Þjóðviljinn - 11.03.1978, Page 5
Laugardagur 11. mars 1978 ÞJÓDVILJINN — SIDA 5
a/ erSendum veitvangi
Frumskóga-indíánar
og Tahiti-stúlkur
geta ridid baggamuninn i frönsku kosningunum
Enda þótt skoðanakönnuðir spái
vinstriflokkunum frönsku sigri I
þingkosningunum nú um miðjan
mánuðinn, getur vel svo farið að
bilið milli vinstriflokkanna og
þeirra til hægri, sem nú fara með
stjórn, eigi eftir að mjókka þá fáu
daga sem enn eru eftir til kosn
inga. Ef mjög mjótt verður á
mununum eins og i forsetakosn-
ingunum siðast, getur hvað lítii
þúfa sem er velt þungu hlassi.
Meðal þeirra aðila, sem geta riðið
baggamuninn, eru smáflokkar og
flokksbrot á vinstrikantinum og
ibúar þess litla, sem eftir er af
nýlenduveldi Frakklands.
Um fjórðungur þeirra
frambjóðenda, sem biöla til
franskra kjósenda að þessu sinni,
er á vegum geysilega litskrúðugs
skara af smágrúppum á vinstri-
kantinum, sem helst eiga það
sameiginlegt að þær fordæma
stóru vinstriflokkana tvo,
S ó s i a 1 i s t a f 1 o k k i n n og
Kom múnistaflokkinn, fyrir
borgaralegan þankagang, svik
við verkalýðinn og yfirhöfuð allar
vammir og skammir. Hér er um
að ræða trotskista, maóista,
blöndur af þessu hvorutveggja og
sitthvað fleira. Ekki er þessum
hópum spáð umtalsverðu fylgi,
þrátt fyrir frambjóðenda-
fjöldann, en ef mjótt veröur á
mununum milli aðalfylkinganna,
gætu grúppurnar engu aö siður
dregið nógu mörg atkvæði frá
stóru vinstriflokkunum til þess að
tryggja hægriflokkunum sigur.
Leifar nýlenduveldisins
öllu liklegri til árangurs eru
umhverfisverndarsinnar, sem
hafa verið i sókn undanfarið
vegna viðtækrar andstöðu við
byggingu k jarnorkuvera.
Skoðanakönnuðir hafa undanfar-
ið spáð þeim nokkrum prósentum
heildaratkvæðamagnsins. Þeir
eru vinstriflokkunum siður
skeinuhættir, þar eð búist.er við
að þeir muni heldur styðja þá en
hægriflokkana.
Svo eru það nýlendubúarnir.
Fréttamaður Reuters kemst svo
að orði að „berrassaöir Amazon-
Indiánar” og „Tahiti-stúlkur i
strápilsum” geti vel hugsanlega
ráðið úrslitum i kosningunum.
Nýlendur þær, er Frakkland á nú
eftir, eru að visu aðeins litilfjör-
legar rytjur núlenduveldis þeirra,
sem til skamms tima var hið
næstviðlendasta i heimi (á eftir
þvi breska), en þar búa þó tvær
miljónir manna, sem kjósa 18
þingmenn af 491 á franska þingið.
Grunur um
kosningasvik
Þótt vinstriflokkarnir yrðu ofan
á i Frakklandi sjálfu, gætu hægri-
flokkarnir engu að siður haldið
völdum ef þeir fengju yfir-
gnæfandi meirihluta þingsæta i
nýlendunum — sem þeir hafa
fengið til þessa. Skoðanir hafa
verið mjög skiptar um kosn-
ingarnar i nýlendunum, sem
dreifðar eru viðsvegar um hnött-
inn, og lúmskur grunur leikur að
nýlenduembættismenn hafi
falsað úrshtin par hægriflokkun-
um i hag eða þvingað umkomu-
litla nýlendubúa, suma ólæsa, til
að kjósa hægriflokkana. Stjórnar-
völd hafa að minnsta kosti óbeint
viðurkennt að þetta hafi átt sér
stað, en fullyrða nú að endir hafi
verið bundinn á þann ósóma.
Ekki munu þó allir trúaðir á aö
svo sé i raun. Stjórnarflokkarnir
hafa nú 14 þingsæti af 17 i nýlend-
unum, og er þvi spáð að þeir fái 11
til 14 sæti þar i kosningunum, sem
fram fara nú um miðjan mánuð-
inn.
Verði munurinn milli hægri og
vinstri þvi litill i hinu háiðnvædda
Frakklandi sjálfu, getur svo fariö
að menn eigi eftir að biða i spenn-
ingi eftir að eintrjáningar komi til
Cayenne, höfuðstaðar frönsku
Gvæönu, með fáein atkvæöi frá
einangruðum indiánaþorpum
langt inni i frumskógum þess
lands.
Safnast þegar
saman kemur
Frönsku nýlendurnar, sem
formlega teljast nú franskir
landshlutar á sama hátt og Græn-
land er kallað danskt amt, eru
þessar:
Vestur-Indiaeyjarnar Martinik
og Guadeloupe með um 800.000
ibúa, auk 300.000 manna frá eyj-
um þessum sem búa i
Frakklandi. Eyjaskeggjar þessir
kjósa sex þingmenn á Frakka-
þing.
Franska Gvæana á noröur- .
strönd Suður-Amerlku,frægust
fyrir það að úti fyrir ströndinni
þar er Djöflaeyjan, hin illræmda
fanganýlenda. 50.000 ibúar þess
Ókeypis flúortöflur
Börn innan 6 ára munu næstu
daga geta fengið afhentar ókeypis
flúortöflur á barnadeild heilsu-
verndarstöðvarinnar og á heilsu-
gæslustöðvunum i Arbæ, Breið-
holti og Langholti.
t fréttatilkynningu frá Heii-
brigðismálaráði Reykjavikur-
borgar segir að flúor hafi reynst
áhrifarikasta lyfið gegn tann-
skemmdum. Sé það tekið i hæfi-
legum skömmtum á myndunar-
skeiði tannanna, minnkar það
tannskemmdir um og yfir 50%.
Hæfilegur skammtur af flúori
er:
0—3 ára 0.25 mg. (1 tafla) á dag
3—6 ára0.50mg. (2töflur) á dag
6—12 ára 0.75 mg. (3 töflur) á dag
Þessi skammtur er miðaður við
börnbúsettí Reykjavik, en þar er
flúor i köldu vatni minna en 0.1
mg. i litra.
I hitaveituvatni er hinsvegar 1
mg. flúor i hverjum litra og skulu
þeir, er þess neyta, ekki taka flú-
ortöflur.
Flúortöflurnar eru litlar og
bragðdaufar. Þær eru auöleystar
i vatni og blandast auðveldlega
barnamat án þess að spilla
bragði.
Fyrst um sinn verður ókeypis
flúortöflum eingöngu úthlutað
börnum yngri en 6 ára og verður
um leið hætt flúortöflugjöf á dag-
heimilum og leikskólum borgar-
innar.
Afgreiddar veröa 365 töflur á
einstakling.en það er ársskammt-
ur handa yngstu börnunum.
A þaö er lögð rik áhersla að
gefa aldrei meira en uppgefinn
dagsskammt og auðvitað skulu
þessar töflur geymast þar sem
börn ná ekki til.
Gerö verður spjaldskrá yfir þá
sem fá flúortöflur, og reynt verð-
ur að fylgjast meö hvort töflurnar
eru teknar samkvæmt fyrirmæl-
um eða ekki.
Heilbrigöismálaráö Reykjavik-
urborgar hvetur fólk eindregiö til
aö notafæra sér þessa þjónustu.
AÐALFUNDUR
/T
Samvinnubanka Islands h.f.
verður haldinn i Tjarnarbúð, Vonarstræti 10, Reykjavík,
laugardaginn 18. marz 1978 og hefst kl. 14.00.
Dagskrá skv. 18. gr. samþykktar fyrir bankann.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar til fundarins verða afhentir
i aðalbankanum, Bankastræti7, dagana 15.-17. marz, svo og
á fundarstað.
0
Bankaráð
Samvinnubanka
Islands h.f.
Giscard d’Estaing —
honum i vil.
nýlendustjórar hans hafa beitt kosningasvindli
lands kjósa einn fulltrúa á þingið i
Paris.
Eyjan. Réunion i Indlandshafi
austur af Madagaskar með
rúmlega hálfa miljón ibúa og þrjá
þingfulltrúa. Michel Debré, fyrr-
um forsætisráðherra Frakklands
er einn af þingmönnum eyjarinn-
ar og býður sig enn fram.
Franska Pólýnesia og Nýja-
Kaledónia I Kyrrahafi. Eyjar
þessar eru á dreif um griðarstórt
svæði, svo skiptir þúsundum
ferkilómetra. Þar búa rúmlega
300.000 manns, þar á meðal um
60.000 evrópskir landnemar. Þeir
kjósa fjóra þingmenn.
Wallis og Futung, tvær smáeyj-
ar á Kyrrahafi, ibúar um 10.000,
eitt þingsæti.
St. Pierre og Miquelon,
smáeyjar út af strönd Nýfundna-
lands, einu leifarnar af veldi
Frakka i Norður-Ameriku, sem
Bretar unnu af þeim og Banda-
rikjamenn keyptu af þeim á 18. og
19. öld. Þar búa um 7000
afkomendur bretónskra fiski-
manna, sem kjósa einn mann til
Parisar.
Eyjan Mayotte i Komor-klas-
anum i Indlandshafi norður af
Madagaskar. Ibúar 40.000, eitt
þingsæt'i. Þegar Komoreyingar
kusu sér sjálfstæði fyrir tveimur
árum skárust Mayottebúar úr
leik, og hefur Frakkland sætt
ámæli frá Einingarsamtökum
Afriku (OAU) og fleiri alþjóða-
samtökum vegna þess máls.
Vilji til sjálfstæðis er ekki sagð-
ur mikill i þessum nýlendum.
Kvað það stafa af þvi, að ný-
lendubúar finni sárlega til
smæðar sinnar, óttist að þeir
megni ekki að standa vörð um
sjálfstæði sitt og kviði þvi, að
sterkari nábúar svelgi þá. svo að
þá sé alveg eins gott aö vera undir
Frökkum áfram. Frakkar
leggja einnig verulega áherslu á
aö halda þessum leifum nýlendu-
veldis sins, og kemur þar til
metnaður þeirra og fleira. Til
þess að halda nýlendubúum þæg-
um hefur franska stjórnin þvi
undanfariö variö talsveröum
fjárfúlgum til félagslegra umbóta
i nýlendunum.
dþ.
Siglaugur Brynleifsson skrifar
um bœkur
Andvgrí og
almanakið
Almanak Hins Islenska þjóðvina-
félags 1978.104. árgangur.
Almanak fyrir tsland 1978. 142.
árgangur.
Andvari 1977. Nýr flokkur XIX.
102. ár.
Rv. Menningarsjóður og Háskóli
íslands 1977.
Almanökin eru þær bækur, sem
villulausastar eru meðal
islenskra útgáfu-bóka. Prófarkir
að þeim eru greinilega lesnar
ákaflega vandlega, enda sæmir
ekki annað. Þessi rit þurfa að
vera jafn áreiðanleg og gangur
tungls og sólar og annarra him-
inhnatta. tsl.almanakið i ár er
fyllt samskonar fróðleik og und-
anfarin ár, fróöleik sem er jafn
nauðsynlegur á hverju ári og
breytist einkum varðandi flóð og
fjöru, flest annað er óbreytt og
dagatalið tekur þeim breytingum
sem himintungl ákveða. Þetta er
næstelsta islenska timaritið’,
Skirnir er elstur, siöasta bindið er
15L árgangur. Þjóðvinafélags-
almanakið breytist aftur meira,
almanakið sjálft er samskonar og
islandsalmanakið en frá blaðsiðu
81 verður breyting frá ári til árs.
Fyrst kemur Arbók Islands 1976
eftir ölaf Hansson prófessor,
greinargott yfirlit yfir margvis-
lega atburði og fyrirburði á þvi
ári með ýmsum skemmtilegum
myndum. Skemmtilegasta mynd-
in er af gömlu krónunni og þeirri
nýju álkrónu, sem flýtur á vatni i
glasi, á bls. 151. Svo er mynd af
þvi mikla þjóðþrifafyrirtæki,
Borgarfjarðarbrúnni i byggingu á
bls. 132. Aftur á móti vantar
mynd af öðru höfuö-fyrirtæki
landsmanna, Kröflu; hennarer þó
getið litillega á bls. 120.
Á bls. 161 hefst fræðigrein um
Þorratungl og Páskatungl, vel
skrifuð og fróðleg grein varðandi
islenskanrimfróðleik. Svanhildur
Þorsteinsdóttir á lipurlega skrif-
aða smásögu á bls. 170, sem heitir
Gestaþrautin. Siðan kemur kafl-
inn Úr ýmsum áttum, fróöleiks-
molar, samanteknir af útgefanda
Þorsteini Sæmundssyni.
Það er alltaf fengur aö
almanökunum, þessum klassisku
útgáfum nauösynlegs fróöleiks
um timann og himinhvolfiö með
öllum sinum merkilegu hnöttum
og fyrirbærum og aöalatriðið að
það er þó gefin út villulaus bók
ennþá á Islandi.
Andvari flytur að þessu sinni
ævisögu Egils Thorarensen á
Selfossi. Egill er sagður hafa ver-
ið fjölskrúðugur andi, meðan
hann var og hét, uppáfyndinga-
samur og hress, útsjónarsamur
kaupstjóri. Guðmundur Daniels-
son skrifar um hann og fremur
vinsamlega. Björn Jónsson á
Kóngsbakka á þarna tvo þætti og
eina ræðu fyrir minni kvenna.
Þóroddur Guðmundsson skrifar
um höfuðskáld gotlenskrar sögu,
Gustaf Larsson. Vesturislending-
urinn Valdimar Björnsson á ræðu
flutta á fundi Þingeyingafélags-
ins i mars 1945. Merkilegur inn-
gangur að Kennidóms Spegli sr.
Björns i Sauðlauksdal eftir Kol-
bein Þorleifsson, sem býr hluta
ritsins undir prentun. Fleira gott
er i heftinu og margt sem er þess
virði aö menn lesi. Að lokum eru
birtar 50 stökur eftir Stephan G.
Stephansson, valdar af Finnboga
Guðmundssyni i tilefni af fimmt-
ugustuártið skáldsins: stökurnar
eru vel valdar og vottar þetta
góöan hug og ræktarsemi til eins
mesta skálds sem ort hefur á is-
lensku.