Þjóðviljinn - 01.04.1978, Síða 1
DJOOVIIJINN
Laugardagur 1. april 1978 — 43. árg. 65. tbl.
Svar atvinnurekenda við kröfum ASÍ
um kjarabætur vegna kaupránslaganna:
Eitt stórt NEI
Allir kaupsamningar lausir frá og með deginum i dag
/#Eftir þann fund sem
haldinn var í morgun með
atvinnurekendum er Ijóst
að svar þeirra er eitt stórt
Nei/ við kröfum okkar um
kjarabætur vegna kaup-
ránslaganna, sem sett voru
á okkur á dögunum" sagði
Guðmundur J. Guðmunds-
son formaður Verka-
mannasambands íslands,
er við ræddum við hann
siðdegis í gær, en í gær-
morgun var haldinn fund-
ur 5 manna nefndar ASi og
fulltrúa atvinnukaupenda
og stóð hann yfir í hálfa
klukkustund.
Siðdegis i gær var svo haldinn
fundur hjá lOmanna nefnd ASÍ og
þar voru teknar ákvarðanir um
að mæla með ákveðnum aðgerð-
um á næstunni. en þar sem þær
eru nú til umræða innan hvers
verkalýðsfélags fyrir sig og hafa
ekki verið ákveðnar, verður ekki
greint frá að sinni hvaða aðgerðir
þetta eru.
Frá og með deginum i dag, 1.
aprif eru öll aðildarfélög innan
ASI með lausa samninga og
getur þvi dregið til tiðinda innan
skamms.
Guðmundur J. sagði i gær, að á
fundinum með atvinnurekendum
i gærmorgun hefðu þeir sagst
hafa óskað eftir fundi með at-
vinnurekendum og sagst fá þann
fund i næstu viku. Sagði
Guðmundur að atvinnurekendur
hefðu á þeim fundum sem haldnir
hafa verið hafnað öllum kröfum
um kjarabætur og einnig tillögum
verkalýðshreyfingarinnar um
leiðir, sem hægt væri að fara til
að fá fram kjarabætur, ef ASI og
VI hæfu sameiginlega samninga-
viðræður við rikisstjórnina. Það
eina sem atvinnurekendur hefðu
sagt við þessu, væri það að þeir
vissu ekki nema aukinn kaup-
máttur verkafólks bryti i bága
við efnahagsstefnu rikisstjórnar-
innar og ráðunauta hennar og
gegn þeim vildu atvinnurekendur
ekki vinna. _s.d6r.
Samkoma herstöAvaandstæðinga f Háskólabiói
30. mars var geysif jölmenn. Hátt á annað þús-
und manns sóttu samkomuna, og urðu margir
frá að hverfa. Dagskráin var vönduð og fjöl-
breytt, flutt voru ávörp, lesinljóðog kaflar úr Is-
iandsklukkunni, flutt tónlistog þáttur eftir Flosa
ólafsson, „Land til söiu”. Samkoman stóð I
rúmlega tvo tima, og f lokin stjórnaði Arni
Björnsson fjöldasöng. — Þessi mynd er tekin
þegar samkoman hófst, kl. 9 um kvöldið, og þó
að þctt sé setinn bekkurinn og staðið I öllurn
göngum, fjölgaðienn mikið eftir þvi sem leið á
þessa frábærlega velheppnuðu samkomu hcr-
stöðvaandstæðinga. — (Mynd: eik)
Magnús Kjartansson
ekki i framboð
Gefur
ekki
kost
á sér
Magnús Kjartansson, alþingis-
tnaður, hefur ákveðið að gefa
ekki kost á sér til framboðs við
alþingiskosningarnar i vor.
Þjóðviljinn leitaði i gær til
Guðmunda Agústssonar for-
manns kjörnefndar Alþýðu-
bandalagsins og fékk hjá honum
þessar upplýsingar. Guðmundur
sagði að það hefði verið fyrsta
verk kjörnefndarinnarað ákveða
aðfara fram á það við Magnús að
hann skipaði efsta sætið á fram-
boðslista flokksins I Reykjavik
við alþingiskosningarnar i vor
eins og við undanfarandi
Magnús Kjartansson
aiþingiskosningar. Hefði nefndin
einróma samþykkt að fara þessa
á leit við Magnús strax fyrstu
daga marsmánaðar eða nokkrum
dögum eftir að hún var kjörin.
Magnús hefði þá þegar lýst þvi
yfir að hann hygðist hætta
þingstörfum og gæfi þvi ekki kost
á sér til framboðs á nýjan leik.
Þjóðviljinn bar þetta undir
Magnús i gær og staðfesti hann’
frásögn Guðmundar Agústs-
sonar. Astæðan til þess að ég gef
ekki kost á mér til framboðs er
sú, sagði Magnús, að ég er það
mikið fatlaður að ég tel að ég geti
ekki gegnt þingmannsstörfum á
þann hátt sem ég tel nauðsynleg-
an til þess að rækja það starf.
Viðræður við
fjármálaráðuneytið
um endurskoðun
kaupliða
Kröfu
BSRB
var
hafnad
Eins og áður hefur komið fram i
fréttum hefur BSRB lagt fram
kröfu um endurskoðun á kauplið-
um kjarasamninganna vegna
skerðingar á visitöluuppbótum.
Fyrsti viðræðufundur samn-
ingsaðila var haldinn i gær 31.
mars. A þeim fundi afhenti fjár-
málaráðherra skri'flegt svar þar
sem kröfu BSRB er hafnað að svo
stöddu.
Annar viðræðufundur hefur
ekki verið ákveðinn.
Ráðstefna Alþýðubandalagsins um
skólann og þjóðfélagið
Umræður og
hópstarf í dag
Ráðstefnu Alþýðu-
bandalagsins um skólana
og Þjóðfélagið verður
f ramhaldið í dag, að Grett-
Guðmundur J. Guðmundsson.
isgötu 3 frá 9.30 fram yfir
hádegi og í Þinghól,
Hamraborg 11 í Kópavogi
frá kl. 15. Ráðstefnan var
- sett í Þingnói í gærkvöldi
af Svövu Jakobsdóttur,
alþingismanni. Á morgun
verður ráðstefnunni haldið
áfram í Þinghól kl. 20.
/NAest af störfum ráðstefn-
unnar fer fram í umræðu-
hópum og frjálsum um-
ræðum, en allmargir hafa
tilkynnt um undirbúin inn-
legg í umræður. AAikiI þátt-
taka er í skólamálaráð-
stefnu Alþýðubandalags-
ins.
Raforkuverö til húsahitunar 130% hærra
hjá RARIK en t.d. Rafveitu Reykjavíkur
Stjórnin eykur
verðmismuninn
Eins og kunnugt er hefur rikis-
stjórnin ákveöið að hækka raf-
orkuverð Rafmagnsveitna rikis-
ins til húshitunar um 25%. Þessi
hækkun þýðir að það rafmagn
sem Rarik selur nú til húshitunar
er 130% hærra en t.d. rafmagns-
verð Rafveitu Reykjavikur.
Þessi hækkun felur jafnframt i
sér verðhækkun er nemur um 80
þúsund króna á ári fyrir meðal-
fjöldskyldu. Þessi verðmismunur
er þó ekki bara bundinn við
Reykjavik, t.d. er rafmagn ódýr-
ara á Akureyri en Dalvik, en Dal-
vik fær sitt rafmagn frá Rarik.
Fyrir hækkunina á rafmagns-
verðinu til húshitunar var húshit-
unartaxti Rarik 84% hærri en i
Reykjavik. Þá er hinn svokallaði
heimilistaxti Rarik 86% hærri en i
Reykjavik ogsama gildir um raf-
magnstaxta fyrirtækisins til
frystihúsa. Raforka til ljósa er
hins vegar vel yfir 100% dýrari
hjá Rarik.
Athygli vekur að að þrátt fyrir
þá stefnu Framsóknarmanna að
stuðla beri að jöfnun orkuverðs
um landallt, þá skuli þeir nú vera
aðilar að ákvörðun er felur i sér
að ofangreindur verðmismunur
er aukinn stóriega.
A 6. siðu Þjóðviljans er greint
frá umræðum er urðu s.l.
íimmtudag utan dagskrár á Al-
þingi um fjármálaóreiðu Raf-
magnsveitna rikisins og raforku-
mál almennt.
Hverjir fá skellinn af 25% hækkun
á rafmagni til húsahitunar?
Austfirdingar
verða verst úti
— en hækkunin kemur einnig illa
við Sunnlendinga og Snæfellinga
Sem alþjóð er kunnugt lýsti
Geir Hallgrimsson forsætisráð-
herra þvi yfir I þingræðu i fyrra-
dag, þegar fjallað var um vanda
RARIKS að nú væri það stefnan
að halda raforkuverði til húsahit-
unar i samræmi við oliukynding-
arkostnað og þvi hcfði verið á-
kveðið að hækka raforkuverð til
húsahitunar um 25%.
Við inntum Kristján Jónsson
forstjóra Rafmagnsveitna rikis-
ins eftir þvi hvaða landsvæði færu
verst útúr þessari haáíkun, en
sem kunnugt er er það afar mis-
jafnteftirlanshlutum hvaða orka
er notuð til húsahitunar.
Kristján sagði að einna mest
værium húsahitun með rafmani á
Austfjörðum, en eins væri mikið
um að hús væru hituð með raf-
magni á Snæfellsnesi og á Suður-
landsundirlendi, svo sem á Hellu
og Hvolsvelli.svo og i Þorlákshöfn
og svo auðvitað i sveitunum. Ann-
ars sagði Kristján að rafmagns-
hitun værialgengá öllum stöðum
á landinu þar sem ekki væri hita-
veita.
„Þar sem þilofnar eru notaðir
við rafhitun húsa eins og nú er
viðast hvar, nýtist raforka til
húsahitunar afar illa og þvi er það
okkar markmið að koma upp sem
viðast fjarvarmaveitum. og við
erum að ljúka við gerð áætlunar
um slikar stöðvar” sagði Krist-
ján.
Hann benti ennfremur á að þeg-
ar hægt væri að nota rafmagn frá
vatnsaflsstöðvum til húsahitunar
myndi málið breytast mjög frá
þvi sem nú er, en til að mynda á
Austfjörðum er rafmagn fram-
leitt meðdiselstöðvum. og kostar
þá 20 kr. aðframleiða kgw.-stund-
ina en hún er seld á 5 kr.
—S.dór