Þjóðviljinn - 28.02.1978, Side 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 28. febrúar 1978
RÓTTÆKA FÉLAGIÐ
Fordæmir
arðránið
Þann 16. fcbrúar sl. hélt Kót-
tæka félagið, nýstofnað félag
menntaskólanema, baráttufund i
tilefni kjaraskerðingar rikis-
valdsins. Ræðumenn voru Guð-
mundur J. Guðmundsson, Guð-
mundur Hallvarðsson og Gunnar
Andrésson. Hjördis Bergsdóttir
skemmti og með visnasöng.
Danskir styrkir
til íslendinga
Dansk-islenski sjóðurinn hefur
nýlega á fundi sinum i Kaup-
mannahöfn veitt fjölda íslend-
inga fjárstyrki, sem ætlaðir eru
til eflingar menningarlegum og
visindalegum tengslum tslands
og Danmerkur. Samtals var út-
hlutað 56 þúsund og fimm hundr-
uð dönskum krónum, sem skipt-
ast á milli 66 styrkþega.
Svohljóðandi ályktun samþykkt
á fundinum með öllum atkvæð-
um:
„Baráttufundur á vegum Rót-
tæka félagsins haldinn fimmtu-
daginn 16. febrúar i kjallara Casa
Nova i Menntaskólanum i
Reykjavik ályktar að kjaraskerð-
ingarfrumvarp rikisvaldsins sé
ein af ráðstöfunum þess til að
arðræna verkalýðinn. Þetta
frumvarp gerir að engu kjara-
samninga frá þvi i sumar og
haust; þvi er rikisvaldið að skerða
frjálsan samningsrétt.
Félagið vill sýna samstöðu sina
með verkalýðshreyfingunni og
hvetur hana til þess að láta hart
mæta hörðu og fara i allsherjar-
verkfall.”
Framkvæmdanefnd Róttæka
félagsins skipa Axel Kristinsson,
Margrét Rún Guðmundsdóttir og
Sigriður Jóhannsdóttir.
Kolbeinn Bjarnason, Ragnheiður Steindórsdóttir og Sveinbjörn I.
Baldvinsson.
Fundinn sátu: Matthias A. Mathiesen, fjármálaráðherra, alþingismennirnir Oddur ólafsson, ólafur
G. Einarsson, Jón Armann Héðinsson, Jón Skaftason, Geir Gunnarsson og Gils Guðmundsson. For-
stööumaður þjóðhagsstofnunnar Jón Sigurðsson. Forsvarsmenn sjávarútvegsins voru Ólafur B. Jóns-
son, Kinar Kristinsson, Tómas Þorvaldsson, Benedikt Jónsson, Margeir Jónsson, Halldór Ibsen og Ing-
ólfur Arnarson. Að hálfu fundarboðenda; Jóhann Gunnar Jónsson, sveitarstjóri Vogum, Ingvar Jó-
hannsson, forseti bæjarstjórnar.Njarðvík.og Ólafur Björnsson bæiarfulltrúUKeflavík.
Lokun frystihúsa á Suðurnesjum
Þingmenn
finni leidir
Föstudaginn 24. febrú-
ar boðuðu sveitarstjórnir
á Suðurnesjum til fundar
með þingmönnum kjör-
dæmísins, og forsvars-
mönnum í sjávarútvegi
til þess að ræða það al-
varlega ástand, sem orðið
er á Suðurnesjasvæðinu. ■
Einnig var mættur á I
fundinum Jón Sigurðsson ■
forstjóri þjóðhagsstofn- |
unnar.
A fundinum kom fram, að svo J
er komið nú, að aðeins er daga- m
spursmál hvenær allur þorri |
fiskvinnslufyrirtækja verður að ■
loka.
Eftir að hafa skýrt málin ■
rækilega fyrir þingmönnunum |
var lagt i þeirra vald að finna ■
leiðir til að leysa vandann, þar
sem ljóst er að það er algjörlega Jj
ofvaxið byggðarlögunum að ■
þola þetta ástand deginum leng- ■
ur.
Söngvar og upplestur
að Kjarvalsstöðum
Þegar Ijósmyndasýningunni
,,LJÓS” lýkur að Kjarvalsstöðum
i kvöld kl. 21:30, verður flutt þar
dagskrá i tali og tónum eftir
Sveinbjörn I. Baldvinsson, sem
nefnist „Heimurinn heima” og
fjallar um heim barnsins.
Flytjendur auk höfundar eru
Ragnheiður Steindórsdóttir leik-
kona og Kolbeinn Bjarnason.
Sveinbjörn hefur sent frá sér
eina ljóðabók. ,,t skugga manns-
ins”, sem kom út hjá Almenna
bókafélaginu haustið 1976. Hann
stundar nú nám i bókmenntum
við Háskóla tslands.
Ragnheiður er leikkona hjá
Leikfélagi Reykjavikur og fer um
þessar mundir m.a. með hlutverk
Skáld-Rósu i samnefndu leikriti.
Kolbeinn er við nám i bók-
menntum við Háskóla Islands, en
stundar auk þess nám við Tónlist-
arskólann, með þverflautu sem
aðalhljóðfæri.
Þess má geta að þremenning-
arnir fluttu þessa dagskrá á
„Góuvöku” Menntaskólans við
Sund sl. fimmtudagskvöld, við
mjög góðar undirtektir.
íþróttablað lögreglunnar
Ot er komið tþróttablað lög-
reglunnar, 1. tbl. 1. árg., og er
Iþróttafélag lögreglunnar útgef-
andi þess. Magnús Einarsson
fylgir blaðinu úr hlaði með
ávarpi, Bertram H. Möller ritar
um tþróttafélag lögreglunnar og
Bann við
línu veiðum við
Snæfellsnes
Sjávarútvegsráðuneytið hefur
gefið út reglugerð um bann við
linuveiðum viö Snæfellsnes.
Samkvæmt reglugerð þessari
eru allar linuveiðar bannaðar
frá linu réttvisandi suður frá
Malarrifsvita, að linu réttvis-
andi vestur frá öndverðarnes-
vita og innan Unu, sem dregin
er 4 sjómilur utan við'miðunar-
linu.
Reglugerð þessi er sett
samkvæmt tillögum Haf-
rannsóknastofnunarinnar, en
birtar eru myndirfrá þátttöku fé-
lagsins i ýmsum iþróttakeppnum.
Þá ritar Grétar Norðfjörð um
Norðurlandameistaramótið 1974
og Gisli I. Þorsteinsson um júdó.
Margar myndir prýða blaðið.
við athugun á afla linubáta af
þessu svæði kom i ljós, að smá-
þorskur var verulegur hlutur
aflans.
Bann þetta við linuveiðum tók
gildi frá og með 13. febrúar og
gildir þar til annað verður
ákveðið, en Hafrannsóknastofn-
unin mun fylgjast með þessu
svæði.
Nokkrir þátttakenda fundarins um æskulýðsstarf sveitarfélaganna
Æskulýösstarf sveitarfélaga
Laugardaginn 4. febrúar s.l.
bauð Æskulýösráö rikisins
æskulýðsfulltrúum sveitarfélaga
og öðrum þeim sem annast æsku-
lýösmálefni af hálfu sveitar-
félaga til fundar á Hótel Esju. A
dagskrá voru fyrst og fremst tvö
mál, félagsstarf i skólum og sam-
starf skólanna og annarra aðila
um félagsstarf og aðstöðu til
þess; og hins vegar umræöur um
æskulýðsstarf sveitarfélaga.
Framsögu um samstarf skóla,
félaga og æskulýðsráöa hafði
Reynir G. Karlsson, æskulýðs-
fulltrúi, og kynnti hann nýja
reglugerð um félagsstörf og
félagsmálafræöslu i grunnsköla
og niðurstööur nefndar sem
nýlega lagöi fram álit sitt fyrir
menntamálaráöherra um aðstöðu
til félagsstarfsemi I húsnæði skól-
anna.
Að Ioknum umræðum störfuðu
fundarmenn i þrem starfshópum
og lögðu siðan fram niöurstöður
sinar. Þar kom m.a. fram að
flestir telja nauðsynlegt að tóm-
stundamálefni veröi ekki ein-
skorðuð við ákveöna aldurs-
flokka, eins og tilhneiging hefur
verið til. Einnig voru menn sam-
mála um nauðsyn þess að efla
samstarf með tómstunda- og
æskulýösráðum og foreldrum og
einnig samstarf við skólana. Þá
veröa sveitarfélög óhjákvæmi-
lega að auka stuðning sinn við
tómstunda og æskulýösmálefni aö
dómi fundarmanna, og að lokum
óskuðu þeireftir þvi að Æskulýös-
ráð ríkisins boðaði framvegis
slika fundi, sem þennan, um
æskulýðsstarf sveitarfélaga ár-
lega eða jafnvel tvisvar á ári.
A fundinn mættu 28 fulltrúar frá
flestum stærstu bæjar- og
sveitarfélögum landsins. Fundar-
stjóri var Unnar Stefánsson, full-
trúi sveitarfélaganna i Æskulyðs-
ráöi rikisins.