Þjóðviljinn - 28.02.1978, Blaðsíða 16
DJÚÐVUJINN
Þriðjudagur 28. febrúar 1978
Aöalsími Þjóöviljans er 81333 kl. 9-21 mánudaga til föstu-
daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum.
Utan þessa tlma er hægt aö ná i blaöamenn og aöra starfs-
menn blaösins I þessum simum: Ritstjórn 81382, 81527,
81257 og 81285, útbreiösla 81482 og Blaöaprent 81348.
^81333
Einnig skal bent á heima-
sima starfsmanna undir
nafni Þjóöviljans i sima-
skrá.
Snj óflóð svipti
Siglfirðinga
heita vatninu
Siglfirðingar hafa nú átt i
strangri baráttu við að verjast
vetrarnepjunni. Snjóflóð féll á
hitaveitu þeirra i Skútudal i
fyrradag með þeim afleiðingum,
aö aðrennslið til bæjarins
stöðvaðist. Ekki er vitaö hversu
langan tima viðgeröin tekur né
heldur hvenær hægt vcrður að
hefja hana, veöurs vegna. A
meöan er reynt að notast við oliu-
kyndingartæki, þar sem þau eru
fyrrir hendi en annars rafhitun.
Undanfarin dægur hefur austan
stormur meö mikilli snjókomu og
10—12 stiga frosti veriö á Siglu-
firði, að þvi er Einar Albertsson,
einn af meðlimum Almanna-
varnanefndar á Siglufiröi sagði
okkur i gær. Um hádegi i fyrra-
dag dró verulega úr rennsli heita
vatnsins til bæjarins og um kl. 1
tók alveg fyrir það. Brotist var á
vélsleöa, i blindhrið, fram að
dælustöðvunum til þess að athuga
hvað fyrir hefði komið. Kom þá i
ljós, að snjóflóð hafði fallið i
austanverðum Skútudal, yfir
dæluhúsin og spennistöð. Ekkert
varð að gert um sinn, vegna
óveðust. Almannavarnanefnd
bæjarins kom þegar saman, og i
framhaldi af þvi voru kallaðar út
björgunarsveitir og iðnaðar-
menn, sem ásamt starfsmönnum
bæjarins hafa siðan lagt nótt við
dag við að koma i lag oliukynd-
ingu, þar sem aðstaða til hennar
var fyrir hendi,en annars að út-
vega rafofna til upphitunar. Seld-
ust þeir þegar upp i verslunum
bæjarins og mun nú jafnvel i ráði
að fá viðbót frá Akureyri, en sem
betur fer er enginn skortur á
rafmagni. Skipulagt var starf i
simstöðinni til þess að fylgjast
með þvi, hvernig ástatt væri i
húsum.
Seinnipartinn i fyrradag var
svo enn brotist fram að stöðvar-
húsunum og grafið niður á aðal-
dæluhúsið. Virtist svo við laus-
lega athugun, að ekki myndu
mjög miklar skemmdir á tækj-
um. Mikill snjór er yfir og um-
hverfis húsin og talið tveggja
sólarhringa verk að hreinsa þar
til, en veður ræður hvenær unnt
verður aðhefja það verk.
„Hér hefur verid
unnið gott starf ’
— Við höfum þaö gott hér i skól-
anum, sagði Gunnar Rafn Sigur-
björnsson, skólastjóri á Sigiufirði
i viötali við blaöið I gær. Oliu-
kyndingin var sett á hér í skólan-
um á fimmtudaginn var,en þang-
að til höfðum við hitaveituna. En
þar sem ekki var nóg vatn i hol-
unum og niöurdráttur hafði auk-
ist,þá voru nokkur stór hús tekin
út af kerfinu, þar á meðai gagn-
fræðaskóiinn, sundhöllin og
sjúkrahúsið,og þaö bjargar okkur
nú.
— Hér var hitaveitan komin i
um 400 hú%en þá var látið staðar
numið, vegna vatnsskorts, sagði
Gunnar. Margir héldu þó áfram
aö hafa aðstöðu tíl olíukyndingar,
i öryggisskyni,og njóta þess nú.
Öðrum er svo reynt að bjarga
með rafhitun, en þá vaknar
spurningin: hvað þola innanhúss-
kerfin? Hinsvegar þurfum við
naumast að óttast rafmagns-
skort.
Annars eru skemmdir si
lega ekki eins miklar og r
Framhald á 14.
siðu
Banaslys í
Súganda-
firði
A föstudaginn var varð það
hörmulega slys i Súgandafirði, að
8 ára gamall drengur Egill
Traustason, hrapaði til bana úr
hliðinni fyri ofan innstu húsin i
þorpinu á Suðureyri.
Annar drengur, Ingvar
Sigurðsson, 10 ára, hrapaði einnig
og slasaðist illa. Hann var flutt-
urá sjúkrahús i Reykjavik og er
nú talinn úr lifshættu.
Drengirnir voru að leik i brattri
hliðinni i 300—400 metra hæð.
Brast þá snjóhengja og runnu
þeir á hjarni niður hliðina.
Nærstatt fólk sá drengina hrapa,
en þegar að var komið var yngri
drengurinn Egill Traustason,
þegar látinn.
Læknislaust er i Súgandafirði,
en héraðslæknirinn situr á Isa-
firði. Slysiö varð milli klukkan 4
og 5 siðdegis, og var læknir kom-
inn á staðinn frá Isafirði laust
fyrir klukkan 7.
Eldri drengurinn var siðan
fluttur á sjúkrahús tii Isafjaröar
með jeppa, sem jarðýta varð að
draga yfir Botnsheiðina, þvi að
heiðin var ekki fær bilum vegna
snjóa og ekki hægt að nota flug-
vél. Til Isafjarðar var komið um
miðnætti, en daginn eftir, laugar-
dag.var drengurinn svo fluttur til
Reykjavikur.
Þessa óvenjulegu myndstúdiu gerði ljósmyndari Þjóðviljans af
Kjartani Flögstad i Norræna húsinu á sunnudag, þar sem hann var að
segja áheyrendum sinum frá hetjudáðum Robert Mitchums, Audrey
Murphy og Eddy-Lemmy eins og þær birtust honum á hvíta tjaldinu I
heimabæ hans Sauda i Vestur-Noregi á sjötta áratugnum. Ljósm. eik.
„Dalen Portland”
á íslensku í ár
Kjartan Flögstad, sem nýverið
hiaut bókmennta verðlaun
Norðurlandaráðs, fyrir bók sina
Dálen Portland, hélt fyrirlestur i
Norræna húsinu í gær. Ræddi
hann þar á nýstárlegan hátt um
kreppu sósialiskrar listsköpunar
og m.a. um hvað listamenn og rit-
höfundar, sem skrifa vildu fyrir
verkalýðsstétt, gætu lært af
goðsagna- og „helgisiðamynstri”
bandariska kvikmyndaiönaöar-
ins.
I stuttri kynningu á skáldinu
sem Njörður P. Njarðvik, lektor,
flutti i upphafi kom fram að i ráði
er að gefa verðlaunabókina Dalen
Portland út á islensku fyrir árs-
lok. Aðspurður sagði Njörður I
dag að þrjú forlög hefðu þegar
lýst áhuga sinum á að gefa bókina
út, en ekki væri ráðið ennþá hvert
þeirra annaðist útgáfuna. En
Njörður taldi nokkuð vist af áhug-
anum að dæma að bókin yrði i
hópi jólabókanna á Islandi á
þessu ári. — ekh.
V onskuveður
á Norðurlandi
-skólar lokaðir
,,Þetta er allsterkur
vindstrengur, sem hefur
staðið milli Grænlands og
Jan Mayen úr norðaustri
Rangfærslum auglýsingadeildar Ríkisútvarpsins mótmælt:
og beinst hingað að land-
inu," sagði Páll Bergþórs-
son veðurf ræðingur í gær,
er Þjóðviljinn spurði hann
um vonskuveðrið sem
gengið hefur yfir
Norðurland undanfarna
daga.
Auglýsingatextum breytt
án samráðs
Frá þvi fyrir heigi hafa með
stuttu millibili verið lesnar aug-
lýsingar frá Alþýðusambandi
tslands, Bandalagi starfsmanna
rikis og bæja, Farmanna- og
fiskimannasambandi lslands og
Launamálaráði Bandalags há-
skóiamanna, um fundi viösveg-
ar um landið. Auglýsingar þær
sem lesnar hafa veriö eru mjög
breyttar frá þvi sem þær voru,
þegar þær voru sendar Rikisút-
varpinu og voru orðalagsbreyt-
ingar gerðar á þeim án þess aö
rætt væri um það viö þá aðila
sem að auglýsingunum stóðu.
Þessar breytingar gerbreyta
efni auglýsinganna og beinlinis
rangfæra þær.
Sama gildir um auglýsingar
eftir sjálfboðaliðum til aö dreifa
upplýsingariti um þá kjara-
skerðingu sem lögfest hefur
verið. Þar var orðalagi breytt á
þann veg, að auglýst var eftir
sjálfboðaliðum til að dreifa riti
með „upplýsingum um efna-
hagsráöstafanir rikisstjórnar-
innar”.
Þarsem fundirnir úti um land
og dreifirit það sem áður er get-
iö fjalla aðeins um hluta þeirra
efnahagsráöstafana sem rikis-
stjórnin hefur lögfest, þ.e. sjálfa
kjaraskerðinguna, er hér um
hreina rangfærslu að ræða á
efni fundanna og dreifiritsins.
Þess vegna hafa forystumenn
launþegasamtakanna, sem aö
fundunum og dreifiritinu
standa, sent meðfylgjandi bréf
til útvarpsstjóra, þar sem þessu
athæfi stofnunarinnar er mót-
mæltr
I auglýsingatima útvarpsins
eftir kvöldfréttir i gær, var lesin
auglýsing frá ASt, BSRB, Far-
manna- og fiskimannasam-
bandi Islands og Launamála-
ráði BHM um opna fundi á
þeirra vegum um kjaraskerö-
inguna. Þegar auglýsingin var
lesin, kom i ljós að orðalagi
hennar hafði verið breytt án
nokkurs samráðs við auglýs-
endur, þannig að fundarefni
væri „ef nahagsráðstaf anir
rikisstjórnarinnar”. Þetta er
beinlinis efnisleg rangfærsla á
auglýsingunni, þvi að fundar-
efni er aðeins hluti af efnahags-
ráðstöfunum rikisstjórnar-
innar, þ.e. sjálf kjaraskerðingin
sem af þeim leiðir.
Af þessu tilefni viljum við ein-
dregið mótmæla þvi, að út-
varpsstjóri eða útvarpsráð leyfi
sér að breyta efnislega auglýs-
ingum frá samtökum okkar án
nokkurs samráðs við hlutaðeig-
andi aðila.
Virðingarfyllst,
f.h. Alþýðusambands Islands.
Snorri Jónsson
f.h. Bandalags starfsmanna
rikis og bæja
Kristján Thorlacius
f.h. launamáiaráðs Bandalags
háskólamanna
Jón Hannesson
„Það hefur snjóað á öllu þessu
svæði,” sagði Páll, ,,og þar sem
þetta kemur að landinu fyrir
norðan er bæði hvassast á annesj-
um og úrkoman langmest úti viö
sjóinn. En þegar þetta veður
kemur svo yfir landið, þá hreinsa
skýin úr sér úrkomuna veru-
lega.” Á norðanverðu landinu
hefur veriö um 8 stiga frost og
kringum 8 vindstig i fyrradag, en
heldur minna i gær, 6—7 vindstig
á annesjum, en þá snjóaði þar
talsvertenn.
Þessi norðaustanátt með snjó-
komu hefur staöið siöan á föstu-
dag, en verst var veðrið á sunnu-
dagsmorgun. Páll sagðist búast
við þvi. að þetta veður færi nú
heldur að ganga niður.
Margir skólar á Norðurlandi
voru lokaðir i gær vegna veðurs,
þ.á m. skólarnir á Blönduósi,
Hvammstanga, Dalvik, ólafs-
firði, Laugabakka og Húnavöllum
'I Húnavatnssýslu.
—eos.