Þjóðviljinn - 22.01.1978, Blaðsíða 15
Sunnudagur 22. janúar 1978 ÓÐVILJINN — SIÐA 15
Silja Aðalsteinsdóttir skrifar um barnabækur
Tvær góöar útlendar
Nú eruislensku barnabækurnar
uppurnar,þær sem mér bárust og
mál aö halda áfram aö sinna þvi
besta sem barst aö utan. Þegar
hefur veriö fjallaö um þær bækur
þýddar sem aö'minu mati bera af
aö gæöum hvort sem litiö er á inn-
tak eöa frágang Berin á lynginu,
safnritiö i þýöingu Þorsteins frá
Hamri og Elsku Mió minn,
fallega og sorglega ævintýriö
hennar Astrid Lindgren. Bækurn-
ar sem nú veröur rætt um eru
báöar fyrir stálpuö börn og ungl-
inga, báöar vel geröar og lika
reglulega þarfar bækur.
Stríösvetur
Höf. Jan Terlouw.
(Jlfur Hjörvar þýddi
Iöunn 1977
Hollendingar gera góöa.
barnabækur er mér sagt og hlúa
vel aö góöum barnabókarithöf-
undum. Ég get ekki lesiö holl-
ensku og veit of litiö um hvað
stendur I bókum þaöan, en i útliti
finnst mér þær sérstaklega snotr-
ar, mikiö og vel myndskreyttar
þær sem ég hef séö og vandaðar
aö ytra búnaöi. Sú bók sem hér
um ræðir er ekki myndskrey tt og
káputeikningin er ekki uppruna-
leg (listamanns er hvergi getiö)
en innihaldiö er sannarlega
aölaöandi. Þetta bendir kannski
til þess aö viö ættum aö þýöa
fleira úr hollensku aö staöaldri
en Barbapapa.
Stiösvetur segir frá seinasta
vetri siöari heimsstyrjaldar frá
sjónarhóli 15 ára drengs í hollensk
um smábæ. Faöir hans er þar
bæjarstjóri. Fjölskyldan er ekki
alveg á nástrái ennþá en miðlar
gjöful þvi sem hún á til allra sem
hennar leita. Og þeir eru margir.
Striöi hefur geisaö í fimm ár.þús-
undir hafa flosnaö uppfrá heimil-
um sinum og flakka um þjóöveg-
ina. Allir eru hræddir og van-
næröir,margir eru búnir aö missa
von um framtiö. Þaö er erfitt
fyrir okkur hér aö gera oldcur
þetta ástand i hugarlund en saga
Michiels hollenska drengsins,
hjálpar mikið til.
Andspyrna gegn
hernámi
Þaö gerist ótalmargt I lifi
Michiels þennan vetur. Hann er
ekki annaö en unglingur en aö-
stæöurnar krefjast þess af honum
aö hann taki á sig ábyrgð eins og
fulloröinn maður. Honum er þaö
bæöi ljúft og skylt, þótt þaö valdi
honum óumræöilegum erfiöleik-
um og hugarangri. Hann lifir afar
spennandi lifi þennan vetur, en
þegar hann hefur loksins eitthvaö
til aö stæra sig af og segja kunn-
ingjunum þá er fyrsta boöoröiö að
þegja. Oft er i holti heyrandi nær
og sá heyrandi gæti veriö óvinur.
Þjóöverji eöa Þjóöverjavinur.
Meöal almennings I Hollandi
var töluverö andstaöa gegn þýska
innrásarliöinu og hersetunni og i
landinu starfaöi öflug neðan-
jaröarhreyfing, þótt ekki sé hún
eins þekkt hér á landi og and-
spyrnuhreyfingin norska. Eftir
striö hafa þjóöirnar sem
82 þús. kr.
minningargjöf
Krabbameinsfélagi Islands
barst fyrir nokkru minningargjöf
um Þyri Sigriði Hólm frá Siglu-
firöi, f. 21. april 1946, d. 21. okt.
1977, frá skólasystrum hennar i
Húsmæðraskólanum á Lauga-
landi veturinn 1963—1964. Gjöfin
var aö upphæð kr. 82.000.- Vill
stjórn félagsins hér með færa öll-
um hlutaðeigandi alúöarþakkir
fyrir að minnast félagsins á þenn-
an hátt.
Þjóöverjar hernámu viljaö trúa
þvi aö allur almenningur, allir
landsmenn, hafi veriö andvigir
Þjóöverjum. Þaö er ekki rétt, þvi
þeir leyndust viöa kvislingarnir
og einn þeirra er persóna i sögu
Michiels. Sú persóna og lýsing
hennar er eitt af þvi sem gerir
söguna raunsæja og sannfærandi.
Mannskilningur höfundar kemur
£0BS0N
/ 'S fHÍPSS
betur fram i lýsingu svikarans en
flestraannarra og þó er mannval
mikiö og gott i sögunni.
Lýsingin á umhverfi og ööru
sögusviöi er miklu breiöari en
lesendur barnabóka eiga aö venj-
ast. Lesandi kynnist bænum, um-
hverfi hans og ibúum mjög vel,
ungum jafnt sem gömlum. En
gott heföi veriö aö hafa kort I bók-
inni til aö átta sig á hvar i Hol-
landi bærinn er. Héraðið er ekki
merkt inn á venjuleg skólalanda-
bréf enda fær Holland ekki mikiö
pláss þar.
Verðlaunabók
Striösveturvar valinbesta holl-
enska unglingabókin áriö 1973
enda er hún bókmenntalegt lista-
verk,vel skrifuð,spennandi, sam-
félagslega raunsæ og vekjandi
lesning fyrir unglinga sem alltof
oft sjá bara glamúrhliðar striös i
bókum, kallamannaleikinn og
hetjudýrkun hans. Hér er sagt frá
áhrifum þessa hörmulega hildar-
leiks á venjulegt fólk I venjuleg-
um smábæ, fólk sem viö þekkjum
öll. Þaö er ögn hollari lesning en
striðsbækur eru yfirleitt.
Leiðrétting
I setningu Striösvetrar hafa
orðiö mjög bagaleg mistök sem
ég vil nota tækifærið og leiörétta
hér.Þeir sem eiga bókina og hafa
áhuga á geta auðveldlega fært
leiðréttingarnar inn i eintök sin.
Égtek fram að til öryggis fékk ég
ensku útgáfuna sem þýtt var eftir
lánaða hjá forlaginu svo allt yröi
satt og rétt:
Fyrsti kaflinn á að enda á
neðstu greinaskilum á bls 10.
Siöasta setningin 1 kaflanum á aö
vera þessi: „... og vissi ekki
framar af eittþúsund
sexhundruöustu og elleftu nótt
þýska hernámsins.” Siöan skal
lestri haldiö áfram I byrjun 2.
kafla á bls. 16. Sá texti sem er
þarna á milli (frá bls. 10 neðst til
og meö bls. 15) á aö fly tjast á bls.
70 og koma allur i einu lagi i önn-
ur gránaskilin á siöunni. (Orða-
lagiö er kannski flókiö en i reynd
er þetta alveg ljóst ef bókin er viö
höndina!)
Aö ööru leyti er frágangurinn á
bókinni þokkalegur, helsti mikiö
um óþarfar gæsalappir en litiö.
um prentvillur. Þýöingin er góö
en mikiö væri gaman ef bókin
heföi veriö þýdd beint úr frum-
málinu. Okkur finnst fúlt til dæm-
is þegar Islensk verk eru þýdd úr
dönsku á ensku enda vill breikka
biliö milli frumtexta og þýöingar
viö slika milliliöi.
Barnið hans
Péturs
Höf.: Gun Jacobson
Jónina Steinþórsdóttir þýddi
Æskan 1977
Barniö hans Péturs er mjög ólik
Striðsvetri aö flestu leyti, ólikur
timi, ólikt umhverfi, aöstæður og
atburöarás. Sameiginlegt eiga
sögurnar aö vera báöar vekjandi
og taka vel á erfiöum og óvenju-
legum viöfangsefnum.
Barniö hans Péturs gerist i
sænskum bæ 1 nútimanum. Pétur
er 16 ára en ekki búinn með
grunnskólann ennþá, hann
byrjaði i skóla ári seinna en
venjulegt er vegna þess aö hann
var seinn til. Hann er yngstur
fjögurra systkina og einn eftir
heima. Faöir hans er smiður,illa
farinn af drykkjuskap, móöirin er
nýbúin að fá gott starf utan
heimilisins.áður hefur hún drýgt
stopular tekjur fjölskyldunnar
með skúringum og hreingerning-
um. Þau búa I einu herbergi og
eldhúsi,Pétur sefur I eldhúsinu,
foreldrarnir I herberginu.
Pétur er kaldur kalli, þýtur um
á skellinöðru reykir og drekkur
bjór. Hann var um tima mikið
meö stúlkunni Mariönnu en hún
varð leið á honum og sleit sam-
bandi þeirra nokkrum mánuðum
áður en sagan hefst. Þá var hún
orðin ófrisk eftir Pétur og hefur
nú fætthonum dóttur. Pétur hefur
ekki mikinn áhuga á þessu barni
sinu en þegar hann fréttir aö
Maríanna sé að flytjast til Stokk-
hólms langar hann þó til aö sjá
litlu stelpuna áöur en hún fer.
Marianna hefur hins vegar ekki i
hyggju aö taka barniö meö sér.
Hún veröur fyrir aökasti heima
fyrir og getur ekki búiö þar meö
þaö. Sagan spinnst svo út frá
þeirri ákvörðun Maricmnu aö
skilja barniö eftir hjá Pétri sem
vissulega hefur skyldur viö þá
litlu ekki siöur en móöirin.
Vandinn að
vera pabbi
Hvaö gerir 16 ára gæi þegar
hann verður allt i einu forráöa-
maöur kornabarns? Þarf að mata
þaö og hiröa, hafa þaö hjá sér i
eldhúsinu á næturnar sitja bund-
inn yfir þvi öll kvöld og meira að
segja fara meö þaö meö sér i
skólann vegna þess aö hann hefur
ekki efni á að setja þaö i dag-
gæslu.Móöir hanserloksins oröin
frjáls og eölilega ófús aö fórna
góöu starfi og byrja upp á nýtt
með ungbarn. Það er sjálfsagt
ekki auöveldara fyrir rosknar
konur aö fá vinnu I Sviþjóö en hér
heima. Sagan lýsir vandræöum
Péturs á afar skemmtilegan og
aölaöandi hátt og lika þeim óljósu
og flóknu tilfinningum sem
drengurinn fyllist til barns sins
smám saman.
Auk þess tekur sagan meö i
reikninginn viöbrögö allra i
kringum Pétur, foreldra hans,
kennara, starfsmanna barna-
verndarnefndar og almennings i
bænum. Allir eru sannfærðir um
aö Pétur gefist upp fyrr en varir,
hann sé bara aö sýnast. Lesandi
veit hvertstefnir i bókarlok en þó
er ýmislegt óákveöið I lokin enda
hefur Gun skrifað aöra bók um
Pétur og barniö hans sem von-
andi kemur á islensku fyrr en
varir.
Þetta er yndisleg saga full af
bjartsýni og mjög timabær þvi
strákar mega vel vita það aö þeir
geti séö um böfn engu siöur en
stelpur. Þaö má ef til vill finna aö
þvi aö atvik i sambandi viö brott-
flutning Mariönnu séu ósannfær-
andi og lauslega afgreidd I sög-
unni en þaö er ekki stórmál. Mál
mála er hvernig tekst til meö
Péturog reynslu hans. Þar er fátt
aðfinnsluvert — ef til vill helst
það hvaö barniö er undur þægt og
ljúft, minnir á skemmtiTegt leik-
fang.
Mjólk eða súpa
Þýöingin hefur tekist lakar en
skyldi. Málfarið er óþjált,
ekki sist i samtölum
viöa beinlinis óeölilegt:
„Þaö var betri timi þegar
hann var 15 ára.” (64) „Allt
gengur svo hægt, þegar hann er
neyddur til aö nota aðeins
fæturna.” (65) „Piltur aöeins 16
ára — meö hjól og allt — hann
þarf að hlaupa af sér hornin.”
(74) „Hvitar mýs I kennslustof-
unni,sleppt hundi inn á leikvang-
inn i miðri knattspyrnukeppni
kastaö smásteinum i rúöur hjá
ókunnu fólki á dimmu kvöldi, ljót
ogklúr orð skrifuö á veggi og þilj-
ur. sundurtættar bækur, skoriö
með hnif á bekki o.s.frv. ” (107)
Dæmimáfinnaá hverriblaösiöu.
Svo er ýmislegt undarlegt I
textanum eins og t.d. þaö aö
barniö fjögurra vikna fær enga
mjólk.alltaf súpu. Ég held aö það
sé ekki uxahalasúpa sem hér er
átt við heldur hljóti súpan að vera
mjólkurblanda sem Pétur býr til
úr dufti I pakka.
Frágangur er þokkalegur, fáar
prentvillur en stundum skipt
skrftilega milli lina (af-tur,
cau-sár).
Gámakerfi
fyrir hjálp
í viðlögum
Eins og allir vita veröur æ
meira um þaö um allan heim aö
flutningar eigi sér staö I stórum
gámum. Þykir flestum þetta
framför nema hafnarverkamönn-
um sem missa vinnu viö tilkomu
þessara tækni.
Hönnuöir vestur-þýska firmans
Porsche hafa lagt fram hug-
myndir um einskonar gámakerfi
fyrirhjálp I viölögum. Hugmynd-
in er sú, aö slysavaröstofur hafi
tilbúna nokkra gáma meö öllum
helstu tækjum til aö gera aö
meiöslum, gefa blóö, aöstoöa
hjartasjúklinga osfrv. Þegar eitt-
hvert tæki er ekki i lagi, eöa ein-
hverjar birgðir eru brotnar á aö
vera fljótlegt aö skipta um gáma
á bilgrind. Þá á einnig aö vera
hægt aö útbúa sérhæföa sjúkra-
gáma og búa til úr þeirn I skynd-
ingu heilt gámasjúkrahús — eins
og myndin sýnir.
51 UKf K/IiIilJ
i/i^nra MaWwm tm
Asmjöri
Núna kostar kílóið aðeins
880.-kr.