Þjóðviljinn - 05.07.1978, Qupperneq 2
2 SÍÐA — ÞJ6ÐVILJINN Miftvikudagur 5. júli 1978
Staðið á teignum við handslátt.
Aflinn dreginn aö boröi
Játvarður Jökull Júlíusson skrifar:
Rætíst úr hjá
Rétt upp úr miðnætti að
kvöldi 8. júní kom ómar
Haraldsson, yfirmaður
Þörungavinnslunnar, í
heimsókn á borvaktina.
Borinn hafi fyrst dýpkað
aðra gömlu borholuna.
Aukning hafði ekki orðið
mikil.en vatnið hitnað. Þá
var boruð ný hola, 1000 m.
djúp. Aðeins 6 sek/ltr.
ollu vonbrigðum. Ætlaði
ekki að fást meira heitt
vatn? Enn var eftir dálit-
ill reytingur af peningum
og það ráðtekið að dýpka
hina gömlu borholuna. Nú
var allt að komast „á sið-
asta snúning". Borinn
kæmist ekki nema nokkra
tugi metra í viðbót og
seinustu krónurnar að
svelgjast upp i borhitina.
Sæti nú allt við sama?
Yrði orkuþurrðin varan-
leg? Þá sæi ekki fyrir
endann á erfiðleikum
Þörungavinnslunnar í ná-
inni framtið.
En...þegar borinn var kom-
inn 934 m. niður þá sökk hann i
einu vetfangi og allir mælar
ruku á fleygiferð. Borinn hafði
hitt á bullandi vatnsæð. Á þessu
stórkostlega augnabliki sló bor-
maðurinn út höndum i fögnuði
og við það flaug reykjapipa Óm-
ars i háaloft og eldi rigndi á
vatnsflauminn. Nú lék lánið loks
við þessa aðþrengdu braut-
ryðjendastofnun, Þörunga-
vinnsluna á Reykhólum.
Að morgni 10. júni var nýja
lindin tengd við lögnina til sjáv-
ar. Nú var vatnið miklu heitara
en nokkru sinni og heitara en
gert hafði verið ráð fyrir: 114
stiga heitt inn i verksmiðjuna.
Og það rann og rann. Nú þyrfti
Borað eftir heitu vatni á Keykhólum.
Sláttuprammi að fyrirdrætti.
Þörungavinnslunni
Þangi lestað í Karlsey
I mörg horn ad líta
hjá Húseigendafélagi Reykjavíkur
ekki að skrúfa fyrir við og við.
Nú blöstu við full afköst i fyrsta
sinn, loksins.
Það var við þessi skilyrði,
sem fjórði aðalfundur Þörunga-
vinnslunnar var settur k. 15.00.
laugardaginn 10. júni. Þarna
skall hurð nærri hælum (og
ekki i fyrsta sinn). Annars hefði
verið sami sorti i álinn.
Vilhjálmur Lúðviksson,
stjórnarformaður, las nákvæma
og ýtarlega skýrslu stjórnar. 1
máli hans kom fram, að margt
hefði áunnist og horfði vel.
Þangöflunin gengur vel. Sex
öflunargengi eru tekin til starfa
og önnur eru að verða tilbúin.
Vönu mennirnir ná ágætum
árangri, bæði með sláttu-
prömmum einum og eins með
samhæfðri vél- og handöflun og
ná háum tekjum. Vilhjálmur
lýsti hversu orðið hefði að læra
allt frá grunni og þroskaleið
kunnáttunnar væri seinfarin og
löng. Nú væru að koma fram
kunnáttumenn, i þróun væri ný
grein islenskrar verkmenningar
og náttúrufræði: þangmenning.
Hann lýsti hve ómetanlegt
hefði verið frumkvæði Reynis
Bergsveinssonar i Fremri-
Gufudal, áræði, útsjónarsemi og
þrautseigja. Reynir er nú læri-
faðir nýrra gengja.
Vel horfir með endursprettu
þangfjörunnar. Nú er aflað á
þrifornri slægju með góöum á-
rangri, þ.e. þar sem slegið var
1975.
Varan likar vel. Þangmjöl frá
Karlsey tekur fram öðru vegna
þurrkunaraöferðarinnar. Sölu-
samningur gildir enn i mörg ár.
Þá er búið að ná valdi á mikil-
virkum tækjum til þaratöku.
M.s. Karlsey aflaði þarna i
fyrrahaust og nærri fast að jól-
um. t svipinn er markaður ekki
vel opinn fyrir þaramjöl og
mun þurfa að leggja vinnu i að
komast á góðan markað fyrir
þaraafurðir.
Raunin er sama varðandi
fiskþurrkun. t vetur tókst ekki
að selja skreið (loðnu) fyrir-
fram, svo ekki varð af þeirri
vinnslu.
Ahrifamiklar endurbætur
voru unnar i vetur á þurrkara-
kerfi verksmiðjunnar. Næst nú
betri hitanýting en áður.
Að endingu verður aðeins
drepið á sérstakan kafla i ræðu
stjórnarformanns Þörunga-
vinnslunnar, Vilhjálms Lúð-
vikssonar. Hann gat þess hvilikt
ofböðslegt erfiði væri að brjót-
ast áfram i „kerfinu”. Jafnvel
sjálfir handhafar þess fengju
sig fullkeypta við það. Þarna
var hann að geta um margra,
margra mánaða barattu fyrir
boruninni eftir heita vatninu, —
Framhald á 14. siðu
Föstudaginn 9. jiíni sl. var aðal-
fundur Húseigendafélags
Reykjavikur haldinn i húsakynn-
um félagsins að Bergstaðastræti
I skýrslu stjórnar kom m.a.
fram, að hátt á þriðja hundraö
aðilar fengu á siöasta ári lög-
fræðilega fyrirgreiðslu hjá fram-
kvæmdastjóra félagsins. Mest
var leitað til félagsinsi sambandi
við ýmiss konar ágreining ibúð-
areigenda i f jölbýlishúsum, svo
sem um skiptingu kostnaðar við
sameiginlegar framkvæmdir,
hvernig haga skuli ákvarðana-
töku, hvaða reglur gildi um
umgengni og um Urræði gagnvart
ónæöisseggjum í fjölbýli. Allmik-
ið var spurt um rétt og heimildir
kaupanda gallaðrar fasteignar
gagnvart seljanda og hvaða hlutir
eigi að fylgja i þeim kaupum og
sölum. Talsvert var leitað til fé-
lagsins með ágreiningsefni, sem
risa vilja i skiptum leigjenda og
húseigenda. Nokkur deilumál
húseigenda og ýmiss konar við-
gerða- og byggingaaöila koma til
kasta félagsins. Þá var allmikiö
um, að húsiegendur leituðu til fé-
lagsins i sambandi við viöskipti
sin við opinbera aðila, t.d. skipu-
lagsyfirvöld og fasteignamat
rikisins.
A fundinum var einhugur um,
að brýnasta mál félagsins væri,
að hefja öfluga söfnun nýrra fé-
laga, þvi aö með auknum félaga-
fjölda væri hægt að auka starf-
semi félagsins og gera hana
öflugri og árangursrikari.
A fundinum urðu all miklar
umræður um nýsamþykkt lög um
erfðafjárskatt. Yfirlýstur til-
gangur laganna var, að leiðrétta
erfðafjárskatt til lækkunar. En
vegna þeirrar margföldunar fast-
eignamats, sem i mörgum tilvik-
um átti sér staö um siðustu ára-
mót, mistókstþessi viðleitni gjör-
samlega. t staö lækkunar er hér
um að ræða eina hrikalegustu
skattahækkun, sem um getur.
Fundurinn samþykkti, að fela
stjórn félagsins, að kanna mál
þetta ofan i kjölinn og knýja á
stjórnvöld um leiðréttingu þess-
ara mistaka.
Formaður Húseigendafélags
Reykjavikur var kjörinn Páll S.
Pálsson, hæstaréttarlögmaður.
Aðrir i stjórn eru: Alfreð
Guðmundsson, forstööumaður,
Guðmundur R. Karlsson, skrif-
stofustjóri, Lárus Halldórsson,
endurskoðandi, og Páll Sigurös-
son, dósent. FVamkvæmdastjóri
félagsins er Siguröur H. Guðjóns-
son.
—mgh