Þjóðviljinn - 22.01.1978, Síða 7

Þjóðviljinn - 22.01.1978, Síða 7
Sunnudagur 22. janúar 1978 ÞJÓDVILJINN — SÍÐA 7 fyrir. Sjálfstæöisflokkurinn ber ábygö á bákni rikiskerfisins, þ.e.a.s. þeim hluta rikisins sem aöallega hefur þaö verkefni aö tryggja ihaldinu úrslitavöldin. 2. Sjálfstæöisflokkurinn hefur ráöiö Reykjavikurborg sem meirihlutaaöili frá þvi aö núver- andi flokkakerfi varö til. I skjóli þessa meirihlutavalds hefur flokkurinn beitt Reykjavik í þágu flokkshagsmuna, gegn hagsmunum almennings i borg- inni. Sjálfstæöisflokkurinn hefur notaö vald sitt yfir Reykjavik til þess aö vinna gegn þeim tveimur rikisstjórnum i sögu lýöveldisins sem hann hefur ekki átt aöild aö. Vegna þessarar aöstööu treysta flokksmenn i Sjálfstæöisflokkn- um á „flokkinn sinn”og ævarandi völdhans og þess vegna hefur þaö gerst aö menn telja sig örugga viö aö umgangast fjármuni almenn- ings meö næsta óvenjulegum hætti. Stjórnkerfi borgarinnar þarfnast endurskoöunar viö: borgarstjórinn sjálfur ber ábygö á kerfinu og göllum þess, en þaö er hins vegar meirihlutavald Sjálfstæöisflokksins i áratugi sem er ástæöa þeirrar spillingar sem komiö hefur fram i borgarkerf- inu. Lýöræöislegt eftirlit skortir. 3. Þriöji þátturinn sem hér veröur nefndur á bákni Sjálfstæö- isflokksins eru sérlega stétta- samtök auöstéttanna: Vinnuveit- endasambandiö er hin faglega hliö Sjálfstæöisflokksins, sömu- leiöis Verslunarráöiö, Kaup- mannasamtökin og stórfyrirtæk- in. 4. Siöast en ekki sist skal minnt á bankakerfiö. Vegna þess hve valdamikill Sjálfstæöisflokkurinn hefur veriö i stjórnkerfi landsins hefur hann aö sjálfsögöu jafnan haft úrslitaáhrif á skipan banka- mála i landinu. Hann hefur einnig þar lagt mikla áherslu á þaö aö tryggja „sina menn” inn i kerfiö. 1 þvi sambandi má minna á aö þrir fyrrverandi þingmenn Sjálf- stæöisfiokksins eru bankastjórar, einn i hverjum rikisbanka, og einn helsti forystumaöur Sjálf- stæöisflokksins i dag er banka- stjóri við Landsbankann. Þetta segir þá sögu aö Sjálfstæðisflokk- 'urinn hefur hreiðrað um sig i bankakerfinu eins og annars staðar. Miðpunktur þessa valdakerfis er flokkurinn sjálfur og málgögn hans Hér hefur veriö leitast viö aö rekja hver reynslan er af hinu margumtalaða frjálsa markaös- kerfi. Hérhefur verið sýnt fram á kvaö kerfi einkagróðans og verð- bólguf járfestingarinnar og smáforstjóranna er dýrt fyrir almenning. Hér hefur verið sýnt fram á hvernig Sjálfstæðisflokk- urinn er tengdur stórfelldum hneykslismálum eins og Armannsfellsmálinu og Viðis- hússmálinu. Sjálfstæöisflokkur- inn ber meginábyrgð á banka- kerfinu, stjórnkerfi rlkisins, borgarkerfinu, lögmálum viö- skiptalifsins, stórfyrirtækjunum. Sjálfstæðisflokkurinn er inn- siglisvöröur hins spillta einka- gróöakerfis hér i landinu, brask- arasamfélagsins, en hann er um leiö bákn báknanna, þaö bákn sem fyrst þarf aö brjóta niður. Bandalagið við Framsókn 1 siöustu áratugum hefur Sjálf- stæöisflokkurinn tekið breyting- um: verslunar- og innflytjenda- aöallinn hefur þar tögl og hagldir sem sést best á þvi aö stórkaup- menn skipa fyrsta og annaö sætiö á framboöslista hans til alþingis hér i Reykjavik I vor. Samfara auknum völdum verslunaraðals- ins fer aukin áhersla á þá mála- flokka sem honum tengjast. I nú- verandi stjórnarsamstarfi við Framsóknarflokkinn hefur braskaradeild Framsóknar náð saman viö Ihaldsforystuna i verslun- og viöskiptum. Þannig hafa hagsmunir viöskiptajöfr- anna aldrei náö eins sterkum og greinilegum undirtökum og i nú- verandi stjörnarsamsarfi. Þetta bandalag braskaranna þarf aö brjóta á bak aftur. Til þess gefst tækifærieftir nokkramánuði: þar þarf atlagan að spilltu valda- bákninu aö byrja. — s. Þekktur dómari deyr: Bjargaði lífi Scottsboropilta Nú i mánuöinum lést i New York á áttugasta og fjóröa ald- ursári einn frægasti lögmaöur Bandarikjanna, Samuel Lei- bowitz. Hann er einkum þekktur fyrir þaö, aö honum tókst aö koma i veg fyrir aftöku niu ungra svertingja, þeirra sem fjölmiölar kaila „The Scottsboro boys”. Leibowitz , sem siðar var kall- aður einhver harðsviraöastur dómara I New York, ávann sér al- þjóölega frægö fyrir vörn sina i máli fyrrgreindra unglinga — en þaö mál átti sér stað á árunum 1933-35. Blökkumennirnir ungu voru handteknir i Scottsboro i Ala- bama áriö 1931. Þeir voru sakaðir um að hafa nauðgaö tveim hvit- um konum i járnbrautarvagni sem dreginn var yfir þaö fylki. i þeim málaferlum sem á eftir fóru, dæmdi kviðdómur þá seka og þeir fengu hina þyngstu dóma. Sumir voru dæmdir til dauöa, en aðrir I allt að 99 ára fangelsi. Leibowitz fékk mál þetta tekiö upp aö nýju. Honum tókst aö rétta hlut „Scottsboro piltanna ” með þvi að sanna þaö fyrir Hæstarétti, aö enginn þeldökkur maöur fengi aö eiga sæti i kviðdómi i Suöur- rikjunum. Þóttu þetta mikil tiö- indi i þá daga. Leibowitzlók aö sér vörn i máli Scottsborodrengjanna án þess aö laun kæmu fyrir. Hann haföi áöur tekiö að sér að verja marga af þekktustu glæpamönnum New York og þvi var ekki nema eöli- legt að margir teldu aö hann heföi tekið Scottsboro málið að sér til að hressa upp á eigin orðsti. En hvernig sem þaö var — Lei- bowitz fylgdi vel eftir máli skjól- stæöinga sinna. Hann vakti óhemju reiði meöal hinnar hvitu yfirstéttar i Alabama, sem leit svo á, að hin virka málsvörn hans væri ögrun við það samfélag sem hún hafði byggt upp. Menn verða að taka tillit til þess, aö fyrir rúmum fjörtiu ár- um var blökkumönnum i Suður- rikjunum ekki aöeins meinaö i raun aö taka sæti i kviðdómi, þeir höfðu ekki heldur rétt til að kjósa. Leibowitzsagöisiöar: Ef ég get haft eitthvaö meö mér i gröfina þá er þaö þaö, aö ég fékk fyrsta Framhald á bls. 22 JÖFUR HF AUÐBREKKU 44-46 - KÓPAVOGt - SÍAAI 42600 SKODA AMIGO 120 L kostar nú aöeins kr. 1.095.000- AMIGO Vegna sölumets á síöasta ári,náðust samningarvió söluaðila um sérstaklega lágt veró á takmörkuóum fjölda bíla. Næsta sending hækkar verulega. AMIGO 5 manna — 4ra dyra. AMIGO Sparar yóur tugÞúsundir árlega. (Bensíneyósla aóeins 7,6 á100 km.) það er góö fjárfesting aö panta sér AMIGO strax ---því ekki er vitaö, hversu lengi okkur tekst, aó halda veröbólgunni í skefjum- 10 102

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.