Þjóðviljinn - 28.02.1978, Qupperneq 3
Þriftjudagur 28. febrúar 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Fylkiskosningar á Indlandi:
Stórsigur Indiru
NÝJU-DEHLI 27/2 — Sá hluti
Þjóðþingsflokksins á Indlandi,
sem fylgir Indiru Gandhi að mál-
um, vann stórsigur i kosningum
til þings fylkisins Karnataka og
virðist hafa náð svipuðum
árangri i fylkiskosningunum i
Andhra Pradesh á Suður-Ind-
landi. Virðist Indira þar með hafa
tryggt sér stöðu sem helsti leið-
togi indversku stjórnarandstöð-
unnar.
Flokkur Indiru fékk hreinan
meirihluta sæta i Karnataka, eða
152 þingmenn kjörna af 224 alls á
fylkisþinginu. Er þetta alvarleg-
ur hnekkir fyrir stjórnarflokkinn
Janata, sem hefur verið að reyna
að auka fylgi sitt i suðurhluta
landsins. Þegar þriðjungur at-
kvæða hafði verið talinn i Andhra
Pradesh, hafði flokkur Indiru
unnið þar 72þingsæti en hinn svo-
kallaði opinberi Þjóðþingsflokkur
aðeins 21. Isiðarnefnda flokknum
eru keppinautar Indiru i Þjóð-
þingsflokknum, sem klofnaði
vegna deilna hennar og þeirra. I
Maharashtra á Miö-Indlandi gekk
Janata og opinbera Þjóðþings-
flokknum betur. Kosið var til
þingafimm fylkja á laugardag og
lauk talningu fyrst i Karnataka.
Úrslit þessi virðast hafa skotiö
Janata nokkrum skelk i bringu
og hefur jafnvel heyrst að sigur
Indiru myndi leiða af sér klofning
i stjórnarflokknum, sem raunar
er sambræðsla margra og ólikra
flokka. Chandra Shekhar, forseti
Janata, visar orðrómnum um
klofning eindregið á bug,en játar
aðsigur Indiru hafi komið honum
mjög á óvart. Indira segir Urslitin
sýna að hún hafi fólkið með sér.
5 manns létust í
í eldsvoda
1 Nordursjó
30 mannslát í norska olíuævintýrinu
til þessa
Indira — ekki aldeilis búin að
vera.
Shekhar gaf í skyn að ástæðan til
sigurs hennar væri sú, að
almenningur væri óánægður með
frammistöðu stjórnarinnar i
efnahags-og kjaramálum.
Indira Gandhi, sem nú er
sextug að aldri, var forsætisráð-
herra Indlands iellefu ár uns hún
beið ósigur I þingkosningunum i
marss.l.
Harðnandi
afstaða
Egypta
JERCSALEM 27/2 Reuter —
tsraelsstjórn visaði i dag á bug
nokkrum hluta siðustu tillagna
Egypta um frið milli Israels og
Araba og afhenti Alfred Atherton
sérlegum sendimanni Banda-
ríkjastjórnar, gagntillögur aö
fara með til Kairó. Segja tsraels-
menn að þessar siðustu tíllögur
sýni harðnandi afstööu Egypta,
sem að likindum sé viðleitni til
þess að geðjast Jórdaniu og fleiri
Arabarikjum.
Menakhem Begin, forsætisráö-
herra tsraels, endurtók fyrri yfir-
lýsingar Israelsstjórnar um að
ekki kæmi til greina að tsrael
samþykkti afhendingu herteknu
svæðanna frá 1967 og stofnun
palestinsks rikis sem grundvall-
arforsendu fyrir samkomulagi.
OSLÓ 27/2 frá Ingólfi Margeirs-
syni — S.l. laugardagskvöld létu
fimm menn lifið i eldsvoða, sem
braust út á norska oliuborpallin-
um Statfjord A. Aðeins eitt oliu-
slys i sambandi við olíuvinnslu
Norðmanna hefur orðið fleiri
mönnum að fjörtjóni, en það var
þegar borpallurinn Deep Sea
Driller sökk i mars 1976 og sex
manns misstu lifið. Samkvæmt
norsku fréttastofunni NTB hafa
30 manns farist i sambandi við
oliuvinnslu Norðmanna á s.I. tiu
árum.
Statfjord A er hvorttveggja i
senn borunar- og framleiðslupall-
ur og stærstur sinnar tegundar i
heimi. Hámarksframleiðsla hans
á oliu á að geta numiö 300.000
tunnum á sólarhring. Undir-
búningsvinna við borpallinn hefur
verið á lokastigi og reiknað er
með þvi að framleiðslan hefjist
að ári. Pallurinn er af svonefndri
Condeepgerð og hvilir á þremur
steyputurnum, sem hver um sig
er 170 metra að hæð. Tveir turn-
anna eru notaðir við borun, en i
þeim þriðja er einkum oliuleiðsl-
um og dælum komið fyrir.
Slysið átti sér stað i siðast-
nefnda turninum og er enn óvist
hvaö olli eldsupptökunum. Menn-
irnir unnu við að logsjóða dælu-
undirstöður, þegar slysið varð, og
hafði viðvörunar- og eldvarnar-
kerfið verið tekiö Ur sambandi
meðan á vinnunni stóð. Um hálf-
tiuleytið um kvöldið uppgötvuðu
mennreyk neðanúrturninum, en
mökkurinn og hitinn reyndist þá
það mikill, aðþað tók tvo tima aö
kæla þennan hluta turnsins og
komast aðmönnunum. Höfðu þeir
þá kafnað af völdum reyksins.
Tveir þeirra höfðu komið sér i
lyftu, en hún stansaði aðeins tæþa
tvo metra frá eldvarinni hæð.
Dauðaslysið gerðist 50 metrum
fyrir ofan hafsbotn, eða með öðr-
um orðum sagt langt fyrir neðan
sjávarflöt.
Bandariska olíufyrirtækið
Mobil, sem annast hefur uppsetn-
ingu borpallarins, hefur ákaft
verið gagnrýnt af norskum fjöl-
miðlum fyrir slæman öryggisút-
búnað. Sérstaklega hefur veriö
bent á nauðsyn þess, að lyftur og
stigar i turninum séu lokaðir og
eldvarðir. Oliufyrirtækið til-
kynnti ekki heldur björgunarmið-
stöðinni á Sola um slysið, og er
það vitavert brot á þeim á
öryggisákvæðum, sem gilda um
norska borpalla á Norðursjó.
Egyptar svipta Pale-
stínumenn réttindum
GERIÐ GÓÐ KAUP!
Við seljum í þessari viku ýmsar vörur með
30-50% AFSLÆTTI:
I HUSGAGNADEILD
Litiö göiiuð borðstofuhús-
gögn, teak og palisander.
Stakir stóiar, sófar.
sófaborð o. m. f/.
I TEPPADEILD
Ymsar stærðir og gerðir af
teppabútum. Einnig margar
gerðir af uHarteppum.
KAtRÓ 27/2 Reuter — Egypska
stjórnin hefur svipt Palestinu-
menn þá, sem i Egyptalandi búa,
sérstökum réttindum sem þeir
hafa notið þar i iandi siðan 1956.
Virðist stjórnin gera þetta i reiði
sinni út af drápinu á Jússef Sibai,
áhrifamiklum egypskum blaða-
manni sem var náinn samstarfs-
maður Sadats forseta, en tveir
Palestinumenn skutu hann til
bana á Kýpur fyrir niu dögum.
Palestinumenn hafa i rúm 20 ár
haft öll sömu réttindi i
Egyptalandi og egypskir borgar-
ar, nema ekki i stjórnmálum.
Héðan í frá verður hinsvegar far-
ið með þá sem þegna annarra
Arabarikja. Mamdú Salem,
forsætisráðherra Egypta,
tilkynnti þessa ákvörðun
stjórnarinnar og ásakaði jafn-
framt leiðtoga Palestinumanna
um að vera á mála hjá Arabarikj-
um þeim, sem snúist hafa gegn
þeirri viðleitni Sadats að ná
samkomulagi við tsrael.
MacBride rædur Nató
frá ráðstefnu um
nifteindasprengju
BRÚSSEL 27/2 — Hinn kunni
Irski st jórnm álamaður Sean
MacBride hélt þvi nýlega fram að
leiðtogaráðstefna Nató-rikja,
sem halda á I Washington I mai,
myndi hafa það sem aðalverkefni
að ákveða hvaða ráðstafanir Nató
gerði viðvikjandi nifteinda-
sprcngjunni margumtöluðu.
MacBride hvatti Nató til þess
að fresta ráðstefnunni, þar eö hún
annarsfærifram á sama tima og
afvopnunarviðræður á vegum
Sameinuðu þjóöanna, og myndi
siik Nató-ráðstefna á sama tima
varla verða til þess að greiða
fyrir árangri afvopnunarvið-
ræðnanna.
Talsmenn Nató hafa brugöið
við og afsagt að það sé rétt aö
Nató-ráöstefna þessi eigi að fjalla
um nifteindasprengjuna. — Sean
MacBride var fyrrum útanrikis-
ráðherra Ira og umboðsstjóri
fyrir Sameinuðu þjóðirnar yfir
Namibiu. Hannhefur einnig tekið
mikinn þátt i starfi mannrétt-
indasamtakanna Amnesty Inter-
national.
Athugið! Við fö/dum teppabútana og smærri teppi meðan
beðið er.
I RAFDEILD
Ymsar gerðir
rafljósa.
Veggfóður
og ita/skar
gó/f- og
veggf/isar. ,
I BYGGINGAR-
VÖRUKJÖRDEILD
Jón lofftsson hff J
Hringbraut 121 Sími 10600