Þjóðviljinn - 04.02.1978, Síða 5

Þjóðviljinn - 04.02.1978, Síða 5
TT Laugardagur 4. febrúar 1978 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5 Er kjaraskerðing yfirvofandi Rætt við 7 verkamenn AÐGERÐA ER ÞÖRF Ummæli Ólafs Jóhann- essonar í sjónvarpi á þriðjudagskvöld/ að //kjaraskerðing/ þó ekki tilfinnanleg"! væri á döf- inni hjá ríkisstjórninni/ Einar Þorgeirsson: Stefnulaust hjá ólafi Þarf rótækar adgerdir Einari Þorgeirssyni i Lands- smiðjunni leist Ola á kjara- skerðingaráformin. — Annars virtist allt vera stefnulaust hjá Ólafi Jdhannes- syni i sjónvarpinu á þriðjudas - kvöldið, hann vildi athuga allt. — Verkalýðshreyfingin er orðin of miðstýrð. Hún hefur ekki látið mál Landssmiðjunnar til sin taka eins og hún ætti að gera. Það þarf róttækar aðgerð- ir, og það er baráttuhugur hér i Landssmiðjunni. Þeir sem ætla að standa fyrir sölu Lands- smiðjunnar, ættu að koma hing- að og ræða við starfsmenn. Há vinnulaun ekki orsök erfídleikanna í Vélsmiðjunni Héðni hittum við Einar Brynjólfsson og spurðum um ástand og horfur: — Það er augljóst mál að það fagnar þvi enginn ef til kjara- skerðingar kemur. Ef til kemur almennrar kjaraskerðingar auk gengisfellingar verður verka- lýöshreyfingin að rétta hlut sinn. Arás verður að svara með hefðbundnum leiðum, uppsögn samninga og svo framvegis. Allsherjarverkfall er möguleiki, en það er ekki byrjað að ræða þetta neitt i félögunum. — Almennir launþegar geta ekki tekiö á sig afleiðingar um efnahagserfiðleikanna. Þaö verða aðrir aö koma til, at- vinnufyrirtækin búa t.d. viÖ ágætan hag, og hafa haft hag- stæða álagningu. Há vinnulaun eru ekki orsök erfiðleikanna. kröfur verkalýðsfélaganna verða að taka mið af þörfum fé- lagsmanna, en ekki kveinstöf- um rikisstjórnar og atvinnu- hafa vart komið mörgum á óvart þegar tekið er tillit til þess hvaða stéttarhags- muna þessi „fram- kvæmdanefnd burgeisa- stéttarinnar" hefur að Guömundur Jónsson: Hvaö ger- ir Dagsbrún? Hvað gerir Dagsbrún? Niður við höfn hittum við að máli Guðmund Jónsson og innt- um hann eftir áliti hans á kjara- skeröingaráformum rfkisvalds og burgeisa. Hann taldi að ekki væri gott að segja um það núna, ekki væri komið i ljós hvað yrði gert. Engu að siður væri augljóst að sifelldar verðhækkanir hefðu höggviöskörð i kaupmátt launa. Hvort nauðsynlegt yrði að fara i verkfall til að svara væntanleg- um kjaraskerðingum, vildi hann ekki spá um, en spurði að lokum; Ja, hvaö gerir Dags- bún? Elnar Brynjólfsson: Englnn fagnar kjaraskeröingu. rekenda sagði Einar Brynjólfs- son að lokum. gæta. Gengisfelling og af- nám visitölubóta/ eru þær framkvæmdir sem ráö- herrarnir gæla mest við í hugskotum sínum þessa dagana. Asgeir Einarsson: Þrælsóttinn vföa tii ennþá Fólk of hrætt vid íhaldið Asgeir Einarsson i Vélsmiðj- unni Héðni var ómyrkur i máli um ihaldsöflin og erfðafjendur verkalýðshrey fingarinnar: — Útlitið er hroðalegt. Það hefur farið hraðversnandi á valdatima þessarar rikisstjórn- ar. Það er ekki gott að segja hvað er til bóta. Fólk er osam- mála.enginn þorir að gera neitt, þrátt fyrir að flestir viti hvað þurfi að gera. — Ahrif ihaldsins eru mikil. Hræðslan við það bindur hendur margra. T.d. i upphafi sjöunda áratugsins var nokkuð atvinnu- leysi og þá voru margir sem ekki þorðu að láta uppi hug sinn af ótta við að vera reknir. Ég var á sjónum þá og menn sem voru róttækir og létu það i ljós, máttu eins eiga von á þvi að skipstjórinn segði þeim að taka pokann sinn. Þrælsóttinn er viða til ennþá. — Varðandi kosningar, þá birtir nú alltaf til með vorinu, en hvort það birtir nógu mikið til, er ekki gott að segja til um. Gengissig og verðhækkanir lækka kaupmáttinn sifellt. Kaupið fyrir siðasta mánuð var sæmilegt, en maður finnur strax fyrir áhrifum verðhækkananna. — Það er ekki von á góðu meðan að menn þurfa að vinna 10—14 tima. Þvi er það að á meðan að verkalýöurinn er i meirihluta meðal landsmanna, höfum við stjórn eins og situr núna. Er Asgeir var spurður um það hvort áhrif ihaldsins færu minnkandi að hans mati, taldi hann að mikill hluti ungs fólks hafnaði þvi, en reyndar hefðu nú ansi margir verið harðir ihalds- andstæðingar foröum daga. — Ég vona að ihal^ið falli, ég er búinn að biða eftir þvi i fimmtiu ár voru lokaorð Asgeirs. Kjaraskeröing kemur ekki til greina Kjaraskerðing kemur ekki til greina, var svar Arna Krist- björnssonar i Landssmiðjunni, þegar við spurðum hann álits á verkalýðsfjandsamlegum þanka- gangi ráðherranna. — Það má ekki hrófla við kaupinu, þaðer sist of hátt. Það eru til margir stórir vasar, sem ráð væri að fara fyrst i. Verka- lýðshreyfingin verður að gera ráðstafanir til aö svara öllum kjaraskerðingaráformum. Alls- herjarverkfall er möguleiki, þó hannsé ekki raunhæfur eins og er. Ég vona aö innri styrkur verkalýöshreyfingarinnar sé nægilegur til þess að hægt verði að hrinda öllum árásum á kaup og kjör. Allir vilja fá sem mest Vilja ekki allir fá sem mest? spurði Pétur Grfmsson i Lands- smiðjunni. Menn veröa að taka afleiðingum ofátsins. Þó á það ekki við um verkalýðshreyfing- una, það er erfitt að lifa af laun- unum i dag. — Það verður að stöðva verð- bólguna. En það verður lika aö berjast gegn kjaraskeröingum. Þar er verkfallið eina vopnið, þó það sé að sjálfsögðu neyöarúr- ræði. Ekki allir hrifnir af stjórninni! Eftir að hafa skotist á milli lyftara og smokraö okkur á milli manna við uppskipun, náö- um við tali af Ingimundi Sæmundssyni. t — Þetta er ómöguleg stjorn. Þeir þóttust ætla að lækka dýr- tiðina og lofuöu mörgu fleiru, en það hefur litið orðið um efndir. Hækkanir á vörum eru i fullum gangi og rikisstjórninni er vel trúandi til að reyna aö skerða kjörin enn frekar. — Það er ekki gott að segja hvernig verkalýöshreyfingin á að bregðast við. Ef verkalýður- inn fær nokkrar krónur með verkföllum hækkar allt svo þaö virðist gagnslitið. Ef aö illa gengur og peninga vantar, hlýtur að véra hægt að taka þá annars staðar frá. Stjórnvöld virðast geta eytt i alls konar óþarfa og þaö hafa ýmsir hærra kaup en verkamenn. — Ég efast um miklar breyt- ingar i vor, þó kosið verði. Fólk skiptir ekki mikið um flokka. Viö spurðum hvort núverandi En hver veröa viðbrögð ingaáformanna og hér á verkalýðshreyfingarinn- síðunni birtast svör starfs- ar? Við fórum á nokkra manna i yélsmiðjunni staði til að kanna hug Héðni/ Landssmiðjunni og verkafólks til kjaraskerð- við höfnina. Ingimundur Sæmundsson: Þetta er ómöguleg stjórn! stjórn nyti mikillar nylli meðal hafnarverkamanna. — Það eru að minnsta kosti ekki allir hrifnir af henni! svaraði Ingimundur aö lokum. Arni Krlstbjörnsson: Svara verður kjaraskerðingaráform- unum Pétur Grimsson: Erfitt að iifa af laununum

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.