Þjóðviljinn - 07.09.1978, Side 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 7. september 1978
Tilraunarád RALA:
Auknar verði
rannsóknir
á efnainnihaldi mjólkur
í Tilraunaráði rannsóknar-
stofnunar iandbúnaðarins eiga
sæti 15 fulltrúar, sem tilnefndir
eru af helstu stofnunum og félög-
um landbúnaðarins. Tilraunaráð
kemur saman tvisvar á ári. Á
sumarfundi þess var rædd starfs-
og Qárhagsáætlun stofnunarinnar
og ný tilrauna- og rannsóknar-
verkefni. Nokkrar tiliögur frá
undirnefndum ráðsins voru lagð-
ar fram á fundinum og þær rædd-
ar. M.a. voru eftirfarandi tillögur
samþykktar.
1. Framkvæmd verði rannsókn
á fituprósentu og eggjahvitu-
prósentu i mjólk og erfðafylgn-
inni milli þessara þátta.
2. Rannsakað verði efnainni-
hald islenskrar mjólkurog teknir
til meðferðar eftirtaldir þættir:
Heildarþurrefni, eggjahvita, syk-
ur og eftir atvikum fleiri þættir.
Sýnishorn til þessara rannsókna
komi hálfsmánaðarlega frá ekki
færri en 10 mjólkursamlögum i
öllum landshlutum. Rannsóknin
verði látin ná til minnst eins árs,
en helst tveggja ára samfellt.
Rannsakað verði sérstaklega,
þegar niðurstöður mælinga fyrsta
árs liggja fyrir, hver breytileiki
er í samsetningu mjólkurinnar
milli héraða og eftir árstimum og
hver fylgni er milli einstakra
efnisþátta mjólkurinnar.
3. Fjármagn verði útvegað til
framhaldsrannsókna á nýtingu
sláturúrgangs. Sérstaklega vill
Tilraunaráð leggja áherslu á
eftirfarandi þætti:
a. Vinnslu á heparini úr lungna-
og garnaslimi.
b. Vinnslu á hormónum úr
kirtlum.
c. Vinnslu garna til matargerðar.
d. Vinnslu sláturúrgangs i (þurr)
-fóður fyrir minka og annað
búfé.
e. Notkun á maurasýru til að
auka geymsluþol úrgangs.
4. Ahersla verði lögð á rann-
sóknir á geymsluþoli grænmetis
og leit að þvi hvaða þættir ráða
mestu um geymsluþolið með hlið-
sjón af því hvernig hægt sé að
nýta á hagkvæman hátt fram-
leiðslutoppa, sem myndast.
1 öðrum tillögum, sem sam-
þykktar voru, var m.a. lögð
áhersla á að starfsliði stofnunar-
innar við jarðræktarrannsóknir
verði fjölgað, bætt verði starfs-
skilyrði fyrir sérfræðing i
jurtasjúkdómum og gerðar tillög-
ur um framtiðarhlutverk til-
raunastöðvanna.
Þá var samþykkt tillaga, þar
sem lögð var ábersla á að hraða
uppgjöri beitartilrauna. Enn-
fremurkom fram,að Tilraunaráð
telur óæskilegt að opinberlega
skuli vera fullyrt um beitarþol
ákveðinna landssvæða eða lands-
ins i heild, fyrr en frekari vlsinda-
legar upplýsingar liggja fyrir.
(Heim.: Uppl. þjón. landb.)
—mhg
„Anægðastur með Svavar Gests-
son”.
„Hjörleifur Guttormsson mun „Gott að fá
áreiðanlega skipa sinn stól með menntamálin’
sóma”.
Ragnar Arnalds I
Magnús Jóhannsson frá Hafnarnesi hringdi:
Harðánægður með
mína menn
ráöherrastólunum
Magnús Jóhannsson . frá
Hafnarnesi hringdi i Landpóst og
hafði þetta að segja:
Nú hefur verið aflétt
útflutningsbanninu, sem staðið
hefur yfir frá 13. april eg má nú
fara að trúast við tiðum skipa-
komum hingað.
Erfiö lifsbarátta hjá
lundanum
Þó að haustið sé á næsta leiti er
ekki haustlegt um að litast, græn-
ar brekkur og lóðir og lundapysj-
an, sem er óvenju sein á sér úr
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Aðalfundur norrænu
b ændasamtakanna
Dagana 2. — 4. komu
f ulltrúar frá öllum helstu
bændasa mtökum á
Norðurlöndum til fundar
í Mariehamn á Álands-
eyjum. Frá íslandi mættu
lOfulltrúar. Samtals voru
fundarmenn 230. Voru
það bændur og starfs-
menn bændasamtaka.
Megin tilgangur aðal-
funda NBC er að kynna
þróun landbúnaðarins í
hverju landi, framleiðslu-,
sölu- og markaðsmál.
Einnig gera samstarfs-
nefndir grein fyrir þróun
mála á hinum ýmsu svið-
um. Innan NBC starfa
sex nefndir, þarsem full-
trúar af urðasölufélaga
koma saman og skiptast á
upplýsingum um mark-
aðsmálin og kynna nýj-
ungar, sem koma fram
varðandi vinnslu og
dreifingu landbúnaðar-
vara.
Umræðuhópar
Fundinum var skipt niður i
fimm umræðuhópa. Skilaði hver
hópur áliti á þeim málum, sem_;
honum voru falin. * |
Einn hópurinn fjallaði um ætt-
liðaskipti I landbúnaði, annar
um tómstundabúskap, þriðji um
sumarleyfi I sveit, fjórði um
samvinnufélög bænda og sá
fimmti um starfsemi NBC.
Ættliðaskipti I landbúnaði er
algengasta leiðin fyrir ungt fólk,
sem er að hefja búskap, synir
eða dætur taka við af foreldr-
unum. Lögð er áhersla á að
unga fólkið ráði þvi sjálft, að
mestu, hvenær það tekur við bú-
rekstrinum. Þennan rétt má
ekki skerða með lögum. 1
Sviþjóð og Danmörku fær ungt
fólk, sem hefja vill búskap,
verulega fyrirgreiðslu til að
kaupa jörð, bústofn og vélar.
Mestur virðist áhuginn vera i
Sviþjóð hjá ungu fólki að hefja
búskap og þar mun stuðningur
vera mestur. I Finnlandi rikir
aftur á móti sú stefna, að fækka
beri bændum frekar en að stuðla
að endurnýjun.
Lögð var áhersla á að bænda-
samtökin mörkuðu ákveðna
stefnu gagnvart tómstunda-
búskap, en á það hefur nokkuð
skort.
Tekjur af ferðamönnum
Bændur á Norðurlöndum hafa
all verulegar tekjur af ferða-
mönnum. Mestar eru þær hjá
bændum á Alandseyjum. Þar
eru 2500 sumarbústaðir, sem
leigðir eru út og mikill hluti
þeirra er i eigu bænda. Verulegt
átak hefur verið gert i Noregi og
Sviþjóð ti! að örfa bændur til að
byggja sumarbústað. Einnig til
að bæta aðstöðu til að taka á
móti ferðamönnum á heimilum
i sveit. 1 nefndarálitinu var lögð
áhersla á að taka upp viðtækara
samstarf en verið hefur milli
bændasamtakanna til að auð-
velda bændafólki að taka þátt i
hópferðum, til að kynnast
stéttarbræðrum og systrum á
hinum Norðurlöndunum.
Næsti fundur á Islandi
Miklar umræður urðu á fund-
inum um öll þessi mál. Mikil-
vægt er að fulltrúar bændasam-
takanna beri saman bækur sin-
ar, læri af reynslu hvers annars
og ekki sist að skapa aukin
tengsl milli bændasamtakanna,
sem m.a. hafa þó leitt til auð-
veldari sölu á landbúnaðaraf-
urðum milli landanna.
Næsti aðalfundur NBC verður
haldinn á Islandi um mánaða-
mótin júli-ágúst næsta sumar að
Laugarvatni.
Forseti var kosinn Sveinn
Tryggvason, framkvæmda-
stjóri Framleiðsluráðs landbún-
aðarins, og aðalritari Agnar
Guðnason, blaðafulltrúi bænda-
samtakanna.
(Heim.: Uppl.þjón. landb.)
— mhg
holunum, flýgur á ljós bæjarins,
þegar dimma fer á kvöldin. Hún
virðist fremur illa alin, mögur og
rytjuleg. Geta menn sér þess til,
að ætið hafi verið það langt
undan, að þegar lundinn kom með
það heim hafi hann verið svo
uppgefinn að ránfugl hafi átt hægt
með að ná þvi af honum, — eða
hafi verið orðinn það svangur, að
hann hafi etið það sjálfur. Þannig
er lifið hjá mörgum, mönnum og
málleysingjum: eilift strit.
Gjöld bæjarsjóðs Vest-
mannaeyja
Gjöld bæjarsjóðs Vestmanna-
eyja, sem nú eru gjaldfaliin og
ógreidd nema 288 milj. kr. Þar af
eru gjöld til bæjarsjóðs frá fyrra
ári að upphæð kr. 76 milj. Þetta er
stór upphæð og má teljast krafta-
verk hvernig bærinn hefur getað
staðið i stór framkvæmdum i allt
sumar. Vonandi fer að rætast úr
fyrir fólki og fyrirtækjum, svo
bæjarsjóður geti fengið sitt.
Mörg verkefni eru nú fram-
undan og hugur i hinum nýju
_ I
■
Umsjón: Magnús H. Gíslason |
bæjarfulltrúum að láta sitt ekki
eftir liggja, hvað sem liður
aðdróttunum um þegjandahátt
vinstri fulltrúa, en það er einn
liðurinn i áróðri Sjálfstæðis-
manna. Þeir eru nú orðnir
munaðarleysingjar, tetrin, eiga
ekki sæti i rikisstjórn og sviður
það sárt.
Nýir //Sópar"
Nú er blessuð rikisstjórnin
komin á laggirnar, ráðherra-
stólar skipaðir og þó að sumir tali
um reynsluleysi hinna nýju
manna er ég persónulega harð-
ánægður a.m.k. með mina menn,
þótt ég harmi, að Lúðvik Jóseps-
son skuli ekki vera með. Anægð-
astur er ég með Svavar Gestsson
og gott var að fá Ragnar Arnalds I
menntamálin, þann skelegga og
vel gefna mann. Hjörleifur
Guttormsson mun áreiðanlega
skipa sinn stól með sóma. Þó að
við nafni minn, Magnús H. Magn-
ússon, séum ekki á sama báti i
pólitikinni vil ég láta hann njóta
sannmælis, hann er vel gefinn
maður og duglegur. Ég vil þvi
óska honum til hamingju með
stólinn.
Það var bara gott hjá óla karl-
inum Jó er hann sagði I útvarps-
viðtali: Nýir „sópar” sópa best.
Þetta mun vera nýtt innlegg i
málsháttasafn okkar, að ég hygg.
mj/mhg
Þurrkaður harðviður
Einnig fyrirliggjandi hnota, japönsk eik
og oregon pine. Harðviðargólflístar fyrir
parket. Sendum i póstkröfu um allt land.
HÖFÐATÚN4 2 - REYKJAVÍK
Sími: 22184 (3 linur)
Blikkiðjara
Ásgarði 7, Garðabæ
önnumst þakrennusmíði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíði.
Gerum föst verðtilboð
SIMI 53468