Þjóðviljinn - 28.02.1978, Page 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 28. febrúar 1978
Handbolti:
Símon „klikkaði
Haukar bættu stöðu sína allnokkuð, er þeir sigruðu
KR í leik sem fram fór í Hafnarfirði á sunnudag, á
undan leik FH og Ármanns. Leiknum lauk með sigri
Hauka 23:22.
Gunnar Einarsson var hetja Hauka að þessu sinni
því að þegar 9 sek. voru eftir af leiknum varði hann lé-
legt víti frá Símoni Unndórssyniyog þar með voru bæði
stigin Hauka.
Það var fyrirliði KR, Haukur
Ottesen, sem skoraði fyrsta
mark leiksins,en hinn stórkost-
legi leikmaður Hauka, Ólafur
Jóhannesson, sem frægari er
fyrir knattspyrnuna jafnaði
strax 1:1. KR-ingar komust sið-
an i 3:1 og höfðu ávallt frum-
kvæðið eða þar til að Haukar
náðu að jafna 6:6. En KR-ingar
höfðu eitt mark yfir i leikhléi
12:11.
t siðari hálfleik var leikurinn
mjög jafn og munaði oftast ekki
nema einu marki á annan hvorn
veginn. En Haukarnir voru
sterkari á lokakaflanum og
skoruðu þá á timabili 5 mörk
gegn aðeins 2mur frá KR og
breyttu stöðunni i 23:20. En KR-
ingar voru ekki á þvi að gefast
upp og næstu tvö mörk voru
þeirra og staðan þvi 23:22 þegar
eftir voru aðeins 9 sekúndur af
leiknum og dæmt viti á Hauka
sem Gunnar Einarsson gerði
sér litið fyrir og varði, eins og að
ofan greinir.
Haukarnir léku nokkuð vel að
þessu sinni. Þeir Andrés Krist-
jánsson og ólafur Jóhannesson
eru frábærir saman,og skoraði
Andrés mörg glæsileg mörk eft-
ir að Ólafur hafði gefið knöttinn
til hans með mjög góðum send-
ingum.
Þessir ungu og efnilegu leik-
menn voru máttarstólpar
Hauka i þessum leik, en einnig
áttu þeir Þorgeir Haraldsson og
Stefán Jónsson góðan leik.
Andrés var markhæstur
Hauka — skoraði 6 mörk og þar
af 2 úr vitaköstum sem hann
fiskaði siáifur Þnropir sknraði
5 og þeir Ólafur og Elias Jónas-
- -0 f-----“• "o *-*****“ --
son 4 hvor. ólafur Steingrims-
son og Gunnar Kjartansson
dæmdu leikinn og gerðu það vel.
SK.
Enn eitt
heimsmet
Enn eitt heimsmetið var
sett á vestur-þýska meist-
aramótinu i frjálsum iþrótt-
um sem fram fór i Sindel-
fingen.
Það var Karl Heinz Weis-
enseel sem setti metið i 200
metra hlaupi og náði hann
timanum 21.11 sek. Hann átti
einnig eldra metið.en það var
21.16 sek.
SK.
Hellstroem
framlengdl
Sænski landsliðsmark-
vörðurinn i knattspyrnu
Ronnie Hellstroem fram-
lengdi atvinnumannasamn-
ing sinn við vestur-þýska
knatlspyrnuliðið FC Kaiser-
slautern um helgina. Hinn
nýi samningur tekur gildi
30. júni n.k. og gildir hann til
þriggja ára. Ronnie hóf að
leika með Kaiserslautern
strax aö lokinni heims-
meistarakeppninni i knatt-
spyrnu sem fram fór i
Þýskalandi 1974.
SK.
Standard tapaði
Standard Liege liðið
sem Ásgeir Sigurvinsson
leikur með í Belgiu var
slegið út úr betgísku
bikarkeppninni um helg-
ina af Lokeren. Standard
komst í 3:0, en fyrir mik-
inn klaufaskap tókst
liðinu að tapa 5:3, og er
það afrek út af fyrir sig,
úrslitin í leikjum átta-
liðaúrslitanna urðu ann-
ars þessi:
CS Bruges — FCBrugois 1:4
Charleroi — Waterschei 1:0
Frjálsar:
Filbert
Bayi sigraði
í 1500
Mctear setti met
Eitt heimsmet var sett á innanhússmóti i frjálsum
íþróttum sem háð var i Bandaríkjunum um helgina.
Það var Bandaríkjamaðurinn Houston McTear sem
metið setti í 60 yarda hlaupi, en hann hljóp á 6,04 sek.
Hann átti einnig eldra metið,en það var 6,11 sek.
Tanzaníumaðurinn Filbert Bayi heimsmethafi í
1500 metra hlaupi gat ekki tekið þátt í mótinu vegna
lasleika og varð að yfirgefa keppnisstað. Úrslit í öðr-
um greinum urðu sem hér segir:
60 yarda grindahlaup. Þar
sigraði Charles Foster frá
Bandarikjunum á timanum 7,11
sek. 1 600 yarda hlaupi sigraöi
Stan Vinson á 1,10,0 min.
1 einnar milu hlaupi sigraði
Bandarikjamaðurinn Eamonn
Coughlan á 4,01,6 min. Stangar-
stökkið vann Larry Jessée frá
Bandarikjunum, stökk 5,40
metra. Dvaight Stones sigraði i
hástökki og stökk hann 2,25
metra. A1 Feuerbach sigraði i
kúluvarpi og varpaði hann kúl-
unni 20,65 metra, en sem kunn-
ugt er keppti hann á móti hér i
sumar og varð þá að lúta i lægra
haldi fyrir Hreini Halldórssyni.
í þristökki sigraði Ron Livers
og stökk hann 16,85 metra.
Charlton Ehizuelen frá Nigeriu
sigraði i langstökki, en hann
stökk 7,73 metra.
SK.
Lokeren—-Standard Liege5:3
Tongres — Beveren 0:1
En staöan i 1. deildarkeppn-
inni er nú þessi:
FC Brugeois 25 17 3 4 59:35 39
Stand. Liege 25 14 4 7 45:25 35
Lierse 25 15 6 4 46:29 34
Anderlecht 25 14 6 5 44:22 33
Beveren 25 12 7 6 36:23 30
SK.
FH vannVal
FH-ingar standa nú mjög
vel að vigi i 1. deildarkeppn-
inni i handknattleik kvenna
eftir að liðið sigraöi Val um
helgina með 13 mörkum
gegn 10.
Staðan i leikhléi var 8:4
FH i vil.
Valsstúlkurnar gripu til
þess ráðs að taka tvær af FH-
stúlkunum úr umferð, þær
Kristjönu Aradóttur og
Svanhviti Magnúsdóttur.
Það bar ekki árangur og FH-
ingar sigruðu létt eins og áð-
ur er getið.
Harpa Guðmundsdóttir
skoraði mest fyrir Val eða 5
mörk en Kristjana Aradóttir
var markhæst FH-stúlkn-
anna og skoraði hún 6 mörk.
Leikinn dæmdu þeir Gunn-
ar Kjartansson og Geir
Thorsteinsson og gerðu þeir
það vel. SK.
Nolan
flytur
Enski golfkennarinn sem hér
hefur dvalið að undanförnu
John Nolan hefur nú flutt að-
stöðu sina sem golfkennari úr
húsi Hótel Esju og i Ford-húsið
í Skeifunni. Nolan hefur kennt
áhugasömum kylfingum, og
hefur aðsóknin verið mjög góð.
Eru allir sem áhuga hafa á að
læra að leika golf hvattir til að
snúa sér til hans. SK.
Handbolti:
ÍR-íngar lögðu
slakt Fram-lið
Sigruðu með yfirburðum eftir
að hafa náð 11 marka forskoti.
Leiknum lauk með öruggum
sigri ÍR 29:24 ‘
Ástandið hjá Fram i
handknattleiknum er nú
orðið mjög alvarlegt svo
ekki sé meira sagt. Liðið
lék um helgina gegn IR og
mátti þola 24:29 tap.
Staðan í leikhléi var
17:10 og talar það sínu
máli um vörn Fram og
markvörslu sem var eng-
in i þessum leik frekar en
öðrum. Vörnin var hrip-
lek og gátu i R-ingar skor-
að að því er manni virtist
þegar þá langaði til.
1R liðið lék þennan leik ekki vel.
Hefði eflaust leikið betur hefði
andstæðingurinn verið betri, en
það er ósköp eðlilegt að lið sem
nær 14:5 forskoti fari að taka lif-
inu með ró. og leyfa sér ýmsa
hluti.
Þeirra besti maður að þessu
sinni var Asgeir Eliassoaen einn-
ig komst Brynjólfur Markússon
vel frá leiknum. Hann var mark-
hæstur með 8 mörk og aðeins eitt
úr viti.
Allt virðist nú i molum hjá
Fram. Liðið er hvorki fugl né
fiskur og ekkert virðist framund-
an nema 2. deildin. Vörnin er eng-
in og þvi siður markvarslan.
Þá er mikið af ungum strákum i
liðinu sem ekki virðast tilbúnir til
keppni i 1. deild.
Staðan i 1. deild eftir leiki
helgarinnar er þessi:
IR — Fram 29:24
FH — Armann 22:22
Haukar — KR 23:22
Það má kanski segja að ÍR-ing- Vikingur 6 4 2 0 129:99 10
arnir hafi gert einum of mikið af FH 7 4 12 143:127 9
þvi að þessu sinni,þvi að framar- Valur 7 4 13 134:127 7
ar náðu að minnka muninn i að- 1R 6 2 3 1 116:112 7
eins þrjú mörk undir lok leiksins Haukar 6 2 3 1 115:113 7
22:19, en þá tóku IR-ingar aftur til KR ■ 7 2 14 141:149 5
við handknattleikinn og sigruðu Fram 6 12 3 119:136 4
eins og áður segir 29:24. Armann 7 115 131:154 3
ÍR-liðið er i gifurlegri framför
um þessar mundir, undir góðri
stjórn Ingólfs Óskarssonar. Er i
þvi sambandi skemmst að
minnast sigurs þeirra yfir FH á
dögunum og jafnteflisins gegn
Vikingi.
A miðvikudagskvöldið fara
fram næstu leikir og leika þá Vik-
ingur og Armann.og strax á eftir
IR og Haukar. Leikirnir hefjast
kl. 20.00.
SK.
Frjálsar:
Ingunn setti
Islandsmet
Eitt íslandsmet var sett á Meistaramóti FRI innan-
húss sem fram fór um helgina. Það var Ingunn Ein-
arsdóttir sem það gerði, er hún stökk 5,80 m í lang-
stökki og bætti fyrra islandsmetið sem hún átti sjálf
um 14 sm. Hún sigraði einnig í 50 m grindahlaupi,
hljóp á 7,3 sek. önnur varð Þórdis Gísladóttir fékk
timann 7,8 sek. Ingunn sigraði svo i 50 m hlaupi á 6,5
sek. og þar með varð hún þrefaldur meistari.
Mörg góð afrek voru unnin á
mótinu, en úrslit i einstökum
greinum urðu þessi:
Langstökk karla. Þar sigraði
Jón Oddsson HVI óvænt Friðrik
Þór óskarsson. Jón stökk 7,07 m
en Friðrik 6,66 m. I 50 m grinda-
hlaupi karla sigraöi Elias
Sveinsson á 7 sek. sléttum en
annar varð Þorvaldur Þórsson á
sama tima, en Eliasi var dæmd-
ur sigur þar sem hann var sjón-
armun á undan.
Jóhann Pétursson UMSS sigr-
aði i þristökki, stökk 13,70 metra
en annar varð sonur hins fræga
iþróttamanns Vilhjálms Ein-
arssonar, Rúnar Vilhjálmsson
og stökk hann 13,58 m. Óskar
Jakobsson sigraði i kúluvarpinu,
varpaði kúlunni 17,62 m og bætti
fyrir árangur sinn um tæpan
hálfan annan metra. Óskar
Reykdal varð annar og varpaði
hann kúlunni 13,84 m sem er
nýtt drengjamet með karlakúlu.
1 800 m hlaupi sigraði IR-ingur-
inn Gunnar Páll Jóakimsson á
2,08,2 min, Guðmundur Guð-
mundsson sigraði i hástökkinu,
stökk 1,96 m. 1 50 m. hlaupi
karla sigraði Sigurður Sigurðs-
son á 5,8 sek. Ungur piltur,
Gunnlaugur Þorsteinsson, fékk
sama tima 5,8 sek.en varð sjón-
armun á eftir Sigurði.
SK.