Þjóðviljinn - 23.06.1978, Blaðsíða 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 23. júní 1978
Rætt við frambjóðendur Alþýðubandalagsins:
Þjóðviljinn reyndi i gær að ná sam-
bandi við efstu menn á framboðslistum
Alþýðubandalagsins i kjördæmum úti á
landi. Það var hins vegar ekki auð-
hlaupaverk að ná sambandi við þá, þvi
þeir voru á miklum þeytingi um kjör-
dæmin þessa siðustu daga.
Framboðsfundir voru alls staðar af-
staðnir, en viða voru Alþýðubandalags-
menn með kosningahátiðir siðustu
kvöldin fyrir kjördag. Það var einkenn-
andi að m'ikill sóknarhugur var i fram-
bjóðendum Alþýðubandalagsins.
Sóknarhugur um allt land
NORÐURLAND VESTRA
Ragnar Amalds:
Kratinn vill
forðast átök
Þaö er ákaflega áber-
andi að talsmenn stjórn-
arflokkanna hafa haldið
uppi litlum vörnum fyrir
hennar verk, sagði Ragn-
ar Arnalds f Norðurlandi
vestra. Sumir frambjóð-
endur Framsóknar hafa
jafnvel sagt það upphátt
að þessi stjórn verði ekki
við völd eftir kosningar.
Við höfum bent á það að kjós-
endur hafa enga tryggingu fyrir
þvi að svo verði ekki, —nema að
stjórnarflokkarnir tapi veru-
legu fylgi. Það er auðvitað helst
Ólafur Jóhannesson sem reynir
að verja stjórnina, en hann talar
ekki siður hlýlega um verk
vinstri stjórnarinnar og það er
enginn vafi á þvi að meirihluti
kjósenda hans vill fá slika stjórn
aftur.
Alþýðuflokksmenn hafa ákaf-
lega litið rætt um málefna-
grundvöll stefnu sinnar. Þeir
hlaupa i kringum helstu og við-
kvæmustu mál þessara kosn-
inga eins og kettir i kring-
um heitan graut. Frambjóðandi
þeirra hér hefur forðast að
lenda i átökum við frambjóð-
endur annarra flokka, og lætur
sér nægja að visa til þess að búið
sé að yngja flokkinn upp, og
ræðir svo um rósina og hnefann
og annað af þvi tagi.
>að fer hins vegar ekkert
n/illi mála að þeir stefna að þvi
að ná fylgi frá Sjálfstæðis-
flokknum og þeir hafa áreiðan-
lega möguleika á þvi. Ég er
sannfærður um það að ef Sjálf-
stæðisflokkur og Alþýðuflokkur
fá eftir þessar kosningar starfs-
hæfan meirihluta þingmanna,
þá mynda þeir viðreisnarstjórn.
Hitt er annað mál að fram-
bjóðanda þeirra hér dytti ekki i
hug að vekja athygli á slikum
möguleika, þvi á timum við-
reisnar var hér hið mesta at-
vinnuleysis- og eymdartimabil
sem yfir þetta kjördæmi hefur
gengið.
Frambjóðendur Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknar reyndu i
byrjun að belgja sig út yfir sigr-
inum i landhelgismálinu, en
beir eru eiginlega alveg hættir
þvi. Þeir finna, að þeim trúir
Ragnar Arnalds
ekki nokkur maður. Menn eru
ekki búnir að gleyma tilboöi
Geirs Hallgrimssonar til Breta
árið 1975 um 2ja ára samning og
120.000 tonna veiðiheimild. Ef
Bretar hefðu ekki verið svo vit-
lausir að hafna þessu og halda
að þeir myndu vinna okkur með
atfylgi NATO-flotans, hefðum
við fyrst losnað við þessa samn-
inga siðast liðinn vetur.
Annars er afar gott hljóð i
mönnum hér. Við verðum alls
staðar varir við aukinn stuðn-
ing, en samt er erfitt að átta sig
á þvi hvaða hreyfingar verða
hér I kjördæminu.
Það hefur verið æði kuldalegt
um að litast i islenskum stjórn-
málum og efnahagsmálum að
undanförnu og hér i Skagafirð-
inum hefur verið slydda og snjó-
koma undanfarna daga. Við
vonum og trúum reyndar ekki
öðru en að nú fari loksins að
vora.
—AI.
NORÐURLANDEYSTRA
Stefán Jónsson
„Bústu við
hinu góða
55
Þetta er greinilega létt-
ara fyrir okkur heldur en
áður, sagði Stefán Jóns-
son. Það er geysileg
óánægja út í stjórnar-
flokkana, en hvert sú
hreyfing leiðist er
ómögulegt að segja til
um.
Ég held að bæði Framsókn og
ihald séu hrædd og búist við
hinu versta, kannski vegna þess
að þeim finnst þeir eiga það
skilið.
Þó verja þeir rikisstjórnina og
fara fram á aö fá umboð kjós-
enda til að halda áfram að berj-
ast gegn verðbólgunni eins og
þeir hafi gert s.l. fjögur ár. Nú
heita kaupránslögin tekjujöfn-
unarlög, og launajöfnunar-
stefna, og á fundum hér lugu
Framsóknarmenn þar til hann
fór að snjóa.
1 fyrsta skipti i 19 ár voru nú
haldnir sameiginlegir fram-
boðsfundir flokkanna i þessu
kjördæmi. Aðsókn á þá flesta
var sæmileg, en mikil óánægja
rikti meö fundarformið, sem
ekki gaf kjósendum kost á að
koma með fyrirspurnir eða taka
til máls. Ég sé ekki annað en
nauðsynlegt sé að gerbreyta
Stefán Jónsson
fundarforminu t.d. á þá lund að
frambjóðendur sitji fyrir svör-
um, eftir að hafa haldið stutta
framsögu, þannig að kjósendur
komist að þeim á einhvern hátt.
Mér hefur þótt kratarnir tala
nokkuð málefnalega á þessum
fundum. Arni Gunnarsson hefur
að visu svifiö á fannhvitum
vængjum nýheiðarleikans, og
deiltá flokkana sem slika, alveg
eins og hann væri alls ekki i
neinum flokki og hefði aldrei
verið i framboði fyrir Alþýðu-
flokkinn i borgarstjórn i
Reykjavik. Það var auðvitað
ekkert rætt um peysufatasjóð-
inn i Gaggó-Aust, eða þegar
Friðrik Jörgensen var geröur ut
til fjárafla, og enn siður minnst
á þaö aö alþingi neyddist til að
setja lög til að banna krötum að
þiggja mútur erlendis frá.
Þeir höfða aðallega til
óánægðra Sjálfstæðisflokks-
Framhald á 18. siöu
SUÐURLAND
Garðar Sigurðsson:
Viðreisnar-
tónn í krötum
Kosningabaráttan hef-
ur gengið nokkuð vel, að
mati okkar Alþýðubanda-
lagsmanna, sagði Garðar
Sigurðsson þegar Þjóð-
viljinn náði tali af honum
í Vestmannaeyjum i gær.
Þetta er nú nokkuð ihaldsamt
kjördæmi og oft hafa Sjálf-
stæðisflokks- og Framsóknar-
menn haft 5 af 6 þingmönnum,
og stundum alla, en nú finnur
maður að unga fólkið sérstak-
lega bæði i sveitum og þorpum
kemur iauknum mæli til liðs við
Alþýðubandalagið. Við erum
þvi hóflega bjartsýnir á úrslitin
hér, sagði Garðar.
Hörðustu talsmenn rikis-
stjórnarinnar hafa verið þessir
tveir Framsóknarmenn og hafa
þeir jafnvel varið kaupránið
meö þvi að það hafi verið vörn
gegn verðbólgunni! Sjálfstæðís-
flokksmenn eru ekki fyrirferðar
AUSTURLAND
Helgi Seljan:
Þurfum að
herða róðurinn
Hér hafa veriö haldnir
14 sameiginlegir fram-
boösfundir um allt kjör-
dæmi og nú erum við með
7 kosningafundi G-listans
í fullum gangi, sagöi
Helgi Seljan á Djúpavogi
í gær.
Staðan er ákaflega óljós.
Framsókn hefur hér ákaflega
fast fylgi og heldur þvi ákaflega
vel. Þeir hafa i sinum áróðri
lagt áherslu á að ef Halldór
verði felldur væri Austfirðingar
að missa 1 af 6 mönnum kjör-
dæmisins af þingi. Hins vegar
hefur nokkuð skort á að menn
geri sér grein fyrir þvi að upp-
bótarsætið mitt geti flogið, sér-
staklega með breyttu fylgi
flokksins um allt land.
Annars er þetta að breytast
töluvert núna siðustu dagana,
og um úrslit vil ég helst engú
spá.
Viö höfum talið að Alþýðu-
flokkurinn ætti hér um 400 at-
kvæði, og e.t.v. nær hann 500
með óánægjuatkvæðum frá
Sjálfstæðisflokknum og' Fram-
sókn. Bjarni Guðna talar ein-
göngu eins og hann vildi vinstri
stjórn, en það hefur vakið at-
hygli að hann hefur hvorki blak-
að hendi gegn erlendum her né
erlendri stóriðju.
Hann leggur helst áherslu á
Helgi Seljan
sóðaskap og spillingu I þjóðfé -
laginu, vitnar til nýs og endur-
nýjaðs flokks sem sé i sókn, og
þvi hljóti hann að bæta töluvert
viö sig.
Um Samtökin vitum við ekki
neitt, en Sjálfstæðisflokksmenn
eru greiniiega hræddir við að
þeirra atkvæði fari yfir til Hall-
dórs og leiðari Morgunblaðsins i
morgun er i þeim dúr.
Ég hef þá trú miðað við undir-
tektir að við höldum fyllilega
okkar prósentu hér og vel það.
Baráttan hér stendur milli okk-
ar og Framsóknarmanna, og
þar er mikil sóknarhugur i
mönnum. Ég er jafnvel hræddur
um að menn séu of bjartsýnir,
og tel að nú þurfi aö herða róð-
urinn slðustu dagana fyrir kosn-
ingarnar.
—AI.
Garðar Sigurösson
miklir, enda er mikil óánægja
meðalþeirra vegna listans, sem
boðinn er fram. Alþýðuflokks-
menn ræða mest um kjarasátt-
málann sinn, sem flestir vita nú
Framhald á 18. siðu