Þjóðviljinn - 17.03.1978, Side 3
Föstudagur 17. mars 1978 ’ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
lsraelar mæta
haröri mótspyrnu
Ræman næst landamærunum að mestu á valdi þeirra
18/3 — Harðir bardagar geisuðu
i dag á 640 ferkiiómetra ræmu i
Suður-Líbanon og herflugvélar
israela héldu uppi linnulausum
árásum á stöðvar Palestinu-
manna. Beltið, sem barist er á,
nær allt frá Miðjarðarhafi til
hlíða Hermonfjalls. Svo er að
heyra á fréttum að innrásarlið
ísraela, um 20.000 manns talsins,
mæti harðri mótspyrnu og hafi
litið sótt frain siðan I gær.
Palestinumenn segjast hafa
hrundið áhlaupum israela á mikl-
um hluta viglinunnar.
Fréttaskýrendur i Beirút, höf-
uðborg Libanons, telja að tilgang-
ur tsraela með innrásinni sé ann-
arsvegar einkum sá að veikja
PLO, aðalsamtök Palestinu-
manna, og hinsvegar að styrkja
aðstöðu ísraels með tilliti til
samninga við Arabarikin i fram-
tiðinni. Mestur hluti landræm-
unnar næst israelsku landamær-
unum er þegar á valdi Israela og
þykjast menn i Beirút vissir um
að Israelar hyggist halda þeirri
ræmu sem öryggisbelti.
Palestinumenn verjast þó enn i
þorpi nokkru fimm kilómetra
norð-vestur af Golan-hæðum i
Sýrlandi, sem tsraelar halda her-
numdum, og frá þorpi þessu er
skammt til byggða nyrst i tsrael.
Begin forsætisráðherra lsraels —
hann vill auga fyrir auga og tönn
fyrir tönn — eða riflega það.
Fréttir benda til þess að mann-
fallið sé mjög mikið, en tilkynn-
ingum striðsaðila um það ber
ekki saman. Samkvæmt óháðum
heimildum er talið að Palestinu-
menn hafi látið um 100 manns
fallna og Israeiar um 70. Að
minnsta kosti um 130 libanskir
þegnar eru taldir hafa farist, þar
af fórust um 40 er israelskar flug-
vélar jöfnuðu við jörðu stóran
hluta Ouzai’i-hverfisins, sem er
rétt hjá aðalflugbraut alþjóðlega
flugvallarins við Beirút. Þrátt
fyrir undanhaldið i gær er bar-
áttumóður Palestinumanna
sagður mikill.
Heimsmet
í geimdvöl
16/3 — Sovésku geimfararnir Júri
Rómanenkó og Georgi Gretsjkó
lentu i dag heilu og höidnu um 265
kilómetra vestur af borginni
Tselinógrad i norðurhluta
Kasakstans. Voru þá 96 dagar og
10 klukkustundir liðnar frá þvi að
þeir lögðu upp i geimferð sina og
hafa þeir þvi verið lengur úti i
geimnum en nokkrir aðrir jarðar-
búar hingað til. Fyrra metið áttu
bandariskir geimfarar.
Enn lækkar
dollarinn
16/3 — Bandarikjadollarinn tók i
dag eina dýfuna enn gagnvart
japanska jeninu og komst nú
neðar en nokkru sinni fyrr, eða á
232.30 jen, i kauphöllinni i Tókió.
Er það orðið regla að dollarinn
sigi stöðugt niður á við gagnvart
jeninu, nema þvi aðeins að
japanski seðlabankinn gripi til
sinna ráða tii hjálpar dollaran-
um.
Carter tekur
svari ísraela
Flestir adrir fordæma eda harma
innrásina
Aldo Moro rænt
16/3 — Viðbrögðin gagnvart
innrás Israela i Líbanon cru yfir-
leitt þau, að innrásin er fordæmd
eða að minnsta kosti hörmuð. Þó
eru undantekningar frá þeirri
reglu; til dæmis hefur Carter
Bandarikjaforseti gefið til kynna
að hann telji aðgerðir lsraela lög-
mæta sjálfsvörn, eða þannig
túlka bandariskir embættismenn
ummæii forsetans. Henry Kissing
er, fyrrum utanrikisráðherra
Bandarikjanna, er einnig þeirrar
skoðunar að rétt hafi verið af
tsraelum að gera árásina.
Bresku blöðin fordæma hins-
vegar flest innrásina. Times i
Lundúnum segir að flestir Bretar
skilji að visu þær tilfinningar,
sem rekið hafi tsraela til þessara
aðgerða, en á hinn bóginn sé ljóst
að tsrael geti ekki fengið frið og
öryggi nema þvi aðeins að það sé
reiðubúið að skila hernumdu
svæðunum, viðurkenna að
Palestinumenn séu þjóð og eigi
sem slikir engu minni rétt á landi
en gyðingar sjálfir. Times kallar
það harmleik fyrir ísrael, að
þegar lif þjóðar þess sé i veði, þá
sé þvi stjórnað af óvitrum mönn-
um. Flelri blöð bresk taka i sama
streng. Ihaldsblaðið Daily
Telegraphskersighér úr og segir
að timi hafi verið kominn til þess
að Libanon væri „hreinsað af
palestinskum skæruliðum.”
Kaled konungur Saudi-Arabiu
hefur skorað á Carter Banda-
rikjaforseta að stöðva hernaðar-
ihlutun tsraela. Stjórn Jórdaniu
fordæmdi tsrael i gær fyrir
innrásina og hvatti til þess að
arabar stæðu sameinaðir. Stjórn
Súdans skorar á þjóðir heims að
knýja Israel til þess að kalla her
sinn til baka og fordæmir tsraela
fyrir innrásina. Egyptaland hefur
mælst til þess við stórveldi þau
fimm, sem hafa fastasæti i
öryggisráði Sameinuðu þjóðanna
— Bandarikin, Sovétrikin, Bret-
land, Frakkland og Kina — að þau
geri ráðstafanir til að stöðva
ihlutun tsraela, sem Egyptar
saka um að stefna að útþurrkun
palestinsku þjóðarinnar. Kamel,
utanrikisráðherra Egyptalands,
kallaði i gær fyrir sig
ambassadora Bandarikjanna,
Bretlands, Frakklands og Vestur-
Þýskalands i Kairó og sagði við
þá að rikjum þeirra bæri skylda
til þess að binda þegar endi á
árásir tsraela. Arababandalagið
hefur krafist þess að Sameinuðu
þjóðirnar taki þegar til sinna ráða
og stöðvi innrásina.
16/3 — Svonefndir borgarskæru-
iiðar náinu i dag á brott Aido
Moro, einn þekktustu stjórn-
máiamanna italiu, og skutu til
bana fimm lifverði hans. Mikil
óöld hefur lengi rikt á italiu og
hefur yfir áttatiu manns verið
rænt á s.l. ári og það sem af er
þessu. Moro er hinsvegar hátt-
settastur þeirra, sem til þessa
hafa orðið fyrir barðinu á
mannræningjum, og er sumra
hald að brottnámið á honum
valdi mesta hættuástandi, sem
italia hefur komist i eftir siðari
heimsstyrjöld.
• Aldo Moro er 61 árs, einn af
leiðtogum flokks kristilegra
demókrata, hefur fimm sinnum
verið forsætisráðherra landsins
og er talinn liklegur til að verða
næsti forseti þess. öfgasamtök
sem nefnast Rauða herdeiidin
eru sögð sek um ránið. t dag var
hin nýja rikisstjórn kristileera
demókrata undir forustu
Giulios Andreotti, sem
kommúnistar, sósialistar,
sósialdemókratar og lýðveldis-
sinnar styðja, kynnt þinginu, og
sagði Andreotti forsætisráð-
herra á þingi i dag aðbann teldi
engum vafa undirorpið að
hryðjuverkamennirnir hefðu
einmitt valið þennan dag til
mannránsins með það fyrir
augum að gera stjórninni oieik.
Moro átti mikinn þátt i að samn-
ingar tókust um myndun þeirr-
ar stjórnar milli tveggja sterk-
ustu stjórnmálaafla landsins,
kristilegra demókrata sem hafa
kaþólsku kirkjuna á bak við sig
og kommúnista, en flokkúr
þeirra er stærsti kommúnista-
flokkur Vestur-Evrópu.
Moro var á leið til þingsins
heiman frá sér er mannræningj-
arnir óku á bil hans,stráfelldu
lifverði hans á svipstundu með
vélbyssuskothrið, drógu Moro
inn i stolinn bil og óku með hann
á brott. 1 tilkynningu, sem sögð
er vera frá mannræningjunum,
er þess krafist að hætt verði
réttarhöldum yfir 15 mönnum
úr rauðu herdeildinni, sem eru
fyrir rétti i Torino.
Helstu verkalýðssamtök
landsins, sem kommúnistar eru
áhrifamestir i, hafa kallað til
sólarhrings verkfalls i mót-
mælaskyni vegna mannránsins
og drápanna. Giuseppe Saragat
fyrrum Italfuforseti sagði þetta
hræðilegasta atburð i landinu -
frá þvi að valdatið fasista
Mussolinis lauk. Kommúnista-
flokkurinn segir i opinberri yfir-
lýsingu að mannránið sé villi-
mannlegur glæpur og hvetur öll
lýðræðisöfl i landinu til aö
standa saman á þessari hættu-
stund. Ugo La Malfa, leiðtogi
Lýðveldisflokksins, sagði að
hryðjuverkamenn hefðu lýst yf-
ir striði á hendur rikinu.
Sagt er að mannræningjarnir
hafi verið 12 talsins, þar af ein
kona.
Þrjár tegundir
af nýja íslenska gœðakexinu
eru komnar á markaðinn.
Biðjið um nýja Holtakexið
í næstu búð.
REYKJAVÍK SÍMi 85550