Þjóðviljinn - 07.09.1978, Síða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN 1 Fimmtudagur 7. september 1978
Siglufjörður;
Sjóminjasafn
á næsta ári
Undanfarin tvö sumur hefur
veriö unniö aö þvi á vegum Siglu-
fjaröarbæjar aö koma upp
byggöasafni, sem fyrst og fremst
veröur sjóminjasafn. Þunga-
miöja þess eru sfldarminjarnar.
Þrjú hús I bænum hafa veriö
friölýst. Þar er um aö ræða svo-
kallaöan Isfiröingabakka, Norska
sjómannaheimilið og Sæby-hús.
Isfiröingabrakki var byggöur
árið 1906, og er talinn gott dæmi
um aöbúnaö verkafólks á sildar-
timanum. Fyrsta hæö hans er
stór og mikill salur, og er fyrir-
hugaö að koma stærri sildarmun-
um þar fyrir. önnur og þriöja hæö
eru vistarverur, og eru uppi radd-
ir um aö nýta þær sem nokkurs
konar farfuglaheimili, og þá und-
ir ströngu eftirliti.
1 norska sjómannaheimilinu,
sem byggt var 1915 og var um
árabil aöalsamkomustaöur sild-
veiöisjómanna og i raun fyrsta
sjúkrahús Siglufjaröar, er ætlun-
in aö koma fyrir vandaöri safn-
munum, og þar er vinnuaöstaöa
fyrir safnvörö.
Sæby-hús er 92 ára gamalt
ibúðarhús. Ekki hefur enn veriö
afráðiö, hvernig það verður nýtt.
Það er i einkaeign, en hin tvö hús-
in eru i eigu bæjarins.
Vegna ofangreindrar starfsemi
réö Siglufjaröarbær Frosta F. Jó-
hannsson þjóöháttafræöing til
starfa og vann hann að þessum
málum i þrjá mánuöi I fyrrasum-
ar og fjóra nú i sumar, og hefur
veriö endurráöinn aö sumri.
Frosti er viö doktorsnám i þjóö-
háttafræðum viö Stokkhólmshá-
skóla.
! fyrra var fyrst og fremst unn-
iö að söfnun muna og reynt að
grundvalla og móta ýmsar tillög-
ur um hvernig hentugast væri aö
standa aö uppbyggingu sjóminja-
safnsins. Nú i sumar hefur muna-
söfnun veriö haldiö áfram. í allt
hefur veriö safnaö hátt á sjöunda
hundraö muna. Þeir eru fyrst og
fremst tengdir sjávarútvegi, svo
sem hákarla- og árabátaútgerð,
sildarútveg og togaraútgerö. Allir
munir hafa veriö skráðir til
bráöabirgöa. Auk þess hefur i
sumar veriö unniö aö endursmiö
tsfiröingabrakkans. Það verk er
vel á veg komið og áætlað að
halda þvi áfram á sumri kom-
anda. Vonir standa til aö hægt
veröi aö koma sildarminjasafn-
inu, sem er stærsti hluti sjóminja-
safnsins, upp á næsta ári. Sjó-
minjasafniö hefur um 1600 ferm
til umráöa. Komiö hefur til tals aö
safniö útskýri ekki aöeins sögu
Siglufjaröarbæjar, heldur einnig
sögu sjávarútvegsins fyrir öllu
Noröurlandi. Sérstaöa Siglufjarö-
ar i sögu sjávarútvegsins i fjórö-
ungnum á sinn þátt i þessum hug-
myndum.
Starfsemi sjóminjasafnsins á
Siglufirði hefur fyrst og fremst
veriö fjármögnuö af bæjarfélag-
inu. Einnig hefur sildarútvegs-'
nefnd rfkisins veitt umtalsverða
fjárupphæö til safnsins.
Sfldarsöltun á Siglufiröi
_____________f______________
Blaðberar
óskast
Austurborg:
Sunnuvegur (nú þegar)
Vesturborg:
Háskóli — Tjarnargata (nú þegar)
Hjarðarhagi (nú þegar)
Miðsvæðis:
Laufásvegur (nú þegar)
Neðri Hverfisgata (1. okt:)
Neðri-Laugavegur (nú þegar)
uoanuiMN
Siðumúla 6. Simi 8 13 33
Zdenek Hejzlar og Edvard Goldstucker.
Svavar Gestsson á fundi Tékkóslóvakiunefndarinnar:
Krafa um víða
sýn til allra átta
A þr iöj udagskvöld
efndi Tékkóslóvakíu-
nefndin 1978 til almenns
fundar í Félagsstofnun
stúdenta með gestum
nef ndarinnar, þeim
Eduard Goldstiicker og
Zdenek Hejzlar. Fundar-
efni var vandamál
sósíalismans í Evrópu
með sérstöku tilliti til
þeirra lærdóma sem
sósíalistar hljóta að
draga af f ramvindu mála
í Tékkóslóvakíu. Fjöl-
menni var á fundinum og
var máli þeirra Hejzlars
og Goldstuckers vel tekið.
Fundur Tékkóslóvakiu-
nefndarinnar hófs* á þvi aö
fundarstjóri, Guörún Helgadótt-
ir borgarfulltrúi, gerði grein
fyrir fundarefni og gestum
nefndarinnar. Siöan flutti
Svavar Gestsson viöskipta-
ráöherra ávarp.Zdenek Hejzlar
flutti ræöu sem hann nefndi
Tékkóslóvakia aö 10 árum liðn-
um. Eduard Goldstifcker flutti
ræöu um þjóöfélagslegar for-
sendur umbótaskeiösins i
Tékkóslóvakiu. Fundarmenn
báru upp fjölmargar fyrir-
spurnir til þeirra Goldstuckers
og Hejzlars sem þeir svöruðu
og fjölluöu þær bæöi um á-
standið i landinu þeirra og um
fræöileg viöhorf i sósialiskri
hreyfingu. Var fundurinn hinn
liflegasti og stóö hann langt
fram á kvöld. — Hér fer á eftir
það ávarp sem Svavar Gestsson
viöskiptaráðherra flutti viö
upphaf fundarins.
Ávarp Svavars Gests-
sonar
Ég fagna þvi aö Islenskir
sósialistar fá nú i nokkra daga
tækifæri til þess aö hitta aö máli
þá tékknesku félaga sem nú eru
meö okkur I kvöld, þá Gold-
stiicker og Hejzlar. Störf þeirra
á undanförnum árum hafa vak-
iö athygli okkar allra,rit þeirra
hafa veriö lesin hér á íslandi og
barátta þeirra hefur vakiö aö-
dáun okkar.
Ég vona aö vegna komu
þeirra hingaö til lands eflist
skilningur á alþjóölegri baráttu
sósialista um leiö og þeir leggja
áherslu á hinar þjóölegu for-
sendur baráttunnar. Stéttabar-
áttan er alþjóðleg barátta fyrir
frelsi mannsins og reisn undan
oki kúgunarinnar sem fylgir
arðráni manns á manni.
Viö islenskir sósialistar
stöndum i beinu návigi við hiö
alþjóölega auövald i mynd
morötólanna á Miönesheiöi og
aöildar tslands aö hernaöar-
bandalaginu NATO. Þessi bar-
átta sem fer fram hvern einasta
dag lætur á stundum litiö yfir
sér en fyrir kemur aö hernaöar-
bandalagiö blandar sér beint
inn i islensk innanrikismál.
Þetta geröist til dæmis á dögun-
um þegar erlend ihlutun kom I
veg fyrir aö samstarfsflokkar
okkar i núverandi rikisstjórn
samþykktu stjórnarforystu
sósialista. Þar teygöi loppa hins
alþjóðlega auövalds sig inn I Is-
lenskt þjóölif meö eftirminni-
legum hætti sem viö skulum
aldrei gleyma. Viö fordæmum
erlenda ihlutun hvar sem hún
birtist og hvernig sem hún birt-
ist. Viö berjumst gegn henni.
Skilningur okkar sósialista á
alþjóðlegum lögmálum stétta-
baráttu greiöir okkur götuna til
skilnings á alþjóölegu samstarfi
og nauðsyn þess. Vegna þessar-
ar baráttu viö erlend hernaöar-
bandalög og beinna kynna okk-
ar af þeim eigum við Islenskir
sósialistar kannski greiöari veg
aö skilningi á aöstööu hinna
tékknesku félaga okkar en
margir aörir sósialistar i
heiminum.
Baráttan fyrir sósialisma
sprettur upp úr skilningi á
stéttabaráttunni á þjóölega
jafnt og alþjóölega visu. Barátt-
an fyrir sósialisma i svoköll-
uöum velferöarrikjum nútim-
ans verður aldrei háö meö þvi
einu aö berjast fyrir bættum
kjörum og kaupmættii baráttan
fyrir sósialisma er fyrst og
fremst barátta fyrir skilningi,
opnari vitunc^og fyrir skýlausri
kröfu um mannréttindi og frelsi.
Verkalýössamtökin I auövalds-
rikjunym gegniaúrslitahlutverki
og verkalýöshreyfingin á' Is-
landi hefur unniö marga sigra i
baráttunni viö fjandsamlegt
rikisvald. Þeir sigrar hafa unn-
ist vegna þess að hún hefur
verið undir róttækri forystu
sósialista. Barátta verkalýös-
hreyfingarinnar ber þó aldrei
þann árangur sem skyldi ef ekki
tvinnast saman skilningur á
menningarlegu starfi og kjara-
baráttu. Menningarlegt starf
opnar huga launafólksins fyrir
Svavar Gestsson
umhverfinu og er þvi I rauninni
besta varanlega tryggingin
fyrir árangri. En markmiði
okkar, sósialisku þjóðfélagi ná-
um við heldur aldrei nema þetta
sé ljóst ekki aöeins meöan viö
fylkjum verkalýönum til sigurs
gegn auðvaldinu, heldur einnig
eftir aö arörán manns á manni
hefur verið afnumiö. Sósialism-
inn veröur aö byggjast á þessu
samlifi menningar og starfs,
annars snýst hann brátt i and-
stæöu sina eins og dæmin sanna.
Sósialisminn er ekki til sem
endanlegt óumbreytanlegt
form. Hann er lika lif, starf og
barátta. Þaö er ekkert til sem
heitir endanlegur sigur, ef viö
gerum okkur ekki grein fyrir
þvi breytist frelsiö I fjötra.
1 þeirri miklu önn daglegra
starfa islenskra sósialista um
þessar mundir gefst ekki löng
stund til þess aö ihuga grund-
vallarlögmál sósialismans og
stéttabaráttunnar. Koma félaga
okkar frá Tékkóslóvakiu hingaö
til lands er okkur þvi kærkomin
áminning um aö gleyma okkur
ekki i daglegum verkefnum,
krafa um aö viö opnum viöari
sýn til allra átta. Við fögnum
komu þeirra og vonum aö is-
lenskir sósialistar beri gæfu til
þess um ókomin ár aö halda
reisn sinni og sjálfstæði. Saga
alþjóölegra samskipta islenskra
sósialista ber yfir sér mikla
reisn um áratugi. Um það mætti
nefna dæmi. Viö munum áfram
halda á þeirri sömu braut en
aldrei ganga i bland viö tröllin.