Þjóðviljinn - 23.06.1978, Síða 21
Föstudagur 23. júnl 1978 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 21
útvarp
Örtröð á
Kvöld-
vaktinni
Haukur Morthens.
Sigmar B. Hauksson
Gleymdur flokkur kynntur
„Það má segja að
það verði örtröð á vakt-
inni i kvöld”, sagði Sig-
mar B. Hauksson, sem
stendur Kvöldvaktina i
útvarpinu kl. 22.50-
23.50.
„Ég mun ræöa viö fastagest
þáttarins Arna Björnsson, þjóö-
háttafræöing, um Jónsmessuna,
sem er i dag, en i siöasta þætti
talaöihann um Kólumbramessu
sem var þann dag. Þá mun
Haukur Morthens kikja inn á
vaktina og spjalla um bransann.
Aösent efni er nokkuö, m.a.
mun 12 ára Reykjavikurmær
syngja og spila á gitar.” sagöi
Sigmar aö þetta væri góö upp-
taka, sem barst a' snældu, en
aftur á móti heföi borist efni ut-
an af landi sem væri á mörkum
t;r ungverskri kvikmynd, Ljósmyndun (Fotografia), sem sýnd
veröur I sjónvarpi kl. 21.55 I kvöld. 1 aöalhlutverkum eru Istvan Ig-
lódi og Mark Zala.
þess að hægt væri aö senda þaö
út vegna lélegra tóngæöa.
Siðan mun Sigmar freista
gæfunnar meö þvi aö spila á
Rauöakrosskassa. Hyggst hann
varpa inn 10x10 krónum og
kanna svo gróðann eöa tapiö. 1
framhaldi af þvi ræðir hann viö
Rauöakrossmenn um þessa
fjáröflunarleiö og fleiri, sem
þeir eru meö i gangi, svo sem
kosningagetraunina.
Þá verður stjórnmálafiokkur
kynntur, en flokkur þessi
gleymdist i hinni almennu
flokkakynningu og eru þvi siö-
ustu forvöö aö kynnsst honum.
Sigmar ætlar aö sýna flokknum
þá lipurö aö skjóta kynningunni
inn á vaktinni. Þetta er flokkur
óánægöra prófkjörsmanna og
hefur listabókstafinn X.
Sigmar ræöir lika viö Erling
Ólafsson náttúrufræöing og
varpar fram spurningunni: Af
hverju stela menn fálkum?
Aö lokum sagöi Sigmar aö þau
Asta R. hvettu fólk eindregið til
aö senda inn efni, en heimils-
fang þáttarins er:
Kvöldvaktin,
Rikisútvarpinu, Skúlagötu 4
101 Reykjavík.
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.35 „Ugla sat á kvisti”.
Savannatrióið flytur vinsæl
lög frá árunum 1964-1970, og
þeir félagarnir Björn
Björnsson, Tróels Bentssen
og Þórir Baldursson rifja
upp atburði frá söngferli
sinum. Umsjónarmaður
Jónas R. Jónasson. Áöur á
dagskrá 27. april 1974.
21.25 Landánfriðar (L)Þessa
kvikmynd tóku breskir
sjónvarpsmenn skömmu
eftir innrás Israelsmanna i
Suður-Libanon nýlega.
Rakin eru áhrif aðgerðanna
og rætt viö flóttafólk, sem
orðiö hefur aö flýja heimili
si'n. Einnig errætt viö Yass-
er Arafat, foringja frelsis-
hreyfingar Palestinuaraba,
og Ezer Weizmann, her-
málaráöherra tsraels, Þýö-
andi og þulur: Ellert Sigur-
björnsson.
21.50 Ljósmyndun (Foto-'
grafia) Ungversk kvik-
mynd. Aöalhlutverk Istvan
Iglódi og Mark Zala. Tveir
ljósmyndarar ferðast um
landiö og taka myndir af
fólki. Flestir sitja fyrir hjá
þeim af mestu ánægju i von
um, aö myndirnar veröi
fallegri en fyrirmyndirnar.
Þýöandi: Jón Gunnarsson.
23.05 Dagskrárlok.
útvarp
7.00 Veöurfregnir. Fréttir.
7.10 Létt lög og morgunrabb.
(7.20 Morgunleikfimi).
7.55 Morgunbæn
8.00 Fréttir. 8.10 Dagskrá.
8.15 Veöurfr. Forustugr.
dagbl. (útdr).
8.35 Af ýmsu tagi: Tónleikar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
Þórunn Magnea Magnús-
dóttir heldur áfram lestri
sögunnar „Þegar pabbi var
litill” eftir Alexander Rask-
in (11).
9.20 Morgunleikfimi. 9.30
Tilkynningar. Tónleikar.
10.10 Fréttir. 10.10 Veöur-
fregnir.
10.25 Ég man það enn: Skeggi
Asbjarnarson sér um þátt-
inn.
11.00 Morguntónleikar: Juli-
an Bream leikur Gitar-
sónötu i A-dúr eftir Pagan-
ini / Gervase de Peyer og
Erik Parkin leika Fantasiu-
sónötu fyrir klarinettu og
pianó eftir Ireland / David
Rubinstein leikur Pianó-
sónötu i F-dúr op. 12 eftir
Sibelius.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veöurfregnir. Fréttir.
Tilkynningar. Við vinnuna:
Tónleikar.
15.00 Miðdegissagan:
„Angelfna” eftir Vicki
Baum Málmfrlöur Sig-
uröardóttir les þýöingu sina
(9).
15.30 Miödegistónleikar: Pet-
er Pears syngur lög eftir
bresk 20. aldar tónskáld:
Benjamin Britten leikur á
pianó / Grant Johannessen
leikur á pianó Tilbrigði,
millispil og lokaþátt eftir
Paul Dukas um stef eftir
Jean-Philippe Rameau.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veöurfregnir). Popp.
17.20 Hvaö er að tarna?Guö-
rún Guölaugsdóttir stjórnar
þætti fyrir börn um náttúr-
una og umhverfið: IV:
Blómin.
17.40 Barnalög.
17.50 Verömerkingar: Endur-
tekin þáttur frá siöasta
þriöjudagsmorgni.
18.05 Tónleikar. Tilkynningar
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Hin vonlausa aðstaða
Dr. Gunnlaugur Þóröarson
flytur erindi um jafnréttis-
mál.
20.00 Tónlist eftir Chopin
Alexis Weissenberg pianó-
leikari og hljómsveit Tón-
listarháskólans i Paris leika
Fantasíu um pólsk stef op.
13 og „Krakowiak”, kon-
sertrondó op. 14. Stjórn-
andi: Stanislaw
Skrovaczewski.
20.30 Andvaka Þriöji þáttur
um nýjan skáldskap og út-
gáfuhætti. Umsjónarmaö-
ur: Clafur Jónsson.
21.10 Atriði úr óperunni
„Hans og Grétu” eftir Eng-
elbert Humperdinck Anne-
liese Rothenberger, Irm-
gard Seefried, Grace Hoff-
mann, Elisabeth Höngen,
Liselotte Maikl og Walter
Berry syngja ásamt
drengjakórnum i Vin. Fil-
harmóniusveit Vinarbborg-
arleikur. Stjórnandi: André
Cluytens.
22.05 Kvöidsagan: „Dauöi
maðurinn” eftir Hans
Scherfig Öttar Einarsson
lýkur lestri sögunnar i þýö-
ingu sinni (6).
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
22.50 Kvöldvaktin Umsjónar-
maður: Sigmar B. Hauks-
son.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Leiðrétting
í blaðinu i gær féll niður svar
Jóns Hannessonar viö spurning-
unni: Hvaö þarf aö gerast i al-
þingiskosningunum meö tilliti til
afkomu launafólks og stööu
verkalýöshreyfingarinnar?
Jón svaraði: Alþýöubandalagiö
þarf aö vinna meirihluta á Al-
þingi.
Þingmannasyrpa
Framhald af 7. siöu
Árnasonar. Afnumin veröi friö-
indi er lúta að innflutningi bif-
reiöa og rekstri þeirra, svo og
önnur friðindi er viðgengist hafa,
þar á meðal til ráöherra.
Innlend lyf
njóti forgangs
1 tiö vinstri stjórnarinnar voru
samin og lögö fram viðamikil
frumvorp um lyfjaframleiöslu og
-sölu, en hægri stjórnin stakk
meginefni þeirra undir stól. Til
smávægilegra úrbóta á rikjandi
ástandi hafa þeir Helgi Seljan,
Stefán Jónsson, Ragnar Arnalds
og Geir Gunnarsson, lagt fram
tillögu um aö innlend lyfjafram-
leiösla njóti aö ööru jöfnu for-
gangs framyfir innflutt lyf, og
veröi ætlast til aö læknar vái
fremur á hin innlendu ef þau eru
jafngóö þeim útlendu. Sannaö
þykir aö innlend lyf séu aö jafnaöi
miklu ódýrari en þau sem inn-
flytjendur kaupa af lyfjahringum
auövaldsins.
Garðar
Framhald af 12. slöu
hvaö þýöir. I þeim er mikill viö-
reisnartónn, þeir vitna óhikað
til gömlu viöreisnarstjórnar-
innar og augljóst aö þeir eru
ekkert óhressir með hugmynd-
ina um slika. Þá leggja þeir
mikla áherslu á aö þeir muni
ekki „bila” i sambandi viö
„varnir landsins”, og þaö segir
lika sina sögu.
Annars hefur ekki fariö mikið
fyrir Alþýðuflokknum i þessari
kosningabaráttu hér á Suður-
landi. Viö höfum t.d. ekki orðiö
varir við þá miklu sveiflu sem
til þeirra á aö liggja eftir þvi
sem sagt er, og höfum hvergi
fundiö hana nema i Dagblaðinu.
Á fundum hafa þeir sérstaklega
átt i erfiðleikum meö aö tala við
fólk úr landbúnaöi sem aö sjálf-
sögðu tekur litiö mark á mál-
flutningi þeirra á þvi sviði.
—At
Stefán
Framhald af 12. siöu
manna, með yfirlýsingum um
aö Alþýöuflokkurinn vilji vera
áfram I NATO og ekki láta her-
inn fara. Þeir biðla þannig til
þess fylgis Sjálfstæöisflokksins
sem er alveg sama hvaö verður
bara ef þeir fá aö hafa herinn
áfram.
Annars er skinandi hljóð i öllu
okkar fólki hér hvar sem er i
kjördæminu. Ég vil þó engu spá
um úrslitin og hygg aö þaö verði
ekkert að frétta héöan fyrr en á
mánudagsmorgun. Ég vil halda
fram nýjum málshætti „á göml-
um grunni”, sem ég sauö saman
og hann er: Bústu viö þvi góöa,
þú veröur alltaf fyrir vonbrigð-
um hvort sem er.
—Aí
UTBOÐ
Framkvæmdanefnd um byggingu leigu-
og söluibúða Bolungarvik, óskar eftir til-
boðum i byggingu fjögurra raðhúsa, sam-
tals 452 fermetrar, 1580 fermetrar, ásamt
bilgeymslum, samtals 96 fermetrar, 308
rúmmetrar.
Húsin eiga að risa við Völusteinsstræti,
Bolungarvik og eru boðin út sem ein heild.
Skila á húsunum fullfrágengnum eigi sið-
ar en 31. júli 1979.
útboðsgögn verða til afhendingar á bæj-
arskrifstofum Bolungarvikur og hjá
tæknideild Húsnæðismálastofnunar rikis-
ins gegn kr. 20.000,- skilatryggingu.
Tilboðum á að skila til bæjarskrifstofu
Bolungarvikur eigi siðar en föstudaginn
14. júli 1978 kl. 14.00 og verða þau opnuð
þar, að viðstöddum bjóðendum.
F.h. framkvæmdanefndar um
byggingu leigu- og söluibúða,
Bolungarvik.
Guðmundur Kristjánsson, bæjarstjóri.