Þjóðviljinn - 23.06.1978, Síða 1

Þjóðviljinn - 23.06.1978, Síða 1
UOÐVIUINN Föstudagur 23. júni 1978 —43. árg. —130. tbl. Sjá 13. síðu Samstaðan nú og í fyrra Viðtal við Guðmund J. Guðmundsson um ársafmæli sólstöðusamninganna GLÆSBLEGUR BARÁTTUFUNDUR í LAUGARDALSHÖLLENNI í GÆR G-listinn í Reykjavík efndi til baráttugleði í Laugardalshöll í gærkvöld og var þar flutt vönduð dagskrá af fjölda listamanna, auk þess sem efstu menn listans ávörpuðuðu samkomugesti sem fylltu sæti og bekki upp í efstu sætaraðir stúkunnar. Svavar Gestsson, efsti maður G-listans, í ræðu á baráttufundinum í gærkvöld j Nú ræður starfið úrslitum Félagar! • í kosningunum 28. maí kom í Ijós að staða | Alþýðubandalagsins er sterk um allt land, ekki síst hér i höfuðstað landsins, Reykja- | vík. Hér munu og ráðast úrslit alþingis- J kosninganna. Sigur Alþýðubandalagsins vannst vegna þess að það nýtur stuðnings unga fólksins, það nýtur stuðnings verka- lýðshreyf ingarinnar. Eina leiðintil þess að fella ríkisstjórn íhaldsins er að launamenn fylki sér um Alþýðubandalagið. Það þarf að skapa á íslandi sterkt þjóðfélagsaf I sem bæði faglega og pólitískt getur boðið fiokki | auðstéttarinnar og bandamönnum hans byrginn. Reynslan sýnir að Framsóknar- I flokkur og Alþýðuf lokkur duga ekki J • Styrkur flokks er mikill vegna þess að þúsundir og aftur þúsundir liðsmanna eru L...................... reiðubúnir til þess að leggja á sig þrotlaust starf í þágu hugsjóna og sameiginlegs mál- staðar. Á þessum liðsmönnum veltur allt. Þegar þessum f undi lýkur, þá takið þið við. • Nú þurfa liðsmennirnir að heyja barátt- una. Þeir þurfa að ræða við fólk á vinnu- stöðum, heimilum, við vini, skyldfólk og kunningja, alla þá sem ætla má að hugsan- lega veiti Alþýðubandalaginu stuðning. Það ánægjulega við úrslit borgarstjórnarkosn- inganna var það að hver og einn gat vegna þess hve litlu munaði tekið sigurinn til sin persónulega. Það eru ekki hinir svokölluðu forystumenn sem halda ræður og skrifa greinar sem valda straumhvörf unum. Það er fólkið í heild og starf þess. • Við skulum gera okkur Ijóst að nú eru meiri möguleikar til þess en nokkru sinni fyrr til að breyta þjóðíélaginu í grundvall- aratriðum í þágu jafnréttis, lýðræðis og só- sialisma. Við skulum muna að kosningaúr- slit hér á landi hafa hjakkað næstum alveg í sama farinu í 36 ár. En hlekkir vanans eru að bresta. Og það er ekki víst að nokkurn tíma á þessari öld gefist okkur annað eins tækifæri til þess að koma málstað launa- fólks áleiðis. Sá sem á eld í huga, heitt blóð í æðum, þrótt, þrek og kjark i brjósti, hann nýtir nú hverja stund til þess að stuðia að þáttaskilum í sögu islenskra launamanna. Við sjáum nef nilega hilla undir tímamót; ef vel er unnið munu þessir sumardagar árs- ins 1978 siegnir bliki i sögu íslenskrar verkalýðshreyfingar, sigurbiiki! • Það eru þrír sólarhringar tii stefnu. • Fram til starfa, fram til sigurs! ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I J

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.