Þjóðviljinn - 01.04.1978, Side 6

Þjóðviljinn - 01.04.1978, Side 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 1. april 1978 Ríkisstjórnin ákvad að hækka húshitunartaxta Rarik: Hækkunin eykur mismun á orkuverdi Sagði Lúðvík Jósepsson Eins og greint var frá I blaðinu i gær urðu nokkrar umræOur á Alþingi á fimmtudag um fjárhagsvanda Rafmagnsveitna rikisins, en þær hófust með þvi að Lúðvik Jósepsson kvaddi sér hijóðs utan dagskrár til að fá upplýsingar frá rikisstjórninni um stöðu málsins. t máli Lúðviks kom m.a. fram að mikill munur er á orkuverði Rarik og t.d. Rafmagnsveitu Reykjavikur, t.d. er hinn svokallaði heimilistaxti Rarik 86% hærri en I Reykjavik og raforka tii ljósa yfir 100% dýr- ari hjá Rarik. Hér á eftir verður greintnokkuð frá þeim umræðum sem urðu um þessi mál. Rikisstjórninni ber að gefa skýrslu Lúðvik Jósepsson sagðist kveðja sér hljóðs utan dagskrár vegna umræðna siðustu daga um fjárhagsvanda Rafmagnsveitna rikisins (Rarik) og alvarlegs ástands hjá viðskiptamönnum fyrirtækisins. Hér væri um að ræða mál er snerti fjölda landsmanna þar eð heilu lands- hlutarnir fengju alla raforku frá Rarik. Hætta væri á að þýðingar- mikil framleiðslufyrirtæki stöðvuðust og aö heil byggðarlög yrðu rafmagnslaus. Þegar svona alvarlegt ástand skapaðist þá væri það skylda rikisstjórnarinn- ar að gefa Alþingi og landsmönn- um öllum skýrslu um málið. Sagði Lúðvik aö hér væri um rikisstjórnarmál aö ræða og þvi færi hann fram á upplýsingar frá forsætisráðherra um stöðu máls- ins og hvaða horfur væru á lausn vandans. Þvi næst ræddi Lúðvik nokkuð um vanda Rafmagnsveitnanna. Hann minnti á. að meirihluti stjórnar Rarik hefði sagt af sér vegna ágreinings um fjárhags- stöðu fyrirtækisins. Ljóst væri af greinargerð meirihluta stjórnar- innar að hún vildi vekja athygli á alvarlegu fjármálaástandi fyrir- tækisins. Þá virtist einnig sem rafmagnsveitustjórinn hefði ætl- að að segja af sér. Skuldir Rarik um 13,8 miljardir Lúðvik benti á aö Rarik skorti nú um 1200 miljónir til að geta staðið við eðlilegan rekstur og framkvæmdir á þessu ári. Þá væru skuldir Rarik nú um 13.8 miljarðar króna og skuldbind- ingar vegna vaxta og afborgana á þessu ári næmu 1800 miljónum króna. Ljóst væri aö rikisstjórnin hefði vitað I langan tima um hiö slæma ástand fyrirtækisins. Fyrirtækið hefði verið rekið með halla á siðasta ári sem nam um 300 miljónum króna. Þá væri ljóst að Rarik skuldaði Landsvirkjun rúmar 700 miljónir króna auk verulegra skulda gagnvart oliu- félögunum. Fyrirtækið heföi lika orðið að taka á sig óvænt útgjöld t.d. endurnýjun rafstrengsins til Vestmannaeyja. Ein meiriháttar framkvæmd Rarik, Austurlinan, hefði stöðvast vegna þess aö ekki var hægt að leysa út efni i linulögnina. Þó hefði verið gert ráð fyrir þessu I fjárlögum og lánsfjáráætlun. Um Vesturlinu sagöi Lúövik aö fjárveiting Alþingis til hennar væri skuldbindandi og væri vita- vert ef ekki væri fariö eftir ákvörðun Alþingis um lagningu þessarar linu. Rafmagnsverd Rarik meir en 100% hærra Þá ræddi Lúðvik nokkuð verö- mismun hjá Rarik og Rafmagns- veitum rikisins. Sagðist hann hafa fengiö þær upplýsingar hjá rafmagnsveitustjóra að verð á svokölluðum heimilistaxta hjá Rarik væri 86% hærra en hlið- stæður taxti hjá Rafmagnsveitu Reykjavikur. Þá væri rafmagns- taxti Rarik fyrir orkusölu til stærri véla svo sem f frystihús einnig 86% hærri en I Reykjavik. Húsahitunartaxti væri svo 84% hærri hjá Rarik en i Reykjavik. og raforka til ljósa væri yfir 100% dýrari hjá Rarik. Lúðvik sagði að Austfiröingar sem eingöngu skiptu viö Rarik, notuöu talsvert raforku til húsa- hitunar, en flestir þyrftu þó að nota olíu. Þeir sem hituöu með rafmagni yrðu að borga margfalt meira en t.d. Reykvikingar sem gætu notað hitaveitutaxta. Þaö væri þvi fráleitt að hækka húshit- unartaxtann. Lúövik sagði aö vandi Rarik virtist ekki aðeins vera fjárhags- legs eðlis, heldur benti margt til þess, að vandinn ætti rætur að rekja til miskliðar stjórnarflokk- anna og baráttu innan rikis- stjórnarinnar. 1 leiðara Visis s.l. miövikudag heföi verið fullyrt að mikill ágreiningur væri innan rikisstjórnarinnar um raforku- mál. Fyrirspurnir Lúövíks Þvi næst beindi Lúðvik fyrir- spurnum til forsætisráöherra I 6 liöum: 1) Hvað hefur rikisstjórnin gert til aö leysa fjárhagsvanda Rarik? 2) Hvað ráðgerir rikisstjórnin aö gera I fjárhagsvandamálum Rarik á þessu ári I heild? 3) Er ekki ætlunin að framkvæma þá ákvöröun að ljúka framkvæmdum viö Austurlinu og tengja hana á þessu ári, og hefur fjármagn til þeirra framkvæmda verið tryggt? 4) Verður ekki staðið við þegar ákveðna fjárveitingu til Vesturlinu? 5) Hefur rikisstjórnin hugsað sér að gera ráðstafanir til að jafna raforkuverð Rarik til sam- ræmis við raforkuverð t.d. Raf- magnsveitu Reykjavikur? 6) Vill rikisstjórnin ekki lýsa yfir aö hún muni tryggja að Rarik geti annast eðlilega orkusölu til sinna viðskiptaaðila? Lúðvik sagðist beina þessum fyrirspurnum til rikisstjórnarinn- ar sem heildar, en vildi bó lfka fá fram afstöðu beggja stjórnar- flokkanna. Fjárhagsvandi Rarik Geir Hailgrimsson, forsætis- ráðherra, tók næst til máls og ræddi hvers eðlis fjárhagsvandi Rarik væri. 1 fyrsta lagi hefði verið um aö ræða 140 miljón króna rekstrar- halla á siðasta ári. I öðru lagi væri áætlaöur rekstrarhalli þessa árs 285 miljónir króna. 1 þriðja lagi hefði framkvæmdakostnaöur siöasta árs farið fram úr áætlun og væri mismunurinn 446 miljónir króna. I fjórða lagi myndi framkvæmdakostnaður þessa árs fara fram úr áætlun um 325 miljónir króna. 1 heild væri fjárhagsvandi Rarik um 1100 miljónir króna. Tillögur til lausnar Forsætisráðherra sagöi að rikisstjórnin hefði fyrir nokkru skipað nefnd til að gera tillögur um lausn fjárhagsvanda Rarik og hefðu tillögur nefndarinnar verið Lúðvik Jósepsson. þingsjá ræddar á fundi ríkisstjórnarinnar 21. mars s.l. og I morgun. Tillögur nefndarinnar væru eftirfarandi: 1) Hækka hitunartaxta um 25% frá 1. mai. Þessi hækkun gæfi 110 miljón króna tekjuauka á þessu ári. Rikisstjórnin hefði fallist á þessa tillögu i morgun. 2) Verðjöfnunargjald raforku yrði hækkað úr 13% i 20% frá 1. mai. Þetta myndi þýða 235 miljón króna tekjuaukningu á þessu ári. Ríkisstjórnin hefði ekki fallist á þessa hugmynd. Rikisstjórnin teldi hins vegar rétt að taka alla taxta Rarik til endurskoðunar i þvi skyni aö auka tekjur fyrir- tækisins. Þá sagði forsætisráðherra að fjármagn yröi tryggt til Austur- og Vesturlínu. Sú raforka er færi um þessar linur yrði seld hærra verði. 3) Rekstrarlán yrðu framlengd fram á næsta ár. Þetta hefði verið samþykkt. 4) Frestaö yrði Vesturlinu og nokkrum öðrum framkvæmdum, eða lánsfjár aflað. Rikisstjórnin heföi ekki talið unnt að fresta Vesturlinu og þvi yröi aö afla lánsfjár að upphæð 450-520 miljónir króna. Svör viö fyrirspurnum Lúövíks 1 samræmi við þaö sem hér hefði komið fram sagöist forsætisráðherra vilja svara fyrirspurn Lúöviks á eftirfarandi hátt: a) Rikisstjórnin hefur aö hluta til samþykkt tillögur um aukna tekjuöflun Rarik og hefur i huga frekari tekjuöflun til handa fyrir- tækinu. b) „A þessu ári verði að taka fjármálalega uppbyggingu rafmagnskerfisins i heild til athugunar. c) Lokiö verður við Austurlínu á þessu ári. d) Hafnar verða framkvæmdir viö Vesturlinu á þessu ári. e) Jöfnun raforkuverðs er ekki hægt að framkvæma, ef menn vilja ekki hækka raforkuverð. f) Ekki væri um misklið að ræða innan rikisstjórnarinnar um lausn vanda Rarik. F ramsóknarmenn þögulir Gylfi Þ. Gislason tók næstur til máls og ræddi þáö sem hann taldi ranga og arðlausa fjárfestingu I orkumálum á undanförnum ár- um. Taldi hann timabært að koma á fót sérstöku orkumála- ráðuneyti. Þá benti Gylfi á að ekki hefði heyrst neitt frá Framsóknar- mönnum um þessi mál. Væri timi til kominn að ráðherrar framsóknar létu i sér heyra og skýrðu frá þvi hver hefði veriö þáttur þeirra i mótun orkumála- stefnu rikisstjórnarinnar. Þvi næst ræddi Gylfi það sem hann taldi mistök i orkumálum i tið rikisstjórnarinnar og tók sem dæmi lagningu rafstrengs til Vestmannaeyja. Sagði Gylfi að hér væri um að ræða 250 miljón króna framkvæmd sem ekki fæli I sér neinn fjárhagslegan hagnað fyrir Rarik og þessi ákvörðun hefði verið tekin án vitundar Alþingis. Spuröi hann hver bæri ábyrgð á þessari ákvörðun. Rarik er ekki gjaldþrota Gunnar Thoroddsen, iðnaðar- ráðherra.sagðist harma stóryrði Gylfa. Hann hefði gagnrýnt rikis- stjórnina án þess að geta bent á nein úrræði. Varðandi rafstreng- inn til Vestmannaeyja, sagði ráðherra, aö ákvörðun um hann hefði verið tekin af rikisstjórn- inni. Þá sagðist hann harma þau ummæli Gylfa að Rarik væri gjaldþrota fyrirtæki. Þetta væru staðlausir stafir, þvi eignir fyrir- tækisins væru miklu meiri en skuldir. Iðnaðarráðherra sagði að fjár- hagsvandi Rarik snerti fyrirtækið aðeins að nokkru leyti sem slikt, heldur væri um að ræða fjárvönt- un vegna verka sem ríkið hefur falið Rarik, svo sem Austurlina. Vandi Rarik stafaði lika af þvi.að fyrirtækið væri að öðrum þræði félagsleg stofnun sem væri falin ýmsar óarðbærar félagslegar framkvæmdir. Þá sagðist hann vilja benda á aðhitunarraforka væri um 50% af raforkusölu Rarik, en tekjurnar af þessu væru aðeins 25% af heildartekjum fyrirtækisins. Einnig benti hann á, að framkvæmdakostnaður Rarik væri áætlaður langt fram I timann, t.d. hefði framkvæmda- kostnaðaráætlun fyrir þetta ár verið gerð I mai 1977. Við afgreiðslu fjárlaga heföi þvi vandamálum Rarik ekki verið gerð viðhlitandi skil. Vandi Rarik hefur ekki veriö leystur til frambúðar Pálmi Jónsson, einn stjórnar- manna Rarik, ságðist hafa veriö . staddur úti á landi er meirihluti stjórnar Rarik hefði sagt af sér. Hann hefði er hann frétti um at- burðinn ákveðið að segja ekki af sér, heldur vinna að þvi að knýja á rikisstjórnina um lausn fjár- hagsvanda Rarik. Pálmi sagði að nú þegar hefðu verið teknar ákvarðanir um lausn vandans. Eftir væri þó að taka ákvörðun um 235 miljón króna fjáröflun til Rarik, en vonandi yrði það gert á næstunni. Meö slikuværibúiðaðleysa vandamál Rarik varðandi rekstur og framkvæmdir, en hins vegar hefði vandi Rarik ekki verið leystur til frambúðar. Karvel Pálmason lýsti ánægju með þá ákvörðun iðnaðarráð- herra að fyrirskipa tækjapöntun vegna framkvæmda við Vesturlinu. Þá ræddi hann einnig nokkuð vanda Rarik og benti á,að hann hefði legið fyrir þegar við gerð fjárlaga. Tökum aö okkur smiði á eldhúsinnréttingum og skápum, bæði i gömul hús og ný. Sjáum ennfremur um breytingar á innréttingum. Við önn- umst hvers konar húsaviðgerðir, úti og inni. Verkið unnið af meisturum og vönum mönnum. Trésmíðaverkstæðið Bergstaðastræti 33 — Simar 41070 og 24613

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.