Þjóðviljinn - 01.04.1978, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 01.04.1978, Qupperneq 7
Laugardagur 1. aprll 1978 ÞJÓÐVILJINN — StDA 7 Einkabillinn er eitthvert það fullkomnasta drápstæki, er maðurinn hefur fundið upp. Snorri Styrkársson Almenningsfarartæki í stað einkabíla syni það að þegar bent er á Tilefni þessarar greinar er pistill er birtist hér á þessari sömu siðu fimmtudaginn 16. mars siðastliðinn eftir Þóri Hallgrimsson kennara. Hann hóf pistil sinn á magnaðri lýs- ingu á siðustu ráðstöfunum hjónakornanna Geira og Ólu Jó. Tek ég undir þau orð er þar eru skrifuð. Þau eru nú samt ekki tilefni skrifa minna heldur sú skoðun Þóris að einkabillinn (blikkbeljan) sé ekki einn hættulegasti óvinur mannkyns- ins heldur besti vinur þess og hið mesta þarfaþing. Þessum málflutningi Þóris Hallgrims- sonar vil ég mótmæla kröftug- lega og mun færa hér rök fyrir þessari skoðun minni. Einkabillinn er eitthvert það fullkomnasta drápstæki ermað- urinn hefur fundið upp. Umferð- arslysin eru smámunir á við þá eyðileggingu er einkabfllinn hefur valdið og mun valda ef fram fer sem horfir. Ég persónulega hélt að öllum vinstri mönnum, sósíalistum, hlyti að vera sú hætta ljós er blasir við mannkyninu. Það er vitað að oliubirgðir jarðar munu ekki endast lengur en i 20-40 ár i viðbót. Það er sömuleiðis vitað að þau önnur hráefni sem notuð eru i einakbil- inn ganga til þurrðar einhvern tima i nánustu framtið. Og svo er öll sú mengun er einkabillinn veldur, hvort sem hUn er á sál- arlifi ungra manna eða á and- rUmsloftinu. Þeir eru ófáir sem lifa i draumaheimi 8 gata tryllitækja með breið dekk að aftan. Ég hélt að öllum hugs- andi mönnum væri þetta kunn- ugt. En þaö er nú öðru nær, — hér strunsar Þórir fram á siður Þjóðviljans og dásamar þar sinn einkabil. Hann gagnrjínir blaðamenn Þjóðviljans fyrir að þar hafi aldrei nein lofgjörð birst um einkabilinn hans. Þórir segir: „Til eru einnig þeir sem eruandvigir bilum, þvi þeir telja sig svo róttæka” Ég (svo og svo mikið róttækur) vil einungis segja Þóri Hallgrims- gifurlegu hættu sem stafar af einkabilnum þá er ekki þar með sagt að útrýma eigi öllum bilum (fjór- eða fleirhjóla vélknúnum ökutækjum) og hverfa á vit hestsins. Heldur er þar einungis veriðað koma vitinu fyrir þá er ennþá ráfa i' villu og skynja ekki þessa hættu. Þórir segir: ,,1 Kina, N-Kóreu, Albaniu og KUbu eru ekki einkabilar” og siðar: ,,1 þessum löndum eru ekki leyfðir einkabilar, vegna þess að efna- hagur landanna og einstaklings- ins leyfir það ekki”. Þegar þessi orð eru i'grunduð, þá læðist sá grunur að mér, þó ekki hafi ég neinar tölur handbærar, að sá gjaldeyrir er fer i kaup á einka- bilum erlendis frá og aðra þá hluti sem þeim fylgja s.s. bensi'n, nemi ef ekki gott betur hallanum, sem verið hefur á millirikjaverslun okkar hin sið- ari ár. Þórirsegir: „Það er misskiln- ingur að halda að sósialismi i .................a. að sitja i strætisvagni’ ’. Sósialistar hljóta aö hafna þeim drápshugmynd- um er Þórir hefur ánetjast. Við verðum að leysa þau vandamál, er skapast við flutning (hreyf- ingu) fólks frá einum stað til annars með þéttriðnu strætis- vagnakerfi, (gleymdu þeirri hörmung er kalíast Strætis- vagnar Reykjavikur eða Hafn- arfjarðar) ásamt einhverskon- ar bilaleigu- eða leigubilakerfi, sem ég er ekki tilbúinn að Ut- lista nánar hér. Asamt þessu gæti Þórir átt reiðhjól, er nota mætti á allar styttri leiðir. Þóri verðureinnig nokkuð tið- rætt i pistli sinum um þá „kjaraskerðingu” er hann og aðrir hafa orðið fyrir, vegna hækkunar á bensini og innflutt- um bilum. Ég dreg stórlega i efa að bensinhækkun geti talist kjaraskerðing, sömuleiðis verð- hækkun innfluttra bila. Jafn mikla „kjaraskerðingu” teldi ég verðhækkun á rafurmagns- tannburstum. Hið gagnstæða yrði þá kjarabót (verðlækkun á rafurmagnstannburstum). Þetta eru miklu frekar aðgerðir er stemma stigu viö þeirri hættu er að manninum steðjar. Næsta skref yrði að banna innflutning einkabilsins og gera jafnframt þær ráðstafanir er ég benti á. Ég bið menn að igrunda þá breytingu er verða myndi i heiminum ef einkabillinn hyrfi af sjónarsviðinu. Hvar væri t.d. auðvaldsþjóðfélagið i Banda- rikjum Norður-Ameriku, statt ef einkabillinn hyrfi. Allt þjóð- félagið dansar i kringum þetta dýrðarinnar sjálfsmorðstæki. Hér að framan hefur aðeins verið drepið á nokkur þeirra raka er skipa okkur að hætta þeim hildarleik er við tökum þátt i nU. Ég er tilbúinn til aö fara dýpra i' saumana á einstök- um atriðum og bæta nýjum við en það er of langt mál og of viðamikið i eina dagskrárgrein. Að lokum vil ég segja þetta. Við sósialistar verðum að ganga á undan og sýna fram á hættur einkabilsins. Við verðum einnig að reyna að lifa eftir þeim kenn- ingum er við aðhyllumst og vil ég benda á að alltof margir i okkar röðum tala fjálglega um sósialisma, frelsi, jafnrétti og bræðralag, en lifa þó i drauma- heimi hugsjóna og slagorða. Þegar til kastanna kemur þá eru þeir i stöðugu kapphlaupi við fmynduð lifsgæði auðvalds- ins, hins kap.italiska heims. Reyk javik 19. mars 1978. Snorri Sty rkársson. Fró sýningu Jóhannesar. Jóhannes á Loftinu: Drög og tilbrigöi Jóhannes Jóhannesson hefur opnað sýningu á Loftinu, Skóla- vörðustig 4. Það er ekki vitnð hve margar myndirnar veröa. Jó- hannes hefur sjálfur grun um, að einhvern tima hafi um tuttugu manns búiö á þessu lofti — kannski hver þeirra fái sina mynd. Myndirnar, málaöar á pappir, eru allar nýlegar. Jóhannes var fyrstur listamanna til að sýna i þessu sérstæða gallerii, þaö var fyrir þrem árum. Kannski veröur hann lika sá siðasti og lokar þar með hringnum. Jóhannes vildi helst lýsa þess- um myndum á þann veg, að þær væru staöfesting á rannsóknum sem siöar koma fram i oliumál- verkum, sem og skoöun á ýmsum þeim möguleikum sem verða til I sambandi við það sem hann væri að mála hverju sinni. Þetta eru drög og tilbrigði. Hringform eiga ýmislegt óupp- gert i einum flokki mynda, i öðr- um flokki fer einskonar konu- mynd litsterk og barnsleg með Ut- smognum hætti — ,,af þvi það er svo gaman aö vera til”. Er litróf þessara mynda róm- antiskt? — Já,er þaö ekki? Það þótti um skeiö óttaleg skömm aö láta sjá á sér rómantlk, en vorum við ekki allir saman undir þá sök seldir? Sýningin er opnuð i dag og verður opin i tvær vikur. Sixten Haage er talinn iröð fremstu graffklistamanna f Sviþjóð. Ljósm. Norræna húsið Evrópusvíta í bókasafninu Sænski listamaðurinn Sixten Haage sýnir grafikmyndir i bóka- safni Norræna hússins 1. —10. april. Sixten Haage er talinn I röð fremstu grafik-listamanna I Svi- þjóö. Hann stundaði listnám i Stokkhólmi á striðsárunum, og siöan i Paris 1945—47. Hann hefur tekiö þátt i sýningum viða um heim, m.a. I Finnlandi, Póllandi, JUgóslaviu, Italiu, VesturÞýska- landi og Bandarikjunum. Flest listasöfn I Sviþjóð hafa keypt verk eftir hann, svo og söfn i Póllandi, Vestur-Þýskalandi, Finnlandi og Bandarikjunum. Megin-uppistaða sýningarinnar í Norræna hUsinu er röð mynda, I allt tólf grafikblöð, sem Sixten Haage nefnir „Europa-sviten”, en alls eru á sýningunni um 20 verk, og eru þau öll til sölu. Sýningin er eik. opin á venjulegum opnunartima bókasafnsins, frá klukkan 14 til 19 daglega fram til 10. april. Sixten Haage setur sjálfur upp sýninguna, og dvelst hér á landi til 8. april. Nýkomið mikið úrval af austurrískum kvenkápum Opið á laugardögum kápan Laugaveg66 llhœð

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.