Þjóðviljinn - 05.07.1978, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 05.07.1978, Blaðsíða 9
8 StÐA — ÞJÓÐVILJÍNN Miövikudagur 5. júli 1978 Ólafur Jóhannesson og Gylfi t>. Gislason. Mennirnir á bak viö „Hræöslubandalagiö”. Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur hafa setið í 11 af 18 ríkis- stjórnum síðan 1927 Yfirlit yfir ríkisstjórnir á íslandi 1917-1978 ,3rædslu- bandalagid” t kosningunum 1956 mynduöu Framsóknarflokkurinn og Al- þýöuflokkurinn kosningabanda- lag. ..Hræðslubandalagið”, en með þvi ætluðu þeir að ná meiri- hluta á þingi. Flokkunum tókst þetta ekki. en þeir fengu þó sam- tals 25 þingmenn af 52. Að kosningunum loknum var mynduð Vinstri stjórnin fyrri, en það var samsteypustjórn Alþýðu- flokks. Alþýðubandalags og Framsóknarflokks. Þessi rikis- stjórn var undir forsæti Her- manns Jónassonar og sat hún til ársloka 1958 en þá sagöi hún af sér vegna ágreinings um leiðir til lausnar á efnahagsvandanum, en að leysa hann var meginviðfangs- efni rikisstjórnarinnar. Rikis- stjórnin færöi auk þess landhelg- ina úr 4 milum i 12. Rikisstjórnin sem þá tók við var minnihlutastjórn Alþýöu- flokksins undir forsæti Emils Jónssonar, en rikisstjórnin sat meö hlutleysisstuðningi Sjálf- stæðisflokksins. Minnihluta- stjórnin sat að völdum i eitt ár og var meginviðfangsefni hennar að breyta kjördæmaskipaninni og var tekið upp það kerfi sem enn er við lýði. „Viðreisnar- stjórnin” Haustið 1959 var svo Viðreisn- arstjórnin mynduð, samsteypu- stjórn Alþýðuflokks og Sjálfstæö- isflokks. Forsætisráðherra fyrstu 4 árin var ólafur Thors, en haust- ið 1963 varð Bjarni Benediktsson forsætisráðherra. 1970 tók svo Jó- hann Hafstein við sem forsætis- ráðherra, en ári siðar missti stjórnin þingmeirihluta sinn i Al- þingiskosningunum 1971. Að loknum kosningum 1971 var mynduð vinstri stjórnin siðari. Hún var samsteypustjórn Fram- sóknarflokks. Alþýðubandalags SÍÐARI GREIN og Samtaka frjálslyndra og vinstrimanna. Forsætisráðherra var ólafur Jóhannesson. Höfuö- viðfangsefni vinstri stjórnarinnar var útfærsla landhelginnar i 50 milur og uppbygging atvinnulifs i landinu eftir ár atvinnuleysis og landflótta. Rikisstjórnin sat við völd i 3 ár, en stjórnin rauf þing vorið 1974 eftir að ekki náðist Skipting ráðuneyta í ríkisstjórnum 1944 — 1978 For. Ut.r. Fjár Mennt Dóms Fél. Heil. Land. Sjáv. Iön. Samg. Viösk. 1. Alþ.—Sós. Sjálfstfl. 1944 — 1947 S s S Sós A A A S Sós A/Sós A/Sós S 2. Alþ.—Frams. Sjalfst.fi. 1947 — 1949 A s S F S A F/A F S F/A F/A S/A 3. Sjálfst.f 1. 1949 — 1950 S s s s s S S S s S S S 4. Frams.—Sj.fl. 1950— 1953 F s F S s F F F s F/S S 5. Sömu flokkar 1953 — 1956 S F F S s F S F s F/S F/S S 6. Alþb.—Alþf 1. Frams.f 1. 1956 — 1958 F A F A F AB AB /\ F AB A F AB 7. Alþfl. 1958 — 1959 A A A A A A A A A A A A 8. Alþfl— Sjfl. 1959 — 1971 S A S A S A A S A S S A 9. Alþb.—Framsfl. SFV 1971 — 1974 F F F SFV F SFV AB F AB AB SFV AB 10. Frams.fl.—Sjfl. 1974 — 1978 S F S F F S S F S S F F Skýringar viö töflu: For. = forsætisráöherra Ut.r. = utanrfksiráðuneyti Fjár. = fjármálaráöuneyti Mennt. = menntamálaráöuneyti Dóms. = dómsmálaráöuneyti Fél. = félagsmálaráöuneyti Heil. = heilbrigöismálaráöuney ti Land. = landbúnaöarráöuneyti Sjáv. = sjávarútvegsráöuneyti Iön. = iönaöarráöuneyti Samg. = samgönguráðuneyti Viösk. = viöskiptaráöuneyti. F = Framsóknarflokkur, S = Sjálfstæöisflokkur, A = Alþýöuf lokkur, AB = Alþýöubandalag, Sós. = Sósialistaflokkur, SFV = Samtök frjálslyndra og vinstri manna. Heimild fyrir töflu: Olafur Ragnar Grfmsson: The Icelandic multilevel coalition system. Ctg. af Félagsvfsindadeild, fjölrit. ar voru flokkar verkalýðshreyf- ingarinnar sem börðust fyrir end- urbótum og breytingum, verka- lýðshreyfingunni i hag. Eftir siðari heimsstyrjöldina hafa sjálfstæðismálin skipað mik- inn sess i stjórnmálabaráttunnt Stjórnmálaflokkarnir hafa að- greinst i afstöðunni tii dvalar bandarisks herliðs i landinu, veru íslands i Nato, útfærslu landhelg- innar, erlends fjármagns og stór- iðju og markaösbandalags. Af öðrum átakamálum sem urðu til á þessu timabili má nefna upp- •hyggingu iðnaðar og atvinnullfs og viðhald jafnvægis i byggð landsins. 11 af 18 ríkisstjórnum Samantektin hér aö framan sýnir einnig að þær rikisstjórnir sem setiö hafa út heilt kjörtimabil eru sárafáar miðað viö hinar. Að lokum er hér samantekt yfir þátttöku stjórnmálaflokka i ríkis- stjórnum frá árinu 1927. Rikisstjórnir sem setiö hafa siðan 1927 eru 18 aö tölu. Alþýöu- bandalagið og Sósialistaflokkur- inn hafa setiö i þremur rikis- stjórnum. Alþýðuflokkurinn hef- ur tekið þátt i 8, Framsóknar- flokkurinn 11, Sjálfstæðisflokkur- inn i 11 og Samtök frjálslyndra og vinstri manna I einni. (Þig tók saman.) Orsakir afsagnar rikisstjórna 1944 — 1978 Rikisstjórnir Efnahags- mál Herstöðva- málið Fallí kosningum Sjálfstfl. Alþýðufl. Og sósialistaf 1.. 1944 — 1947 X Sjálfstfl. Fram- sókn og Alþýðufl. 1947— 1949 (X) (X) Framsóknarfl. og Sjálfstf 1. 1950 — 1953 X Framsóknarfl. og Sjálf stæöísf 1 1953— 1956 • X Framsókn Alþýðu- bandal.og Alþýðufl. 1956 — 1958 X Sjálfstæðisf 1. og Alþýðuf lokkur. 1959 —1971 X Framsókn Alþýðu- bandal.og Samtökin. 1971 — 1974 (X) (X) Sjálfstæðisflokkur og Framsókn 1974 — 1978 X Heimild fyrir töflu: ólafur Ragnar Grimsson The Icelandic multilevel coalition system. Útg. af Félagsvisindadeild, fjölrit. samstaða um tillögur til lausnar á efnahagsvandanum. Gengið var til kosninga og að lokinni tæplega tveggja mánaða stjórnarkreppu var samsteypu- stjórn Sjálfstæðisflokks og Fram- sóknarflokks mynduð, stjórnin sem felld var I alþingiskosning- unum 25. júni s.l. Þessi rikisstjórn gerði það að meginverkefni sinu að leita að lausn á efnahagsvand- anum og færa landhelgina út i 200 milur. Þessi samantekt sýnir að höf- uðviðfangsefni og þarmeð deilu- mál stjórnmálaflokkanna á tima- bilinu 1917-1978 hafa verið efna- hagsmál þótt aðrir málaflokkar hafi einnig verið mikilvægir. Átakaþættir stjórnmálanna A timabilinu 1917 fram aö siðari heimsstyrjöld er núverandi flokkakerfi að festast i sessi og mótast. Stjórnmálabaráttan ein- kenndist af ágreiningi stjórn- málaflokkanna um stjórnskipu- lagið sjálft, þ.e. hvers konar hag- kerfi ætti aö rikja og hver konar stjórnarfyrirkomulag þjóðin ætti að búa við. A þessu timabili eru stéttaátök einnig höröust eftir að verkalýðshreyfingunni óx fiskur um hrygg og tóku stjórnmála- flokkarnir mið af þvi. Annars vegar voru stjórnmálaöfl sem viidu viðhalda hinu gamla rót- gróna þjóðskipulagi, en hins veg- I Vinstri stjórn I. Rikisstjórn Hermanns Jónassonar. Samsteypustjórn Alþýöubandalags, Alþýöuflokks og Framsóknarflokks 1956 — 1958. Viöreisnarstjórnin, rlkisstjórn Bjarna Benediktssonar. Samsteypustjórn Alþýöuflokks og Sjálfstæöisflokks 1960 — 1971. Vinstri stjórn II. Rlkisstjórn ólafs Jóhannessonar. Samsteypustjórn Alþýöubandalags, Framsóknarflokks og Samtaka frjálslyndra og vinstri manna, 1971 — 1974. Rikisstjórn Geirs Hallgrlmssonar, samsteypustjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæöis- flokks, 1974 — 1978. i tilefni af úrslitum Alþingiskosninganna s.l. sunnudag, ákvað Þjóðvilj- inn að hafa samband við dr. Svan Kristjánsson lekt- or í stjórnmálaf ræðum við Háskóla íslands og fræðast litillega af honum hvernig megi túlka úrslitin með til- liti tii fyrri kosninga og fylgi stjórnmálaflokkanna i kosningum undanfarna áratugi. Svanur hefur rannsakað fyIgi íslenskra stjórnmálaflokka og skrif- aði doktorsritgerð um það efni við bandarískan háskóla. — Hvaða upplýsingar gefa kosningarnar um kjósendur, Svanur? — 1 reynd gefa þær mjög litlar upplýsingar og ekki er hægt að túlka þær nema með samanburöi við fyrri kosningar. Hér hafa eng- ar skoöanakannanir veriö gerðar Miövikudagur 5. júil 1978 WODVILJINN — StÐA 9 mjög miklar breytingar hafa átt sér stað, og það er vert athygli að allar eru þær á þessum áratug, þ.e. 3 siðustu kosningær. Fyrstu kosningarnar eru þegar Samtökin komu fram á sjónarsviöiö meö sinn sigur árið 1971, fengu þá 8.9% atkvæða. Kosningasigur Sjálf- stæöisflokksins árið 1974 er mesta fylgisaukning þess flokks siðan 1933. Strax i næstu kosningum þar á eftir, þ.e. núna siðast er svo mesti kosningaósigur flokksins. Það hafa þvi átt sér stað meiri breytingar á fylgi stjórnmála- flokkanna.núna á 8. áratugnum, en áður i sögu lýðveldisins. — Hvað er sameiginlegt öllum þessum þrennum kosningum? — Sameiginlegt þeim öllum er að þeir flokkar sem vinna stærstu sigrana eru stjórnarandstöðu- flokkar. Það sem er einnig sam- eiginlegt þeim er að breytingarn- ar snerta meir aila aðra flokka en Alþýðubandalagið. Alþýðubanda- lagið vinnur smátt og smátt á, en það gerast engar snöggar breyt- ingar þar, eöa stór stökk. Stjórn- arþátttaka Alþýðubandalagsins Svanur Kristjánsson. Meiri áhætta fyrir flokkana ad taka þátt í ríkisstjómum sem gefa upplýsingar um hegðun islenskra kjósenda, en þær skoð- anakannanir sem Dagblaðið og Visir geröu sýna að hægt er aö framkvæma slikar kannanir. Enginn vafi er á þvi að þessar kosningar eru mjög sögulegar, en erfitt er aö meta hvaö þær reyn- ast mikilvægar. Óvist um varanleikann — Valda þessar kosningar verulegum breytingum á flokka- kerfinu? — Ef þessar breytingar eru varanlegar þá er komiö til sög- unnar á nýjan leik fjögurra flokka kerfi, eins og gamla flokkakerfið var. Þorri atkvæðanna skiptistá 4 flokka og þaö er athyglisvert aö núna er munurinn á flokkunum miklu minni en áöur hefur þekkst. I kosningunum 1974 var Alþýöu- i fiokkurinn með 1/4 af fylgi Sjálf- stæðisflokksins. Núna munar ekki nema helmingi á stærsta flokkn- um, Sjálfstæöisflokknum , og minnsta flokknum, Framsóknar- flokknum. Stærðarhlutföllin i flokkakerfinu eru núna allt önnur. Annað sem vekur athygli nú er að verkalýðsflokkarnir, Alþýðu- flokkur og Alþýðubandalag,hafa aldrei haft eins mikið fylgi. 1946 höföu þeir mest fylgi, eða 37,3% samanlagt og voru svipaðir aö stærð þá, en nú hafa þeir 44.9%. Hingað til hafa Sjálfstæðisflokk- urinn og Framsóknarflokkurinn haft 2/3 hluta fylgisins, en eftir siðustu kosningar hafa þeir minna en 50%, eöa 49,6%. Það eru þvi timamót aö verkalýösflokk- arnir hafa aldrei veriö jafn sterk- ir. Ég vil hins vegar taka þaö fram, að það er ekkert hægt að segja til um það hvort þessar breytingar eru varanlegar. Breytingarnar sem uröu á sunnudaginn eru nánast ótrúleg- ar. Framsóknarflokkurinn tapar nærri þvi 50% af fylgi sínu i Reykjavik og Reykjanesi, sem er allt fylgið sem flokkurinn byggði upp á s.l. 20 árum. Framsóknar- flokkurinn er nú stærstur i aðeins 3 kjördæmum landsins, en hefur undanfarnar kosningar veriö stærstur i 4-5 kjördæmum. Það er einnig mjög athyglisvert að Sjálf- stæðisflokkurinn tapar 1/3 hluta fylgis sins i Reykjaneskjördæmi og 1/5 af fylginu i Reykjavik. Miklar breytingar i þrem siðustu kosningum — Hvernig er hægt að meta úr- slitin I tengslum við fyrri kosn- ingar? — Kosningarnar núna um dag- inn eru 3ju kosningarnar þar sem Vidtal við dr. Svan Kristjáns- son lektor um úrslit alþingis- kosninganna viröist einnig hafa minni áhrif á fylgi flokksins en stjórnarþátt- taka annarra flokka. Það sýnir aö fylgi Alþýöubandalagsins er mun stöðugra, sennilega vegna þess að fólkið sem kýs Aiþýðubandalagið er hugmyndafræöilega samhent- ara en kjósendur annarra flokka. Einnig má benda á það sem einkenni kosninganna aö sigur Alþýðuflokksins er mun viðtækari en áöur, þ.e. hann á sér stað i fleiri kjördæmum. Fylgisaukning Alþýðuflokksins er einnig þrisvar sinnum meiri en fylgisaukning Alþýðubandalagsins. Aukin áhrif kjósenda — Hverjar telur þú vera helstu ástæður breytinganna I þessum þrennum siðustu kosningum? — Kosningasigur Samtaka frjálslyndra og vinstri manna ár- ið 1971 og Alþýðuflokksins 1978 sýna að flokksblööin og fast flokksskipulag er ekki eins mikil- væg forsenda kosningasigurs og áður var. Hér áður fyrr var mun algengara að rikisstjórnir féllu vegna innbvrðis ágreinings. 1 þrennum siöustu kosningum hefur það hins vegar gerst að stjórnirn- ar hafa i reynd fallið i kosning- um. Þetta bendir til þess að áhrif kjósenda séu aö verða mun meiri en áöur. Það má þvi segja að kjósendur séu farnir aö hafa áhrif á það hvers konar rikisstjórnir eru ekki myndaðar. — Telurðu aö tilkoma Dag- blaösins hafi haft áhrif á þessa þróun? — Að minu viti er það ótrúlegt, þvi ekki var Dagblaðið komið til sögunnar 1971 og 1974. Þá má benda á að t.d. varð kosninga- sigur Alþýðubandalagsins mestur á Austurlandi, þar sem flokkur- inn bætti við sig um 10% atkvæða, en þar er Dagblaöið ekki mjög út- breitt. Það er ekkert beint sam- band á milli útbreiðslu blaðsins og breytinga á fylgi flokkanna. Kjósendur upplýstari — Aðrar skýringar má nefna á þessum breytingum. Ég held aö kjósendur séu upplýstari en áöur. Þeir láta nú siöur fjölmiðlana og flokkana túlka fyrir sig hvaö er að gerast og hverjir bera ábyrgðina. Eg held að fólk sé farið að gera flokkana ábyrga fyrir stjórnar- farinu, það kýs frekar á móti ákveðnum flokkum heldur en að velja einhverja til forystu. Þessu fylgir auðvitað, að þaö er meiri áhætta fyrir flokkana aö taka þátt i rikisstjórn. — Mér finnst útskýring Guöbergs Bergssonar rithöfund- ar á þessu sama fyrirbæri einnig mjög skynsamleg. Hann virðist hafa mikinn skilning á löndum sinum, eins og oft er um menn sem dveljast langdvölum erlend- is. Stjórnmálafræðingar hafa heldur ekki neinn einkarétt á út- skýringum á niöurstöðum kosn- inga. Hvaö um það, Guðbergur segir að Islendingar hafi með auknum feröalögum sinum öðlast samanburö við önnur lönd. Þeir hafa öðlast vitneskju um lifskjör og stöðu efnahagsmála i öðrum löndum og bera þetta saman við ástandið heima fyrir. Hann segir að afleiðingin sé sú að tslendingar séu hættir að lita á verðbólguna sem eitthvert náttúrulögmál. Hugsunarháttur nýlendubúans sem Islendingar hafa tamið sér fer þverrandi, vegna þess að þeir eru mun upplýstari en áöur. óstöðugleikinn eykst — A grundvelli þessara brevt- inga sem átt hafa sér stað i þrenn- u,m slðustu kosningum, hverju viltu spá um framtiðina? — Kosningarnar snerust um efnahagsmál. Ég tel að meiri samsvörun hafi orðið milli stétta og flokka nú en áöur. Sjálfstæðis- flokkur og Framsóknarflokkur töpuöu miklu fylgi launafólks, sem fór yfir til Alþýðubandalags- ins og Alþýðuflokksins. Ef þaðer rétt aö kosið var um kjaramálin, þá var veriö að refsa flokkunum fyrir þátttöku i rikisstjórn. — Ég held að þessi óstööugleiki haldi áfram. t þessum þrennum kosningum var kosið um fleiri mál en aðeins efnahagsmál. T.d. var einnig kosið um herstöðva- málið árið 1974. Það er þvi ekki óliklegt að i næstu kosningum verði aftur kosið um þau mál. Það er ljóst að þvi fylgir nú mikil áhætta fyrir flokkana að taka þátt i rikisstj'órn, og ekki er óliklegt að kosið verði aftur innan skamms. Ostöðugleikinn stafar sennilegast af ástandi éfnahagsmálanna. Meðan Islendingar búa viö efnahagskerfi sem býður upp á miklar sveiflur og atvinnulifið verður eins einhæft og það er, þá má búast við áframhaldandi sveiflum á atkvæðamagni flokk- anna. Þaö verður hins vegar að koma i ljós hvort þetta leiðir til varanlegra breytinga á flokka- kerfinu. —Þig

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.