Þjóðviljinn - 01.04.1978, Page 16

Þjóðviljinn - 01.04.1978, Page 16
16 SIÐA — ÞJÖÐVILJINN Laugardagur 1. aprll 1978 “t HMaEtíBb Laugardaginn 1. april kl. 16:00 fyrirlestur Eeva Joenpelto: ,,Yrkesförfattarens stötestenar ”. Sixten Haage frá Sviþjóð sýnir grafikmyndir i bóka- safninu 1.—10. april. Verið velkomin NORRÆNA HÚSIÐ RÍKISSPÍTALARNIR Lausar stöður LANDSPÍTALINN Staða AÐSTOÐARLÆKNIS við svæf- inga- og gjörgæsludeild spitalans er laus til umsóknar. Staðan veitist til 1 árs frá og með 1. mai n.k. Umsókn- um, er greini aldur, menntun og fyrri störf, skal skila til skrifstofu rikisspitalanna fyrir 1. mai. Upplýsingar veitir yfirlæknir deild- arinnar i sima 29000 ( 450) Tvær stöður AÐSTOÐARLÆKNA við lyflækningadeild spitalans eru lausar til umsóknar. Stöðurnar veit- ast til 1 árs frá 1. júni n.k. Umsókn- ir, er greini aldur, menntun og fyrri störf, sendist til skrifstofu rikisspit- alanna fyrir 5. mai n.k. Upplýsingar veita yfirlæknar deild- arinnar i sima 29000. Tveir SJtJKRAÞJÁLFARAR óskast nú þegar á Hátúnsdeild spitalans. Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri störf sendist til skrifstofu rikisspitalanna. Upplýsingar veitir yfirlæknir deildarinnar i sima 29000 (580) KRISTNESHÆLIÐ. YFIRLÆKNIR. Staða yfirlæknis við Kristneshælið er laus til umsóknar. Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri störf ber að senda Stjórna- nefnd rikisspitalanna. Eiriksgötu 5, fyrir 2. mai n.k. VÍFILSSTAÐASPÍTALINN. VINNUMAÐUR óskast að Vifils- stöðum, þarf að vera vanur land- búnaðarstörfum og meðferð véla. Litil ibúð á staðnum kemur til greina. Upplýsingar gefur Magnús Kristjánsson i sima 42816, Vifils- stöðum. Skriflegar umsóknir send- ist skrifstofu rikisspitalanna, Eir- iksgötu 5, Reykjavik. Reykjavik, 2. april 1978. SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA EIRÍKSGÖTU 5, FáskrúOsfjöröur. Birgir Stefánsson skrifar: Fréttabréf frá Fáskrúðsfirði í gær, föstudag, birtist hér hjá Landpósti fyrri hluti fréttabréfs frá Birgi Stefánssyni, fréttarit- ara Þjóðviljans á Fáskrúösfiröi. Hér kemur siöari hlutinn: Mikill byggingaáhugi Húsnæðisskortur er tilfinnan- legur á Búðum og stendur það kauptúninu vissulega fyrir þrif- um. Þeir, sem gjarnan vildu flytja á staðinn og setjast að, eiga mjög erfitt með að fá ibúðarhúsnæði. Mikill bygg- ingaáhugi er nú i mönnum og það, ásamt fyrirhugaðri fjöl- býlishússbyggingu, gefur vonir um, að eitthvað rætist úr hús- næðisskortinum i náinni fram- tið. A siðustu tveim mánuðum hefur sveitarstjórn úthlutað 12 lóðum fyrir ibúðahúsabygging- ar, en ekki er vitað, hversu margir geta byrjað fram- kvæmdir á þessu ári og er það m.a. háð þvi hvort nógu margir iðnaðarmenn fást til starfa. Þó nokkur hús eru svo i byggingu i kauptúninu og það á ýmsum by ggingarstigum. Þá má geta þess, að I bygg- ingu er nýtt hús fyrir bila- og búvélaverkstæði Bjarna Björnssonar á Ljósalandi, sem er rétt fyrir innan sjálft kaup- túnið. Félagslíf menningarlifinu. Að einhverju leyti má kenna þetta mikilli vinnu, en einnig kemur þar til, að ein af aðaldriffjöðrum leik- félagsins og ágætur leikstjóri, Maria Kristjánsdóttir, flutti i burtu á siðasta ári og hafði held- ur ekki dvalist hér veturinn þar á undan. Þetta sýnir okkur, hve hver einstaklingur vegur þungt I félags- og menningarlifi hér úti i fámenninu. Samgöngur Ekki er annað hægt að segja en samgöngur á landi hafi verið góðar hér i vetur, enda hefur snjór verið litill i byggð. Auðvit- aö hafa komið nokkrir dagar, sem ófært hefur orðið milli fjarða og ekki er alltaf fært nema fyrir jeppa og stóra bila, en slikt þykir ekki tiltökumál hér og engan veginn fréttnæmt. Sú samgöngubót hefur einnig orðið, að hafið er áætlunarflug á vegum Flugfélgs Austurlands tvisvar i viku milli Fáskrúðs- fjarðar og Egilsstaða. Eru þær ferðir á þriðjudögum og fimmtudögum. Fólk' fjölgar Samkvæmt ibúaskrá Hagstof- unnar frá 1. des. s.l. eru íbúar i Búðahreppi 784 , en i Fáskrúös- fjarðarhreppi 132. Þessar tölur eru þó of háar I raun, og lætur nærri, að raunverulegur fjöldi sé 775 og 124. Fjölgun frá fyrra ári er 14 i kauptúninu. en var um 20 milli áranna á undan. Samkvæmt nýkomnum kjör- skrárstofnum eru i kjörskrá i Búðahreppi 461 og i Fáskrúðs- fjarðarhreppi 88. Þessar tölur eiga hinsvegar eftir að lækka nokkuð, þegar gengið hefur ver- ið frá kjörskrám. Jaröborun Fyrir nokkru var komið fyrir jarðbor og aðeins byrjað að bora hér i Fáskrúðsfirði, milli bæjanna Gestsstaða og Hola- gerðis. Hlé hefur orðið á frekari vinnu þarna i bili, en ætlunin mun að bora niður á 100 m dýpi. Er þetta einn liður i hitastiguls- borunum, sem fram hafa farið viða um Austurland að undan- förnu á vegum Orkustofnunar. Samkvæmt þeim virðist vera hærri hiti i jarðlögum hér mið- svæðis á Austfjörðum en áður hafði verið talið. Af búskap manna er fátt að frétta um þessar mundir, þegar fénaði er gefið inni, en fyrr i vet- ur misstu nokkrir bændur all- margt fé i fönn og á annan hátt vegna illviðris, sem skall á snögglega. í sveitinni eru ein 26 bú, mis- jafnlega stór. Mjólkursala er frá tæpum helmingi búanna, og er mjólkin flutt til Egilsstaða til vinnslu. Birgir Stefánsson Oft er i svona fréttapistlum kvartað yfir daufu félagslifi og ekki að ófyrirsynju. En það er eins hægt að telja upp það, sem þó er gert I þeim efnum. í hverju byggðarlagi starfa félög i einhverjum mæli, og sam- komuhald er eitthvert. Hér i Fáskrúðsfirði er þetta lika svo. Mest ber á starfsemi slysa- varnafélagsdeildarinnar Haf- disar og kvenfélaganna tveggja, Keðjunnar i Búðakauptúni og Kolfreyju i Fáskrúðsfjarðar- hreppi. Haldnar hafa verið ým- is: konar samkomur á vegum þessara félaga, félagsvist, bingó, árshátiðir og almennir dansleikir. Starfsfólk kaup- félagsins og hraðfrystihúss þess halda lika úti félagsvist hálfs- mánaöarlega i kaffistofu frysti- hússins. Félagsheimilið Skrúð- ur heldur uppi kvikmyndasýn- ingum og heldur almenna dans- leiki einnig öðru hverju. Aðal skemmtanir vetrarins eru tvær. Fyrsta laugardag i janúar var haldið hiðsvonefnda „Hjónaball”, sem er árleg sam- koma með þorrablótssniði, og er á hverju hjónaballi kosin allfjöl- menn nefnd til að sjá um skemmtunina næsta ár. Kven- félagið Kolfreyja heldur svo þorrablót, og var það að þessu sinni haldið 4. febrúar. A þess- um samkomum eru ýmis skemmtiatriði um hönd höfð, bæði i tali og tónum. Þar var flutt nú heimatilbúið efni: Leik- þættir og gamankvæði. Leik- félagið á staðnum hefur hins- vegar ekki starfað slðan á vor- dögum 1976 og er þar vissulega mikil brotalöm i félags- og Nýr togarí frá Slippstöðinni á Akureyri Fyrir nokkru afhenti Slipp- stöðin á Akureyri Otgeröarfé - lagi Vesturlands nýjan skuttog- ara. Hefur Slippstöðin haft hann i smiðum að undanförnu. Nafn skipsins er óskar Magnússon, 490 lestir að stærö. Getur skip- ið stundaði bæði flot-, botn- vörpu- og nótaveiðar. Óskar Magnússon er systur- skip Guðmundar Jónassonar, eöa Breka, eiils og hann heitir nú. Eru skip þessi mjög áþekk en þó m.a. sá munur á, aö eng- inn gálgi er aftan á Óskari.held- ur krani af Hiab-gerð, sem not- aður er til að taka inn trollið. Við afhendinguna flutti Gunn- ar Ragnars, forstjóri Slipp- stöðvarinnar,ræðu og vék m.a. að stöðu skipasmiöa hérlendis. Gagnrýndi hann m.a. fyrir- komulag á 'lánafyrirgreiðslu til innlendra skipasmiða, sem stuðlaði beinlinis að þvl, að auðveldara væri að fá lán út á skip smiðuð erlendis en hér heima. —mhg Umsjón: Magnús H. Gislason

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.