Þjóðviljinn - 28.02.1978, Page 1
MOÐVIUINN
Þriðjudagur 28. febrúar 1978 — 43. árg. 43. tbl.
Kjörorðið er:
m m m o m
i gildi
A llsherjarverkfall
frá miðnœtti í nótt
Ríkisstjórnin
hefur í hótunum
A fundi rikisstjórnarinnar i gærmorgun var itrekuð sú afstaða
sem áður hafði komið fram frá fjármálaráðherra um hótanir i
gerð opinberra starfsmanna. Er meðal annars hótað sérstökum
frádrætti á launum vegna þátttöku opinberra starfsmanna i
verkfallinu 1. og 2. mars. Hafnar rikisstjórnin algerlega þeirri
skýringu BSRB að hér sé um það að ræða að verkalýðshreyfingin
noti sér neyðarrétt.
Þjóðviljinn kannaði það i gær hvort hugsanlegt væri að rikis-
stjórnin gæti komið við hefndarráðstöfunum gegn opinberum
starfsmönnum. Voru þeir sem blaðið leitaði til samdóma um að
slikt væri utilokað; hótunum sinum um refsingar kæmi rikis-
stjórnin með engu móti i verk.
ENGINN SKORIST
UNDAN!
Ólafur
H.l.P.
Emilsson, tormaóur
HIP sendir
út tilskipan:
Prentarar
i verkfall
Dagblöðin stöðvast
í tvo daga
„Niðurstaðan af sameiginleg-
um fundi fulltrúaráðs Hins is-
lenska prentarafélags og túnað-
armanna i prentsmiðjum i dag
varðsúað féiagið tilkynnir vinnu-
stöðvun 1. og 2. mars.á morgun,og
sendir út skriflega tilskipun um
verkfall á vinnustaði i Reykjavik
og með skeytum út á land”, sagði
ólafur Emilsson, formaður HIP I
gærkvöidi.
„Félagsfundur okkar sam-
þykkti að lýsa stuðningi við að-
gerðir samráðsnefndar laun-
þegasamtakanna og taka fullan
þátt i þeim og tilskipunin um
verkfall er þvi i fullu samræmi
við það. Við ákváðum að standa
saman um að hrinda þessum
kjaraskerðingarlögum og ein-
stakir félagsmenn mega ekki
vanvirða þessa lýðræðislegu
samþykkt. Þess vegna var ekki
um annaö að ræða en að senda út
tilskipun sem þessa á svipaðan
hátt og Dagsbrún hefur þegar
sent út til sinna félagsmanna.”,
sagöi Ólafur ennfremur.
Það er þvi ljóst að dagblööin
munu stöðvast i tvo daga.
Hver launamaður hefur
skýlausan rétt til að
leggja niður vinnu
Frá og með miðnætti næstu nótt hefst eitt víðtækasta
ailsherjarverkfall sem efnt hefur verið til hér á landi.
Verkfallið á að standa í tvo daga og það nær til félags-
manna innan Alþýðusambands Islands, Bandalags
starfsmanna ríkis og bæja, Bandalags háskólamanna,
Farmanna- og fiskimannasambands islands og Iðn-
nemasambands islands. Þetta er víðtækasta samstaða
sem um getur í vinnustöðvun hér á landi, en innan
nefndra samtaka eru um 60 þúsund manns.
Sameinumst gegn lögleysu
Stjórnarblöðin ieggja áherslu á að allsherjarverkfallið 1. og 2. mars
sé ólöglegt og ráðherrar hóta að sækja félagsmenn f verkalýðshreyf-
ingunni til saka. Þessar yfirlýsingar og hótanir eru með öllu fráleitar:
Það er skýlaus lagalegur og siðferðislegur réttur hvers einasta manns
að leggja niður vinnu þegar brotnir eru á honum samningar. A þetta
bendir Alþýðusamband lslands i dreifimiða sem dreift var i gær:
„Löglega gerðum kjarasamningum launþegasamtakanna hefur nú
verið rift. Með þvi er lagt til atlögu gegn grundvallarréttindum sér-
hvers launamanns i landinu. Réttinum til að semja um kaupið og rétt-
inum til að njóta óskertra kjarasamninga út samningstimabilið. Rikis-
valdið hefur lýst þvi yfir.að hér sé aðeins um byrjunaraðgerð að ræða.
Afleiðing nýsettra laga er að hver einasti vinnandi maður er sviptur 5
til 6 vikna kaupi á næstu 12 mánuðum.”
Víötæk samstaða — rætt viö 30 forystumenn
t sérstökum blaðauka Þjóðviljans i dag, á 4 síðum, eru birt viötöl við
30 forystumenn i verkalýðshreyfingunni. í þessum viðtölum kemur
fram hve viðtæk samstaðan er; hver einasti einn allra þeirra manna
sem Þjóðviljinn ræðir við i dag lýsir ekki einasta stuðningi við aðgerðir
verkalýðssamtakanna; þar hvetja þessir 30 forystumenn alla launa-
menn til þess að leggja niður vinnu i tvo daga til þess að sýna samstöðu
og mótmæla kjaraskerðingu rikisstjórnarinnar.
Trésmiðafélag Reykjavíkur:
Segir upp samningui
Meðfylgjandi samþykkt var
gerð meö öllum atkvæðum
félagsfundar i Trésmiðafélagi
Reykjavikur á laugardaginn:
Félagsfundur i Trésmiðafélagi
Reykjavikur, haldinn að Hótel
Loftleiðum, 25. febrúar 1978, mót-
mælir harðlega þeirri sameigin-
legu árás atvinnurekenda og
rikisvalds á löglega gerða samn-
inga verkalýðsfélaganna, sem
felst I þeirri lagasegningu um
efnahagsráðstafanir, sem
samþykktar voru á Alþingi hinn
16. þ.m.
Fundurinn samþykkir aö segja
upp öllum kaupgjaldsákvæðum i
kjarasam ningum félagsins,
þannig að þau falli úr gildi hinn 1.
april n.k.
Fundurinn lýsir fullum
stuðningi við samþykkt
formannaráðstefnu A.S.Í. og
hvetur alla félgsmenn
Trésmiðafélags Reykjavikur til
virkrar þátttöku i mótmælaað-
gerðunum 1. og 2. mars, sem
samstarfsnefnd launþegasam-
takanna hefur ákveðið og boðað,
og öðrum þeim aðgerðum, sem
siðar verða ákveðnar.
Snorri Jónsson
Enginn
mælir
þeim bót
— sagði Snorri
Jónsson,
------------ s
varaforseti ASI
„Það var einkennandi á
öllum þeim fundum sem
haldnir voru á vegum sam-
ráðsnefndar samtaka launa-
fólks um helgina að þar
' heyrðist ekki ein einasta
rödd sem mæ'lti kjaraskerð-
ingarlögum rikisstjórnar-
innar bót. Allir mæltu á móti
henni. Yfirgnæfandi meiri-
hluti fundarmanna á þessum
fundum og raunar yfirgnæf-
andi meirihluti allra verka-
lýðsfélaga á landinu hefur
tjáð sig samþykkan þeim að-
gerðum sem ASl og önnur
samtök launafólks hafa
hvatt til.”
Þetta sagöi Snorri Jóns-
son, varaforseti ASÍ, I gær og
minnti einnig á að verka-
lýðshreyfingin hefði svarað
hræðsluáróðri rikisstjórnar-
innar myndarlega með út-
gáfu dreifirita þar sem sann-
að væri meö skýrum dæmum
hvernig hin siðlausu ólög rik-
isst jórnarinnar skertu
kjarasamningana. Kvaðst
Snorri viss um aö þátttaka I
alsherjarverkfallinu 1. og 2.
mars yröi mjög almenn. þvi
fólk gerði sér grein fyrir
hvað um væri að tefla.
—ekh.
UTIFUIMDUR Á MORGUN
Hefst á Lœkjartorgi kl. 2 e.h.
haldinn daginn sem kaupránslögin taka gildi. Þar I
verður borin fram krafan um að kjarasamningar ■
verði áfram i gildi og réttir kauptaxtar greiddir. .
trtifundur samráðsnefndar launþegasamtak- Gert er ráð fyrir að fundurinn standi i 35—40 I
anna gegn kjaraskei' garlögum rikisstjórnar- minútur. Lúðrasveit verkalýðsins leikur á Lækj- jj
innar verður haldinn á rgun, miðvikudaginn 1. artorgi. í dag verður tilkynnt um ræðumenn og ■
mars, kl. 14, kl. 2 e.h Lækjartorgi. Hann er, fundarstjóra á útifundinum.
Mótmæli
og
hvatningar
streyma
inn
0 Iðja í Reykjavík
skorar á
félagsmenn að
þeir ,,allir sem
einn,, taki þátt
í aðgerðunum.
0 Sjómannafélagið
Jötunn hvetur
sjómenn til að
sýna samstöðu
t gær streymdu að blaöinu sem
öðrum fjölmiðlum mótmæla-
samþykktir verkalýðsfélaga og
áskoranir um að taka virkan þátt
i allsherjarverkfallinu. Vegna
þrengsla er ekki kostur á að birta
þessar ályktanir fyrr en i blaðinu
á morgun.
Fundur féiaga í ASl og BSRB á
Hornafirði hvetur til órofa
samstöðu í allsherjarverkfallinu.
Iðnnemasamband Islands sendir
ýtarlega ályktun um kjara-
skerðinguna og hvatningu i
aðgerðunum 1. og 2. mars.
Almennur fundur launafólks á
Siglufirði hvetur til þátttöku i
allsherjarverkfallinu og krefst
nýrrar efnahagsstefnu .
Sjómannafélagið Jötunn i
Vestmannaeyjum hvetur alla
sjómenn til að taka þátt i aögerö-
unum. Fulltrúaráð Sambands
Islenskra barnakennara kallar
aðgeröir rikisstjórnarinnar
algert siðleysi og segir að takist
ekki að hrinda árás rikisvaldsins
sétilvera samtaka verkalýðsins i
hættu. t Félagi blikksmiða var
gerð tilraun til þess að koma i veg
fyrir aö blikksmiðir tækju þátt i
verkfallinu. Tillaga formanns og
varaformanns félagsins þar að
lútandi var felld á fundi i félag-
inu.
Loks er þess að geta að trún-
aðarmannaráð Iðju félags verk-
smiðjufólks i Reykjavik
samþykkti þá eindregnu ósk til
féagsmanna ,,að þeir, allir sem
einn, verði við tilmælum Alþýðu
sambandsins og annarra
launþegasamtaka um að leggja
niður vinnu dagana 1. og 2.mars
næstkomandi.”