Þjóðviljinn - 23.06.1978, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 23.06.1978, Blaðsíða 3
Föstudagur 23. júnl 1978 ‘ ÞJÓÐVILJINN — SÍDA 3 Bœjarstjórnarmeirihlutinn í Hafnarfirði: Hafnar kjara- leiðréttingu Á bæjarstjórnarfundi i Hafnar- firöi sl. þriöjudag lagöi meirihluti Sjálfstæöisflokksins og Óháöra fram málefnasamning þar sem þess er hvergi getiö aö ganga eigi til samninga viö verkafólk um greiöslu óskertra vísitölubóta. Ægir Sigurgeirsson, annar bæjarfulltrúa Alþýöubandalags- ins, lagði til að bæjarstjórn Hafnarfjarðar virti gerða samn- inga og gerði um það samkomu- lag við starfsfólk bæjarins. Þetta var fellt og fengust fulltrúar meirihlutans ekki til aö taka af- stöðu til málsins, en sögðu ein- ungis að máliö þyrfti aö athuga eftir kosningar. —ekh. Nýr meiri hlutí í Kópavogi Samkvæmt upplýsingum sem Þjóðviljinn hefur aflaö sér tókst i gær samkomulag i viðræöum Alþýöubandalags, Alþýöuflokks og Framsóknarflokks um meirihlutamyndun f Kópavogi. Bæjarstjórn Kópavogs kemur saman til fundar i dag og mun þá verða kynntur samstarfssamn- ingur fyrrgreindra flokka. Jafn- framt verður kosið í nefndir og trúnaðarstöður. Ný stjórn mun þvi leysa samstjórn Ihalds og framsóknar af hólmi i Kópavogi eftir átta ára hægri stjórn. Nýi meirihlutinn hefur sjö af ellefu bæjarfulltrúum. JENS OTTO KRAG LÁT- INN Undir hans leiðsögn gengu Danir í EBE Jens Otto Krag. 22/6 — Jens Otto Krag, fyrrum forsætisráöherra Danmerkur og leiötogi danskra sósíaldemókrata lést snögglega i dag, og mun banamein hans hafa vcriö hjarta- bilun. Krag var 63 ára aöaldri. Krag komst ungur til frama i stjórnmálum, varð viðskipta- málaráðherra aðeins 33 ára. Hann var forsætisráðherra Dana 1962—68 og aftur 1971—72. Hann beitti sér kappsamlega fyrir þvi að Danmörk gengi i Efnahags- bandalag Evrópu en sagði af sér embætti daginn eftir að þvi hafði fengist framgengt með þjóðarat- kvæðagreiðslu. Siðan hefur hann litinn þátt tekið i stjórnmálum og opinberum málum og lengst af búið I kyrrþey úti á Jótlandi. Krag viröist alltaf hafa litið á sig sem sósialista. og eftir að hann lét af forsætisráðherraembætti sagði hann i blaðaviðtali, að það, sem hann harmaði mest er hann liti yfir liðna ævi, væri að sér hefði ekki auðnast aö gera Dan- mörk að sósialisku riki. Sem stjórnmálamaður var hann talinn kænn og yfirvegaöur, en ekki þótti sópa að honum. Inngangan i EBE olli heiftar- legum deilum I Danmörku og virðast þau átök nú færast mjög I aukana. Krag hefur hlotiö bæði frægð og óvild fyrir afskipti sin af þeim málum. 1966 voru honum veitt svokölluð Karlamagnúsar- verðlaun fyrir framlag sitt til „einingar Evrópu,” en fyrir tveimur árum var nektarstytta af honum sýnd á myndlistarsýningu i Kaupmannahöfn ásamt textan- um: „Maöurinn sem seldi okkur EBE.” Krag var tvikvæntur og enduðu hjónaböndin bæði meö skilanði. Hótað árásum á ferða- menn á Kanaríeyjum 22/6 — Talsmaöur samtaka, sem vilja Kanarieyjar sjálfstæöar og eru þekktust undir skammstöfun- inni MPAIAC, sagöi I dag aö liös- menn samtakanna gætu nú gert árásir hvar og hvenær sem þeir vildu á eyjunum. Sagöi tals- maöurinn aö auk stööva spænska hersins á Kanarieyjum myndu liösmenn hreyfingarinnar ráöast aö spænskum stórfyrirtækjum þar og túrismanum, sem er helsta tekjulind eyjanna. Talsmaðurinn sagðist ennfrem- ur eiga von á þvi, að Einingar- samtök Afriku (OAU) veittu MPAIAC opinbera viðurkenningu á leiðtogaráðstefnu sinni i Kartúm, höfuðborg Súdans, i næsta mánuði, Myndi það verða samtökunum mjög til styrktar, þannig að þau gætu senn „frels- að” hluta af Kanarieyjum. Tals- maöurinn kvaðst vona að spænska stjórnin léti undan kröf- um samtakanna um sjálfstjórn eða sjálfstæði til handa Kanarieyjum áður en til blóðsúthellinga kæmi. t góöviðrinu á Lækjartorgi i gær kL 18.15 meöan Geir Hallgrimsson hélt ræöu sina. Ljósm. Leifur. 20 þúsund Sjálístæöis- menn á Lækjartorgi Ert þú búinn að tippa? sagði Pétur Sigurðsson 1 góöa veðrinu i gær söfnuöust Sjálfstæöismenn i Reykjavik á Lækjartorg aö hlýöa á boðskap Geirs Hallgrimssonar, annars manns á D-listanum i höfuöborg- inni. Pétur Sigurðsson flutti einnig ræðu á útifundinum og sagði m.a. að úr þvi að Þjóðviljinn hefði sagt að 7 þúsund manns hefðu verið á fundi herstö'ðvaandstæðinga á Lækjartorgi (það var raunar Dagblaðið sem birti þá tölu, Þjóðviljinn hafði engar talna- gátur uppi — ath. Þjv.) þá væru að minnsta kosti 20 þúsund manns á kosningafundi Sjálfstæðis- flokksins i aftansólinni. Umferð um Lækjartorg truflaðist ekki af völdum fundarins og allt fór vel fram. V Myndin er tekin frá sjónar- horni ljósmyndara Morgunblaðs- ins á útifundum vinstri manna á Lækjartorgi, ofan af svölum Útvegsbankahússins. —ekh. Ert þú búinn að ,,tippa“ á þingmannafjölda flokkanna í kosningagetraun okkar? Hún getur fært þeim sem ,,tippa“ réttast góðan vinning -okkur gerir hún kleift að hjálpa öðrum. Getraunamiða færðu í bönkunum, flestum apótekum, kvöldsölum, og verzlunarmiðstöðvum. Auk þess hjá Rauða krossinum. Verið með + RAUÐI KROSS ÍSLANDS HJÁLPARSJÓÐUR

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.