Þjóðviljinn - 01.04.1978, Page 20
Laugardagur 1. april 1978
Aöalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-21 mánudaga til föstu-
daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum.
Utan þessa tima er hægt aö ná i blaðamenn og aöra starfs-
menn blaösins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81527,
81257 og 81285, útbreiösla 81482 og Blaöaprent 81348.
^ 81333
Einnig skal bent á heima-
sima starfsmanna undir
nafni Þjóöviljans I sima-'
skrá.
Kraftaverkalæknir frá Indónesíu í heimsókn:
Hingað til lands er kominn „kraftaverkalæknir”
.(sjálfur neitar hann slikum nafngiftum), frá Indónesiu,
sem Didi Nasri heitir. Blaöamönnum gafst I gær tækifæri
til aö kynnast hinum óvenjulega lækningamætti hans, en I
dag kl. 17.30 mun hann sýna I Austurbæjarbiói nokkrar aö-
gerðir á sjálfboðaliðum á vegum sérstakra samtaka sem
kennd eru við 31. mars.
1 gær framkvæmdi Didi Nasri undraveröa aögerö á
Haraldi Ketilbjarnarsyni, sem nú i vikunni haföi veriö
lagður inn á Borgarspítalann með magasár. Aöferö hans
er við fyrstu sýn ekki ýkja frábrugöin tilburöum hinna
umdeildu andalækna frá Filippseyjum. Hann opnar
likama sjúklingsins meö höndunum og dregur út sýkta
vefi. En sá er munur á, aö Didi Nasri heldur þvi fram, aö
hann sé algjörlega einnaö verki, hafi ekki fulltingi anda
eða yfirnáttúrulegs kraftar.
— Ég hélt i fyrstu að svo væri, sagöi hann. En þekk-
ingarleit mln og kynni af verkum Maó Tse-tungs og ann-
arra heimspekinga hafa breytt mjög viðhorfum minum.
Það er misskilningur að tala um anda og efni sér á parti.
Andiog efni eru eitt. Hæfileiki minn er blátt áfram sá, aö
mér hefur tekist með einbeitingu og erfiðri þjálfun, aö ná
traustu valdiyfir lifsstraumum minum (biocurrents) sem
mér er sagt aö þið íslendingar hafiö kallaö „áru”. Meö
há.tlönibylgjum get ég opnað llkama manns, til dæmis
kviðarholið, og séö hverju þar er áfátt og numiö á brott.
Með þessu sama afli get ég myndaö á skammri stund
varnarhúð úr ystu frumum hins særöa vefs og stöövaö
blæöingar.
Sjón er sögu rikari
Nasri sýndi nú aöferö sina I verki. Hann opnaöi meö
fingrunum kviöarhol Haraldar og sáust innyflin mjög
greinilega, eins og viðstaddir læknastúdentar gátu vottaö.
Hann lyfti ögn upp maga Haraldar og benti viðstöddum á
sáriö (þaö leiö ekki yfir nema einn blaöamann). Þessu
næst dró Didi Nasri hinn sýkta hluta magans saman I eins-
konar poka og herti að honum I greip sinni. Fingur hans
titruðu mjög og sviti spratt af enni hans, þvl nú þurfti
hann að einbeita sér aö þvl aö skera þennan „poka” af
maganum og loka sárinu svo til um leið. Ekki tókst aö
koma I veg fyrir nokkra blæöingu og þaö var ljóst, aö
sjúklingurinn fann til verulegs sársauka (Aðstoöarmaöur
Nasri, Dosku Glotal, sagði aö þaö væri mjög misjafnt hvaö
miklum sársauka aðgeröin ylli). Kviðarholi Haraldar var
síðan lokað með mjög fljótum hætti, og var ör sýnilegt eft-
ir, því að því er Gotal segir, tekst aldrei fullkomlega aö
raða aftur saman rétt frumum húöarinnar eftir aögerö.
Aö þessu loknu fengu blaöamenn að skoöa hina
brottnumdu meinsemd. Didi Nasri kvaðst ekkert hafa á
móti því að hún yrði rannsökuð á meinafræöisstofnuninni
að Keldum. Ég hefi, sagöi hann, ekkert aö fela, ég er ekki
eins og þessir kuklarar á Filipseyjum sem breiöa Biblfuna
yfir vangetu sina.
r
Agreiningur um túlkun
Sem fyrr segir er Didi Nasri hingað kominn fyrir tilstilli
sérstakra samtaka sem nefnast 31. mars samtökin. Þau
sameina ýmsa þá sem hafa áhuga á að fá sannanir fyrir
hinum glfurlegu möguleikum mannsins sem meö einbeit-
ingu nær fullum tökum á orku sinni. Þaö kom aö vlsu fram
á blaðamannafundinum i gær, aö nokkur ágreiningur er
meðal samtakamanna um túlkun á lækningum Nasris.
Hópur undir forystu Ara Trausta Kvaran, sem tengdur er
Sálarrannsóknarfélaginu, vill setja afrek Nasris inn I þró-
unarmynd spíritismans. En hinir róttækustu I samtökun-
um vlsa þessu á bug sem hverri annarri hughyggju (Ideal-
isma); þeir benda á aö rit Maó Tes-tungs hafi orðið Nasri
að góðu leiöarljósi eins og t.d. nálastungulæknunum kln-
versku. Þessir aöilar eru flestir úr EIK-ml. Einn þeirra,
Ævar R. Guömundsson, viöurkenndi reyndar, aö einnig
meðal marx-leninista væri ágreiningur um túlkun á þess-
um „kraftaverkum”. Meirihíuti stjórnar EIK teldi, aö
athafnir Didi Nasri kæmu ekki fyllilega heim viö þekk-
ingarkenningu Lenins, auk þess sem það væri I grund-
vallaratriöum óstéttvist aö leggja mikiö upp úr
meinsemdum einstaklinga i staö þess aö ráöast á
auðvaldsskipulagiö sjálft.
Sem fyrr segir gefst borgarbúum tækifæri til aö kynnast
lækningamætti Didi Nasri I Austurbæjarbiói I dag kl. 17.30
og geta fundarmenn um leiö gerst aöilar aö 31. mars sam-
tökunum, sem hafa hug á aö skapa gestinum starfsaö-
stöðu hér á landi til frambúðar.
Hér er Didi Nasri aö loka sárinu á maga Haraldar og
dregur upp meinsemdina. Myndin var tekin á fundi meö
blaöamönnum I gær (ljósm. eik).
Andinn og efnið eru
eitt og hið sama
EFNI
Húsby gg j endur — Verktakar
— Húseigendur
Höfum til afgreiðslu alla virka daga fyrsta
flokks sjávarefni til fyllingar 1 grunna,
brautir og skurði, bæði harpað og
óharpað. Efnið er ófrosið, hreint og
þjöppunareiginleikar hinir ákjósanlegustu
EFNIÐ, SEM ENGAN SVÍKUR
BJÖR G UN H/F.
Sævarhöföa 13, sími 81833
BESMBSH