Þjóðviljinn - 07.09.1978, Side 6
'6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN '■ Fimmtudagur 7. september 1978
„Hviids Vinstue eöa Hvítur er
helst allra veitingahúsa hér viö
torgið, og þar lifir hinn ga mli andi
ómengaður. Inni í hálfrokknum
og dularfullum rangölunum er
hljótt, menn sitja þögulir yfir
glasi sinu I þröngum básunum,
drekka hægt, láta hugann llða inn
i mjúkar veraldir áfengisins, þar
er aldrei músik, aldrei rjóma-
kökur eða þess háttar,
drykkjumanninum er þar búin
algjör friðhelgi. Sagan segir aö
Jónas Hallgrlmsson hafi oft setið
þar einn saman, og hér hafi hann
drukkið siðsta fullið sitt kvöldið
sem hann slasaði sig.”
Svo segir Björn Th. Björnsson i
bók sinni A Islendingaslóðum i
Kaupmannahöfn og torgið sem
hann nefnir er Kóngsins Nýja-
torg.
Flestir íslendingar, sem lagt
hafa leið sina til Kaupmanna-
hafnar og unna sögu sinni, vita
um þessa ævafornu krá sem
stofnsett var árið 1723, og á sér
litrika sögu. Fyrir 5 árum var
haldið hátiðlegt 250 ára afmæli
hennar og gefiö út veglegt af-
mælisrit i þvi tiieíni.Þar var aö
Utlu eða engu getið þeirra fjöl-
mörgu landa sem kneifað hafa
ölið í skuggasælum rangölum
hennar. Einum Islendingi var þó
boðið að sitja afmæhsdrykkjuna
og mun hann manna best hafa
unnið tU þess, þálifandi íslend-
inga. Þaö var Sverrir Kristjáns-
son sagnfræðingur.
NU I sumar safnaðist dálítill
hópur Islendinga á Hviids Vinstue
og afhenti kráarhaldaranum
mynd af fjórum islenskum
Hafnarstúdentum sem allir sátu á
Hvitum sina daga. Myndin er
gerð af örlygi Sigurðssyni Ust-
4 a wmm
ÁRW PAtÁÁf**.
■ýifSW «9
örlygur Sigurðsson opnar málverkasýningu á Kjarvalsstöðum á næstunni og hefur málað risastórt auglysingaskílti til ab koma fyrir
utan dyra og eru á þvi félagarnir I Hviids Vinstue. Hér sést hann sitja við mynd sina en á henni eru f.v. Jónas, Jóhann, Arni og Sverrir
(ijósinyndari (Leifur)
Menninganiðburöur í Hviids
Yinstue í Kaupmannahöfn
Hópurinn sem var við afhendingu myndarinnar fyrir utan Hviids
Vinstue. F.v. Aöalgeir Kristjánsson sagnfræðingur, Einar Laxness
forseti Sögufélagsins, Kristján Arnason menntaskólakennari, Elsa
Jóna Theódórsdóttir, Birna Jónsdóttir, Birna Guörún Gunnars-
dóttir, Pétur Pétursson þulur, Kjartan Olafsson alþingismaður, Olöf
Bjarnadóttir og Agnar Kl. Jónsson ambassador. Myndina tók Oskar
Gisiason.
Kráareigandi tekur á móti mynd öriygs.
málar aogsitja á henni saman að
drykkju þeir Jónas Hallgrimsson
skáld, Jóhann Sigurjónsson
skáld, Arni Pálsson prófessor og
Sverrir Kristjánsson. Neðst á
myndinni standa þessar ljóðllnur
Ur Bikarnum eftir Jóhann Sigur-
jónsson:
„Gleði sem löngu er Uðin
lifnar i sálu minni”
Agnar Kl. Jónsson sendiherra
afhenti mynd örlygs en frum-
kvæði að gerð hennar átti Pétur
Pétursson Utvarpsþulur sem nU
stundar íslensk fræði i borginni
við sundið. Pétur skrapp heim um
daginn og gerði stuttan stans en
þó nógu langan til þess að blaða-
maður Þjóðviljans næði taU af
honum til að spyrja um tiltækið.
„Við Sverrir Kristjánsson
vorum gamlir vinir”, sagði
Pétur, „og ég vissi að Hviids
Vinstue var kjörstaður hans eins
og fleiri góöra Islendinga i höfn.
Eg legg leið mina oft inn á Hvit til
að fá mér ölglas og eitt sinn var
ég að velta fyrir mér hvað hægt
væri al^gera til aö minna á sam-
band Islendinga og Islenskrar
þjóöfrelsisbaráttu við þennan
stað. Þá fékk ég þá hugdettu aö
láta gera mynd af fjórmenning-
unum og hengja upp i kránni. Mer
fannst þetta hálfgert frumhlaup
hjá mér að standa fyrir þessu og
hafði þvi samband við Aðalgeir ,
Kristjánsson sagnfræöing en
hann varð strax mjög áhuga-*
samur og þegar ég minntist á
þessa hugmynd við örlyg '
Sigurösson listmálara varö hann
enn *áhugasamari og fór strax að
Utvega myndir til að teikna eftir.
Þegar mynd hans var tilbUinn
,fór ég til Kaupmannahafnar og
lét innramma hana og gengum
við siðan á fund forstjóra Hviids
Vinstue og útskýrðum erindi okk-
ar. Hann varð dálitiö hissa fyi-st
en þegar við sögðum honum frá
tengslum þessara manna við
staðinn varð hann upptendraður.
Valdi hann myndinni hinn besta
stað þar sem hún sést Vel. Var
hún afhent við hátiðlega athöfn og
okkur veitt vel á eftir. Ef ekki
hefur verið drukkið i gegnum
okkur þá stund, hefur aldrei ver-
ið drukkið i gegnum okkur” sagði
Pétur aö lokum.
t Hviids Vinstue sá Jónas
Hallgrimsson sinn siðasta sól-
skinsblett i heiði 18. mai 1845 og I
byrjun þessarar aldar lagði þang-
aö komu sinar Jóhann Sigurjóns-
son, yfirfullur af andstæðum og
tvistringi, eins og Gunnar
Gunnarsson orðaöi það. Einu
sinni sendi faðir Jóhanns, stór-
bóndinn á Laxamýri, honum hest
alla leið til Kaupmannahafnar og
reið Jóhann honum á Kóngsins
Nýjatorg, batt hann viö lugtar-
staur og fór inn á Hvit.
Jóhann Sigurjónsson og Árni
Pálsson drukku saman á Hviids
Vinstue og seinna drakk Sverrir
Kristjánsson meö Arna á sama
stað. Ein af þeim sögum sem
Sverrir sagði um Árna gæti vel
hafa gerst á hinni fornu ölkrá.HUn
var svona:
Einu sinni kom Arni prófessor
til Kaupmannahafnar og hitti
Djurhuus frá Færeyjum, sem
hafði lagst i skáldskap og óreglu,
en þeir voru skólafélagar frá
gamalli tið. Urðu fagnaðarfundir
en brátt setti trega að Djurhuus.
„Mikill munur er á kjörum okk-
ar”, sagði hann. „ég er fátækt
skáld og auðnuleysingi en þú ert
orðinn viðfrægur prófessor við
Háskóla Islands”. Þá svaraði
Árni.
„Græd ikke Djurhuus. Skönt
jeg altid har haft hovedet i de
höjere sociale sfærer har jeg dog
altid sÉet meö begge födderne i
sumpen.”
Og nú geta íslenskir ferðalang-
ar í Kaupmannahöfn hvilt sig frá
ys og þys Hafnarstræta og horfið
á vit islenskrar þjóöfrelsisbar-
áttu, skáldmenna og snillinga i
svölum hvelfingum Hviids
Vmstue um leið og þeir hverfa inn
i „mjúkar veraldir áfengisins”.
Er þeir liða inn i' hugsjónir sinaiL.
viö þau ágætu skilyrði sem Hvitur
býður, geta þeir haft yfir
Bikarinn eftir Jóhann Sigurjóns-
son:
Einn sit ég yfir drykkju
aftaninn vetrarlangan,
ilmar af guilnu glasi
gamalla blóma angan.
Gleði, sem iöngu er liöin,
lifnar i sáiu minni,
sorg, sem var gleymd og grafin,
grætur i annaö sinni.
Bak viö mig býöur dauðinn,
ber hann i hendi styrkri
hyldjúpan næturhimin
helltan fullan af myrkri.
GFr.
Einkaritaraskólinn
þjálfar nemendur — karla jafnt sem konur — i á)
verslunarensku b) skrifstofutækni c) bókfærslu d) vélrit-
un e) notkun skrifstofuvéla f) notkun reiknivéla g) meö-
ferö tollskjala h) Islensku.
Mimir Brautarholti 4
Simi 10004 og 11109 (kl. 1-7 e.h.)
Fundur verður haldinn
FIMMTUDAGINN 7. september i Vél-
stjórahúsinu kl. 20.30.
Dagskrá:
Fyrirhuguð kvöldvaka.
önnur mál.
Ariðandi að allir komi.
Herstöðvaandstæðingar Suðurnesjum.