik,
á eyðublöðum sem sjóðurinn lætur i té,
eigi siðar en 30. desember næstkomandi.
Stjórn Lífeyrissjóðs rafiðnaðarmanna.
Blaðberabíó
Hafnarbíó. Laugardaginn 10. desember kl.
13.00 Monte Valsh
Kúrekamynd með Lee Marvin í aðalhlutverki.
islenskur texti.
Haf ið samband við af greiðsluna, ef þið hafið
ekki fengið miða.
Þjóðviljinn s: 8 13 33
Umræðufundur
um nýlendustefnu Dana
á Grænlandi
Samtök herstöðvaandstæðinga i Smáibúða-
hverfi-Hliðum og Leiti halda fund mánudag-
inn 12. desember að Tryggvagötu 10. Umræðu-
efni: Nýlendusteína Dana á Grænlandi.
Framsögumenn Guðmundur Þorsteinsson og
Benedikt Þorsteinsson.
Umræðufundurinn hefst kl. 20.30.
Félagar úr öllum hverfisdeildum eru vel-
komnir.
Beljandi I Breiftdalsá.
Fréttabréf úr Breiðdal
Landpósti hefur borist eftir-
farandi bréf frá góftkunningja
sinum austur I Breiödal. Er þaft
póstlagt þann 29. fyrra mánað-
ar:
Ibúatala
t Breiftdalshreppi búa nú
um 380 manns. Þar af búa rétt
um 200 manns I Breiftdalsvikur-
þorpi. I sveitinni eru þvi um 180
manns og hefur flest þetta fólk
framfæri sitt af landbúnafti.
Byggingaframkvæmd-
ir
Óvenjumikift er um útihúsa-
byggingar i sveitinni á þessu
ári. Byrjaö var i vor á fjárhús-
um á þrem bæjum og eiga þau
aö rúma um 1200 fjár. Verfta
þessi hús öll tekin i notkun á
þessu ári. Eitt fjós fyrir 16
mjólkurkýr er i smiftum. Á
tveim bæjum voru byggöar þurr-
heyshlöftur fyrir um 2000 hest-
buröi af heyiog á einum bæ vot-
heyshlaða, 120 rúmmetra.
Væntanlega veröa byggð tvö
fjárhús á næsta ári.
Auk þessa er að veröa lokiö
endurbótum á tveim gömlum
ibúðarhúsum, en á þeim jörðum
hafa bændur hafið búskap fyrir
skömmu.
1 Einnig er á vegum bænda i
byggingu nýtt sláturhús, sem
væntanlega verður tekið i notk-
un á næsta ári. Slátrað var i
Breiðdal á þessu ári 13 þús. fjár
sem er mun meira en I fyrra.
Sjá má af þessu að ekki er
nein uppgjöf i bændum i Breið-
dalshreppi, þrátt fyrir undar-
lega afstöðu nokkurra manna f
garð landbúnaðarins. Eru flest
skrif þessara manna þar að lút-
andi I rauninni svo barnaleg
og órökstudd að þau eru ekki
svaraverð.
Skólamál
Nú er vetrarriki mikið i
Breiðdal og þykir mörgum full-
snemmt. Harðviðri hefur verið
svo mikið að börnin komust ekki
i skólann i tvo daga i siöustu
viku. Barnaskólinn er i Staöar-
borg, nokkuð miðsvæðis i
byggðarlaginu. Skólinn er
byggður sem heimavistarskóli
en s.l. f jóra vetur hefur börnun-
um verið ekið heiman og heim á
degi hverjum.
Hefur þetta fyrirkomulag
mælst vel fyrir hjá flestum, þó
að vegalengdir i skólann frá
innstu bæjum I sveitinni séu i
lengsta lagi, eða um 25 km.
Skólahúsið i Staðarborg var
byggt árið 1956, og þjónar ennþá
vel sinu hlutverki. Húsið var
mikiö endurbætt á þessu ári, en
þó er nauösynlegt að taka upp
þráðinn á næsta ári og ljúka
þessu verki.
Við skólann er áföst ibúð fyrir
skólastjóra (eða kennara), og á
skólalóðinni er ibúðarhús, þar
sem einn kennari skólans er bú-
settur. Einnig er á skólalóðinni
félagsheimili sveitarinnar og fá
börnin þar afnot af sal til
iþróttaiðkana og leikfimi-
kennslu.
Vegamál
Vegir hér innan sveitarinnar
hafa verið erfiðir skólabilstjór-
um, sérstaklega i dölunum. En
á s.l. sumri var mikið unnið að
vegagerð i Norðurdal og lokið
við að leggja veg frá Tinnu-
dalsá að utan og að innstu bæj-
um i dalnum, sem eru Þorvalds-
staðir og Tungufell. A næsta ári
á að leggja brú yfir Breiðdalsá,
liklega gegnt Flögu, og vonandi
verður gertátak við að lagfæra
þann voðalega óveg, sem er frá
Asunnarstöðum og út að Tinnu-
dalsá á Suðurdal.
Meö þeirri frómu ósk læt ég
þessu spjalli lokið.
Tala búfjár á Austurlandi 1974-76
A Austurlandi er sama sagan og annarsstaðar að breytingin á búf jártölum á árunum 1974—1976 geng-
ur i þá áttað nautgripum fækkar en sauðfé og hrossum fjölgar.
Nautgripir Sauðfé Hross
1974
N-Múlasýsla
S-Múlasýsla
A-Skaftafellssýsla
Seyðisfj.
Neskaupstaður
Eskifjörður
Samkvæmt þessu hefur nautgripum á Austurlandi fækkað á þessu 3ja ára bili um 681, sauðfé fjölgað
um 7.090 og hrossum um 224. —mhg
1974 1975 1976 1974 1975 1976 1974 1975 1976
1769 1442 1379 65.346 64.519 68.927 771 810 864
2193 1923 2033 53.246 52.363 55.024 573 590 614
1404 1286 1282 23.995 24.534 25.542 527 555 604
540 530 713 4 5 6
421 413 431 26 24 21
16 14 13 158 162 159 4 14 20
Rangæinga-
félagid
athafnasamt
Rangæingafélagið i Reykjavik
:ók haustið 1975 upp þá nýbreytni
i starfsemi sinni að bjóða félags-
mönnum þátttöku i kórsöng, likt
og fleiri átthagafélög hafa staðið
fyrir. Þá um veturinn var stofn-
aður blandaður kór, sem siðan
hefur starfað af dugnaði og lifgað
mjög upp á félagsstarfið. Kórinn
er deild i Rangæingafélaginu, og
eru allir Rangæingar sem gaman
íafa af söng boðnir og velkomnir
:il þátttöku i kórstarfinu. 1 haust
lófst þriðja starfsár kórsins, en
lann hefur undanfarin tvö ár oft
sungið á samkomum félagsins og
jafnframt komið fram i Utvarpi
og farið austur i Rangárvalla-
sýslu i heimsókn til heimamanna.
Var stofnuð kvennadeild innan
féiagsins og hefur hún unnið af
miklum dugnaði við að styrkja
kórstarfið og afla fjár til þess.
Föstud. 9. desember verður
skemmtun i Hreyfilshúsinu við
Grensásveg og verður þar til
skemmtunar kórsöngur og
myndasýning frá sumarferð
Rangæingafélagsins. Húsið verð-
ur opnað kl. 20.30,en dagskráin
hefst kl. 22.00; að heúni lokinni
verður dansað.
Z-etu ljóð
Margrét i Dalsmynni er
enginn sérstakur z-vinur, eins
og eftirfarandi erindi votta:
1 Z-liði er sóknarhiti,
samt er það min von og trú
að það sé Z-u banabiti,
sem bruggað er á þingi nú.
Þótt grafift sé i gamla hauga,
glamrað og þrefaft lengi enn,
og þingmenn vilji vekja upp
drauga,
vantar alveg galdramenn.
Margrét i Dalsmynnf.
Umsjón: Rftagnús H. GisSason