Þjóðviljinn - 05.07.1978, Blaðsíða 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miftvikudagur 5. júii 1978
ÞaO hefur liklega verið farið að
fara ónotahrollur um margan
Breiðabliksmanninn i gærkvöidi
þegar Fylkir kom I heimsókn á
Kópavogsvöli og lék gegn heima-
mönnum i 16-Iiða úrslitum bikar-
keppninnar. Fylkir tók forystuna
snemma i fyrri hálfleik og hélt
eins marks forystu þar til átta
minútur voru eftir að Breiðablik
jafnaði eftir látlausa sókn allan
siðari hálfleikinn. Sigurmarkið
kom svo fimm minútum fyrir
leikslok, og f fyrsta sinn gátu
Breiðabliksmenn fagnað sigri I
sumar á grasvellinum.
En Fylkismenn stóðu sig vel I
þessum leik og þá sérstaklega i
fyrri hálfleik. Baráttan var góð
og oftsinnis skall hurð nærri hæl-
um við Breiðabliksmarkið, enda
vörnin máttlitil að vanda. Eina
markið i fyrri hálfleik skoraði
Hörður Antonsson á 20. mínútu
eftir að Breiöabliksvörnin hafði
galopnast og ekki var vandkvæð-
um bundið að renna knettinum
framhjá Arna Dan markveröi.
í siðari hálfleik datt baráttan
hjá Fylki niður, en Blikar mættu
tviefldir til leiks og tóku leikinn i
sinar hendur. Hvorki gekk þó né
rak upp við mark andstæðingsins
þrátt fyrir nokkur góð tækifæri og
það var ekki fyrr en á 37. minútu
að Breiðablik náði að jafna.
Nýliðarnir i framlinunni,
Hákon Gunnarsson og Siguröur
Halldórsson voru þar að verki.
Hákon gaf skemmtilega fyrir
markiö og Sigurður afgreiddi
boltann viðstöðulaust með
þrumuskoti rétt undir þverslá.
Greinilegt var að leikmönnum
létti stórum. Markinu var nánast
fagnað einsog úrslitamarki i
Heimsmeistarakeppninni, og á-
fram var sótt af eldmóði!
Það var svo Heiöar Breiðfjörö
sem skoraði sigurmarkið á 40.
minútu. Þór Hreiðarsson gaf góð-
an bolta fyrir markið og Heiðar
skaut jarðarbolta framhjá Og-
mundi markverði.
Staðan hafði breyst i 2-1 fyrir
Breiðablik og urðu mörkin ekki
fleiri. 1 heildina verður þessi leik-
ur vart hátt skrifaöur knatt-
spyrnulega séð. Fylkismenn
sýndu lofsveröa baráttu og hefðu
allt eins getaö skorað fleiri mörk i
fyrrihálfleik, en Breiðablik sótti i
þeim siðari án þess að sýna þó
nokkuð sem kallast getur „knatt-
spyrnutaktar”, nema þegar
Hákon Gunnarsson hægri útherji
reif sig hvað eftir annað lausan,
brunaði upp að endamörkum og
gaf þaðan fyrir markið. Sannar-
lega hættulegur og fljótur leik-
maður.
Dómari var Valur Benedikts-
son og var hann óneitanlega mis-
tækur i ákvörðunum sinum,—gsp
Breiðablik slapp
með skrekkinn!
KA veitti IA
harða keppni
Leikur iA og KA i
bikarkeppninni var
heldur tilþrifalitill,þó fór
svo að heimamenn fóru
með sigur af hólmi en
KA fellur úr keppninni.
Fyrri hálfleikur var mjög þóf-
kenndur, en Skagamenn voru þó
ÍBV ekki í
vandræð-
um með
Þór
Vestmannaeyingar áttu ekki I
rniklum erfiðleikum á Akureyri I
gærkvöldi er þeir léku gegn Þór i
16—liða úrslitum bikarkeppninn-
ar. Lokatölur leiksins urðu 4—1
sigur eyjamanna, en I leikhléi var
staðan I—1 og höfðu Þórsarar þá
haft sig töluvert I frammi.
Heimamenn tóku raunar for-
ystuna strax á 2. mfnútu þegar
Sigtryggur komst i gott færi og
var ekki seinn að þakka fyrir sig
með góðu marki.
Karl Sveinsson jafnaöi siðan
1—1 á 20. minútu og var staöan
þannig f leikhléi, Þó höfðu
Þórsarar átt heldur meira i leikn-
um, en i siðari hálfleik var dæm-
inu snúið við og eyjamenn tóku
völdin.
Þaö var Sigurlás Þorleifsson
sem þá greip i taumana, og á
fyrstu fimm minútunum skoraöi
hann tvö mörk, sem færöu IBV
sannfærandi forystu. óskar Val-
týsson rak siðan smiðshöggiö á
verkið, skoraði á 35. minútu gull-
fallegt mark með þrumuskoti frá
vitateigi sem endaði fast uppi i
samskeytunum.
heldur meira með knöttinn og
munaði oft litlu að þeim tækist að
skora en það var KA sem tók for-
ustuna i leiknum með marki sem
Armann Sverrisson skoraði og
tókst heimamönnum ekki að
jafna i fyrri hálfleik.
1 seinni hálfleik fór markavél
þeirra Skagamanna i gang og
Pétur Pétursson jafnaði með
skalla. Annað mark Skagamanna
skoraöi Matthias Hallgrimsson
markaskor.irinn mikli.og er það
orðin hefö að hann skori I hverj-
um leik. Kristinn Björnsson bætti
siðan þriðja markinu við, en KA
átti siðasta orðið i leiknum með
marki sem Jóhann Jakobsson
skoraði. Mjög gott verður var
uppá Akranesi þegar leikur þessi
fór fram.
Helgi Helgason fékk guilið tækifæri fyrir Viking þegar hann fékk boltann dauðafrir og einn á markateig
en með undraverðri lagni tókst honum að skjóta yfir. — Sannariega óheppinn þar!
Sanngjarn KR-sigur
gegn Víkingum
i gærkvöldi léku á Laugardais-
vellinum neðri Reykjavikurfélög-
in KR-Vikingur og var leikurinn
sá fyrsti i 16 liða úrslitum Bikar-
keppni KSÍ. KR sem leikur nú við
góðan orðstír i 2. deild I fyrsta
Drengjalandsleikur
gegn Færeylngum
í kvöld kl. 20 fer fram
á Kópa vogsvelli
drengjalandsleikur á
milli íslands og Fær-
eyja, en þar eru leik-
menn á aldrinum 14-16
ára. Þetta er 3. lands-
leikurinn milli þessara
þjóða. Sigruðu Færey-
ingar i þeim fyrsta með
1:0, en i fyrra var leikið i
Keflavik og sigraði ís-
land þá með 5:2.
Islenska Drengjalandsliðið
mun siðan halda til Danmerkur
nk. mánudag og taka þátt I
Drengjamóti Norðurlanda sem
fer fram 10.-16. júll, en þar mun
það leika i riöli með Dönum og V-
Þjóðverjum, sem taka þátt i mót-
inu sem gestir.
Þá fer fram unglingalandsleik-
ur (leikmenn 16-18 ára) i Færeyj-
um 12. júli nk.
Lárus Loftsson unglingalands-
liösþjálfari hefur valið 16 manna
hóp vegna leiksins við Færeyinga
i Kópavogi á miðvikudag, en eftir
þann leik verður endanlega vai-
inn hópurinn, sem heldur til Dan-
merkur nk. mánudag.
Þessir leikmenn hafa veriö
valdir:
Markverðir: Stefán Jóhanns-
son KR og Elvar Gottskálksson
IBK. Aðrir leikmenn eru: Bene-
dikt Guðmundsson UBK, sem
leikið hefur 4 unglingalandsleiki,
6 drengjalandsleiki, verið vara-
maður i landsliði undir 21 árs og
er fastur leikmaður i 1. deildarliöi
UBK, Lárus Guömundsson Vik-
ing, sem leikið hefur 5 drengja-
landsleiki og er fastur leikmaöur i
1. deildariiði félags sins, Jón G.
Bjarnason, KRsem leikið hefur 2
drengjalandsleiki, Sigurður Grét-
arsson UBK, Sigurjón Kristjáns-
son, UBK, Helgi Bentsson UBK,
Jón Þór Brandsson FH.sem leik-
ið hefur 4 drengjalandsleiki, Guð-
mundur Torfason Fram, Astvald-
ur Jóhannesson tA, Ragnar Mar-
geirsson IBK, Páll Þorkelsson
ÍBK, Gisii Bjarnason KR, Hafþór
Sveinjónsson, Fram, og Jóhannes
Sævarsson, Viking.
Færeyingar leggja mikið upp
úr þessum leik, enda hafa þeir á
undanförnum árum lagt aukna
rækt við þjálfun yngri flokkanna
og náð ágætum árangri i leikjum
við aðrar þjóðir. Það er ekki aö
efa að leikurinn I Kópavogi á mið-
vikudagskvöldið verður
skemmtilegur og þvi ástæða til að
hvetja fólk til að sjá hann.
Dómari verður Arnþór óskars-
son, en linuverður þeir Halldór
Gunnlaugsson og Hinrik Lárus-
sinn i sögu félagsins, vann verð-
skuldaðan sigur yfir lélegum Vik-
ingum.
ICnattspyrnan sem liðin sýndu
var ekki upp á marga fiska, eilff_
langspörk og boltinn oftast I 10
metra hæö yfir vellinum.
Það var á 43. mlnútu leiksins
sem KR skoraði sigurmarkið.
Þeir náðu að leika upp vinstri
kant, lögðu boltann vel fyrir
markið þar sem Sigurður
Indriðason var vel staðsettur og
renndi honum i netið. Staðan I
leikhléi 1-0.
1 seinni hálfleik voru það Vik-
ingar sem spörkuðu aö marki KR-
inga en KR-ingar sem hreinsuðu
frá i hvert skipti. Þannig gekk
þetta allan seinni hálfleik og eng-
in knattspyrna.
Vikingar fengu eitt gott færi til
aö jafna leikinn en það var á 55.
minútu er ein háspyrnan komst
yfir KR vörnina og fyrir innan
hana stóðu þrir Víkingar rétt-
stæðir á markteig, en allir héldu
þeir sig vera rangstæða og fram-
hjá markinu rúllaði boltinn.
KR fékk tvö góð færi til aö bæta
við marki, i annað skiptiö þegar
Sigurður Indriðason komst einn
inn fyrir vörn Víkings en Diðrik
bjargaði vel, og i hitt skiptið þeg-
ar Diðrik haföi farið i skógarferð
og misst boltann, en til allrar
hamingju fyrir Viking og þvi
miður fyrir KR hitti Björn Pét-
ursson boltann ekki er hann ætl-
aði að vippa honum I netið.
Besta manninn á vellinum sá ég
ekki, en það var betra liðiö sem
sigraði i þessum háloftaleik.