Þjóðviljinn - 07.09.1978, Side 7
Kimmtudagur 7. september 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
Skólakerfid er ekki fjarlægur hlutur. Þaö er inni á
gafli hjá hverri fjölskyldu. Þad er meiri örlagavaldur i
lífi fólks en flest annað. Þess vegna er það beinn
hluti af lifsbaráttunni að láta sig þessi mál varða.
Hra f n
Sæmundsson
prentari
Skrímslíð
Eitt bros getur dimmu i
dagsljós breytt,
sem dropi breytir veig
heillar skálar.
Þel getur sniiist við
atorð eitt.
Aðgát skal höfð i
nærveru sálar.
Þessar ljóðlinur úr Einræðum
Starkaðar eru gerðar að
upphafsorðum þessarar greinar
sem fjallar um eitt ómann-
eskjulegasta fyrirbærið i sam-
félaginu okkar.
Hér er átt við islenska skóla-
kerfið sem virðist vera á góðri
leið með að ganga af félagslegu
réttlæti og mannréttindum
dauðum.
Það er ekki gert að óhugsuðu
máli að leikmaður skrifar grein
um skólamál i Þjóðviljann.
Með hverju ári sem liður er fólk
að gera sér meiri grein fyrir þvi
að skóla- og fræðslumál eru að
komast i slikan hnút að ekki
verður við unað lengur. Það er
þess vegna knýjandi nauðsyn að
opin umræða hefjist um þetta
málefni og þess vegna eru þess-
ir punktar settir á blað ef það
mætti stuðla að því að lesendur
færu að ræða málin. Þau mál
sem varða framtið hverrar
barnafjölskyldu og einnig stöðu
þeirra iúllorðnu eins og siðar
verður drepið á i greininni.
En að skrifa grein um skóla-
mál i Þjóðviljann er eins og að
nefna snöru i' hengds manns
húsi. Það vita allir sem eitthvað
þekkja til að innan Alþýöu-
bandalagsins og meðal
stuðningsfólks þess eru fáar
stéttir eins fjölmennar og
kennarar og skólamenn.
Þrátt fyrir þessa staðreynd
hefur flokkurinn nánast óljósa
stefnu i þessum málaflokki.
Auðvitað er kafli i stefnuskrá
um skólamál eins og allt annað,
en hann sker sig ekki úr og gerir
ekki ráð fyrir verulegum kerfis-
breytingum sem tengist raun-
veruleikanum eins og hannerá
liðandi stundu. Þetta hefur
mörgum þótt undarlegt.
I fyrra tók bandalagið þó á sig
rögg og blés til ráöstefmf um
skólamál. Niðurstaða þessarar
samkundu varð sú að gerð voru
drög að einskonar kerfisfúgu
sem blönduðum skólakór
Alþýðubandalagsins er ætlað að
kyrja.
Fyrir þá sem einhver
áþreifanleg kynni hafa af skóla-
kerfinu frá þeirri hlið sem að
almenningi snýr eru niður-
stöður þessarar skólamálaráð-
stefnu með ólíkindum. Þær
virðast liggja f órafjarlægð frá
þeim veruleika liðandi stundar
sem margir sem þessar linur
lesa þekkja áreiðanlega af eigin
reynslu.
Til þessaö reyna að rökstyðja
þessa fullyrðingu er rétt að
drepa á hina raunverulegu
stöðu og möguleika uppvaxandi
kynslóðar i' skólakerfinu og
þannvandasemviðerað glima.
Það má skipta unglingum og
börnum á grunnskólastigi i tvo
höfuðflokkaeftir þvi mati sem á
þau er lagt.
Annarsvegareruþeir sem eru
„gáfaðir”. Hins vegar þeir sem
eru„heimskir”. Þeir nemendur
semeru „gáfaðir” hafa viss for-
réttindi. Þessum forréttindum
má likja við það þegar lömbum
er ekki slátrað að hausti fyrsta
sumars. Þessir nemendur eru
settir á.
Það eruþó engir grænir hagar
sem biða þeirra. Stórhluti þess-
ara nemenda liggur undir stöð-
ugum hótunum um aftöku hve-
nær sem er. Þetta unga fólk fær
þá tilfinningu að þjóðfélagið og
skólakerfið syni þvi meiri og
minni fjandskap eins og það
væri illgresi sem helst þyrfti að
uppræta.
Hinir nemendurnir sem eru
„heimskir” eru strax settir i
sláturhúsið. Þessi hópur fær
nær enga möguleika til þess að
þroskast og sýna framfarir
siðar. Gáfnafar þeirra er metið
á kerfisbundinn hátt. „Lögboðið
gáfnafar” á Islandi er skilgreint
i greindarvisitölu sem miðuð er
við meltingu námsefnis i skóla-
kerfinu. Sá sem getur áreynslu-
litiðetiðog melt þetta námsefni
hrátt eða soðið er „gáfaður”.
Allir hinir sem hafa einhver
önnur sjónarmið eða andlega
möguleika eru „heimskir”.
En hvort sem nemandi er
„gáfaður” eða „heimskur” eru
ekki bjartar framtiðarhorftir
fyrir hann.
Ef nemandinn er heppinn og
lifir af skólakerfið án þess að
lenda á geðveikrahæli eða
upptökuheimili stendur hann að
lokum i dyrum einhvers skóla
og horfir út 1 járngráan veru-
leikann.
Með sömu þróun eru horfur
þeirra nemenda.sem ljúka ein-
hverju námi,þær i náinni
framtið,að þeir verði að lifa af
atvinnuleysisbótum eða opin-
beru framfæri.
Þessi staðreynd er þó ekki
eingöngu skólakerfinu að
kenna. Þett a s taf ar einnig af þvi
að sáralitil tengsl eru á milli
skólakerfisins og atvinnulifsins.
Nánast það eina sem möguleiki
er að læra i núverandi skóla-
kerfi er einhverskonar undir-
búningur undir störf i þjónustu-
greinum.
Ef teknir eru til dæmis tveir
af fjölmennustu framhalds-
skólum landsins þá eru þetta
staðreyndirnar sem blasa við.
t Hásköla tslands hafa til
skamms tima ekki verið neinar
deildir sem eru i beinum tengsl-
um við þrjá aðalatvinnuvegi
landsins. Sjávarútvegur, land-
búnaður og iönaður hafa litið
fengið inni i kennsluprógrammi
skólans. Þetta er út af fyrir sig
furðulegt og raunar alislenskt
fyrirbæri.
Hitt er ekki siður furðulegt að
i iðnskólum landsins er engin
kennsla i neinni grein sem litur
að framleiðslu iðnaðarvara til
útflutnings. Þar eru eingöngu
kenndar iðngreinar sem hafa
það markmið að setja fleiri og
fleiri einstaklinga i þjónustu-
störf og verklega uppbyggingu
innanlands. Þetta fyrirkomulag
þekkist hvergi i veröldinni
nema á tslandi.
Þrátt fyrir miklar auðlindir
landsins hlýtur það að eiga sér
einhver takmörkhvað stór hluti
landsmanna getur unnið óarð- $
bær störf. Skólakerfið virðist þó
ekki vilja viðurkenna þessi tak-
mörk.
Þessar einföldu staðreyndir
snúa raunar fremur aö efnahags-
legri framtið einstaklinga og
þjóðarinnar.
Hitt ætti þó að vera þyngra á
metunum að einstaklingurinn sé
búinn undir það i skólakerfinu
aðganga heilbrigður út i lifiðað
námi loknu. Þessu er ekki
þannig varið.
Það barn sem ekki gat sofið
vegna tilhlökkunar fyrir fyrsta
skóladag hefur verið að deyja
smám saman i skólakerfinu
siðan. A hverju ári hefur ein-
hver hluti barnsins dáið. For-
vitnin hefur stöðugt minnkað.
Það er ekki lengur leikur að
læra. Nú er námið að stórum
hluta orðið böl.
Þetta stafar sennilega af þvi
að skólakerfið er komið úr
tengslum við það mannlif sem
lifað er utan skólaveggjanna.
Þetta mannlif hefur ekki verið
til neinnar fyrirmyndar núna á
siðustu árum. En við vanda þess
verður að glima og það batnar
aldrei ef skólakerfi landsins er ‘
ekki i tengslum við það.
Auðvitað þroskast einstak-
lingar innan skólakerfisins,
jafnvel þó þeir nái ekki umtals-
verðum árangri i námi. Annað
.striðir á móti lögmálum
náttúrunnar. En þjóðfélagið
sem skipulögö stofnun hefur
ósköp litið við þennan einstak-
ling að tala.
Sá li'fsstill sem skapast hefur
undanfarin ár i yfirspenntu
neysluþjóðfélagi hefur ekki gert
ráö fyrir þvi að veita æskufólki
raunverulega lifsgleði sem ætti
að vera þvi eiginleg. Lifsgleðin
hefur breyst i tilgangslausa
sókn eftir vafasömum hlutum.
Unga fólkið I skólakerfinu hefur
sjaldan fengið að takast á við
heillandi verkefni. Það hefur
ekki oft fengiö tækifæri til þess
að ljúka vinnudegi þreytt og
ánægt.
Ofan á þetta allt gerir þjóð-
félagið nú miskunnarlausar og
ósanngjarnar körfur. Stór hlutá
eldri kynslóðar sem undanfarin
ár hefur verið sljór i neyslu-
kapphlaupinu eins og skynlaus
skepna, ofsækir nú þá æskusem
mótast hefur algjörlega i þessu
þjóðfélagslega æði.
Þegar þetta unga fólk, sem
komið er gegnum skólakerfið
eða er ennþá i þvi, safnast i
ráðaleysi sinu saman á
hallærisplönum landsins, er
ekki aðeins að lögreglunni sé
sigað á það heldur einnig flest-
um fjölmiðlunum. Orsakanna
hefur aldrei verið leitað i neinni
alv öru.
Það sem blasir við i sambandi
við framtið æskunnar er það að
stórum hluta hennar er kastað
útá götuna algerlega vegalausu
að skyldunámi loknu. Hinn
hlutinn fær þau tækifæri að
berjast um allt of fá störf i
þjónustugreinum þar sem ekki
ræður einu sinni hæfni heldur
sambönd og klikur i þjóð-
félaginu. t sumum þjónustu-
greinunum mun einnig ný tækni
taka við nær öllu starfi manns-
handarinnar á allra næstu
árum. Það er þess vegna ekki
sérlega glæst framtið sem
æskufólklandsins horfir fram á.
Hér að framan hefur verið
reynt að vekja máls á þjóð-
félagsóréttlæti sem uppvaxandi
kynslóð býr við.
En það er annar hópur sem
einnig á um sárt að binda hvað
varðar skóla- og fræðslumál.
Þetta er hin týnda kynslóð. Það
fólk sem vegna aldurs sins til-
heyrir hvorki nútið eða fortið i
fræðslukertinu. Hlutskipti þessa
fólks er ægilegra en menn gera
sér almennt grein fyrir.
Það litla sem gert hefur verið
isambandi við fullorðinsfræðslu
leit i upphafi útfyrir að vera já-
kvætt. Þegar farið er að skoða
þaðnánar kemuriljósaðsvoer
ekki. Enginn fullorðinsfræösla
beinist að þvi að koma fólki i
félagsleg tengsl og út i atvinnu-
lifið og þjóðfélagið. Þarna er
ekki siður um mannréttinda-
mál að ræða en efnahagslegan
ávinning fyrir einstaklinginn.
Konur eru hér i ennþá meiri
vanda en karlmenn. Þærkonur
sem af einhverjum ástæöum
hafa ekki hlotið skólalærdóm —
en eru á besta starfsaldri, eru
lokaðar úti frá f lestum störfum I
þjóðfélaginu.
Sú kvenréttindabarátta sem
miklar vonir vorubundnar við á
kvennaári hefur algjörlega
staðnað. Sá litli hópur sem enn
reynir að halda baráttunni
áfram hefur valið auðveldari
leið en að horfast i augu viö
islenskan veruleika sem er allt
annar en sú barátta sem rekin
er erlendis við allt tsinur þjóð-
félagsskilyrði.
Að færa hinni týndu kynslóð
hér á Islandi mannréttindi sem
eru raunveruleg en ekki aðeins
texti á blaði, er brýnasta verk-
efni baráttunnar i dag.
Stærsta átakiö sem gert hefur
verið i fullorðinsfræðslu er
stofnun öldungadeildarinnar.
Ekki verður talað illa um þessa
starfsemi. Hinsvegar verður að
spyrja hvaða tilgangi hún
þjónar og hverjum hún þjónar.
Fullorðið fólk sem fer i
öldungadeildina þarf að hafa
ýmislegt til brunns að bera sem
ekki er almenningseign; það
verður að hafa mikinn afgangs-
tima, góðar aðstæður og „lög-
boðið gáfnafar”. Ef þetta allt er
fyrir hendi og svo mikill vilja-
styrkur að auki, þá endar þessi
námsbraut með stúdentsprófi.
Aftur stendur fullorðið fólk við
upphaf einhvers. Nú getur það
fyrst farið að læra eitthvað. Og
þarna er komið að einhverjum
furðulegasta þætti i skóla-
kerfinu.
Þaðvirðisthafasafnast saman
i aldanna rás einhver skóla- og
prófkomplex og minnimáttar-
kennd sem nú brýst út hjá
Islendingum á tuttugustu
öldinni. Þessi ósköp koma fram
i þvi að próf séu mælikvarði á
allt. Sá sem ekki getur til að
mynda með „lögboðnu gáfna-
fari” komist i gegnum stúdents-
próf skal útilokaður frá
framhaldsnámi og starfi i
landinu. örfáar hliðargötur
hafa verið lagðar en þær eru
ekki fyrir neitt venjulegt fólk
heldur.
Þetta prófæði er að verða slik
martröð að ekki er hægt að búa
við það lengur. Það er búið að
loka flestum leiðum fyrir fólk til
að læra og starfa nema það hafi
i höndunum pappíra, sem á
stendur að það hafi komist i
gegnum bóklegt prófstig sem
mjög margirskólamennteljaað
heyri fortiðinni til. Hvergi er
lengur spurtum hæfni mannsins
til aðleysa verkefni af höndum.
Það er prófið sem blifur.
Hér ef ekki lengur eingöngu
um það að ræða að þjóðfélagið
geti hugsanlega þróast áfram.
Það má jafnvel deila um það
hvað æskilegt sé að þjóðfélag
þróist mikið. Aukinn hagvöxtur
er ekki einhlitur til að skapa
einstaklingnum hamingju.
Hér er um það að ræða að
þjóðfélagsbyggingin verði
þannig að ein þjóð búi I landinu.
Að ekki sé stefnt að meirihluta-
hópum og minnihlutahópum.
Þróunin með þvi skólakerfi sem
við búum nú við stefnir hraðbyri
i þá átt og það er lifsnauðsyn að
þessari þróun verði snúið við.
Hér hefur verið gerð tilraun
til þess að reifa afar umfangs-
mikiðmálialltofstuttum texta.
Ef þeir sem lesa þessar sundur-
lausu punkta þekkja ekki sina
hagi i einhverju sem hér stend-
ur hafa þessi skrif mistekist.
Skólakerfið er ekki fjarlægur
hlutur. Það er inni á gafli hjá
hverri fjölskyldu. Og það er
meiri örlagavaldur i lifi fólks en
flest annað. Þess vegna er það
beinn hluti af lifsbaráttunni að
láta sig þessi mál varða.
Margir þegja vegna þess að
óttinn við sérfræðingavaldið
heftir siast inn I almenning^
Þessa ótta gætir einnig hjá
Alþýðubandalaginu. Ef til vill er
nú lag til að afhöfða það
skri'msli sem skólakerfið I nú-
verandi mynd sinni er. Það ger-
ist hinsvegar ekki öðruvisi en til
komi mikill utanaðkomandi
þrýstingur.
Sýnir ættstóra hunda
t fréttatQkynningu frá Hunda-
ræktarfélagi islands segir, að
féiagið hafi að undanförnu unnið
að skráningu Jireinræktaðra
hunda inn á ættbók, sem verði
tilbúin fljótlega. Þá hyggst
félagið gangast fyrir sýningu
hreinræktaðra hunda 22. október
n.k.. Sýningin verður haldin i
iþróttahúsinu Asgarði, Garðabæ,
enda eru margir af fallegustu
hundum landsins nú búsettir i
Garöabæ.
A sýningunni verða aðeins
sýndir hreinræktaðir hundar og
verða þeir að hafa ættbókar-
númer i viöurkenndri ættbók
erlendis eða i gömlu islensku ætt-
bókinni (ölafsvalla) eöa, ef hvor-
ugt er fyrir hendi, að fá ættbfScar-
númer i hinni nýju ættbók Hunda-
ræktarfélags tslands. Til þess
verða að liggja fyrir trúveröugar
upplýsingar um minnst 3 ættliði
hundsins. Allar upplýsingar þar
um gefur ritari Hundaræktar-
félagsins, Guðrún Sveinsdóttir.
Engjavegi79, Selfossi, s.: 99-1627.
A sýningunni verður heims-
þekktur alþjóðlegur dómari, Miss
Jean Lanning. Jean, sem er
bresk, er okkur að góðu kunn,
segir i tilkynningunni, þvi hún var
dómari á sýningunni i Hveragerði
1973. Verðabestu hundar hverrar
tegundar verðlaunaðir. Þaö skal
tekið fram, að hlýðniskröfur eru
aðeins þær, að hundurinn geti
gengið við hæl, auk almennra
umgengnisreglna. Heilbrigðis-
vottorðs verður krafist. Æfinga-
og leiðbeiningatimar verða fyrir
sýninguna. Þátttökugjald er 1500
kr. fyrir hvern hund.
Framkvæmdanefnd sýningar-
innar skipa: Matthias G. Péturs-
son formaður, s: 4-34-90, Guðrún
Guðjohnsen, s: 4-49-84, Þór Þor-
bjarnarson, s: 4-44-53, og Mogens
Thaagaard, enhannhefur gengist
fyrir námskeiðahaldi undanfarna
mánuði fyrir hunda og eigendur
þeirra. Er hundéigendum, sem
áhuga hafa á að taka þátt I sýn-
ingu þessari, vinsamlegast bent á
að hafa samband við einhvern
ofanritaðra fyrir 1. okt. n.k.